Alþýðublaðið - 01.09.1956, Side 1
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
Fær Trotsky upp-
reisn hjá Rússum?
Grein á 4. síðu.
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
XXXVU. árg.
Laugardagur 1. september 1956
Kvikmyndaþáttur.
á 5. síðu.
198. tbl.
Þjóðin skilur, að
Ráðsiafanir ríkisstjórnarinnar eru í fyilsfa
samræmi við hagsmuni launþega.
Kaupmáffyr lasinanna óbreyffur fil áraméfa
ÍHALDSBLÖÐIN eru alveg rugluð þessa dagana. Þau
fimia það, að þjóðin telur ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í dýr-
tiðarmálunúm retílatai* og skynsamlegar. I»ess vegna eru þau
í vandræðum með bað, hvernig þau eigi að reyna að gera þær
torlryggilegar. í því skyni hafa þau íekið það til bragðs að
þykjast vera eldlieitir málsvarar launastéttanna og krefjast nú
hækkaðs kaups þeim til handa!! Mun klígj^j hafa sett að miirg-
um launþegunum, þegar hann sá Morgunblaðið og Vísi skrifa
þannig.
Staðreyndir málsins eru þessar:
1. Útsöluverð til bænda átti lögum samkvæmt að hækka
um 11 prósent nú í september.
Vegna þessarar vöruverðshækkunar hefði framfævslu-
vísitalan hækkað um rúmlega 5 stig strax 1. októhei*.
Samkvæmt gildandi kjarasamningum og lögum hefði
kaupgjaldsvísiíalan ekki hækkað fyrr en eftir 3 mán-
uði vegna þessarar hækkunar og þá aðeins um 0.8 stig.
Verðhækkun á öllum vörum er bönnuð til áramóta.
Allt mun verða gert til þess að verðlag liækki ekki
neitt og þá helzt kaupmáttur launanna óbreyttur í
þennan tíma.
Bæði launþegar og bændur afsala sér nokkurri og
jafnri hækkun á krónutölu tekna sinna, en raunveru-
legar tekjur þeirra lækka ekki.
Með þessu móti stöði'a þeir dýrtíðarlijólið og stíga með
því fyrsta skrefið til þess að leggja heiíbrigðan grund-
völl að rekstri atvinnuveganna, framleiðsluaukningu \
og þar með raunverulegri kauphækkun.
S drepnir í skof-
hr(ð á sjúkrahúsi
á Kfpur.
NCOSIA, föstudag. Hundruð
brezkra hermanna styrkt lið
lögreglumanna leituðu í kvöld
að særðum hermdarverkamanni
og hegningarfanga, sem sluppu
fyrr í dag úr sjúkrahúsinu í
Nicosia eftir mikla skotríð, er
kostaði fimm menn lífið. Skot
hríðin hófst, er þrír vopnaðir
hermdarverkamenn réðust á
nokkra brezka fangaverði, er
voru að flytja fanga inn í and-
dyri sjúkrahússins á leið til
sjúkrastofu. Tveir árásarmann
anna, brezkur hermaður og
tveir aðstoðarmenn á spítalan-
um voru drepnir í skotríðinni,
en þriðji árásarmaðurinn slapp,
ásamt fanganum.
2.
4.
IfSIU.
Hr. Andrew Graham Gilchrist, hinn nýi sendiherra Bretlands
á íslandi afhenti í dag (föstudaginn 31. ág. 1956) forseta íslands
trúnaðarhréf sitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum, að við-
stöddum utanríkisráðherra.
FORSETI ÍSLANDS og
kona hans heimsækja Vestur-
Skafafellssýslu í dag og á
morgun.
6.
NU EE KAUPHÆKKUN
ÆSKILEG!
Það er meira en lítið spaugi
legt að sjá íhaldsblöðin nú vera
orðin aðalmálsvara þeirrar
kenningar, að kauphækkun
.samkvæmt vísitölu sé helzta
leiðin til kjarabóta fyrir laun-
þegana.
Launþegarnir sjálfir eru
miklu þroskaðri en þeir, sem
skrifa Morgunblaðið og Vísi.
Þeir vita, að þeim er ekkert
gagn að kauphækkun sem
étin er upp samstundis af
hækkun vöruverðs.
ÍHALD I HLUTVERKl
KGMMÚNISTA.
En viðbrögð íhaldsblaðanna
við þessum ráðstöfunum ættu
að opna augu allrar þjóðarinn-
ar fyrir því, hversu ábyrgðar-
lausir glamrarar stjórna Sjálf-
stæðisflokknum og málgögnum
hans. Þeir eru nú formælendur
kenninga, sem þeir hafa und-
anfarin ár deilt harðlega á
kommúnista fyrir að fylgja.
Sjálfstæðisflokkurinn er nú m.
