Alþýðublaðið - 15.11.1955, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 15.11.1955, Blaðsíða 4
4 Alþýgublagjg Þriðjudagur 15. nóv. 1955. Útgefandl: Alþýðuflok\ttriun. Ritstjóri: Helgi Scemundsson. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsso*. Blaðamenn: Björgvin Guðmundssou og Loftur Guðmundsson. Auglýsingastjóri: Emilía Samúelsdóttir, Ritstjórnarsímar: 49Q1 og 4902. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslustmi: 4900. Alþýðuprentsmiðjan, Hverfisgðtu 8—10. 'Ásþriftarverð 15j00 á minuðl. í lausasðlu ljOO. Gunnar og Laxness MORGUNBLAÐIÐ kallar það kjánalegt nudd af Al- þýðublaðinu að gagnrýna ríkisstjórnina og aðra opin- bera aðila fyrir að sýna ekki Halldóri Kiljan Laxness ■ heimkomnum sem Nóbels- verðlaunahöfundi tilhlýði- legan sóma. En Alþýðublaðið er ekki eitt um þessa af- stöðu. Morgunblaðið ætti að líta sjálfu sr nær og fara var lega. Bæjarstjórn Reykjavíkur kunni sig ekki í þessu sam- bandi fremur en ríkisstjórn- in. Fulltrúi hennar sást ekki við móttökuna, en forseti bæjarstjórnarinnar mun hafa sent Laxness blómvönd rétt eins og einhver skrifar- inn í bæjarstjönarskrifstof- unum hefði gengið í hjóna- band eða átt sæmilegt af- mæli. Þessi yfirsjón verður þó ekki færð á reikning Gunnars Thoroddsens borg- arstjóra. Hann kom heim frá útlöndum með Gullfossi í sömu ferð og Halldór Kiljan Laxness og átti hér þess vegna engan hlut að máli. Það var illa farið, því að Gunnar er kurteis maður og, kann ágætlega að koma fram við hátíðleg tækifæri, en auk þess listrænn og vel lesinn í góðum bókmenntum, en slíkt hefur hingað til tal- izt undantekning í innsta hring Sjálfstæðisflokksins, þó að Almenna bókafélagið breyti þeim. viðhorfum von- andi til batnaðar, þegar fram líða stundir. Gunnar Thoroddsen blygðaðist sín fyrir framkomu starfs- manna sinna í bæjarstjórn- inni og taldi sér skyltaðbæta fyrir mistök þeirra. Það hef- ur hann gert með því að efna til skemmtifundar í Norræna félaginu til heiðurs Nóbelsverðlaunaskáldinu, en Gunnar er formaður félags- ins. Þetta sýnir, að Morgun- blaðið er sem betur fer ekki einhlítur mælikvarði á menn ingarstig einstakra Sjálf- stæðismanna. — Gunnar Thoroddsen telur gagnrýni Alþýðublaðsins svo sjálf- sagða, að hann hlutast til um að bæta fyrir mistök þeirra, sem áttu að gæta sóma höfuðborgarinnar í fjarveru hans og kunnu sig ekki eða létu stjórnast af hvötum Morgunblaðsins. Og drengileg framkoma borg- arstjórans er hæfilegt svar við þeirri niðurstöðu Morg- unblaðsins, að gagnrýni Al- þýðublaðsins á ríkisstjórnina og aðra opinbera aðila í til- efni af heimkomu Halldórs Kiljans Laxness sé kjánalegt nudd. Morgunblaðinu væri sæmst að haga sér svo sið- mennilega, að foringjar Sjálfstæðisflokksins eins og Gunnar Thorodsen þurfi ekki að bera kinnroða fyrir orð þess og afstöðu. I V s s s s s s s s s s V s s \ s s s 5 Misheppnað fyrirtœki FRÁ því hefur verið skýft opinberlega, að sendur hafi verið af fræðslumálastjórn- inni í framhaldsskólana listi með á milli þrjátíu og fjöru- tíu spurningum varðandi á- fengisneyzlu. Plagg þetta kvað samið að frumkvæði aðila, sem hafa áfengisvarn- ir á hendi, en fyrirtækið er sorglega misheppnað. Hér er svo langt gengið, að ungling arnir