Alþýðublaðið - 12.04.1957, Side 4

Alþýðublaðið - 12.04.1957, Side 4
AlþýðublaSið Föstudagur 12. apríl 1957 Wolfgang Harich: Játni EF við getum hrundið þess- um breytingum í framkvsemd og bætt lífskjör manna (jafn- vel þótt þau jafnist ekki á við iífskjör fólks í Vestur-Þýzka- landi), teljum við okkur hafa rétt til þess að setja fram skil- yrði fyrir sameiningu lands- ins, einnig fyrir Vestur-Þýzka- land. Mikilvægasta atriði á stefnuskrá okkar er, að samein ing Þýzkalands þurfi ekki að hafa í för með sér endurreisn auðvaldsskipulagsins. Áður en við getum sameinazt Vestur-iÞýzkalandi, yrði Jafn- aðarmannaflokkurinn, sem gert er ráð fyrir að fái meirihluta á þingi, að framkvæma eftirfar- andi ráðstafanir í Sambands- lýðveldi Þýzkalands: Að horfið verði frá endurher væðingu. Þýzkaland segi sig úr Atlantshafsbandalaginu. Fasist um og hernaðarsinnum, sem nú 'gegna ábyrgðarmiklum stöðum í Sambandslýðveldinu, verði vikið úr embætti. Iðnað- ur verði þjóðnýttur. Breyting- ar vérði gerðar á skipúlagn- ingu Íandbúnaðarmála: stórum landareignum verði skipt, þar sem það er hentugt frá efna- hagslegu og stjórnmálalegu sjónarmiði. Breytingar á menntamálum: háskólanám má ekki halda áfram að vera for- réttindi hinna ríku. Ef jafnaðarmenn fylgdu þessari stefnu, myndum við samþykkja að haldnar verði frjálsar kosningar í öllu Þýzka landi. í þessum kosningum myndi það vafalaust koma skýrt í ljós, að afturhaldsöflin í Sambandslýðveldinu og Stal- ínistar í Alþýðulýðveldinu yrðu aðeins einangraðir minnihlut- ar. 2. Okkur er ljóst, að við slíkar aðstæður myndi Jafnaðar- mannaflokkurinn vafalaust fá meirihluta í öllu Þýzkalandi. Endurskipulagður Sameining- arflokkur sósíalista yrði þá skil yrðislaust að lúta og virða slíka ákvörðun þýzku þjóðar- innar. Það er umfram allt skilyrði fyrir sameiningu þýzku verka- lýðshreyfingarinnar í framtíð- inni, að Sameiningarflokkur sósíalista verði algerlega hreins aður af Stalínisma og gerður ó- háður erlendum flokkum hvað hugsjónir og stefnu snertir. Eft ir að endurskipulagning flokks ins hefði verið framkvæmd samkvæmt áformi okkar, myndi slíkur Sameiningarflokk ur sósíalista geta orðið eins kon ar vinstrisinnaður Marxista- flokkur, sem hefði ekkert átt sameiginlegt með kommúnista- flokki gamla skólans eins og Mimiingarorð Jéhanna Jónsdóllir í DAG verður jarðsungin frá Eyrarbakka kirkju ein af merk- ustu konum Eyrarbakka um |§t. langan aldur, Jóhanna Jóns- dóttir á Litlu-Háeyri. Jóhanna Jónsdóttir fæddist að Minna-Núpi í Gaulverjabæj arhreppi 1. nóvember árið 1879, dóttir Jóns bónda Jónssonar þar og konu hans Margrétar Jónsdóttur. Stóðu að henni miklar og góðar ættir, sem ein- kennast af sterkri skapgerð, gáfum og hagleik til munns og handa. Brynjólfur Jónsson, fræðimaðúr frá Minna-Núpi, var föðurbróðir Jóhönnu, enda var hann daglegur gestur á hehnili hennar, þegar hann dvaldi á Eyrarbakka og sérstak- lega hin síðustu ár sín, er hann var þar að staðaldri. Jóhanna giftist árið 1901 Guð jóni Jónssyni á Litlu-Háeyri og hafði hún komið til Eyrarbakka og