Alþýðublaðið - 10.01.1957, Síða 4

Alþýðublaðið - 10.01.1957, Síða 4
AlþytmblaglS Fimmtudagur 10. januar 1S57. íítgefandi: Alþýðuflokkurinn. Rits-tjóri: Helgi Sæmundsson. Préttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. B'iaóamenn: Björgvin Guðmundsson og Loftur Guðmundsson. Auglýsingastjóri: Emilía Samúelsdóttir. Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902. Afgreiðslusími: 4900. Aíþý'ðuprentsmiðjan, Hverfisgötu 8—10. Tvenns konar sósíalmni m ÖRVARODBUR í>JÖÐ- VH-JA3NTS eða nánar til tekið : Brynjólfur Bjarnason ræðir í gær ummæli formanns Sambands ungra jafnaðar- manna úr grein, sem Alþýðu iblaðið flutti nýlega og fjall- aði um framkvæmd sósíal- ismans á íslandi. Segir Bi’ynj ólfur, að margt komi van- hugsað fram í greininni, m. a. sú hugmynd, að ríkisrekst- ur eins eða annars í núver- andi þjóðfélagi jafngildi íramkvæmd sósíalismans. — Htér er um að ræða niður- stöðu Brynjólfs að loknum lestri Iangrar greinar og mjög stiklað á stóru. Hins vegar er athyglisvert hvern- ig han-n bregzt við orðum og afstöðu Björgvins Guð- mundssonar. . Fræðilega séð á ekki að vera miklll skoðanamunur milli kommúnísta og jafn- aðarmanna um nauðsyn þjóðnýíingar. Hann kemur til sögunnar, þegar lengra er haláíð. En Brynjólfur Bjarmason vill ekkert hafa með þjóðnýíingarvilja jafn aðarmanna að gera. Það er lítil! eða engimm sósíalismi. Þar vantar mikið á, t. d. allt það, sem gerzt hefur og er að gerast t Ungverja- landi og ýmsum öðrum löndum austan járntjalds- ins. En Brynjólfur verður _ ao hafa jafnaðarmenn af- sakaða, þegar sá sósíalismi kemur tií álita. Jafnaðar- nxertii afneita honum og lelja fyrirbærxð skyldara fasisma en sósíalisma í þeim skílningi, sem sæmi- legt fólk Ieggur £ slíkt hug- tak. Og Brynjólfur gerir sig satt að segja helzt til digran, þegar hann visar á hug hugmynd jafnaðar- manna um þjóðnýtingu af því að hann er þeirrar skoð xrnar, að hún komi ekki að meinu gagni nema sósíalism imn austan jámtjaldsins bætist við. Þá hefur ágrein ingur kommúnista og jafn- aðarmanna náð hámarki. Brynjólfur er hins vegar fífldjarfur að minna á hann eins og nú er högum háttað x þeim ríkjum kom- múnismans, sem áttu að verða paradís dýrðar og vel megunar, en hafa reynzt kvalastaðir. Menn, sem leggja fræði- kenningar til grundvallar öllum umræðum, hvort held ur fjallað er um stjórnmál- in eða framhaldslífið, geta auðvitað deilt um þjóðnýt- ingu jafnaðarmanna á Vest- urlöndum. Sumum finnst hún of mikil, öðrum of lítil. Sama er að segja um félags- legu umbæturnar, sem vest- rænir jafnaðarmenn beita sér fyrir. Sú Rómaborg verð- ur ekki byggð á einum degi, og mörg sjónarmið koma vissulega til greina við smiði hennar. Eigi að síður geta jafnaðarmenn sæmilega við unað. Áxangurinn af starfi þeirra þyrfti raunar að vera meiri en orðið er, en hann er hörmungalaus með öllu. Þjóð ir Vesturlanda mega ekki til þess hugsa að missa af þeim umbótum og framförum, sem þær eiga jafnaðarmönnum og verkalýðshreyfingunni að þakka. Hins vegar vilja þær meira af svo góðu. En hver er reynslan af sósíaiisman- um í i-íkjum kommúnismans, ef skyggnzt er til þess sam- anburðar. sem Brynjólfur Bjarnason mun hafa vei- þóknun á ? Þar er árangurinn svo ömurlegur, að goðunum er steypt af stalli einu af öðru og þjóðirnar rísa upp í blóðugum uppreisnum gegn kúgurunum, sem þóttust vera að framkvæma sósíal- ismann. Ekki nóg með það, að þar hafi frelsið glatazt og við tekið þjösalegt einræði, sem leysir úr læðíngi villi- dýrseðli mannanna. Efnaieg velmegun þekkist ekki held- ur. Þjóðnýtingin mistekst, og félagslegu umbæturnar koma ekki í leitirnar. Þar hefur sem sé allt mistekizt á hryllilegasta hátt, svo að kallazt