Alþýðublaðið - 29.09.1956, Blaðsíða 8
Vetrarstarf Leikfélagsins að hefjast:
,Kjarnorka og kvenhylli' sýnt á ný;
,You never can tell' eftir Shaw næst
Leikfélagið 60 ára II, janúar næstk.
VETRARSTARFSEMÍ Leikfélags Reykjavíkur er um það
bil að hefjast. Byrjar félagið næstk. miðvikudag að nýju á
,,Kjarnorku og kvenhylli“ eftir Agnar Þórðarson, en einnig
íiefur félagið nú tvö ný leikrit í æfingu. Er annað þeirra „You
never can tell“ eftir Bernard Shaw. Hitt er gamanleikurinn
„Salor Beware“ efíir tvo enska liöfunda.
Hinn nýi formaður Leikfé-
lags Reykjavíkur, Jón Sigur-
björnsson ræddi við blaðamenn
í gær og skýrði frá fyrstu við-
fangsefnum félagsin á leikári
því, er nú er að hefjast.
LEIKRIT AGNARS VINSÆLT
Sýningar á „Kjarnorku og
kvenhylli“ eftir Agnar Þórðar-
son hefjast á ný n.k. miðviku-
dagskvöld. Hefur þetta gaman-
leikrit Agnars reynzt afburða
vinsælt og var tekið frá fullu
húsi sl. vor eftir 54 sýningar.
Um þessar mundir er leikurinn
sýndur á ísafirði með Brynjólfi
Jóhannessyni í aðalhlutverki.
Einnig hefur leikurinn verið
sýndur á Sauðárkróki.
mundur Pálsson, Arni Tryggva
son, Þóra Friðriksdóttir, Siríð-
ur Hagalín, Brynjólfur Jó-
hannesson og Steindór Hjör-
leifsson. — Er ætlunin að frum
sýna leik Bernhards Shaw í
kringum 20. október.
AFMÆLI L.R. í JANÚAR.
Að lokum skýrði Jón Sigur-
björnsson frá því að Leikfélag
Reykjavíkur yrði 60 ára 11. jan
úar n.k. Hefur félagið í hyggju
að hafa sérstaka afmælissýn-
ingu á því merkisafmæli en ekki
hefur enn verið afráðið hvaða
leikrit verður sýnt við það tæki
færi.
Skipasmlðir lýsa
yfir frausti á
ríkissljórnina.
Á FUNDI í Sveinafélagi skipa
smiða í Reykjavík s.l. miðviku
dag var samþykkt samhljóða
eftirfarandi tillaga:
„Fundur í Svcinafélagi
skipasmiða í Reykjavík,
haldinn miðvikudaginn 26.
september 1956, lýsir yfir
samþykki sínu við þær byrj
unaraðgerðir ríkiSstjórnar-
innar, sem þegar cru hafnar,
til þess að stöðva verð-
þennsluna í landinu.
Þá væntir fundurinn þess,
að ríkisstjórninni takist í
samráði við verkalýðshrey-
inguna, að finna viðhlít-
andi lausn á því efnahags-
öngþveiti, er þjáð hefur
þjóðina undanfarin ár“.
Á sama fundi voru kosnir
fulltrúar félagsins á 25. þing
Alþýðusambands íslands, og
voru þessir menn kosnir:
Aðalfulltrúi: Helgi Arnlaugs-
son, varafulltrúi: Jón Ö. Jónas-
son.
2 LEIKRIT í ÆFINGU.
Þá skýrði Jón frá því, að tvö
leikrit væru nú í æfingu hjá
Leikfélaginu. Er hið fyrra „You
Never Can Tell“ eftir Bernhard
Shaw en hitt er „Salor Beware“
enskur gamanleikur eftir Philip
King og Falkland Cary. Einar
Bragi hefur þýtt „Salor Bew-
are“. Gunnar Hansen stjórnar
leikriti Shaw en Jón Sigur-
björnsson hefur á hendi leik-
stjórn á „Sailor Beware”.
FLESTIR AF LEIKURUN-
UM MEÐ.
Flestir leikarar Leikfélags-
ins leika í hinum tveim nýju
leikritum. Leikendur í „You
Never Can Tell“ eru: Helgi
Skúlason, Helga Bachmann,
Þorsteinn Ö. Stephensen, Bryn
jólfur Jóhannesson, Guðbjörg
Þorbjarnardóttir, Kristín Anna
Þórarinsdóttir, Birgir Brynjólfs
son og Guðjón Einarsson. I
„Sailor Beware“ leika: Emilía
Jónasdóttir, Aurora Halldórs-
dóttir, Nína Sveinsdóttir, Guð-
INGIBJORG ÞORBERGS TIL H0LLYW00D.
