Alþýðublaðið - 28.03.1957, Blaðsíða 4
Fimmtudagur 28. marz 1957
Útgefandi: Alþý'ðuflokkurinn.
Ritstjóri: Helgi Sæmundsson.
Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson.
Blaðamerin: Björgvin Guðmunddsson og
Loftur Guðmundsson.
Auglýsingastjóri: Emilía Samúelsdóttir.
Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902.
Afgreiðslusími: 4900.
Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 8—10.
s
V
s
s
l
s
i
s
s
s
s
s
s
1
s
s
s
$
s
s
s
s
$
>
s
s
s
s
s
*
s
s
b
s
s
s
s
s
$
s
s
$
s
s
s
s
s
s
s
s
)
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
Sjónhverfingarnar
SJÁLFSTÆÐISFLQKK-
(JR.INN er alltaf sjálfum sér
líkur. Nú segir hann í um-
ræðum á alþingi, að skatta-
hlunnindi sjómanna séu allt
of lítil. Undanfarið hefur
hann hins vegar lagzt af al-
efli gegn skattahlunnindum
sjómanna. En nú er íhaldið í
stjórnarandstöðu, og þá telur
það ríkisstjórnina ganga allt
of skammt í því, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur hing
að til ekki mátt heyra nefnt!
Þetta er ein sönnunin
ennum ábyrgðarleysi Sjálf
stæðisflokksins og furðuleg
viðbrögð hans í stjórnar-
andstöðunni. Hann hefur
ekkert til málanna að
leggja annað en vera á
móti ráðstöfunum ríkis-
stjómarinnar. Og honum
dettur ekki í hug að sam-
raema þau viðbrögð fyrri
afsíöðu sinni. Þess vegna
stendur Sjálfstæðisflokkur-
inn uppi eins og illa gerður
hlutur og verður að við-
undri í augum þjóðarinn-
ar. Honum er sannarlega
skömm að stærð sinni og
reynslu. Foringjar hans
haga sér á alþingi íslend-
inga eins og sjónhverfinga
menn á leiksviði. En til-
raunin er vonlaus. Allir
kunna þau skil á fortíð
Sjálfstæðisflokksins, áð
enginn lætur blekkjast af
Ieikaraskapnum.
Satt að segja er það lág-
markskrafa, að stjórnmála-
flokkur, sem vill láta taka
sig og störf sín alvarlega,
fylgi í valdatíð sömu stefnu
og hann boðar í stjórnarand-
stöðu. Ef Sjálfstæðisflokkur
inn er þeirrar skoðunar, að
skattanlunnindin, sem sjó-
mannastéttin fær úr hendi
núverandi ríkisstjórnar, séu
allt of lítil, bar honum
skylda til að reyna að gera
betur í valdatíð sinni. Hver
man til slíks? Enginn, alls
enginn. Þvert á móti mátti
Sjálfstæðisflokkurinn þá
ekki heyra minnzt á skatta-
hlunnindi sjómanna, þó að
hann snúi nú við blaðinu og
haldi, að ábyrgðarleysið
verði honum til framdráttar.
En framkoma hans er móðg-
un við sjómennina. Þeir sjá
við sjónhverfingunum. Og
því mun Sjálfstæðisflokkn-
um þykja verr farið en
heima setið, þegar hann verð
ur reynslunni ríkari og sann
færist um, hvernig sjómanna
stéttin bregzt við blekking-
um hans.
Aö senda tóninn
UNDANFARH) hefur
dvalizt hér danskur rithöf-
undur, Hans Jörgen Lem-
boum að nafni. Hefur hann
átt hlut að félagsstofnun og
flutt opinberan fyrirlestur
um áhugamál sín. Maðurinn
er andvígur einræði og kúg-
un og hefur gerzt áhrifamik-
ill x baráttunni gegn þeim
ósóma. Málflutningur hans
einkennist hins vegar af
öfgaleysi og rökfestu, og
þess vegna er góður viðburð
ur að heimsókninni.
