Alþýðublaðið - 01.11.1956, Qupperneq 7
Fimmtudagur 1. nóv. 195*5
A1 b ý 3 u b 1 a ð i 3
MAFMABFlRÐf
r
axnre
Efnismikil. og hrífandi ný amerísk stórmvnd í
iitum, eftir samnefndri metsölubók ANYA SETO.N
í rnyndinni syngur Jeff Chandler titillagið,
„Foxfire“.
Sýnd kl. 7 og 9.
m aiþmgi
(Frh. af 4. síðu.)
trausti þess að hæstv. Alþingi
og ríkisstjórn skilji nauðsyn
þfess, að viðhald og nýsmíði
h-inna stærri skipa verði ekki
einskorðuð við Reykjavík.
I lögum nr. 29 23. apríl
1846, um hafnargerðir og lend
ingarbætur, er að vísu gert ráð
fyrir styrk úr ríkissjóði og rík
isábyrgð fyrir lánum til bygg-
ingar slíkra mannvirkja. Hins
vegar verður að líta svo á,
að hér sé fyrst og fremst um
að ræða hagsmunamál heils
landsfjórðungs, og þykir því
rétt að fela ríkisstjórninni að
láta gera nákvæma áætlun um
kostnað við slíkt mannvirki".
er hann kominn á sumarland
eiíífðarinnar, bar sem sumar
aldrei rennúr.
Hann átti góoa heimvon, og
sú von hiýtiir aó rætast.
M.G.
alidðösoi
Minningarorð
(Frh. af 4. síðu.)
mjög, því að hann var honum
hjálpsamur í öllum greinum.
Sn dætur hans voru honum
iíka góðar og nærgætnar, svo
að til fyrirmyndar var, og hann
var svo lánsamur að fá að njóta
umönnunar þeirra og ástúðar
til hinnstu stundar.
Brynjólfur þjáðist af kvala-
fullum köstum síðari ár æv-
innar. Var þetta talinn vera
hjartakrampi. Var honum stund
um ekki hugað líf í þessum köst
um. En þegar þau voru hjá lið-
in, og hann tók að jafna sig
aftur, var hann jafn ljúfur og
rólegur og endranær. Þó gat
hann jafnan búizt við dauða
sínum í næsta kasti, en hann
var ekki hræddur við það. Hann
gat áreiðanlega tekið undir með
séra Hallgrími og sagt við dauð
ann: „Kom þú sæll þegar þú
vilt.“ Brynjólfur kvaddi okk-
ur um leið og sumarið. Hann
lézt síðasta sumardag. Og nú
(Frh. af 5. íjí3u.)
„Já, mér ber skylda til að
þakka mörgum, en fyrst og
fremst vil ég nú nota tækifær-
ið til að þakka Hallbirni Hall-
dórssyni fyrir það hvernig hann
aðstoöaði okkur og kenndi okk-
ur nemendunum í Gutenberg.
Hann var fynstur prentara til
þess að kynna sér fagbækur í
iðninni. Og ég man það, að
hann reyndist okkur eins og al-
fræðiorðabók. •—■ Fleirum ber
að þakka. Ég hef unnið með
tveimur húsbændum, fyrst Þor-
varði Þorvarðarsyni í tutóugu
og þrjú ár og Steingrímí Guð-
mundssyni nú í tuttugu og sjö
ár. — Þetta afmæli mitt nú er
eins og nokkurs konar vin'nu-
hjúaafmæli. Ég hef kunnað
vel við starf mitt. Þó að ég
segði áðan að ég teldi að oft
réði tilviljun því hvað menn
gerðu að lífsstarfi sínu, þá verð
ég að segja að það var happa-
tilviljun þegar ég gerðist prent-
ari, því að mér þykir vænt um
starf mitt og hef aldrei séð
eftir því, að hafa gerst nem-
andi Gutenbergs gamla“.
Guðmundur Halldórsson hef-
ur gegnt mörgum trúnaðarstörf
um meðal stéttarbræðra sinna.
Hann hefur oft átt sæti í stjórn
prentarafélagsins, verið gjald-
keri félagsins árum saman og
oft ritari. Hann átti og sæti í
stjórn Sjúkrasamlags prent-
ara, en það var stofnað um leið
og prentarafélagið. Hann hefur
verið fulltrúi félagsins í iðnráði
og á nú sæti í iðnfræðsluráði.
kcD eða piftur
óskast til sendiferða.
Hátt kaup.
Upplýsingar í auglýsingaskrifstoíu Alþýðuklaðsins
klukkan 10—12 fyrir hádegi.
Guðmundur er hæglátur mað-
ur, hefur fastmótaðar skoðanir
og fylgir þeim fram af lipurð
og skilningi á afstöðu þeirra,
sem eru á annarri skoðun, en án
þess þó að slaka mjög til.
Kvæntur er hann Fríðu Ara-
dóttur og eiga þau þrjú upp-
komin börn, sem öll hafa eign-
ast sín heimili. Hann sameinar
það bezta sem íslenzk alþýða
hefur til að bera: reglusemi,
vinnusemi, góða menntun og
þrautsteigju og trúmennsku í
starfi. -— Hann nj'tur þess álits
að vera einn vandvirkasti og
smekkvísasti bókagerðarmaður
samtímans.
