Alþýðublaðið - 05.04.1957, Síða 7

Alþýðublaðið - 05.04.1957, Síða 7
Föstudagur 5. apríl 1957. AfþýgMbtaing Warburi ERIK WARBURG, hinn nýi re-ktor Kaupmarmahafnarhá- skóia, er 64 ára. Hann fæddist á efnaheimili í Kaupmanna- hofn, en mesta hamingja hans var að fá í vöggugjöf mannvit | mikið. Það hefur verið vopn! hans í lífinu, sífellt eggjað og j hvesst. Á stúdentsárunum bar'j hann af félögum sínum að | þekkingu, og hann aflaði sér! mikils álits meðai stéttarbræðra 1 sinna þegar ú unga aidri. Bæri vanda að höndum, var jafnan spurt: Hvað segir Warburg? Og Warburg gat ætíð leyst úr vandanum. Hann gagnhugsaði ályktanir sínar, og skoðanir hans voru ávallt vel rökstuddar. Upphaflega ætlaði Warburg sér ekki að veroa læknir. Sem unglingur : hafði hann meiri mætur á eðlis- og efnafræði, og ýmsum fannst athugavert, að hinn ungi læknir skyldi hverfa af hátindum vísindanna niður á jafnsléttu .lífsins til rúm- helgra starfa meðal sjúklinga. Menn kviðu því, að þetta gáfna- ljós fengi ekki notið sín í júkra- hússdeild. En ótti þeirra reynd- ist ástæðulaus. Hjá því.verður. ekki komizt, að af manni eins og Warburg, hlöðnum raf- magni, gneisti á stundum lit- fagrar eldingar. Þess vegna Ikunna hárin stöku. sinnum að hafa sviðnað af einhverjum í návist hans, en heimurinn væri ömurlegur, ef allir menn væru eins og grár hversdagsleikinn og hugsuðu um það eitt, að mæla sér aldrei til óhelgi. War- burg á það til að ganga fram af fólki og getur verið hatram- lega hreinskilinn, en það er ekki alltaf vinsælt. Þessi spennivídd persónuleikans hefur gert hann að þeim manni, sem hann er, en aðalþættir skapgerðar hans 1 eru án efa tilfinninganæmi, j varfærni og hjartahlýja. Ef: hann beitir sínum persónulegu föfrum, er hann ómótstæðileg- ur. Hann getur skapað öryggi, en einnig valdið óvissu. Síðast mefndum eiginleika beitti hann Erik Warburg. með ólíkindum í stríðinu. Þeg- ar hann hafði tilsjón í Horse- röd, var ekki ætíð auðvelt að sjá, hvorir gengu með sigur af hólmi í orðaskiptum þar á staðn um: Þjóðverjarnir eða prófess- orinn. Hann var sniliingur í þeirri list, sem leikin var á þessum árum: tvíræðu tali, og þegar hann einu sinni hélt fyr- irlestur fyrir stúdentum og tók dæmi um móðursýki sem sjúk- dómsfyrirbrigði, kom hann með nokkrar smáathugasemdir um móðursýkina miklu. Þegar setu- liðsyfirvöldin báðu um nánari skýringu á þessum ummælum, gat Warburg ekki skilið, hvern- ig þeim kom til hugar, að hann talaði um Hitler, athugasemdir REKTOR Kaupmannahafnarháskóla, hinn víðkunni danski sérfræðingur í hjartasjúk dómum, Erik Warburg, er kominn hingað í heimsókn og mun flytja hér fyrirlestra. Al- þýðublaðið birtir í tilefni þess meðfylgj- andi grein um manninn og störf hans, en hún kom í Politiken í haust, er dr. Warburg var kjörinn rektor háskólans. hans hefðu átt við Kristján II. Eftir banatilræðið við War- burg 1944 hélt hann áfram í B I starfi sínu við Rikisspitalann | ótiuflaður. Breyting varð eng-j in önnur en sú. að hann fékk j marghleypu, en hún er