Alþýðublaðið - 04.12.1955, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 04.12.1955, Blaðsíða 5
mon ,GANGVIRKIÐ gerist i Reykjavík á útmánuðum 1940. Höf- undurinn lætur ungan mann, Pál Jónsson, segja söguna. Hann er alinn upp hjá ömmu sinni á Djúpafirði í guðsótta og góð- um siðum, vandaður piltur til orðs og æðis, ,draum]yndur og rómantískur, en ákaflega barnalegur. og heldur •ístöðulítill. Hann hefur gefizt upp við nám, sumpart vegna fátæktar, sum- part vegna þeirrar ringlunar sem styrjaldarfréttir utan úr heimi hafa valdið í hug hans, en auk þess er hann orðinn ást- fanginn af laglegri stúlku. Tilviljun ræður því, að hann gerist blaðamaður og verður dag hvern áð rannsaka samvizku sína um það, hvort hann eigi heldur að hlýða ritstjóranum, Val- þóri Stefáni Guðlaugssyni, eða fara eftir þeim kenningum, sem amma hans sáluga hafði innrætt honum. Hann velur þann kost að vera jafnan algerlega hlutlaus. „Gangvirkið“ er jöfnurn hóndum ástarsaga ungs manns á erfiðum tímu og kímin ádeilu- saga. smásögur eftir Ölaf Jóh. Sigurðsson Viðurkennt er að skáldsagnahöfundurinn Ólafur Jóh. Sigurðsson er jafnhliða einn snjallastur þeirra, sem nú rita smásögur á íslenzka tungu, og liggja eftir hann þrju smásagnabindi, Kvistir í altarinu, Teningar í tafli og Speglar og fiðrildi, svo að Á Vegamótum verður hið fjórða í röðinni. Þær sögur sem hér birtast bera snilldareinkenni höfundarins að stíl og máli, en eru jafnframt þrungnar inntaki líðandi tíma, og hefur höf- undir kosið að láta þær og skáldsögu sína, Gangvirkið, fylgjast að til lesenda. BÆKURNAR FÁST í ÖLLUM BÖKAVERZLUNUM HEIMSKRINGLA Sunnudagur 4. desember 1953. AlþýSubíagtg m e B * r. v *i * e k »i *> *i ii b *i i! u a.s a Kaupið merki Flugbjörgunarsveifarinnar Sölubörn komiö I Austurstræti 9 klukkan 10 f. h í dag. Læknir, hjálpa þú mér Endurminningar Maxwetí Malfz fegrunariæknis Maxwell Maltz er einn af frumhverjum nýrrar greinar læknavísindanna og er í dag heimskunnur fyrir afrek sín á sviði skapnaðarlækninganna. - ❖ * Maxwell Maltz er einn af frumherjum nýrrar út í bókarformi undir nafninu „Læknir, hjálpa þú mér“. Bók þessi hefur hlotið feikna vinsældir og verið þýdd á mörgum tungumál, enda er frásögn Maltz áhrifamikil og bráðskemmtileg aflestrar þótt um viðkvæm mál sé fjallað. Inn í lýsingar um bar- áttu skapnaðarlæknisins til þess að bæta grimm ör- lög sjúklinganna, er fléttað fjörugum og hisþurs- lausum frásögnum úr ævintýralegu lífi læknisins . sjálfs. *. ... vs*--? * * LÆKNIR, HJÁLPA ÞÚ MÉR, er fíigur og sönn bók, sem er í senn góð gjöf og óvenjuskemmtilegt lestrarefni. Bókfellsútgáfan Bazar kvenfélags Hallgrímskirkju HÉR í BÆNUM er orðinn til fjöldi kvenfélaga, sem hefur það sérstaka verkefni að styðja eitthvert ákveðið málefni og afla fjár til framkvæmda. Er ekki hallað á neinn, þótt 'sagt sé, að Kvenfélag Hallgríms- kirkju sé með duglegustu kven félögum borgarinnar og starf þess ómetanlegur stuðningur við málefni kirkjunnar. Hefur það gefið stórgjafir til kirkj- unnar hvað eftir annað, svo sem kunnugt er, og hefur ávallt eitt- hvað nýtt á prjónunum. Ymsar leiðir hafa slík félög • sem þessi til fjársöfnunar. Jafn ■ an hefur almenningur brugð- izt vel og drengilega við. Sú fjársöfnunar-aðferð, sem er einna merkust, að mínu áliti, : er bazar. Þar er engum boðið . upp á að gjalda verð fyrir óséð- an hlut og allir eru vissir með að fá eitthvað fyrir fé sitt. Stuðningur kaupandans er í því fólginn að verzla fremur þar en annars staðar, þennan dag, ■ sem „búðin“ er opin. En gefend urnir, bæði karlar og konur, eiga miklar þakkir fyrir það, sem þeir láta af hendi, til þess að allt geti orðið sem bezt úti- . látið. Kaupmenn brjóta stúnd- 1 um lögmál samkeppninnar .með því að gefa „keppinautnum“ vörur til að selja við lægra verði en þeir selja þær sjálfir, og er slíkt drengilega gert, En mesta fórnfýsi sýna konurnar, sem vinna vikum og mánuðum saman að því að prjóna, sauma eða hekla sitt af hverju, sem síðan er selt á bazarnum. Fyrir skömmu kom ég heim til gamallar konu hér í bænum. Hún er blind, sér aðeins bjárma fyrir sólinni, þegar hún kemur upp. En hún var búin að prjóna í myrkrinu heila hrúgu af vett hngum og leistum, sem hún hafði hugsað sér að gefa á bazar kvenfélags Hallgrímskirkju. Þeim hlýtur að verða hlýtt á höndum, sem bera glófana frá henni. Og þó var mest um það vert að finna þá hlýju lífsgleð- innar, sem bjarmaði frá andliti gömlu konunnar. Sú lífsgleði á sér að uppsprettu einlæga,1 kristna trú, sem endurnærist meðal annars af Hallgrímssálm um. — Eg nefni þessa konu sem dæmi þess, hvernig þjónusta við málefni heilagrar kirkju sprett ur af þakklæti mannshjartans til hans, sem er kirkjunnar , drottinn. En þetta er aðeins eitt dæjni af mörgum. Ég vona, að Reykvíkingar, nú sem fyrr, meti að verðleik- um viðleitni kvenfélagsins til . að þjóna göfugu málefni með svo hversdagslegum hlut sem . hazar, og .ég þakka öllum, sem hver á sinn hátt leggja fram sinn skerf. Jakob Jónsson. OB ] Dr. jur. Hafþór 1 Guðmundsson ■ « Málflutningur og Iðg- ; fræðileg aðstcð. Austur- 2 stræti 5 (5. hæð). — Símd : 7268. {■ nnnntiaa^

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.