Alþýðublaðið - 24.01.1956, Síða 3
Þriðjudagur 24. janúar IH56
Atþ ýðu b taðio
»
Morandi af kakkaíökkum í fangelsinu
NORSKIR SJÓMENN t FANGELSI í IRAK VÍG-
GIRTU DYRNAR OG SVÁFU TIL SKIPTIS.
NÝLEGA komu til Noregs ^
tveir ungir norskir sjómenn, '
sem höfðu frá furðulegum at-1
burðum að segja sem höfðu1
drifið á daga þeirra. Þeir höfðu
nýlega verið látnir lausir úr j
fangelsi í Basra í írak, sem!
þeir höfðu setið í í þrjá mán-
uði. Sögðu þeir ljóta sögu úr
fangelsinu og létu illa af að-
búnaðinum. Annar piltanna
hafði látið mjög á sjá, hafði
létzt um 20 kílógrömm á þess-
um þrem mánuðum, enda sýkzt
af taugaveiki í fangelsinu.
KYNVILLTIR ÁRÁSARMENN
í júní s.l. lá norska skipið
William í höfn í Basra. Þrír
piltar af áhöfninni brugðu sér
í land til að sjá sig um. Þeir
hittu fjóra Araba, sem buðu
þeim í bílferð til skemmtistaðar
nokkurs. í staðinn óku Arab-
arnir út úr bænum, og nú fór
norsku sjómennina að gruna
margt. Þeim varð brátt ljóst,
að þeir höfðu lent í hópi kyn-
villínga. Þeim tókst að komast
út úr bílnum, en Arabarnir eltu
og réðust á þá. Varð atganguf
allharður, en Norðmönnunum
tókst loks að slíta sig lausa og
komast undan. Síðar kom í Ijós,
að einn af árásarmönnunum
hafði Iátizt af barsmíðum. Norð
mennirnir og Arabarnir voru
handteknir litlu síðar og kall-
aðir fyrir rétt. Einn Norð-
mannanna, sem tekizt hafði að
flýja áður en til handalögmál-
anna kom, fékk viku fangelsis-
dóm, en hinir tveir voru dæmd
ir í tveggja ára fangelsi og gert
að greiða ættingjum hins látna
Araba 12 000 norskar krónur.
Árásarmennirnir voru dæmdir
í 5 ára fangelsi. Höfðu þeir oft
komizt í kast við lögregluna og
setið í fangelsi.
SVÁFU TIL SKIPTIS
Nú hófst fangelsistíminn.
Fyrst voru þeir geymdir í fang-
elsi, þar sem aðbúðin var hin
hraklegasta. Ýmsir stórglæpa-
menn sátu þar í klefunum. Ar-
abarnir, sem höfðu ráðizt á
Norðmennina, voru settir í
sömu deild og þeir og æstu upp
meðfangana gegn Norðmönn-
unum. Norsku sjómennirnir
neyddust til að slá slagbrandi
fyrir klefadyrnar og sofa í vökt
um á næturnar. Þarna var sam
eiginlegt bað fyrir fangana, en
það þorðu þeir ekki að nota.
Þeir reyndu það einu sinni, og
mátti þá litlu muna, að þeir
kæmust lifandi úr þeim leik.
Megn óþrifnaður ríkti í fang-
elsinu. Þar úði og grúði af 10
sentimetra löngum kakkalökk-
um. Matur var vondur.
TRYLLTUR MÚGUR
Brezki konsúllinn í Basra,
serrí einnig er norskur konsúll,
skarst í málið, útvegaði piltim-
um fyrst mat og vann síðan að
því að fá þá lausa úr fangels-
inu. — Sjómannasambandið
norska leitaði til utanríkisráðu
neytisins, sem tók nú málið upp
á sína arma og loks kom sá dag
ur, að sjómennirnir máttu yfir-
gefa fangelsið. Héldu þeir nú
raunir sínar á enda. En úti fyr-
ir fangelsisdyrunum beið þá
mikill mannfjöldi, sem hrópaði
til þeirra og hótaði að drepa þá.
Með lögregluvernd tókst brezka
konsúlnum að koma þeim und-
an og út í skip, sem bar þá til
Noregs.