Ungverjaiand
(Frh. af 1. síðu.)
kominn til borgarinnar eftir
átta ára fjarveru í fangelsi og
einangrun. Mikill mannfjöldi
hafði safnazt saman á götunum,
þegar skriðdrekarnir óku burt,
og á húsveggi Var skrifað stór-
um stöfum: „Sússar, farið
heim.“
Óstaðfestar fregnir herma að
sovét-hermenn haldi enn flug-
vellinum við Búdapest, en deild
ir úr ungverska hernum hafi
tekið við varðstöðu í bænum.
STJÓENMÁLA-
ÁSTANDIÐ ÓLJÓST
Stjórnmálaástandið í land-
inu er enn mjög óljóst, en hef
ur tekið hreðum framförum
síðan Nagy lofaði frjálsum
kosningum með þátttöku
fimm flokka. Óháði bænda-
flokkurinn hefur sett upp
bráðabirgðastjórn og jafnað-
armenn hafa beðið um að fá
aftur þau sæti í stjórninni,
sem þeir höfðu, áður en kom-
múnistar hrifsuðu völdin
1954. Aðstaða Nagys er óljós.
Vel fræddir menn í Ungverja
landi segja, að þjóðin virðist
klofin í afstöðu sinni til hins
kommúnistíska forsætisráð-
herra. Nagy hefur átt annan
fund með fulltrúum uppreisn-
armanna og almennt er talið,
að pólitísk framtíð hans sé
undir því komin að hve miklu
leyti hann geti orðið við kröf
um þeirra. Óstaðfestar fregn-
ir herma, að fyrrverandi með
limir fasistaflokks Horthys1
reyni nú að mynda nýjan
flokk, en lögð er áherzla á, að
ekki hafi fengizt nein stað-
festing á þessu.
Um leið og skriðdrekar Rússa
yfirgáfu’ Búdapest, tóku þjóð-
ernissinnarnir að íjarlægja hið
21 meters háa minnismerki um
rússneska herinn, 'sem frelsaði
landið undan Þjóðverjum 1945.
Ekki er vitað með vissu hvað
orðið hefur um Ernö Gerö, en
talið er, að hann hafi flúið til
Rússlands ásamt Rákosi.
13 000 MANNS FALLIÐ
OG SÆRZT í BÚDAPEST
Talið er, að um 13 000 manns
hafi særzt og látizt í bardögun-
um síðustu 7 daga. Um 7500
Rússar eru taldir hafa látizt.
í tilkynningu, sem lesin var í
Búdapest-útvarpið, segir, að
hermannaráð hafi verið stofn-
að, er skuli vernda ungversku
þjóðina. Samtímis var lofað, að
allir meðlimir öryggislögregl-
unnar skyldu handteknir.
STYÐJA EKKI NAGY
Þjóðernisnefndin í bænum
Györ, sem er í andstöðu við
stjórn Nagys, skýrði frá því í
dag, að send hafi verið nefnd
fulltrúa 4 sýslna til Búdapest,
þar sem hún skuli leggja fram
kröfur nefndarinnar. í út-
varpi nefndarinnar sagði, að
þjóðernisnefndin muni ekki
viðurkenna stjórn Nagys, og
muni hún kalla til nvs alls-
herjai'verkfalls, ef ekki verði
gengið að kröfum nefndarinn-
ar.
yapr iiia
(Frh. af 5. síðu.)
um sjö hundruð. Hafa stein-
arnir sem steinsetningar þess-
ar eru gerðar með, staðið í hné
til mittis-hæðar upp úr jarðveg
inum, og' sumir meira en það.
I minni skipunum eru tíu til
tuttugu steinar, en langtum
fleiri í þeim sem stærri eru.
Eru þetta minnismerki um
dána menn, og oft hafa þeir
verið grafnir í skipunum.
Af rúnaskrift, sem fundist
hefur, af útflúri á leirkerum,
eða leirkersbrotum, og af ýmsu
öðru, geta fornfræðingar sé,
frá hvaða öldum borgin er, eða
sá hluti hennar sem þarna hef
ur verið grafinn upp. Segja
þeir munina vera frá 550 til
950 e. Kr., eða ná yfir fjögra
alda bil.
Ekki er vitað af hverju borg
þessi hefur farið í eyði. Ekkl
hefwr hún verið brend eins og
sjá má á rústum Heiðabæjar
á Suður-Jótlandi, og ekkert
sem bendir á að hún hafi verið
eyðilögð í hernaði.
Fornfræðingar telja að þarna
sé fundin borgin Vendila, sem
Adam af Briminn, sem íslend-
ingar eru að góðu kunnur, og
ritaði á elleftu öld, getur um.
Segir að hún hafi verið mikil
verzlunarborg.
Leiðið æsku landsins á brauf
bindindis og reglusemi.
UMDÆMISSTÚKAN.
Anglýsið
f Alþýðubiaðiim
irCi-iilt-trtrti-ti-eitrCrCi-tiiti*
SíSasfi söludagur.
Giæsilegur vinningur:
ÞRIGGJA HERBERGJA ÍBÚÐ, FULLGERÐ
300 þúsund króna virði.
Kaupið miða»
Dregið í kvöid.
Happdræfti Húsbyggiugarsjéi
Framsóknarflokksins,
Spiiakvöld
Þriðja spilakvöld í spilakeppni Alþýðuflobksfélaganna í Reykjavík
verþur annað kvöld (föstudag) kl. 8,30 í Iðnó.
DAGSKRÁ:
1. Félagsvist (verðlaun veitt).
2. Ávarp: Áki Jakobsson alþingismaður.
3. Upplestur: Ingólfur Kristjánsson ritstjóri.
4. Dans.
SKEMMTINEFNDIN.