Ingibjörg Þorbergs.
Sinfóníuhljómsveifin byrjar
velrarstarfið á mánudag
Stjórnandi og einleikari er Páll ísólfs-
son. Einsöngvar er Kristinn Hallsson.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS heldur fyrstu hljóm-
íeika sína á haustinu næstk. mánudagskvöld kl. 8,30. Er hljóm-
sveitin fyrir nokkru farin að æfa aftur eftir sumarfríið, auk
þess sem hún hefur leikið inn á segulbönd fyrir útvarpið. —
Stjórnandi á þessum fyrstu tónleikum hljómsveitarinnar er dr.
Páll ísólfsson, sem þar að auki leikur einleik. Einsöngvari
verður Kristinn Hallsson.
í BLÓÐUM, sem borizt
hafa frá Ameríku undanfarið
hafa sézt viðtöl við Ingi-
björgu Þorbergs dægurlaga-
söngkonu, sem verið hefur á
ferðalagi þar vestan hafs í
nokkrar vikur. Nú hafa bor-
izt nánari fréttir af henni,
og virðist hún hafa fengið
mjög vinsamlegar móttökur
hvarvetna. Hún hefur bæði
sungið í útvarp og komið
fram í sjónvarpi.
Hún kom fram í 50 mín-
útna dagskrá í Bedford, þar
söng hún nokkur lög og svo
var haft viðtal við hana um
Island.
Næst kom hún fram í sjón
varpsstöð C.B.S. í Washing-
ton og söng þar tvö lög og
þar var einnig viðtal við
hana. Síðan fór Ingibjörg til
New York þar birtist viðtal
við hana og mynd af henni í
blaði. En síðan kynntist hún
umboðsmanni fyrir Franky
Lane að nafni Frank Con-
ally, var henni boðið til
reynslu að syngja fyrir þá fé
laga og hlusta á æfingu
Franky Lane. Var þá tekin
ljósmynd af þeim saman
Ingibjörgu og Franky Lane.
Blaðið hefur heimildir fyr-
ir því að hann hefði háft mik
inn áhuga fyrir lagi Ingi-
bjargar, sem heitir „Frá
Tjörninni að Eskihlíð“ og
óskaði hann eftir að fá lag-
ið.
Hljómplötufyrirtækið S.
S. A. Victor, sem er systurfyr
irtæki His Masters Voice
(Frh. á 2. síðu.)
Höfðahverfisbúar vilja hag-
nýta heifa vatnið úr borholu
við Höfða í þágu hverfisins
Á efnisskránni að þessu sinni
eru mörg verk. Hefst efnis-
skráin á forleik að óperunni
Iphigenia in Aulis eftir Gluck,
síðan verða leiknir 3 menúett-
ar fyrir strengjasveit eftir
Schubert og 3 aríur eftir Moz-
art. Eftir hlé leikur Páll ísólfs-
oon orgelkonsert eftir Hándel
og stjórnar hljómsveitinni jafn
framt, en tónleikunum lýkur
með symfoníu í G-dúr (Pauken
schlag) eftir Haydn.
í orgelkonsertinum leikur
Páll á rafmagnsorgel, sem KFU j
M hefur verið svo vinsamlegt!
að lána til hljómleikahaldsins. I
FÉLAG Höfðahverfisbúa
hélt fjölmennan fund 26. þ.
m. þar sem stjórn félagsins
skýrði frá því hvað hún hefði
gert til þess að heita vatnð,
sem komið hefur upp úr bor-
holunni við Höfða, yrði hag-
nýtt í þágu íbúa hverfisins.
Mikill áhugi ríkti fyrir mál
inu, og samþykkti fundurinn
að fela stjórninni að láta einsk
is ófreistað til þess, að vatnið
yrði lagt í hverfið hið fyrsta.
Laugardagur 29. sept. 1956.
sm
Keppa í sjónvarpi um helgina.
S.L, FIMMTUDAGSKVÖLD fór fram á Österbro-stadion í
Kaupmannahöfn stórt frjálsíþróttamót með þátttakendum frá
sjö þjóðum, þ. á. m. fjórum íslendingum. Voru það Þórir Þor-
steinsson, Svavar Markússon, Valbjörn Þorláksson og Guðm.
Hermannsson, cn þeir voru á leið til Dresden sem þátttakendul?