ein af því fáa, sem hann kann ekki með að fara. Þegar hann seild- ist .niður í skikkju.vasa sinn eft- ir hlustpípu og öðrum læknisá- höldum, fylgdi marghleypan alltaf með af gáleysi. Hánn lét sér fátt um finast hættuna, sem af henni stafaði. Hann átti jafn- vel til að gæla við hana. Hefðu einhverjir verið í efa, gátu þeir á þeim tímum sannfærzt um, að Warburg var ofurhugi. Ruddalegustu staðreyndir rösk- uðu ekki innra öryggi hans. Warburg hefur ekki legið á liði sínu í baráttunni við hjarta- sjúkdómana. Kennslubók harrs um truflanir á hringrás blóðs- ins er notuð hvarvetna á Norð- urlöndum. Hinn stórkostlegi ár- angur í handlækningum við hjartasjúkdómum byggist að miklu leyti á samvinnu við deild hans, þar sem gerðar eru víðtækar og nákvæmar rann- sóknir á starfsemi hjartans. Hér við bætist sá vísindalegi innblástur, sem hann er gædd- ur. Hann virðist vita, hvað fólk ætiar að segja, áður en það hefur komið orðum að því, á nýjan og undraverðan hátt get- ur hann bvggt starf sitt á hugs- unum þess, og ef Nóbelsverð- launum væri úthlutað fyrir inn- blásna starfsemi, ætti hann þau áreiðanlega skilið. Framhaltl á 8. síffu. KVENNAÞÁTTUR Ritstjóri Torfhildur Steingrímsdóttir KJÓLLINN, sem myndin hér með er af, nefnist svarti svan- nrinn og er frá Capucci, sem er ítalskt tízkuhús. Kjóllirin er fremur efnismikiil en þó ermalaus og fleginn ball- kjóll, sem teijast verður allt að því „dramatískur". o—o Það eru alls ekki svo fá hjón, er verða að láta sér nægja eitt til tvö herbergi og eldhús, þeg- ar þau hefja búskap. Þegar svo stendur á, er um að gera að nota rúmið í þessari smáu íbúð sem allra bezt, ann- ars verður hún leiðinleg og nið- urdrepandi fyrir íbúana. Ekki er heldur óalgengt, að þá séu komin eitt eða jafnvel fleiri börn og þá iðulega spurn- ing, hvar eigi að láta þau sofa. Nú er svo víða að dragkistur eru notaðar af jafnvel nýtízku húsmæðrum, og því þá c'kki að I nota þær líka sern barnarúm, þ. e. a. s. ekki er þar með átt við að láta börnin sofa í skúfí- unum þó slíks sé dæmi. Þvert á móti má auðveldlega búa um þau ofan á dragkistunni (eða kommóðunni) með litlum tii- kostnaði, en miklum rýmis- sparnaði. Eru þá útbúnar rimlagrindur, er fylgja brúnum kistunnar að ofan, og virkar þetta þá eins og venjulegt rimlarúm, eins og sjá má á meðíylgjandi mynd. o—o Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum virðist )>essi þáttur blaðsins æ verða verr úti, hvað : snertir meðferð á efni og mynd- um. Það er altítt, að slíkur ara- : grúi af hreinum prentvillum sé í honum, að vart er hægt að í- mynda sár, að próförk hafi veriö lesin, að ekki sé talað um live oft vantar myndir, sem þá er sagt að týnzt hafi hér eða þar. Þar sem ég er ekki starfandi á skrifstofum blaðsins og á ekki hægt með að fylgjast með hverju sinni hefir mér ekki re.vnzt kleift að fylgjast með þessu, en nú hefir ritstjórn biaðsins lof- aö að reyna að bæta úr þessu og um leiö og við vonum að þetta íslenzk og eriend úrvalsijóö - 1 I m rSt’í’.. m batni allt saman bið