verður mesta harm- saga nútímans. Björgvin Guðmundsson hefur ærna afsökun, þegar hann aðhyllist hinn vest- ræna skiining á sósíalisman- um, en hafnar þeim aust- ræna. Og Brynjólfur Bjarna- son er sannarlega ekki öf- undsverður af sínu fljótræði. Örvaroddur ætti heldur að ræða um framhaldslífið en sósíalismann. SkribfofusfúllH. Skrifstofa Verðlagsstjóra óskar að ráða duglega stúíku nú þegar til vi'- wnarstarfa og símiavörzlu. Umsóknir ásamt upplýshigum um menntun semdist skrífstofunni fyrir 15. þ. m. Teknar hafa verið í *ctkim nýjar tollianflutnings- skýrslur. í DAG er ein af merkustu konum þessa lands sjötug. Við konur getum ekki látið þennan dag líða án þess að minnast hennar á opinberum vettvangi. Hún hefur komið svo mikið við sögu opinberra mála, síðastlið- in þrjátíu ár, að vert er að þakka og minnast, enda veit ég að margir muni senda henni hlýjar kveðjur í dag. Frú Aðalbjörg er fædd að Miklagarði í Eyjafirði 10. jan- úar 1887, og ólst þar upp, hjá foreldrum sínum. Ekki kann ég að rekja ættir hennar, enda skiptir það engu. Aðalbjörg er Iandskunn kona og hefur orðið það vegna síns eigin ágætis. Snemma mun hugur hennar hafa hneigzt til menntunar. Mun hún aðeins hafa verið 17 ára, er hún fór í Flensborgar- skólann í Hafnarfirði og tók kennarapróf við kennaradeild ina þar. Eftir það varð hún kennari við barnaskólann á Akureyri í tíu ár. Mun hún hafa verið vinsæl og sýnt rík- an skilning á sálarlífi barn- anna. Minnist ég þess nú. að er ég árið 1948 var í Kanada hitti ég þar konu, er fluttist frá Akureyri vestur um hafa 10 ára gömul. Hún spurði míg strax um frú Aðalbjörgu. Ég vildi vita hvar þær hefðu kynnzt: ,,Hún kenndi mér, og henni gleymi ég aldrei“, sagði hún. Af þessu má ætla að frú Að- albjörg hafi átt og eigí fjölda aðdáenda, sem ekki gleyma henni fremur en konan vestra. Árið 1918 verða þáttaskil í lífi Aðalbjargar. Hún hættir kennslu, giftist Haraldi Níels- svni prófessor og tekur við stóru og umfangsmiklu heim- ili, og stjúpbörnum, og sezt að í Reykjavík. Aðalbjörg var þá í Guðspeki- félaginu og flutti hún oft ræð- ur á fundum, sem vöktu mikla athygli. Mun sú hugsun hafa vaknað hjá mörgum, sem á hana hlýddu, að hún mundi góð ur liðsmaður að hvaða málum, sem hún sneri sér, hvort, sem um væri að ræða andleg eða veraldleg mál. Var nú af ýms- um leitazt við að fá hana til þess að gefa sig að stjórnmál- um. Mun þeim hafa fundízt hún líkleg til aðdrátta jafngáfuð, og mælsk og hún var. Svo mik- ið er víst að frú Aðalbjörg hefði orðið auðsóttur frami innan flokkanna, ef hún hefði viljað binda sig flokksaga. En sann- leikurinn er sá, að frú Aðal- björg hefur aldrei verið í nein- um stjórnmálaflokki, nema gömlu ,,Skjaldborg“ á Akur- eyri, sem barðist fyrir sjálf- stæði íslands. Árið 1924 varð hun ein af stofnendum. „Sumargjafar“ og þá kosin í stjórn, en fór úr stjórninni eftir tvö ár. Árið 1940 eða 1941 er hún aftur kos- in í stjórnina og hefur átt þar sæti síðan, eða alls í 17 ár. Árið 1931 var hún skipaður skólanefndarformaður yfir barnaskóla Reykjavíkur og gegndi því starfi þar til lögum um skólanefndir var breytt. f bæjarstjórn sat hún sem vara- maður á lista Framsóknar- flokksins í tvö kjörtímabil, en gekk í bæði skiptin inn sem aðalmaður skömmu eftir kosn- ingar. Frú Aðalbjörg var formað- ur þeirrar nefndar,; er samdi íyrsta frumvarpið að barna- Aðalbjörg Sigurðardóttir. verndarlöggjöf á íslandi. Hún sat í skólamálanefnd þeirri, er samdi frumvörpin að núgild- andi fræðslulöggjöf landsins. Þá hefur frú Aðabjörg og verio virkur þátttakandi í starfi og baráttu kvenna fyrir bætt- um kjörum og jafnrétti. í þrett án ár hefur hún verið varafor- maður í Kvenfélagssambandi