Þjóðviljinn hefur tekið
gestinum illa. Lembourn er
andvígur heimskommúnism-
anum og varar einarðlega
við þeirri hættu. Blað Sós-
íalistaflokksins lítur hann
þess vegna óhýru auga. Við
það er út af fyrir sig ekkert
að athuga. Hitt er hneyksli,
að Þjóðviljinn skuli snúa út
úr orðumLembournsogvera
með skæting í garð hans.
Blaðinu væri sæmra að deila
málefnalega við manninn og
reyna að hnekkja orðum
hans með rökum. Það reyna
Þjóðviljamennirnir ekki.
Þeir velja hinn kostinn að
senda tóninn eins og götu-
strákar.
Þetta er blettur á íslenzkri
blaðamennsku, og hann kem
ur aldrei betur í ljós en þeg
ar útlendingar eiga í hlut.
Þeir eiga öðru að venjast. Og
þess vegna er illa farið, að
Þjóðviljinn skuli þurfa að
verða þjóð sinni til skamm-
ar með fúkyrðum og lodd-
araskap. Það er að gera ó-
sómann að útflutningsvöru.
Utan úr heimi
Stf t í
í EINA VIKU, um mánaða-
mótin febrúar-marz, var mikil
hætta á stjórnarkreppu í Finn-
landi. Hin formlega orsök þessa
var, að Bændaflokkurinn var !
óánægður með þá ákvörðun
stjórnarinnar að lækka verð á;
mjólk til framleiðenda. Iiinar:
dýpri orsakir lágu enn lengra í j
fortíðinni og stöfuðu af ósam-;
rýmanlegum hagsmunum, sem :
jafnaðarmenn annars vegar og
Bændaflokkurinn hins vegar
eru fulltrúar fyrir. Við erfiðar
aðstæður, er leysa þurfti ýmis
aðkallandi efnahagsvandamál á
svipstundu, komu andstæðurn-
ar skyndilega í ljós í deilu, sem
ógnaði með hreinni stjórnar- j
kreppu.
í rauninni gekk þetta svo
langt, að þingflokkur Bænda-
flokksins ákvað að draga sex
ráðherra sína út úr stjórninni.
Samkvæmt þessu tilkynnti
Fagerholm forsætisráðherra, að
stjórn hans nyti ekki lengur
nauðsynlegs þingmeirihluta, og
hann væri því reiðubúinn að
segja af sér. Kekkonen forseti
hvatti þó Fagerholm til að fara
ekki frá að sinni. Þessi beiðni
þýddi ekki annað en það, að
forsetinn vildi forðast skyndi-
lega afsögn og óskaði þess, að
aðilarnir að deilunni reyndu
enn einu sinni að finna lausn .
hennar.
Næstu daga gerðist það m. a.,
að Fagerholm tilkynnti í ræðu
það sjónarmið jafnaðarmanna, |
að fyrst yrði að leysa stjórnar-
krepp-una, áður en hægt væri j
að leggja fram hið boðaða frurn ;
varp um ráðstafanir í efna- j
hagsmálum. Með öðrum orðurn j
mátti ekki nota stjórnarkrepp- j
una til þess að hafa áhrif á ráð- j
stafanirnar. Bændaflokkurinn j
var á annarri skoðun.
Hinn 5. marz hvatti Kekkon-
en forsti Bændaflokkinn til að
hefja samningaviðræður við
forsætisráðherrann um áfram-
haldandi stjórríársamvinnu og
krafðist þess, að niðurstöður
viðræðnanna yrðu lagðar fyrir
hann í síðasta lagi 7. marz. Ef
eining næðist ekki kvaðst for-
setinn mundu reyna að leysa
vandamálið ,,á annan lxátt“.