ég ykkur, lesendur góöir, afsökunar á þessu. — Ritstj. effir Davíð Sfefánsson STJÖRNURNAR, sem við sjáum sindra um himininn, eru gleðitár guðs,.söm hann felldi, er hann g’rét í fyrsta sinn. — Honum fannst ekkert af öllu yndi sér veita né ró og allt vera hégórni og heimska á himni, jörðog sjó —- — Svo var það á niðdimmri nóttu, að niðri á jörð hann sá, hvar fagnandi hin fyrsta móðir frumburð sinn horfði á. Og þá fór guð að gráta af gleði; nú fann hann það" við. ást hipnar ungu móour, að allt var íullkomnað. En gleðitár guðs, sem hann felldi, er grét hann í fyrsta sinn, eru stjörnurnar, sem vkýsjáum sindra um himininn. Söngur Guðrúnar í Moskvu SVO SEM að líkum lætur, befur mikið verið ritað síðustu vikurnar um Guðrúnu Á. Sí- monar í blöð í Ráðstjórnarríkj- unum og myndir birtar ;frá kon sertum hennar og við önnur tækifæri, cnda hefur hún hvar- vctna austur þar getið sér góð- an orðstír og unuið hvern sigur- inn á fætur öðrum. „Moskow News“ segir m. a. 20. f. m. í frétt frá fyrsta kon- serti Guðrúnar: „Tónlistar- menn í Moskvu leggja áherzlu á, að hún hafi góða rödd og ein- læga og þróttmikla túlkun.“ Hinn 28. f. m. birtist í blað- inu „Sovétskaja Kultura“ eftir- farandi grein með fyrirsögninni „Gestatónleikar íslenzkrar söng konu“, um fyrstu söngskemmt- un listakonunnar í Ráðstjórnar ríkjunum, en hana hélt hún sunnud. 17. s. m. í Vísindahöll- inni í Moskvu fyrir fullum sal vandfýsinna áheyrenda, sem fögnuðu henni svo mjög, að hún varð að svngja mörg auka- lög: „íslenzka söngkonan Guðrún Símonar, sem nú er í söngför um Sovétríkin, hefur haldið hljómleika í Moskvu. Guðrún! Símonar hefur fallega. þýða i söngrödd (lýriska sópranrödd); og er hámenntuð söngkona. | Söngur hennar einkennist af j djúpxi innlifun og skýrri og1 hárfínni túlkun á stíl tónverks- : ins. Á hljómleikunum, sem haldn j ir voru í tónleikasal Vísinda-j hallarinnar í Moskvu, kom Guðrún Símonar fram fyrst og fremst sem konsertsöngkona, er af jafnmiklu öryggi og leikni gat túlkað tónverk hinna gömlu meistara — ítölsku tónskáld- anna Claudio Monteverdi, An- tonio Caldara, Pergolesi og Ðu- S s s ; s s s ; s s s V s s s; \ s s s s s s s s s s S. s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s Guðrún Á. Símonar. rante •— sem verk íslenzkra nú tímatónskálda. Söngur Guðrúnar Símonar á lögum spænska tónskáldsins de Falla var þýður og innilegur. þó sérstaklega í ,,Vögguvísu“ og „Jota“. Áhrifamikilli og fág- aður var söngur Guðrúnar S,- monar á sönglögum Brahrps „Dein blaues Auge“,, „Der Schmied“ og „Von ewiger Liebe“. Guðiún Símonar hefur ágætt vald á röddinni. Hrein tónmeðferð, algjört áreýnslu- leysi og næm tilfinning fyrir listrænni hófsemi eru þættir, sem mjög eru einkennandi fyr- ir listgáfu söngkonunnar. Söngkonan flutti textana vi.ð lögin á frummálinu, og ber það vott um hina ágætu nienntu'.'i Guðrúnar Símonar. Með kynningu sinni á (ón- verkum íslenzkra nútímatón- skálda hefur Guðrún Símonar Framhaíd á 8. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.