Tíminn - 13.03.1965, Síða 2
TIMINN
LAUGARDAGTJR 13.
FÖSTUDAGUR, 12. marz.
NTB-Washington. — Almennt
er talið í Washington, að
Bandaríkjamenn muni halda á-
fram árásum sínum á Norður-
Víetnam, og að fleiri banda-
rískir hermenn verði sendir til
Suður-Víetnam. Er talið, að
með þessu vilji Johnson for-
seti undirstrika þá kröfu sína,
að Norður-Víetnam hætti allri
aðstoð sinni við Viet Cong.
NTB-Saigon. —1 Ríkisstjóm S.-
Vietnam lýsti því yfir í dag, að
hún myndi hefja allsherjar bar
áttu gegn Viet Cong-hermönn-
unum. í dag gerðu bandarísk-
ar B57 sprengjuflugvélar árás-
ir á herbækistöðvar Viét Cong
við strönd Suður-Vietnam.
Harold Johtnson, yfirmaður
bandaríska hersins, sagði í dag,
að hann væri viss um, að hægt
værí að sigrast á Víet Cong,
og að hann væri hrifinn af
því, sem bandaríski herinn
hefði gert til þessa í Suður-
Víetnam.
NTB-Tel Aviv. — Utanríkisráð-
herra ísraels, Golda Meir,
sagði í kvöld, að ísrael ætti að
þiggja boð V estur-Þýzkalands
um að taka upp stjórnmálasam-
band.
NTB- Moskva. — Kosningar
verða haldnar í Sovétríkjunum
á sunnudag, og 'er kosið til
hinna svokölluðu „sovét“ eða
ráða. Frambjóðendur eru alls
um tvær milljónir, og hefur
ernginn þeirra mótframbjóð-
anda. Þeir eru ekki allir flokks-
menn í Kommúnistaflokk Sov-
étríkjanna, en enginn getur
boðið sig fram án þess að fá
samþykki vfirvaldanna.
NTB-Kaupmannahöfn. — Fjár-
málaráðherra Danmerkur lagði
í dag fram frumvarp um
skatta- og gjaldahækkun, og er
það liður í tilraun ' ríkisstjórn-
arinnar til pess að koma í veg
fyrir verðbólgu. Frumvarpið
ber m.a. með sér 8% hækkun
á skatti.
NTB-Khartoum. — Uppreisnar-
menn í Suður-Súdan hafa
brennt 60 þorpsbúa lifamdi og
tekið 50 börn sem gísla, að því
er tilkynnt var í Khartoum í
dag. Þessi atburður átti sér
stað við Mapan í liéraðinu Efri
Níl. /
NTB-Stokkhólmi. — Louise
Svíadrottning verður jarðsett á
morgun. Mikill fjöldi erlendra
gesta verður viðstaddur útför-
NTB-Belgrað. — Talsmaður
upplýsingarþiónustu Júgóslav
íu, sagði í dag, að prófessor
Mihajlo Mihaklov. hefði verið
handtekinn. Hann skrifaði í
síðasta mánuði grein, sem sögð
er hafa verið móðgandi i garð
Sovétríkjanna Hann var kenn
ari við háskóiann í Zadag
Grein hans Kom í bókmennta-
tímaritinu Delo. en yfirvöldin
bönnuðu dreifingu þess og
handtóku Miháklov.
Er „Mykle-
mál“ í upp-
siglingu í
Svíþjóö?
NTB—Stokkhólmi, föstudag.
Menn velta því nú fyrir
sér í Svíþjóð, hvort Svíar
muni fá eins konar Mykle-
mál. í sambandi við klám-
sagnasafnið, sem kom f
bókabúðir I dag. Málið er
nú í höndum dómsmálaráð-
herrans. Hann hefur jafn-
framt fengið kvörtun vegna
þess, að Fanny Hill er um
þessar mundir seld í ódýrri
útgáfu í Svíþjóð, og er hún
á góðri leið með að verða
metsölubók þar.
Bókmenntagagnrýnendur
Stokkhólmsblaðanna eru eigi
sérlega hrifnir af bókinni.
Þó segja sumir þeirra, að
þær tvær smásögur, sem
upphafsmaðurinn að smá-
sagnasafninu, Bengt Ander
berg, skrifar sjálfur ,séu
beztar. Svenska Dagbladet
segir, að honum einum hafi
tekizt að skrifa reglulega
skemmtilegar smásögur, en
bætir því við, að það hafi
líklega verið mun skemmti-
legra að skrifa þær en lesa
Allir gagnrýnendur benda
á þann möguleika, að bæk-
urnar kunni að verða gerðar
upptækar og mál höfðað
gegn rithöfundunum. Flesfir
þeirra eru algjörlega and-
vígir því, að gripið verði
til þeirra ráða:
SENDIR J0HNS0N FOR-
SETIHER TIL SELMA ?