í framhaldsskólunum eru spurðir þess, hvort þeir drekki í einrúmi, hvort þeir fái taugatitring, meðan þeir haldi áfram að drekka, og hvort drykkjan dragi úr kyn hvötum þeirra, svo að nokk- ur dæmi séu nefnd. Þetta er með öðrum orðum þvílíkur ósómi, að jafngagnmerkur skólamaður og bindindis- frömuður og Pálmi Hannes- son rektor segist ekki óvirða nemendur sína með því að leggja aðrar eins endemis- spurningar fyrir þá. Slíkt ættu aðrir skóla- stjórar einnig að gera og fræðslumálastjórnin að koma í veg fyrir aðrar eins sendingar í skóla landsins framvegis. Svona bindindis- starf er í senn hætta og hneyksli. Gerlst áskrifendur blaðslns. Alþýðublaðið KVIKMYNDAÞATTU VISTAVISION heitir nýj- ung í töku og sýningu kvik- mynda, sem Paramount kvik myndafélagið hefur tekið upp. Telur félagið þetta beztu fáanlega lausn frá sinni hendi á vandamáli því, sem upp hefur risið í sambandi við breiðtjöld og þrívídd í kvikmyndum. Fyrsta mynd félagsins með þessu sniði, „White Christmas“, hefur fárið mikla sigurför um Ameríku þvera og ehdilanga og verð- ur sýnd sem jólamynd hjá Tjarnarbíó. Aðalhlutverkin leika Bing Crosby, Danny Kaye og Rosemary Clooney. s|c # _ :J: ‘r „Sjö bruðir handa sjö. bræðrum," h§itir, ný söngva-. mynd frá M-G-M féla'ginu. Myndin héfur fengið frábæra dóma og segja gagnrýnendur um hana að hún sé bezta mús íkmynd, sem framleiðendur Vesturlanda hafa látið frá sér fara, enda hefur myndin far- ið sigurför hvar sem hún hef- ur verið sýnd. * * * Bob Hope segir stundum eftirfarandi sögu af sér og Eisenhower Bandaríkjafor- seta: — Það var á stríðsárunum að við hittumst eitt sinn á golfvelli, Eisenhower hers- höfðingi og ég. Þar sem mér var kunnugt um að ein helzta ánægja hans var að leika golf bauð ég honum út, en stóð mig illa og tapaði. Daginn eft ir lékum við aftur og nú voru peningar lagðir undir. Mér tókst upp í þetta skipti og um leið og harin borgaði mér sagði hann þurrlega: — Því gátuð þér ekki leik- ið svona vel í gær? * Ameríka er það land, sem hefur nú flest kvikmyndahús með cinemaseope fyrirkomu- Iagi á sýningum, en frændur okkar Norðmenn fylla með prýði annað sæti og hafa helmingi fleiri kvikmynda- hús þar tekið upp þetta fyr- irkomulag en í Danmörku og Svíþjóð samanlagt. Úr myndinni „Sjö brúðir handa sjö bræðrumr* Þýzk miðlunarskrifstofa fyrir hjónabönd hefur nú tekið kvikmyndavélina í þjónustu sína. Eru teknar nokkurra mínútna myndir af því, sem á boðstóláum er, til að sýna viðskiptavininum væntanlega. Ekki er okkur kunnugt um hvort teknar eru myndir af stúlkunum við matseld ,eða bara frá ýmsum hliðum. * * * James Dean er látinn. Það er sjaldgæft að alheimssorg verði þegar aðeins 24 ára gamall maður deyr, en svo varð í þetta sinn. James Dean hafði nú seinast getið sér ó- dauðlegan orðstír fyrir leik sinn í myndinni „East of Ed- en“, eftir samnefndri skáld- sögu Steinbechs. Kvikmynda heimurinn hefur vafalaust misst með honum einn mikil- hæfasta leikara seinni tíma, en starfsdagur hans var því miður aðeins rétt að byrja. í Englandi fer nú að hefj- ast upptaka á mynd eftir barnaleikriti Kirsten Wox- holdt og Kaare Hegel, „Mána rakettan“. Börnin, sem leika í myndinni, verða öll norsk, þar eð bannað er með lögum í Englandi