Alþýðublaðið - 03.01.1957, Síða 2

Alþýðublaðið - 03.01.1957, Síða 2
a A IþýSufofaSíft Fimmtudagur 3, janúar 1957 Áu nr. S, 19SS f rá 1 n nfI ut n I n gss k r if st of u n n i. Samkvæmt heimild í 22. gr. reglugerðar frá 28. desember 1953 um skiþan innfiutnings- og gjaldeyris- mála. fjárfestingarmála o. fl. hefur verið ákveðið að út- hluta skuli nýjum skömmtunarseðlum, er gildi frá 1. janúar til og með 31. marz 1957. Nefnist hann „FYítSTI SKÖMMTUNARSEÐJ.LL 1957“. prentaður á hvítan papp- ír með fjólubláum og brúnum lit. Gildir hann samkvæmt því, sem hér segir: REITLRNIR: Smjörlíki 1—5 (báðir meðtaldir) gildi fyrir 500 grömmum af smjörliki, hver reitur. REITIRNIR: SMJÖR gildi hver um sig fyrir 250 grömm- uni af smjöri (einnig bögglasmjöri). Vero á bögglasmjöri er gréitt niður jafnt og mjólk- ur- og rjómabússmjör, eins og verið hefur. „FYRSTI SKÖMMTUNARSEÐILL 1957” afhendist j aðeins gegn því„ að úthlutunarst-jóra- sé samtímis skilað stoíni af „Fjói'ði skömmtunarseöill 1956“ með árituðu j nafni og heimilisfangi, svo og fæðingardegi og ári, eins Iog form hans segir til um. Reykjavík, 31. desember 1956. INNFLUTNINGSSKRIFSTÓFAN. ,Herðubreið/ nýii íéiagsheimili vígí á Seyðisfirði um helgina Fregn til Alþýðublaðsins. Seyðisfirði. NÝTT og veglegt félagsheimili var vígt hér sunnudaginn 16. des. Hefur það verið mörg ár í smíðum og bætir nú veru- lega úr skemmtanalífi staðarins. Félagsheimilið 'be.r nafnið HérðubreiS og var vígt með hátíðlegri athöfn. Vígsluathöfnin hófst kl. 2 síðdegis með því að Guðlaugur Jónsson verzlunarmaður setti samkomuna og kynnti dagskrá. Gunnþór Björnsson stjórnarfor maður flutti ávarp og bauð gesti velkomna. Sóknarprestur- inn sér Erlendur Sigmundsson prédikaði og kirkjukór Seyðis- fjarðarkirkju söng Faðir and- anna. Emil .Jónasson gjaldkeri lýsti byggingaframkvæmdum i og rakti sögu félagsins og sam kórinn Bjarmi söng nokkur lög. Þá voru flutt ávörp og kveðjur og Erlendur Björnsson bæjarfó- geti flutti kveðju frá mennta- málaráðherra. Að endingu söng samkórinn Bjarmi þjóðsönginn. Athöfnin var öll hin virðuleg- asta. ! 10 ÁR í BYGGINGU Éyggingarframkvæmdir haia staðið yfir í 10 ár. Húsið er steinhús með járnþaki 34 9.40 metrar að grunnmáli, múrhúð- a ðutan rneð kvarzi og korkein- angrað. Utidvr eru úr harðviði með slípuðu gleri. Gólf ytri for- stofu og snyrtiherbergja eru lögð terrazzo, en gólf innri for- stofu með dúkflísum. í forstofu er miða- og sælgæt issala, fatageymsla og fleira. Kvikmyndasýningarklfei er á lofti þar yfir. 143 FÖST SÆTI í SAL Gólf í sal er að hálfu ská- gólf, dúklagt, og er með 143 fösturn sætum. Hinn helmingur sals er sléttur, klæddur parket, j og er gólfflötur 9)<9 metrar að j stærð. j Salurinn er klæddur harðvið ! arplötum að neðan, en málaður ^ 1 að ofan. j LEIKSVIBIÐ ER 7X9 M, Leiksvissop er klæt't harðviði. j Leiksviðið er 7 9 metrar að stærð með vélknúðu sviðsfor- j hengi. Aftan við sviðið eru tvö ' geymslúherbergi og tvö á lofti þar yfir. í kjallara eru tvö.bún- ingsherbergi með hreinlætis- klefum, fullbúnu miðstöðvar- herbergi og vélaherbergi. Húsið er hitað með olíumiðstöð og loftblæstri. BYGGING HÚSSINS Húsið er reist samkvæmt teikningu Einars JSrlendssonar húsameistara með breytingum Gísla Halldórssonar arkitekts, sem einnig teiknaði innréttingu þess. Að smíði hússins unnu margir smiðir og múrarar, en íréverk innanhúss annaðist Garðar Eymundsson trésmíða- meistari og Pétur Blöndal lagði hitalögn. Raflögn lagði Rafall h.f., Reykjavík og harðviðarinn rétting er frá Byggi h.f., Rvík. Þorsteinn Einarsson íþrótta- fuiRrúi hefur fylgzt með bygg- ilasjóðs. j j HÚSIÐ KOSTAE 1,3 MILL.J. j Kostnaðarverð heimiíisins er j nú orðið rúmlega 1 300 000. En 1 ýmsa húsmuni og kvikmynda- I vél'ar vantar ennþá. GUNNÞÓR. 