Alþýðublaðið - 24.01.1956, Síða 5

Alþýðublaðið - 24.01.1956, Síða 5
í>riðjudagur 24. janúar li)5f* AlþýSublaSiS Lífið í Reykjavík UNDANFARNA DAGA hef- ur skákáhuginn verið gullæð í gráu bergi Reykjavíkur, svo að notuð sé samlíking frá Stefan sáluga Zweig og hún staðfærð. Hundruð manna hafa þyrpzt í Sjómannaskólann til að fylgj- ast með skákeinvígi Bents Lar- sens og Friðriks Ólafssonar, og þó eru erfiðir tímar: bátaflot- inn stöðvaður, útsvarsafgang- urinn fallinn í gjalddaga, skatt urinn lögtakskræfur og alþingi í vandræðum með afgreiðslu íjárlaganna. En allt þetta gleym ist, þegar mæddur og langþreytt tir höfuðstaðarbúinn einbeitir skilningarvitum sínum að því ^ð upplifa viðureign skákgarp- anna sem persónulega revnslu. Manntaflið er orðið Reykvík- ingum annað líf í þessum heimi. Mursferi þagnarmnar Keppinautarnir sitja við skák Iborðið á upphækkuðum palli og grúfa sig yfir taflið í þungum þönkum, Bent dökkhærður og foúlduleitur, rjóður í kinnum af hita og kappi, Friðrik grann- vaxinn og langleitur, ljós á hár ög fölur yfirlitum eins og al- Vara leiksins setji blæ á andlit- jð. Áhorfendurnir stara ýmist á Bent og Friðrik eða veggtafl- ið góða, sem sýnir stöðu og íeiki, allir eru lágmæltir eins og í kirkju, hvíslast á og láta augnaráðið og svipbreytingarn- ar túlka hugsanir sínar, því að hér skal kyrrðin ríkja, skáksal- urinn er ekki vettvangur orð- Iræðunnar heldur musteri þagn ar og ígrundunar. Aðgöngu- miðasalan er hætt í svip, gest- írnir reynast svo margir að út- hýsa verður þeim, sem síðastir koma. Fólkið leitar upp eftir húsinu líkt og vatn í flóði, þröngin í skáksalnum er eins og á jólatrésskemmtun, en uppi á næstu hæð er skákin sýnd og útskýrð. Þa*r ráða Guðmundur Arnlaugsson, Ingi R. Jóhanns- son og Guðmundur Pálmason rikjum, meðtaka leikina í síma, rekja gang baráttunnár, segja fyrir um atburði og spá úrslit- um. Jafnvel unglingurinn, sem lærði mannganginn í fyrra, menntast af að heyra mál þeirra og íylgist. með skákinni eins og stráksaslag milli Austurbæ- inga og Vesturbæinga. Úti í horni stendur sveitaprestur og virðir mannfjöldann fyrir sér fjálgum augum. Kannski bregð ur honum við frá kirkjusókn- inni í dreifbýlinu? Reykvískur þverskurðyr Áhorfendurnir í skáksalnum eru fólk af öllum stéttum og flokkum, gamlir, miðaldra og ungir, karlar, konur og börn, þetta er eins konar þverskurð- ur af reykvíska mannfélaginu. Bílstjórinn, sem ók mér heim í fvrrakvöld, situr þarna á bekk og hvessir augun á veggtaflið. Tveir kunnir læ.knar rökrsaða í hálfum hljóðum og benda eins og þeir séu að vísa ein- hverjum til vegar eða vekja at- hygli á fjalli, sem sprottið hafi upp úr jörðinni. Endurskoðandi og. stjórnarráðsfulltrúi komast að þeirri niðurstöðu eftir langa og nákvæma athugun, að svart- ur eigi kost á sex leikjum, og svo leikur Friðrik allt í einu þeim sjöunda eins og til að storka gáfuðum og menntuð- um borgurum. Rithöfundur sit- Munum Skálholt ur við hliðina á listmálara, en. af þeim dettur hvorki né drýp- ur vegna lamandi eftir- væntingar. Smáhópar mynd- ast utan um kunna skák- menn. sem bera saman bæk- ur sínar, en varast allar full- yrðingar til að valda ekki von- brigðum, forstjórinn og kenn- arinn. heildsalinn og verka- maðurinn, lögfræðingurinn og sjómaðurinn. skrifstofustiór- ! inn og sendisveinninn, bakar- inn og smiðurinn, þjónninn og I götuhreinsartnn eru komnir á vettvang til að sjá og heyra, allir vilja fræðast, enginn get- ! ur verið hlutlaus, hér er alvar- , an gaman og gamánið alvara, spurningin, hvort Norðurlanda meistaratitillinn verði til heim. ilis á íslandi eða í Danmörku fram á árið 1957, hefur komið Reykvíkingum úr andlegu jafn vægi. veggtaflið drekkur í sig athygli þeirra eins og brenni- glerið