að láta innlend börn leika í kvikmyndum. :J« $ :*: Norðmenn framleiddu í fyrra 17 nýjar kvikmyndir, en aðeins 4 í ár. % % % Franski kvikmyndaleikar- inn Gerard Philippe er um þessar mundir staddur í Moskvu, í sambandi við franska kvikmyndaviku, sem þar var haldin. Hann hefur verið umkringdur allan tím- ann af söfnurum rithanda- sýnishorna og aðdáendum og segir hann að sig hafi aldrei órað fyrir svo stórum aðdá- endahóp í Rússlandi. Rúss- neska gagnrýnin hefur hinar frönsku kvikmyndir, sem sýndar hafa verið, til skýj- anna, en segir jafnframt að það sé mikill munur á þeim og amerískum, sem séu fyrir neðan allar hellur. ❖ ❖ ❖ Og nú er Filmia að hleypa af stokkunum vetrarstarfsemi sinni í þriðja sinn. Við ósk- um félaginu fararheilla og væntum alls hins bezta á komandi vetri. A ,S- s Á ?;s s s s s s s s s s s s s s s s s s s V s s s s s s s s s s s s s s s s s ,s s David C. Williams HIÐ ALÞJÓÐLEGA Bræðra samband Flutningaverkamanna fjölmennasti félagsskapurinn í AFL, —: bandaríska verkalýðs- sambandinu, — hefur fyrir skömmu opnað aðalstöðvar sín. ar í Washington. Enda þótt vörubílstjórarnir séu fjölmenn" astir í samtökunum, eru þarna flutningamenn, sem vinna við vörugeymslur og ýmiss hin ólík ustu fyrirtæki, og eiga fátt sam eiginlegt annað en það, að starf þeirra allra er að meira eða minna leyti í sambandi við flutninga. Undir forustu hins dugmikla og framsækna for- seta, Dave Beck, er samband þetta að verða eitt hið sterkasta meðal verkalýðssamtakanna bandarísku, og hefði ekki verið þar um svæsnar innbyrðis deil ur að ræða, mundi það orðið á- hrifamesti verkalýðsfélagsskap- urinn hér vestra. Flutningamennirnir hafa ekk ert til sparað að gera þessa byggingu sína sem veglegasta, — hvítur marmari fyrir fimm milljónir króna, þiijur úr fág- uðum valdhnotuviði og mahog- ný: Vígslan fór fram með hinni mestu viðhöfn og Eisenhower sendi heillaóskaskeyti, en.kon- ur sambandsforkólfanna hlutu orkidíuvendi að gjöf í tilefni hátíðarinnar. SÓKNIN TIL WASH- INGTON. Vígsla þessi vakti athygli manna á því fyrirbæri, sem gerst hefur og er að gerast í Washington í sambandi við verkalýðssamtökin. Hvert verkalýðssambandið eftir ann- að hefur að undanförnu reist hverja stórbygginguna af ann- arri í Washington, eða hefur í undirbúningi að reisa þær, svo að stjórnarbyggingarnar einar munu þeim meiri, enn sem kom ið er. Þarna er ekki aðeins um þau sambönd að ræða, sem um lengri eða skemmi tímabil hafa haft aðalstöðvar sínar í Wash- ington, og sum hver setið í göml um byggingum, en byggt sér nýjar • á undanförnu-m árum, heldur og þau, sem haft hafa aðsetur sitt annars staðar; í Bandaríkjunum, en flytjast nú til - Washington. Flutninga- mannasambandið hefur áðúr haft- aðsetur sitt í Vesturfylkj- unum, en nú er ekki -nema ör- skots spölur frá aðalstöðvunum til stjórnarráðsbyggingarinnar. Á SJÁLFUM VÍGSTÖÐV- UNUM. í ræðu, sem George Meany flutti við vígsluna, benti hann á mikilvægi þessarar breyting- a. Verkalýðssamtökin sæktu til Washington, þar sem þau gætu verið á sjálfum stjórnmálavíg- stöðvunum, en þetta þýddi um leið, að þau sæktu til aukinna áhrifa á vettvangi bandarískra (Frh. á 7. síðu.) ,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.