Það eru engar ýkjur að segja,
að hin kröftugu viðbrögð for-
setns í þessu máji uppfylltu þær
vonir, sem almenningsálitið í
landinu gerði til æðsta manns i
ríkisins. Þannig skrifaði Hels-1
ingin Sanomat, stærsta blað
landsins (óháð, frjálslynt), að j
..forseti lýðveldisins hefði gert;
það, sem búízt var við af hon-
um. Þetta þýðir, að við lifum
upp aftur þá meðferð mála, sem
tíðkaðist á dögum Stáhlbergs,
Svinhufvuds og Kallios.“
Árangurinn lét heldur ekki
bíða eftir sér. Fimmtudaginn 7.
marz komu þingflokkar jafnað-
armanna og Bændaflokksins sér
saman um- áframhaldandi
stjórnarsamstarf. í tilkynningu
um ákvörðunina sagði, að þrátt
fyrir skoðanamun Bændaflokks
ins um ráðstafanir vegna
mjólkui'verðsins hefðu flokk-
arnir orðið ásáttir um að virða
ósk íorsetans um, að samvinn-
unni skyldi haldið áfram á nú-
verandi grundvelli. Auk þess
var tilkynnt, að frumvarpið
um efnahagsráðstafanirnar
yrði fullgert fljótlega og lagt
fyrir þingið. í útvarpsræðu um
þetta síðasta atriði sagði Fag-
erholm forsætisráðherra, að
„enginn mundi gleðjast“ yfir
ráðstöfununum, en skjótar og
ákveðnar aðgerðir væru algjör-
lega nauðsynlegar.
Það, sem maður finnur fyrst
og fremst til eftir þessa erfiðu
viku er, að loftið hefur að
minnsta kosti að nokkru leyti
hreinsazt og grundvöllurinn
fyrir öruggri stjórnarstefnu
batnað.
Askriflasímar blaðsins
eru 4300 og 4001.
GAGNKVÆM SKIPTI á
sendinefndum við Ráðstjórnar-
ríkin höfðu farið ört vaxandi,
þangað til hinn 4. nóvember
1956, þegar skyndilega tók al-
veg fyrir þau. Frá þeim-degi
að telja gat enginn heiðvirður
maður í frjálsum lýðræðislönd-
um verið þekktur fyrir að koma
I til móts við fulltrúa frá landi,
' sem beitti vopnavaldi til þess
j að kyrkja uppreisn ungverskra
• verkamanna og allrar þjóðar-
innar í blóði og flytja þeim
„vinarkveðjur“ í ræðu, þrýsta
hendi þeirra og kjassa þá.
Kommúnistum í norskum
verkalýðsfélögum fannst það
eðlilegt, að allar tæknisendi-
nefndir okkar, sem þá voru
staddar í Ráðstjórnarríkjunum,
kvöddu hið skjótasta og hurfu
heim. Sendinefnd rússneskra
blaðamanna, sem var í Noregi
í kynnisför, hvarf úr landi, áð-
ur en nokkur þeirra Norð-
manna, sem höfðu samband við
blaðamennina, gat náð tali af
þeim.
Síðan ákváðu stúdentar. að
lögð skyldu niður að sinni öll
skipti við rússneska stúdenta,
en þau höfðu átt sér stað um
nokkurt skeið. Ungmennaráð
1 íkisins og skautasambandið
(.Statens Ungdomsrád og
Sköyteforbund) bafa einnig
gert sviraðar ráðstafanir.
Allir Norðmenn, sem ekki
hafa gleymt eigin frelsisbar-
áttu. hafa talið þetta eðlilegt.
Lýðræðisríkin í þessum hluta
hei xis geta ékki sent vopnaðar :
herdeildú- til Ungverjalands til
þess að hrekia Rússana burt. j
Það eina, sem við getum gert, j
er að gefa Halvard Lange orðið j
og láta hann suvla forystu-
mönnum Ráðstjúrnarríkjanna
siðferðilega ási run. En að
hvaða gagni k.mur slík sið-
ferðileg áskorun, ef við höldum
áfrarn þessum svonefndu
menntaskiptúm og látum sem
ekkert hafi skeð? Allir rússn-
eskir stúdentar, skautamenn og
verkalýðsmenn munu halda, að
við afsökum yfirgang Rússa og
tökum góða og gilda þá stað-
hæfingu rúsSneskra valdhafa,
að uppreisnin væri fasistahreyf
ing, sem verði að bæla niður í
nafni frelsis og sósíalisma!