sólargeislana. Bent Lar- sen þykir úrræðagóður og hug- kvæmur skákmaður, viðurkenn ingin honum til handa vakir í I loftinu, en Friðrik á að sigra, j hann verður að vinna skálcina, j tilhugsunin um ósigur hans er fjarlæg og andstæð eins og föð- urlandssvik, staða hans hiýtur að vera betri, þó að á hann ! halli, og sókn af hans hálfu vek ur gleði og stolt eins og sigur- vinningur. Guð hjálpi þeim, sem dirfðist að dæma Bent Lar sen snjallari, sá fengi á svip- stundu sama dóm og ódreng- irnir í Islandssögunni. Nei, Is- land fvrir íslendinga, það er lóðið! Þófið og sfyjöldin Fjölmennið virðist lítil áhrif hafa á Bent Larsen og Friðrik Ólafsson. Þeir grúfa sig yfir skákina og gefa umhverfinu engan gaum. Taflborðið er eins ....----------- ÞYRILVÆNGJAN O G LISTASAFN.IÐ Þessi mynd er tekin við lendingaræfingar á Thamesfljóti i Lundúnum. Þyrilvængjan er eign brezka flugíélagsins BEA og turninn, sem hún virðist vega salt á, er hvelíing Tate- listasafnsins fræga. SJ ötugiir í dag: Lárus Frímannsson Dalvíl EINS OG MÖNNUM er kunn Ugt, hefur póst og símamála- stjórnin undanfarið unnið að því, að gerð yrðu sérstök fri merki í minningu um 900 ára afmæli biskupsdóms í Skálhoiti. Stefán Jónsson teiknari hefur dregið upp frímerkjamyndirn- ar og umgerðir um þær. Eru þær allar í þjóðlegum stíl. En frímerkin eru prentuð hjá Thomas de la Rue & Co. Ltd. London. Hefur gerð þeirra tek- izt mjög vel, enda ágætlega til hennar vandað. Frímerkin eru þrenns konar og með þeim verðgildum, er hér segir: Kr. 0.75 + 0.25, með mynd af Þorláki helga, Kr,- 1.25 -þ 0,75, með mynd Brynjólfskirkju í Skálholti. Kr. 1.75 -j- 1.25, með mynd af Jóni Vídalín. MYNDAMÓTIN. Mynd Þorláks er á altaris- klæði frá 15. öld. Mynd Skál- holtskirkju Brynjólfs er gjörð af erlendum manni árið 1772. Mynd Jóns Vídalíns er tekin eftir mynd .í Landsbókasaíni, en frummyndin er nú glötuð. Yfirverð frímerkjanna, kr. 0,25 -— 0,75 — 1,25, rennur allt til viðreisnar Skálholtsstað. og gæti sú fjárhæð alls numið 2 milljónum króna, ef öll þau frímerki yrðu keypt, sem þegar eru gjörð. Frímerki þessi gilda sem burðargjald fyrir allar tegur.d ir póstsendinga frá og með 2J. janúar 1956, þar til öðru vísi kann að verða ákveðið. Hver, sem kaupir þessi fií- merki, færir með því gjöf Skál- holtsstað, og safnast, þegar saman lftmur. Skyldu allir láta eitthvað af hendi rakna rneð þessum hætti og minnast þaun ig Skálholts og þess ljóss, sem þaðan hefur lagt á menning vora um liðnar aldir og varnað því, að þjóðin yrði úti and- lega. Reynsla síðustu ára hefur sýnt það, að mikill áhugi ríkir með íslendingum á því, að Skál holtsstaður rísi úr rústum En til mestrar giftu og blessunar verður sú endurreisn, ef þioð- in öll sameinast um hana. íslendingar hafa vissulega sýnt það fyrr, að þeir geta 0: ð- ið samtaka. Og myndi það r.kki verða enn, er þjóðarsómi býð- ur, að þér eigum eina sál. Munum það, að vér erum arf- takar hinnar fornhelgu, ís- lenzku kristni, merkisbera hennar og sögustaða. j Munum Skálholt, ung og ' gömul, og sýnum það í verkh jVér megum engin hugsa: Það munar ekki um mig né mina gjöf. Vér getum ekki heldur um það dæmt, hver gjöfin er stór og hver lítil. En það vit- um vér, að af framlagi heilum huga koma ljós in logaskæru á altari ins göfga Guðs. Ásmundur Guðmundsson. og land, sem um verður barizt af tveimur herjum, unz annar hvor sigrar, hér sést engin frið- ardúfa, og afvopnun kemur ekki til greina. Lengi vel rík- ir þó vopnaður friður. Hvor | fylkingin um sig reynir að treysta aðstöðu sína með úr- 1 slitaorrustuna fyrir augum. j Loksins hefjast svo smáskær- ur, peð drepur peð, riddari bisk up eða biskup riddara. Allt í einu geysast skriðdrekarnir fram á vígvöllinn til að skakka leikinn, hrók