Eg þakka af hrærðum huga. alla þá miklu samúð, sem mér..
börnum og tengdabörnum hefur verið sýnd við andlát og jarfi-
arför eiginmanns míns,
AÐALSTEINS PÁLSSONAR SKIPSTJÓRA.
Elísabet Jónasdóttír,
börn og tengdabörn.
KROSSGATA.
Nr. 960.
ÍHANNES Á H O R N I N U' j
VETTVANGUR DAGSINS
Varðaði almenning ekkert um það? — Hvernig á
að afla f járins? — Tekjuafgangurinn — Vitlaus ís-
landsklukka — Dýrt að búa til einn jakka.
RÍKISSTJÓRNIN gaf út til-
kynning um að hún væri búin
að finna lausn á vandamálum
vélbáta- og togaraútgrerðarinnar.
Hver bátur og hver togari eiga
að fá ákveðna fjárupphæð i
styrk á úthaldsdag. Fregnin um
þetta flaug’ eins og eldur í sinu
um borgina á laugardag, enda
hafði mönnum þótt heldur svart
í álinn, þar sem vélbátaflotinn
var stöðvaður og togaraflotinn
var í þann veginn að stöðvast.
ÚTGERÐARMÖNNUM — og
raunar fleirum — lék vitanlega
mikil forvitni á því, að fá að
vita, hvernig ætti að tryggja á-
framhaldandi rekstur þessa
grundvallaratvinnuvegs þjóðar-
innar, en almenningi lék ekki
Síður forvitni á að fá að vita,
hvernig ætti að afla fjár til
björgunarstarfsins. Hins vegar
yar ekki drepið á það einu orði,
hvar ætti að taka féð. Almenn-
íng varðaði víst ekkert um það.
ÞF.TTA ER ef til vill fremur
illgirnisleg tilgáta. Vel má vera,
að ríkisstjórnin hafi ekki verið
búin að finna leiðir til þess að
afla fjárins, en hins vegar talið,
að þær yrði hægt að finna og
því óhætt að lofa þvi nú þegar,
að útveginum yrði bjargað, svo
að reksturinn gæti haldið áfram.
EN NÚ SPYR almenningur:
Hvernig á að afla fjárins. Ég
veit ekki, hvort ríkisstjórnin
veit það enn með vissu. En það
mun vera staðreynd, að nýr
söluskattur verði lögleiddur og
það þýðir vitanlega, að allar
þær vörur, sem skatturinn nær
til (allar?) hækka i verði. O-g
allir vita, hvað það þýðir.
EN AF ÞESSU TILEFNI spyr
fólkið: Þarf að auka álögurnar?
Ef til vill finnst sérfræðingum
í eyðslu og ríkisbúskap þetta
vera einfeldnislega spurt. En al-
menningur veit, að í fvrra hafði
ríkisstjórnin allt að 100 milljón-
ir króna í tekjuafgang og að í
ár nemur tekjuafgangurinn tug-
lim milljóna. Er ekki hægt að
nota þennan tekjuafgang til þess
að mæta skakkaföllum eins og
þeim, sem aðalatvinnu-vegir þjóð
árinnar hafa orðið fyrir, því að
skakkaföll eru það?
ÞAÐ ER sannarlega ekki óeðli
legt, þó að fólkið spyrji. Því hrýs
hygur við þcssu óþolandi á-
standi. Allt er á hverfanda hveli
— og það er eins og menn sjái
ofan í hyldýpið við fætur sér,
ekki sízt nú, þegar aðalatvinnu-
vegirnir berjast í bökkum og
ríkisstjórnin verður að leggja á
nýjar álögur til bjargar, sem
hafa það i fór með sér, að dýr-
tíðin vex enn að mun.
„KLUKKAN í Stýrimanna-
skólanum er alltaf snarvitlaus
j og auk þess ljóslaus," segir ná-
granni í bréfi til mín. „Hún hef-
ur alltaf verið vitlaus við og við.
Og svo kalla sumir þessa for-
smán íslandsklukku. Er engin
leið til þess að hægt sé að gerJi
j þessa lclukku þannig úr garði,
np hún sé ekki fólki til hugar-
'angurs?
j V.G. SKRIFAR: „Mig langar
lað senda þér svolítinn reikning,
Hannes minn. Hann er gaman-
samur og þó sýnir hann, hvernig
i allt er hjá okkur Ísíendingum.