1 NR, 1, 1957. [ Tilkynning. Athygli smásöluverzlana er hér með vakin á því, að samkvæmt lögum um útflutningssjóð o. fl. frá 22. des- ember s.l. fellur 2% söluskattur niður í smásölu frá þessum áramótum og er gert ráð fyrir, að vöruverð lækki, sem því svarar, frá sama tíma. Reykjavík, 2. janúar 1957. VERÐLAGSSTJÓRINN. I DAG er fimmtudagurinrt 3. janúar 1957. FLUGFERÐIR Flugfélag íslands. Millilandaflug: Millilandaflug vélin Sólfaxi er væntanleg kl. 18 í kvöld frá Hamborg, Kaup- mannahöfn og Osló. Flugvélin fer til Glasgow kl. 8.30 í fyrra- málið. Innanlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Bíldudals, Egilsstaða, ísafjarðar, Kópaskers, Patreks- fjarðar og Vestmannaeyja, Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar, Fagurhólsmýrar, Hólmavíkur, Hornafjarðar, ísa- fjarðar, Kirkjubæjarklausturs og Vestmannaeyja. SKIPAFEÉTTIR Skipadeild SÍS. Hvassafell lestar síld á Norð- urlandshöfnum. Arnarfell er í Reykjavík. Jökulfell lestar fros- inn fisk á Norðurlandshöfnum. Dísarfell fór 29. f. m. frá Kefla- vík áleiðis til Ventspils og Gdy- nia. Litlafell fór frá Reykjavík í gær til Austurlandshafna. Helgafell er í Ventspils, fer það an til Mantyluoto og Wismar. Hamrafeli átti að fara frá Bat- urn 1. þ. m. áleiðis til Reykja- víkur. Andreas Boye kemur til Reyðáríjarðar á morgun. H J Ó N A E F N I Um jólin opinberuðu trúlofun sína ungfrú Sigrún Hannesdótt- ir, Laugarnesvegi 65, og Bjarni Beinteinsson stud. jur,, Gamla Garði. Ura jólin opinberuðu trúlofun sína ungfrú Jóhanna Kristjóns- dóttir, Reynirnel 23 og Jökull Jakobsson, Engihlíð 9. Opinberað hafa trúlofun sína ungfrú Áslaug Halldórsdóttir, Ásvallagötu 77 og Björn Bjarna son, Reynimel 55. Á gamlárskvöld opinberuðu trúlofun sína ungfrú Sigurveig Georgsdóttir hjúkrunarkona, Grenimel 9, og Lárus Þ. Guo- munasson, stud. theol. frá ísa- firði. Á gamlárskvöld opinberuðu trúlofun sína ungfrú Margrét Sigurðardóttir. slírifstofumæi." frá Raufarhöfn og Einar Sig- urðsson stud. mag., Ytri-Njarð- vík. —o— Gjöf til Heyrnarhjálpar. Félaginu Heyrnarhjálp hefur borizt rausnarleg gjöf frá hjóh- unum Jónínu Jónsdóttur og: Kristmanni Þorsteinssyni, Selja. veg 25 hér í bæ að upphæð kr. 2500,00 til minningar um 4 börn þeirra látin. Gefendum flytjum við alúðarþakkir vegna stjórnar Heyrnarhjálpar. Þ. Bj. Frá GiiðspekiféXagimi. Þjónustureglan heldur jóia- trésfagnað fyrir börn félags- manna á þrettándanum sunnu- daginn 6. jan. í húsi félagsins óg hefst hún kl. 3.30 e. h. Jóla- sveinn kemur í heimsókn, sj'ncf. verður kvikmynd, sögð saga og fleira gert til skemmtunar fyrir börnin. Félagar eru beðnir að tilkynna þátttöku eigi síðar en á laugardag í síma 7520. r „ « Kísulóra tjaldar. Myndasaga faamanrta Þau hlaupa sem mest þau i tjaldinu? En þegar þeim verður | litið inn, sjá þau hvar Stebbi steggur hefur kveikt bál inni í :mega — skyldi vera kviknað í | tjaldinu! s U T 0 0 f¥l m A m 0 u U R Björgunarfarinu hafði verið j an dró það um borð, og á næstu I andrá stýrt undir geimfarið, sem síð-| I stóð Jón Stormur enn! einu sinni frammi fyrir Valdun I aðmírál. 12.50—14 „Á frívaktinnr1, sjó- mannaþáttur (Guðrún Er- lendsdóttir). 19 tlarmonikulög (plötur). 20.30 Erindi: Lönd í fjötrura frosta, I: Ferðatækni í heim- skautalöndum (Guðmundur Þorláksson kand. mag.). 20.55 íslenzkar hljómplötur, fyrri þáttur: Jón R. Kjartans- son flytur erindi með tónleik- um, í tilefni þess, að liðin eru. 50 ár frá því, er íslendmgui'- söng fyrst inn á grammafón- plötu. I 21.30 Útvarpssagan: ,,Gerpla“ eftir Halldór Kiljan Laxness, XIV (höfundur les). 22.10 Sinfónískir tónleikar. FÉLA6SLÍF m Glímufélagsins Ármann verð- ur haldin í Sjálfstæðishúsinu. þriðjudaginn 8. janúa kl. 3.45 síðdegis. Kvikmyndásýning, margir jólasveinar. j ólas veinahappdr ætti. Aðgöngumiðar verða seldir í skrifstofu félagsins, íþrótta- húsinu, Lindargötu 7, sími 3356 laugardaginn 5. jan. kl. 4—7 og mánudaginn 7. jan. kl. 8—10 síðd. Stjórnin.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.