NTB—Washington, föstudag.
Lyndon B. Johnson, forseti
Bandaríkjanna hefur lofað leiðtog-
um blökkumanna að athuga mögu-
leikana á því, að ríkisstjómin
láti til skarar skríða í Selma, Ala-
bama, þar sem lögreglan réðist
á blökkumenn með kylfum og
táragasi um síðustu helgi.
Talsmaður nokkurra leiðtoga
blöklkumanna, sem áttu fund með
Johnson forseta í morgun, sagði
eftir fundinn, að Johnson hefði lof
að því að ræða við lögfræðilega
ráðgjafa sína og yfirvega, hvaða
aðgerðir væru heppilegastar. Tals
maðurinn, blökkupresturinn Walt-
er Faunteroy, sagði, að það hefði
haft áhrif á þá alla, hversu John-
son forseti lét sér annt um þessi
mál og þróun þeirra í Alabama.
Leiðtogar blökkumanna í Ala-
bama ætluðu að fara í dag í mót
mælagöngu til dómshallarinnar í
Dallas, rétt fyrir utan Selma, en
á elleftu stundu var þeim tilkynnt,
að slík mótmæ'laganga væri bönn
uð. Borgarstjóri Selma, Joseph
Smitherson, sagði, að borgarstjórn
in hefði ekki gefið leyfi til þess
að fara í mótmælagöngur.
Leiðtogar blökkumanna ræddu
i í tvo tíma við Johnson forseta í
morgun, og fóru fram á það, að
forsetinn sendi hermenn til Selma
| til þess að tryggja blökkumönnum
! fundafrelsi og tækifæri ti lþess
j að koma fram kröfum sínum um
atkvæðisrétt og önnur borgararétt-
• indi.
SPARNAÐAR VIKAN MUN
HEFJAST í NÆSTU VIKU
Sparnaðarvika sú, er Neytenda
samtökin boðuðu nýlega, að þau
myndu efna til í margþættum til-
gangi, mun hefjast í næstu viku,
svo sem nánar mun þá skýrt frá.
í Neytendablaðinu, sem kemur
út í sambandi við sparnaðarvik-
una.verður birtur ítarlegur Iisti
yfir verð á öllum helztu matvör
um, sem hér eru á boðstólum: á
þriðja hundrað vöruverða er get-
ið.
Verðþekking manna hér á landi
er ekki upp á marga fiska, enda
er ætlunin að bæta úr því. Blað
ið er sent meðlimum samtakanna í
pósti, en árgjald er aðeins kr.
100,—
Verðlistinn nær yfir kjötvörur
hvers konar, fiskmeti, mjólkurvör
ur, mjölvörur, brauðvörur, garð
ávexti og grænmeti, nýja ávexti,
þurrkaða og niðursoðna, nýlendu
vörur, öl og gosdrykki. Þá er þess
J einnig getið, hvernig hvert verð
er til komið. þ. e. hvaða aðili
: standi þar að baki. Þá er birtur
i útreikningur á vísitölu fram-
! færslukostnaðar, skýrt frá skyld-
um um verðmerkingar og ýmis-
Iegt fleira er í ritinu.
Neytendasamtökin eiga nú um
500 eintök af hverju tölublaði
Neytendabls.ins, frá því er því var
j breytt í stærra og vandaðra form.
j Hinir næstu 500 nýir félagsmenn
! eiga þess kost að fá heildarútgáf
| una, 10 blöð, þar á meðal afmælis
| ritið ókeypis, um leið og þeir
i greiða árgjald fyrir 1965. Það
má senda í pósthólf 1096, greiða
það á skrifstofu samtakanna.
Aust. 14 eða einfaldlega í næstu
bókaverzlun, en þær annast nær
allar innritun nýrra félagsmanna
fyrir Neytendasamtökin. Til þess
að gerast félagsmaður nægir ann
ars að hringja í síma 1 97 22 eða
21 666, og fá menn þá sent
sParnaðarviku-blaðið, um leið og
það kemur út, en það er sem
óðast verið að prenta það. Neyt-
endasamtökunum er brýn nauð-
syn að auknum félagsfjölda til
eflingar starfseminni, en árgjald
þeirra meðal hinna lægstu félags
gjalda, sem hér þekkjast.
LV SYNIR „FORNAR-
LAMBID" í REYKJAVÍK
Poul Reiehard
kemur á morguu
MB—Reykjavík, föstudag.
Leikfélag Vestmannaeyja hefur
ráðizt í það að senda leikflokk
hingað til Reykjavíkur um helg-
ina til þess að sýna leikrkið Fórn-
arlambið eftir Irjö Soini. Verða
sýningar í Tjarnarbæ á laugar-
dags- og sunnudagskvöld klukkan
20.30.