Sonur minn fór í siglingar í
fyrra sumar. Hann keypti sér
mjög fallegt efni í sumarjakka.
Efnið kostaði nokkrar ltrónur.
Þegar heim kom fekk hann klæð
skera til þess að sauma úr efn-
inu jakka.
REIKNINGURINN leit þann-
ig út: Saumalaun kr. 668,90. —
Fyrir að sauma úr efni, sem
klæðskermn seldi ekki: kr. 100,
00(!) — Tillag: Kr. 140,00. —
Söluskattur, 3%: kr. 27,00. —
Samtals kr. 935.90. — Þannig
kostaði um 900 krónur að búa
til flík úr efni, sem kostaði um
35 krónur. Hefurð.u noklturn
tíman heyrt annað eins, Hannes
minn?“
O, JÁ, ég hef heyrt annað eins,
en varla þó neitt svona ljótt.
Ilannes á horninu.
/ 2 j V
r í ?
« 4
U ii tz
ÍJ /V IS
lí b L
1 "
Lárétt: 1 bítast, 5 fjöldi, 8 ylja,
9 ull, 10 mannsnafn, 13 leit, 15
annars, 16 illgresi, 18 spurði.
Lóðrétt: 1 heiðursmerki, 2
líkamshluti, 3 mannsnafn, 4
Verzlun, 6 á hesti, 7 fargar, 11 á
andliti, 12 vont, 14 púki, 17
greinir.
Lausni krossgáíu nr. 959.
Lárétt: 1 ýsuroð, 5 Rask, 8
auðn, 9 te, 10 röng, 13 Ok, 15 (
rall, 16 sýna, 18 rautt.
Lóðrétt: 1 Ýrafoss, 2 Spur, 3
urð, 4 ost, 6 Anna, 7 kelli, 11
örn, 12 glit., 14 kýr, 17 au.
Áugíýsíng.
Til sölu nýleg LISTER
bátavél 16 hö. þungbyggö.
Vélin er lítið notuð og' í
góðu lagi.
Nánari upplýsingar gefur
Gunnar Björnsson, sími
Ólafsfirði.
ÚlbreiSiS AlbýðublsSií
w
• s
_ rÓ
Æk.i
U V/O AVMÁPHÓL.
>
s
s
s
S
S
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
c
Samtök herskálabúa.
, Félagsfundur verður haldinn í Breiðfirðingabúð í kvöld
kl. 8,30.
Fundarefni: Félagsmál.
Erindi: Guðmundur Kristinsson arkiTekt.
Herskálabúar fjölmennið og takið með ykkur nýja fé-
laga.
Stjórnin.
Ritarastarf
í Vegamálaskrifstofunni er laust til umsóknar. Vélritur-
arkunnátta og nokkur tungumálaþekking nauðsynleg.
Laun samkv. launalögum.
LTmsóknir sendist samgöngumálaráðuneytinu fypir 15.
febr. n.k.
Samgöngumálaráðuneytið.
Áðatfundur
Fiskimatsdeildar S.M.F.
verður haldínn fimmtuclaginn 26. janúar í Sjálf-
stæðishúsinu í Reykjavík kl. 20.30.
DAGSKRÁ:
1. Lagabreytingar.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
Áríðandi að félagar fjölmenni.
Stjórnin .
Sólar-kaffi
- fagnaður ísfirðingafélagsins verður miðvikudagskvöld
25, þ. m. klukkan. 3.30 í Sjálfstæðishúsinu.
Bæjarins beztu skemmtikraftar.
Aogöngumiðar verða seldir á þriðjudag kl. 2—7 e. h.
Borð tekin frá um leið.
Bezta og ódýrasta skeinmtuu ársíns.
- og
skrifsfofusfarf.
Ung stúlka nieð gagnfræðapróf eða hlíðstæða mennt-
un ú&kast til afgreiðslu- og skril'stofustarfa á opinbera
síofnun. ■— Laun samkv. 14. fl. launalaga.
Eigínhandarumsókn, er tilgreini menntun og fyrri
síörlV sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 2:8. þ. m. merkj
.,afgreiðslustarf.“
I