ráðizt sem vertíðarkona hjá honum og Þórdísi móður hans, sem þá var orðin ekkja. Guð- jón var bóndi á Litlu-Háeyri og sjósóknari mikill, einn af virtustu og beztu formönnum austur þar um langan aldur. Þau hjónin eignuðust átta börn: Sigurð togaraskipstjóra, Halldóru starfsstúlku við Þvottahús Landspítalans, Mar- grét, gifta Ragnari Jónssyni, Jón, foónda að Litla-Háeyri, Þórdísi, gifta Ögmundi Kristó- ferssyni, Helgu, sem hefur ver- ið heima og staðið fyrir búi bræðra sinna og móður, Bryn- jólf, er fórst af slysförum um borð í Skallagrími árið 1946, kvæntur Fanneyju Hannesdótt- ur, ■' og Sigríði, gifta Sigurði Haráldssyni. Jóhanna Jónsclóttir. Guðjón var 14 árum eldri en Jóhanna og lézt hann árið 1945. Jóhanna lézt í sjúkrahúsi hér í borginni að morgni 4. þ. m. eft- ir stutta legu. Jóhanna Jónsdóttir var tígu- leg kona, hávaxin, ljóshærð og bláeyg, stórleit nokkuð og björt. Hún var mjög gáfuð kona, sjó- fróð á gamla vísu, kunni ó- grynni af sögum og ljóðum, gat sjálf ort, þó að hún færi dult með, skildi fólk í mildi sinni, en gat snúizt hart við, ef á hana var leitað. Ómegð hlóðst á þau hjón á tiltölulega skömmum tíma og oft var þröngt í búi, en það sást aldrei á Jóhönnu. Hún var kyrr- lát kona, stjórnsöm með þögn- inni við börn sín og samferða- menn, innileg og hlý við alla lítilmagna, tók ástfóstri við hús- dýr sín og vakti yfir velferð þeirra, talaði við kýrnar sínar Framhald á 8. síðu. hann hefur þróazt á hnignunar- árum Stalínistatímabilsins. — Með slíkum flokki yrði aðal- hindrunum gegn sameiningu verkalýðshreyfingarinnar þar með rutt úr vegi. Þar eð verkalýðsstétt Yestur- Þýzkalands hefur þegar sam- einazt innan Jafnaðarmanna- flokksins, myndi sameinuð verkalýðshreyfing, er stofnað yrði til í framtíðinni, óhjá- kvæmilega bera meiri keim af Jafnaðarmannaflokknum en hinum endurskipulagða Samein ingraflokki sósíalista, vegna þess að Jafnaðarmannaflokkur- inn er áhrifameiri. En slík verkalýðshreyfing myndi vafa laust verða vinstrisinnaðri en Jafnaðarmannaflokkurinn er nú. En áður en við getum haf- ið viðræður við Jafnaðarmanna flokkinn og sett honum skil- yrði, verðum við að líta í eigin barm. 3. Eins og stendur er það margt, sem við finnum jafnað- armönnum til foráttu og aðskil ur okkur frá þeim (blekkingar auðvaldlýðræðis, tilhneigingar þeirra að aðhyllast tækifæris- stefnur o. f 1.), en það, sem aðal- lega skilur okkur frá þeim, er okkar eigin Stalínismi. Þar af leiðandi verður það að vera fyrsta verk Sameiningarflokks sósíalista að segja sjálfir skilið við Stalínisma, áður en hægt verður að taka upp samvinnu við Jafnaðarmannaflokkinn á heiðvirðum grundvelli. Það er ekki fyrr en við höf- um lagfært okkar eigin galla, að við getum farið að bera fram aðfinnslur á hendur jafnaðar- mönnum, og jafnvel þá ætti að óanna í eitt skipti fyrir öll ó- frægingarorð eins og þau, að jafnaðarmenn séu fulltrúar auðvaldsins. Eitt er það þó, sem ætti að vera mögulegt nú þegar og gæti orðið fyrsta skrefið að framtíðarsamvinnu milli þess- ara tveggja flokka: Það er leynileg