Þess hefur ekki verið van-
þörf undanfarið, að við gæfum
þessu vandamáli meiri gaum.
S GREIN ÞESSI er þýdd úr'
Smálgagni norska Alþýðu-^
^sambandsins, Fri fagbeveg-s
•else, og eftir ritstjóra þess,S
^Alfred Skog, sem komiðS
^héfur hingað til lands ogS
^margir í íslenzku verkalýðs-S
^hreyfingunni o-g Alþýðuö
S flokknum kannast við.
Þegar í byrjun þessa árs fóru
að heyrast raddir um það, að
við mættum ekki rjúfa „menn- j
ingartengsl við rússnesku þjóð-:
ina“. í þeim hópi eru formaður
íþróttaráðs Noregs, Arthur
Ruud, og ritstjóri vikublaðsins
,,Aktuell“, Asmund Rörslett.
„Við verðum að styðja málstað
friðarins með því að halda á-
fram þessum samskiptum" við
hinn rússneska heim, ságði
Rörslett m. a. í grein, sem hann
birti i blaði sínu.
Þessu er því til að svara, að
við höfum ekki önnur ráð til
þess að hjálpa óbreyttu alþýðu-
fólki í Ráðstjórnarríkjunum en
að láta það vita, hvað raunveru-
lega skeði í Ungverjalandi og
gera því skiljanlegt, hver af-
staða okkar er til þessara mála;
þetta er fyrsta skrefið, sem við
verðum að taka til þess að koma
í veg fyrir, að við verðum
nokkurn tíma óvinveittir gagn-
kvæmum menntaskiptum við
rúsnesku þjóðina. Rússar hafa
sömu hæfileika til að hugsa og
aðrir menn. Við þessi skyndi-
legu umskipti og algjöru slit
á öllum tengslum við hinn vest-
ræna heim, að ekki sé talað um
diplómatasamband og viðskipti
milli landanna, munu Rússar
án efa íhuga og furða sig á,
hvaða ástæða sé fyrir þessari
breytingu. Enn sem komið er
getum við ekki gert annað en
beðið átekta og séð hvað skeð-
ur. Öll önnur viðbrögð af okk-
ar hálfu yrðu ekki nefnd ann-
að en „óskhyggja.“
Það er von okkar, að allir
þeir, sem hafa ekki enn sann-
færst um, að Ráðstjórnarríkin
eru einveldi af nokkuð sérstakri
gerð, geti að minnsta kosti gert
sér grein fyrir því nú, að enn
er ekki kominn tími til þess að
taka upp aftur þessi svonefndu
menntaskipti við Rússa. Menn
verða fyrst að gera sér þetta
ljóst, áður en hægt er að fara
að ræða um endurnýjun slxkra
samskipta. Varla hefur enn
skafið yfir blóðug spor eftir að-
farir rúsneskra skriðdreka-
sveita í Ungverjalandi.
áfhugasemd
Sigríður Erlendsdóttir, for-
maður dagheimilisnefndar
Verkakvennafélagsins Framtíð-
arinnar í Ilafnarfirði, óskar eft-
ir að taka það fram, að stækk-
un dagheimilis félagsins á
Hörðuvöllum sé meiri en skýrt
var frá í frétt blaðsins um það
elni sl. sunnudag. Verður heim-
ilið stækkað um % eða nánar
til tekið stækkað um helming
á lengd og 4 metra á breidd. Þá
sagði Sigríður einnig að slcrif-
stofuherbergið yrði tekið’ af
göngunum og myndi því engin
áhrif hafa á rýmið fyrir börnín.
Verður því unnt að fjölga börn-
um um helming þess vegna.