Islands og nú er hún formaður í Bandalagi kvenna í Reykja- vík. Þá hefur frú Aðalbjörg starfað í áfengisvarnanefnd kvenna frá því að þau samtök voru stofnuð og er henni alveg Ijóst bölið, sem leiðir af áfeng- inu. Þetta virðist ærið starf og næstum ötrúlegt að kona. sem annast heimili og uppeldi bárna geti sinnt þessu. Þó væit ég að margt er enn ótalið, sem tekur sinn tíma. Veit ég til þess að ótalmargir hafa leitað ráðá til frú Aðalbjargar undir ýms- um kringumstæðum og ávallt farið hressari og glaðari af fundi hennar. Mann sinn missti frú Aðal- björg 1928 frá tveimur börn- um, öðru á 9 ári, hinu 6 ára. Frú Aðalbjörg hefur veitt lið hverju góðu málefni, án til- lits til þess, af hvaða flokki það hefur verið borið fram. Er þá öllum ljóst, hvers vegna hún vill ekki vera háð neinum stjórnmálaflokki. Starf hennar á sviði kvenfélagsmálanna hef- , ur verið konum mikill styrkur, i svo oft hefur hún komið fram !á opinberum vettvangi sem fulltrúi þeirra. Eg verð að trúa því. að frú ,Aðalbjörg sé sjötug. En það ætti enginn að mæla aldur í árum. Hún er enn ung, létt í spori og full af lífsþrótti og áhuga á þeim málum, sem þjóð og Iandi megi verða til fram- gangs og heilla. Enn er hugur hennar ríkur af velvild og skilningi til samferðamann- anna, sem verða á leið hennar. Enn er hún reiðubúin að veita þeim styrk og þá andlegu upp- í örvun, sem hún á í svo ríkum rnæli. Hún er tryggur vinur, og sannur mannvinur í þessa orðs fyllstu merkingu. Það á líklega IFrh. af 4. síðu.) FONDUR MEÐFYLGJANDI mynd er af stól og borði. í báðum tilfell- um er aðeins um. að ræða plötu og ferning, sem festur er undir hana. Mál er ekki svo gott að gefa, betra er að hver og einn hafi þá stærð, er honum hentar. Með því að nota við með á- límdum plastplötum, sem hægt er að fá með alls konar áferð, má gera á þennan hátt eldhúss- húsgögn, stofuhúsgögn eða sum arbústaðarhúsgogn, allt eftir smekk hvers og eins. Það er mesti misskilnignur að húsgögn þurfi endilega að vera dýr og íburðarmikil til að nokkur hafi ánægju af þeim. Ég er fyrir mitt leyti viss um að handlaginn maður, er smíð- ar sér t.. d. borðstofusett eftir fyrirmjuid þeirri, er hér er gef- in, er mun ánægðari með það ef vel tekst, en rándýrt sett, er hann hefði greitt margfalt verð efnis þess, er farið hefur í heimatilbúna settið. Það er ekki allt fengið með veiðinu. Snotur húsgögn létt og einföld í sniðum, helzt búin til af eig- anda sjálfum, veita örugglega mun meiri ánægju en aðkeypt auk þess sem hann getur hreyk inn sagt við vini og ættingja, er fara að dást að þeim: „Ég smíðaði þau sjálfur." Segja má að „gerðu það sjálf- ur“ alda hafi gengið yfir undaB- fárið og það svo að viðsjárvert hafi reynzt. ••Byg'gðu húsið þitt sjálfur", gerðu við það •sjálfur og yfir- leitt gerðu allt sjálfur — bæk- ur hafa verið á markaðnum í j tonnatali og allur þessi áróður i hefur orsakað að allt i einu I fannst hæglyndustu mömxum . þeir vera orðnir voðakarlar, j sem færir væru í flestan sjó. | Þeir ruku til að byggja hús, ' gera við hús o. s. frv. Þetta hef ur kostað svo mikið af slysum, vegna vanþekkingar á meðferð áhalda, að til vandræða hefur oft horft, svo að ótaldar séu tap ■ aðar vinnustundir vegna togn- t unar í baki, marðra fingra og annarra smáóhappa. Mannslát hafa jafnvel orsakazt af þessu ' „gerðu það sjálfur“ æði. Svo fer hér sem oftar að kapp er bezt með foi’sjá, og ættu því ekki aðrir en þeir, sem náttúr- aðir eru fyrir þessa hluti og handlagir, að leggja fyrir sig smíðar eða aðra vinnu, er þeir ekki hafa æfingu í. En í. d. skrifstofumönnum er smáhreyf ing eins og létt smíðaföndur holl. S. Þ.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.