Alþýðublaðið - 31.03.1957, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 31.03.1957, Qupperneq 9
Sunnndagur 31. marz 1957 Atþýðublaftið w Iþróffír \ 'V- Þetta er brezki hlauparinn Koger Bannister, sem fyrstur hljóp enska mílu (1G09 m.) á befri tíma en 4 mín. A SUNNUDAGSKVOLDIÐ voru háðir tveir leikir í xneist- araflokki karla á meistaramóti íslands í handknattleik. FEAM — VALUR 26 : 15 Þessa leiks var beðið með töluverðri eftiivæntingu, því að fiestir álitu að hann gæti j orðið jafn og skemmtilegur. Sú j varð þó ekki raunin, til þess1 voru yfirburðir Fram of mikl- 3r, sérstaklega í síðari hálfleik. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn, en f ram hafði alltaf eitt , til þrjú mörk yfir. Hálfleikur- inn endaði 12:9 fyrir Fram. Síðaii hálfleikur var ekki skemmtilegur, óþarflega mikil Hiarka og Fram tók leikinn al- gjörlega í sínar hendur. Það kemur alltof oft fyrir, að liðs- menn þess liðs, sem er að tapa leik, láta skapið hlaupa með sig í gönur. Framkoma sumra áhorfendanna að Hálogalandi er líka oft fyrir neðan allar hell ur, þeir hafi í frammi alls kon- ar óhljóð og skrílslæti og setja með því leiðinlegan svip á keppnína. Þau félög, sem sjá ’am leikkyöidin, eru ekki nógu vakandi, fjöldinn allur af ung- lingum er rúllandi fiöskum og öðru lauslegu í salnum í leik- hléi, slíkt vexður að koma í veg fyrir, það er algjör lágmarks- krafa áhorfenaa og leikmanna. ÍR — ÞRÓTTUR 32 : 18 Síðari leikur kvöldsins var milli ÍR og Þróttar. ÍR-ingar höfðu yfirburði í leiknum frá byrjun til enda. Fyrri hálfleik- ur endaði með 13:8 fyrir ÍR. Þróttarar náðu litlu samspili og gekk illa að finna hvern annan, aftur á móti var hraði og leikni ÍR-inga allgóð á köfl- um, þó að fyrir kæmi að allt færi í handaskolum. Leikurinn endaði 32:18 fyrir ÍR. LEIKIR LAUGARDAGS- KVÖLDSINS 3. fl. karla: Ármann — Víkingur 14:12. KR — Valur 24:10. Fram — ÍR 15:14. Meistarafl. kvenna: Þróttur •— Ármann 11:8. 1. fl. karla: FH — Þróttur 19:12. ÁSTRALÍUMENN eiga mjög góða millivegahlaupara og má nefna menn eins og Landy, Elliott og Mervyn Lincoln. Sá síðastnefndi vann það afrek á íþróttamóti í Melbourne laug- ardaginn 23. marz að hlaupa enska rnílu á 3:59,0 mín. Hann er því 11. maðurinn, sem hleyp ur þessa vegalengd á skemmri tíma en 4 mín. Lincoln komst í úrslit í 1500 m. hlaupi á OL, en var síðastur í úrslitunum. Þessir menn hafa hlaupið míluna á betri tíma en 4 mí.n: J. Landy, Ástralíu 3:58,0 ’54 J. Bailey, Ástralíu 3:58,6 ’56 R. Bannister, Engl. 3:58,8 ’54 L. Tabori, Ungv. 3:59,0’55 I. Rzsavölgyi, Ungv. 3:59,0 ’56 R. Delaney, írlandi 3:59,0 ’56 M. Lincoln, Ástralíu 3:59,0 ’57 G. Nielsen, Danmörku 3:59,1 ’56 D. Ibbotson, Englandi 3:59,4 ’56 C. Chataway, Engl. 3:59,8 ’55 B. Hewson, Englandi 3:59,8 ’55 Erlendar íþrótta- fréttir BRASILÍA sigraði Ecuador í Suður-Ameríku keppninni í knattspyrnu með 7:1. Léikur- inn fór fram í Lima og stóðu leikar 2:1 fyrir Brasilíu í fyrri hálfleik. SÆNSKA knattspyrnufélag- ið Djurgárden, sem keppti hér um árið, hefur verið á keppnis- feroalagi í Tékkóslóvakíu. Fyr ir nokkrum dögum tapaði það fyrir Dynamo, Prag, með 2:3. UNGVERSKI langhlaupar- inn Josef Kovacs slasaðist á í- þróttamóti í borginni Debrec- zen, er hann varð fyrir sleggju. Hann varð að fara á sjúkrahús og er alvarlega slasaður. BANDARÍKJAMENN leika sinn fyrsta leik í HM í knatt- spyrnu 7. apríl og mæta þá Mexiko. í liðinu eru 5 leik- mtenn, sem fæddir eru í Ev- rópu, en þeir eru: Engedal, Dan mörku, markvörður,. Becker, Þýzkalandi, Murphy, Skot- landi, Snylyk, Rússlandi og Springthorpe, Eng’landi. Sá síðastnefndi lék um tíma með enska atvinnumannaliðinu Wolverhampton, m. a. 1949, þegar félagið vann ensku bik- arakeppnina. ÁKVEÐIÐ hefur verið að sundmenn og sun.dknattleiks- mnenn úr Ármanni fari tii keppni til Au.-Þýzkalands síðar á Jjessu ári. Eru þessar ferðir farnar í boði austur-þýzkra sport- Sdúbba. — Sundmennirnir sex fara til Rostock í október en Siiindknattieiksmennirnir keppa í Berlín í apríl. fþróttamaður slasast Á íþróttaæfingu hjá ÍR á föstudagskvöldið slasaðist Heiðar Georgsson í ökla. Hann var að reyna að stökkva ca. 3,50, kom mjög illa niður og er brákaður, liðpokinn skaddaðist og einnig tognaði hann mjög illa. Heiðar hefur verið í mjög mikilli framför í stangarstökki undanfarið. Eftir þrjá mánuði keppa íslendingar við Dani í frjálsum íþróttum og er alveg óvíst, að Heiðar geti orðið með í þeirri keppni. Eitt af efíirsóknarverðustu úrum heims. ROAMER úrin eru ein af hinni nákvæmu 6g vandvirku framleiðslu Svisslands. í Verk- smiðju, sem stofnsett var (árið) 1888 eru 1200 fyrsta flokks fagmenn sem framleiða og setja saman sérhvern hlut sem ROAMER sigurverkið síendur saman af. 100% vatnsþétt. — Fást hjá flestum úrsmiðum. Höggþétt. fyrir húsaupphitun fyrirliggjandi Símar 6570 — 6571

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.