ö.o. farinn að leika það hlut-
verk, sem hann hefur undan-
farið kallað „ábyrgðarlaust“,
„þjóðhættulegt", „verkalýðs-
fjandsamilegt, „byltingarsíínn-
að“ og „kommúnistískt“. Leið-
togar Sjálfstæðisflokksins eru
nú að klæðast fötum þeirra
kommúnista, sem þeir hafa
deilt fastast á til þessa. Er á-
reiðanlegt, að á Vesturlöndum
finnst enginn hægri flokkur,
sem hegðað hefur sér með lík-
um hætti undir svipuðum
kringumstæðum.
Veðrið f dag
Allhvass sunnan,
rigning.
Hefur franska stjornin fillipr á prjén-
unum fil Bausnar á Algler-vandamálinuf
TaSið, að MoSIet fari ti! Algier i næstu
viku. 400 uppreisnarmenn og 40 her-
menn féSIu í vikunni.
PARÍS, föstudag. — Talið er, að rúmlega 100 úppreisn-
armenn hafi verið drepnir í áköfum bardaga, sem staðið hefur
síðustu tvo daga milli franskra hermanna og unpreisnar-
manna í Nedromah-héraðinu í Algier um það bil 30 km. frá
landamærum Marokkó. Að því er óopinberar fregnir í París
herma, hafa um 400 uppreisnarmenn og 40 franskir hermenn
verið drepnir í Algier í síðustu viku.
Nefndin kemur saman í London í dag,
áður en hún flýgur til Kairo. Viðræður
við Nasser hefjast á mánudag.
LONDON, föstudag. — Selvvyn Lloyd, utanríkisráðherra
Breta mun á lokuðum fundi Atlantshafsráðsins næstk. miðviku-
dag gera grein fyrir viðhorfum Breta til Súez-vandamálsins.
Auk Breta munu Frakkland. Kanada og Belgía senda utan-
ríkisráðherra sína til fundarins, þó ekki sé talið útilokað, að
fleiri ríki NATÓ ákveði að senda utanríkisráðherra sína til
fundarins, áður en fundurinn hefst.
Talsmaður frönsku stjórnar-
innar lýsti í dag yfir bjartsýnij
stjórnarinnar yfir ástandinu al
mennt í Algier, þar sem 400. |
000 franskir hermenn hafa nú
setu. Það ætti að vera hægt að
kcma á friði í Algier á sex
mánuðum, sagði talsmaðurinn,
og fyrir þann tíma mun franska
stjórnin sennilega ber fram til
lögur um nýja stöðu landsins.
iGert er ráð fyrir, að áætl-
un stjórnarinnar sé lík þeirri
línu, er fram kom í ræðu, sem
Aphonse Juin, marskálkur, hélt
nýlega í Vichy. Juin, sem hing
að til hefur verið álitinn and-
stæðingur frjálslyndrar lausn-
ar á Algier-vandamálin, kvaðst
meðmæltur franskri lausn, sem
gerir ráð fyrir, að Algier fái
eigin stjórn og löggjafarrétt í
innanlandsmálum.
MOLLET TIL ALGIER.
Talsmaðurinn kvað það kom
ið undir ástandinu almennt í
(Frh. á 7. síðu.)
Ta.lsmaður brezka utanríkis-
ráðuneytisins afsannaði í dag
orðróm, sem gengið hefur um,
að Bandaríkin hyggist skjóta
Súez-málinu til Sameinuðu þjóð
anna. Talsmaðurinn sagði enn
fremur, að hann gæti hvorki
neitað né játað fréttum úr
blöðum um, að brezka stjórnin
hefði ekki gert Bandaríkjunum
aðvart, áður en leyfi var gefið
til setu franskra hersveita á
Kýpur. Leyfið hefði verið gef-
ið á þeirri forsentu, að nauðsyn
legt væri að hafa íranskar her
sveitir á Kýpur til þess að
vernda franska ríkisborgara og
franska hagsmuni á Súes-eyði.
Ekki er talið ósennilegt, að
lögð verði fyrir ráðið bráða-
birgðaskýrsla Súez-nefndar-
innar, er það kemur saman á
miðvikudag, um fund nefnd-
arinnar við Nasser á mánu-
dag. Nefndin heldur fund í
London á laugardag, áður en
hún flýgur til Kairo.
Lester Pearson, utanríkisráð
herra Kanda, tilkynnti í kvöld,
að Kanadastjórn liti svo á, að,
álit meirihlutans á Súez-ráð-
stefnunni væri sanngjörn und-
irstaða umræðna. Pearson flýg
ur til London á laugardag, þar
sem hann mun ræða við Sel-
wyn Lloyd, áður en hann fer
til NATO-fundarins í París.
Paul-Henri Spaak, utanríkisráð
herr Belga flýgur til London
á þriðjudag til viðræðna við
Lloyd fyrir fund NATO-ráðs-
ins.