er rennt yfir borð eða drottning send þvert milli horna, mannfallið eykst á báða bóga, og bráðum eiga kóngarn- ir von á ónærgætni og jafnvel árásum, landamæraþófið er orð ið að heimsstyrjöld eins og tafl- borðið ráði úrslitum um fram- tíð stórvelda. En þegar taugar áhorfendanna eru í þann veg- inn að bresta af eftirvæntingu, fer skákin í bið. Veraldarmín- útan er liðin hjá og tilveran íslenzkur hversdagsleiki á ný. Þetta var íþrótt — æsandi og skemmtilegur leikur eins og knattspyrnukeppni milli Akur- nesinga og Reykyíkinga. NóSð lífsms sfreymir Hópurinn utan við gluggann hefur stækkað. Stéttaskipting og manngreinarálit þekkist ekki. Ljósmyndari Morgun- blaðsins nýtur engra forrétt- incla, þarna er einn af alþíng- Framhald á 7. síðu, SNEMMA á árinu 1949 ósk- aði Verkalýðsfélag Dalvíkur þess að Alþýðusamband fslands aðstoðaði það við gerð kaup- samnings fyrir félagið. Eg vann ’ þá í þjónustu Alþýðusambands ins sem erindreki og var mér j þá falið að fara norður á Dal- ' vík og vera Verkalýðsfélaginu til aðstoðar við gerð samning- anna. Þá hófust kynni okkar Lárusar. Hann var þá í trúnað- armannaráði félagsins og þar sem þetta reyndust allerf-iðir samningar þá leiddi það af lík- j um að kynni mín og trúnaðar- ráðsmanna urðu allnáin. j Síðan kom ég ærið oft á Dal- vík þau árin, sem ég var á veg- um Alþýðusambandsins. Þá kynntist ég ýmsum þeim, er \roru í fylkingarbrjósti Verka- lýðsfélagsins þar og er það eins og gengur, að í þeirn trúnaðar- stöðum eins og öðrum verða tíðum mannaskipti. En það er til marks um áhuga Lárusar á félagsmálum og sér í lagi kjara málum hins vinnandi fólks, að ávallt var hann þar i fylking- arbrjósti, ýmist- sem formaður félagsins eða í stjórn þess og trúnaðarmannaráði. En þetta er aðeins brót úr miklu lengri sögu, því að ávallt frá stofnun Verkalýðsfélags Dalvíkur hefur Lárus verið einn af þeim starfs sömustu af trúnaðar- og for- ustumönnum félagsins og ávallt verið falin meiri og minni trún aðarstörf í þágu verkalýðsins á Dalvík frá stofnun félagsins. Og í dag er hann enn einu sinní formaður þessa félags, sem hann hefur svo lengi starfað fyrir af mikilli fórnfýsi og elju. Lárus er fæddur á Vindhæli í Austur-Húnavatnssýslu. All- mörg ár dvaldist hann á Kálfs- hamarsvík í Húnavaínssýslu, á þeim tíma var talsvert útræði þaðan. Þar gegndi hann ýms- um trúnaðarstörfum, var þar vitavörður um tólf ára skeið. Ennfremur var hann þar af- greiðslumaður fyrir Eimskip pg Ríkisskip og átti um skeié- sæti í hreppsnefnd. Árið 1932 fluttist svo Lárus; frá Kálfshamarsvík til Dalvík- ur, en þar hefur hann átt heima síðan. Auk þeirra trúnaðarstarfa. sem Lárus hefur gegnt fvrir Verkalýðsfélag Dalvíkur hefur hann verið afgreiðslumaður Al- þýðublaðsins um tíu ára bil og: sömuleiðis hefur hann átt'sæti í stjórn Búnaðarfélags Dalvík- ur um ára bíl. Lárus er kvæntur Árnínu Árnadóttur, merkiskonu. Varð þeim tíu barna auðið, en þar ai eru nú fimm á lífi. Það lætur ao líkum, að heim- ilisfaðir svo stórrar fjölskyldu hefur eigi mátt slá sloku við, enda hefur Lárus allt frá barn- æsku unnið hörðum höndum, og stundað. að jöfnu sjósókn og: landbúnað. Vinnudagurinn heí- ur jafnan verið íángur og strang. ur og þegar þar við bætist ýmis trúnaðarstörf í þágu félags- mála segir það sig sjálft að hvíldartímínn hefur ærið oft verið mjög af skornum skammti. Lárus hefur ávallt verið A,- þýðuflokksmaður og hefur látið málefni Alþýðuflokksins til sín taka á sama hátt og mál verka- lýðsins.' 1 Eg óska vini mínum Lárusl innilega til hamingju með dag- inn og árna honum allra heilla. á komandi árum. .1 ón Hjálmarsson. \ Sendibílasföð Haínarfjarðar Vesturgötu 6. Sími 9941. Heímasímar: 1192 8921.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.