í Rudolf-Harbigmótinu svonefnda, sem haldið er árlega til ininn-
ingar um hinn fræga hlaupara Þjóðverja.
íslendingarnir stóðu sig með
ágætum á mótinu og voru þar
þó engir skussar samankomnir.
Úrslit í þeim greinum, sem ís-
lendingarnir kepptu í urðu
þessi:
1500 m. hlaup: 1 Gunnar
Nielsen, Danmörku, 3:50,0, 2.
Hammarsland, Noregi, 3:50,00,
3. Svavar Markússon, 3:51,2. í
kúluvarpinu sigraði Guðmund-
ur Hermannsson með 15,55 m.
kasti, ekki hefur frézt um hverj
ir voru næstir. í stangarstökk
inu sigraði Pólverjinn Wazny á
nýju glæsilegu pólsku meti,
meti, 4,47 m., sem er aðeins 4
sm. lægra en hið nýsetta Ev-
rópumet Finnans Landströmj
annar í stangarstökkinu var<$
Yalbjörn Þorláksson með 4,25
km, sem er bezti árangur. sem
hann hefur náð erlendis. 400 m:
Swadtowsky, Póllandi, 48,1, 2.
Þórir Þorsteinsson, 49,1.
íþróttamennirnir héldu áleiö
is til Dresden í gær og keppa
þar um helgina.
■■ >■■■■ i
Samningsupp- '
sögnum frestað í
Svíþjóð.
Nýll frímerki gefið
úf og kemur á
markaðinn í dag,
NÝTT frímerki verður gef-
ið út í dag til minningar um 50
ára afmæli Landssíma íslands.
Frímerkið er blátt að lit,
prentað hjá Thomas de la Rue
& Co. Ltd. London, en teikn-
að af Stefáni Jónssyni.
Póststofan verðnrl oþin til
kl. 4 í dag vegna útgáfunnar.
NTB. — Flugfélagið Loft-
leiðir hefur fengið leyfi sænsku
loftumferðastjórnarinnar til a<5
fljúga á leiðinni Rvík-Gauta-
borg-Hamborg til 20. maí nk.
ár. Félagið fær leyfi til a<5
flytja farþega, flutning og
póst frá Gautaborg samkvæmt
nánari ákvörðun á öllum leið-
um, þ. á. m. á leiðinni til New
York og að flytja einnig far-
þega, flutning ög póst þaðau
til Gautaborgar. Skilyrði fyr-
ir þessu samkomulagi er, a<5
sænska loftumferðastjórnin
viðurkennt taxta, ferðaáætl-
un og tímaáætlun félagsins.
2ja afmæla minnzt við seln-
ingu gagnfræðaskófanna *\
Gagnfræðaskófinn á ísafirði settur í dag*
GAGNFRÆÐASKÓLINN Á
ísafirði verður settur í dag.
Verður um leið minnzt tveggja
merkisafmæla 1 sögu skólans. Á
þessu hausti eru 50 ár liðin frá
því að unglingafræðsla hófst
með stofnun unglingaskólans og
25 ár liðin frá þvi að gagnfræða
skólinn var settur í fyrsta sinn,
en hann tók við af unglinga-
skólanum. Skólinn verður í dag
settur við hátíðlega athöfn í
kvöld og verður haldið afmæl
ishóf að Uppsölum. Hefur öll-
um eldri skólastjórum verið boð
ið að vera viðstaddir en ekki
geta allir komið því við.
SKÓLASTJÓRAR.
Fyrsti skólastjóri unglinga-
skólans var dr. Björn Björns-
son frá Viðfirði, síðan hver af
öðrum, Sigurjón Jónsson banka
stjóri, Haraldur Leosson, Lúð-
vík Guðmundsson, Hannibal
Valdimarsson og núverandi
skólastjóri er Guðjón K’ristins-
son. Setur hann skólann í dag.
Allir þessir menn eru á lífi
nema dr. Björn Björnsson, semj
var fyrsti skólastjórinn.
s
3
Bjarni Benedikfs-f
son mun saklaus afj
bréfi „kennara". j
mi
ALÞÝÐUBL. taldi senni^
legt í forustugrein í gær, að;;
Bjarni Bendiktsson fyrrv.*
menntamálaráðherra hafi í
Skrifað bréf til Morgunblaðsl
ins, sem gert var að umræðu »
efni að gefnu tilefni. Þessij
ágizkun fær elcki staðizt, þar!
eð Bjarni Benediktsson;
dvelst um þessar mundir er- ■
lendis og hefur gert undan-j
farið. Vill Alþýðublaðið herl
með leiðrétta þetta atriði. *