Leikfélag Vestmannaeyja hefúr
sýnt leikrit þetta sex sinnum undir
stjórn Höskuldar Skagfjörðs. Þar
af voru tvær sýningar austur í
Hornafirði og fjórar í Vestmanna-
eyjum. Aðsókn hefur jafnan ver-
ið mjög mikil, og munu um 1700
manns hafa sótt sýningarnar, og
hafa sýningargestir tekið leiknum
prýðilega
Alls munu um tuttugu manns
koma hingað frá Eyjum, og kem-
ur leikflokkurinn til borgarinnar
á laugardagsmorgun með flug-
vél frá Flugfélagi íslands og
heldur heim á mánudaginn. Að-
göngumiðasala er hafin og verður
eftir klukkan eitt á laugardag.
Á morgun kemur hinn fjölhæfi
leikari Poul Reichardt ásamt und
irleikara sínum til íslands, á veg
I um Flugmálafélagsins. Þeir
skemmta á flugmálahátíðinni að
; Hótel Sögu sunnudagskvöldið 14.
marz.
Poul Reichardt er í dag einn
J fremsti leikari Dana. Til marks
um það var hann á síðasta ári
kjörinn heiðurslistamaður dönsku
stúdentasamtakanna.
Hann er jafn þekktur sem skap
gerðarleikari og gamanleikari og
i síðast en ekki sízt fyrir óperu-
I hlutverk sín. Þessi stórbrotni lista
maður er mjög störfum hlaðinn,
en gefur sér samt tíma til að
ferðast hingað til lands á frídegi
sínum, en þarf að mæta til starfa
í Konunglega leikhúsinu í Kaup
mannahöfn á mánudagskvöld.
Sannar þetta bezt áhuga hans
fyrir íslandi, sem hann hefir oft
lega látið í ljós.
Vafalaust nota margir aðdáend
ur hans þetta einstæða tækifæri
til að sjá þennan fræga mann og
njóta listar hans.
GUNNAR THOR
Framhald at 1 siðu.
utahríkisráðuneytisins:
Stefán Jóhann Stefánsson
ambassador íslands í Kaupmanna-
höfn hefur náð aldurshámarki
embættismanna og lætur því af
störfum í maímánuði næstkom-
andi.
Ákveðið hefur verið, að við
ambassadorsstarfinu í Kaup-
mannahöfn taki Gunnar Thorodd
sen fjármálaráðherra.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 12. marz 1965.
LR frumsýnir „ Þjófa, lík og
falar konur" á miðvikudag
FB-Reykjavík, iöstudag.
„Þjófar, lík oig falar konur“,
heitir Ieikritið sem Leikfélag
Reykjavíkur frumsýnir á miðviku-
dagskvöldið klukkan 20:30. Leik-
ritið er eftir italska leikritahöf-
und'inn og leikarann Dario Fo, og
| er þetta í fyrsta sinn, sem verk
eftir hann er sýnt hér á landi. \
Leikstjórinn er ungur Svíi, Christ-
ian Lund að nafni, sem starfar hjá
Borgarleikhúsinu í Stokkhólmi.
Dario Fo, er um þessar mundir
l’mjög vinsæll > heimalandi sínu
: Ítalíu. Hann nelur þar sitt eigið
lleikhús, og skrifai leiki sína fyrir
leikflokk þann, sem þar starfar,
og ætlar sjálfum sér venjulega
aðalhlutverkið, en kona hans fer
síðan með aðalkvenhlutverkið. Vin
sældir hans hafa farið vaxandi
utan Ítalíu nú síðustu ár, sérstak
lega á Norðurlöndum, en í fyrra
voru leikrit eftir Dario Fo sýnd
í tólf leikhúsum í Skandiavíu, að
sögn Bertil Boden, sem er umboðs
maður Fo, og er staddur hér um
þessar mundir
Þjófar. lík t>g falar konur, er
fjörugt ieikrit með dans og söng,
en alvarlegum undirtónum. Ledk-
endur eru 14: Gísli Halldórsson,
iBrynjólfur Jóhannesson, Haraldur
I Björnsson, Guðmundur Pálsson,
Guðrún Ásmundsdóttir, Margrét
Ólafsdóttir, Bríet Héðinsdóttir,
Erlingur Gíslason, Arnar Jóns,
Borgar Garðarsson, Pétur Einars-
son, Jóhann Pálsson, Bjarni Stein-
grímsson og Valgerður Dan. Þýð-
andi er Sveinn Einarsson leikhús-
stjóri. Steinþór Sigurðsson hefur
gert leiktjöldin Fiorenzo Carpi
heitir sá, er samdi tónlistina, en
hann hefur samið tónlist við fleiri
af verkum Fo. Atli Heimir Sveins-
Ison æfði tónlistina hér. Dansa og
látbragsðleik sá Lilja Hallgríms-