samvinna milli and- stöðufélaga úr Sameiningar- flokki sósíalista og jafnaðar- manna í baráttunni gegn Stal- ínisma í þýzka alþýðulýðveld- inu. Þegar and-Stalínistar hafa svo loks náð stjórn innan Sam- einingarflokks sósíalista í sín- ar hendur, ætti að lýsa yfir op- inberlega samvinnu milli Jafn- aðarmannaflokksins og endur- skipulagðs Sameiningarflokks sósíalista. Þessa tvo flokka mætti svo sameina í einn flokk síðar meir, enda þótt hvorugum flokknum skuli leyfast að út- rýma hinum. Engum stalínista, sem hefur fram til síðustu stundar tekið þátt í glæpsam- legu athæfi Ulbrichtshringsins, ætti að veita inngöngu í hinn nýja verkalýðsflokk, heldur skulu meðlimir hans eingöngu vera fólk, sem unnið hefur að því öllum árum að berjast gegn hinum niðurlægjandi áhrifum stalínista innan Sameiningar- flokks sósíalista. 4. Gegn okkur standa stalínist- ar og ríkisvaldið. Við verðum að berjast gegn þessum aftur- haldsöflum með öllum þeim ráðum, sem okkur hugkvæmist. Grundvöllurinn, sem við byggjum andstöðu okkar á, er flokkslög Sameiningarflokks sósíalista, 20. flokksþing rúss- neskra kommúnista og sam- þykktir 28. þings miðstjórnar Sameiningarflokks sósíalista. Á þessum grundvelli ætlum við, okkur að halda uppi opinberri og löglegri andstöðu. En við erum einnig reiðubúnir að berj ast á laun eða með flokkadrátt- um, ef við verðum tilneyddir. Við erum nú að taka upp samvinnu við andstöðuöflin í alþýðulýðveldunum og skipt- umst á skoðunum við þau. Þeir, sem eru fylgjandi slíkri andstöðu, verða að komast í náið samband við fólkið, gagn- rýna stefnu flokksleiðtoganna með fólkinu, dýpka bilið milli íbúanna og núverandi forustu, en koma jafnframt í veg fyrir, að almenn upreisn brjótist út. 5. Hættan á, að slík uppreisn brjótist út í þýzka alþýðulýð- veldinu er alltaf fyrir hendi, er hinn Stalínsinnaði Ulbricht- hringur fer áfram með völd og andstöðuöflunum tekst ekki að bola stalínistum frá völdum. En ef okkur skyldi takast að endurskipuleggja flokkinn inn- an vébanda hans á grundvelli núverandi stefnuskrár flokks- ins, þá mun ekki koma til ann- arrar uppreisnar í þýzka al- þýðulýðveldinu. Það er því skylda okkar að gera allt, sem í okkar valdi stendur, til þess að losa flokk- inn við stalínistana og vinna á ný traust verkalýðsstéttarinn- ar og allrar þjóðarinnar með því að gerbreyta stefnu flokks- ins. SÁMTININGUR LEITUÐU KOLA — FUNDU „GEYSI“. Geysir í Haukadal er svo víðfrægur að gosliverir uni víða veröld draga nafn a£ honum, og nú hefur Tékkósló- vakía einnig eignazt sinn „geysi“. Það bar þannig til, að starfsmenn Kolaleitar- stofnunarinnar í Prag voru að kanna jarðlög í héraðinu Horné Strahle í Slóvakíu. Þegar þeir voru búnir að bora niður ó 400 metra dýpi, gaus heitt vatnssúla upp úr iðrum jarðar. Þetta gerðist í febrúar í vetur. Síðan hefur 133 mm. gilcl buna staðið 40—60 metra í loft upp. Sérfræðingar eru nú að efnagreina vatnið. Þetta þykja tíðindi í Tékkóslóvakíu, þótt goshverinn nýi jafnist ekki við nafna sinn í Biskups- tungum, þegar hann var upp á sitt bezta. —o— í aldarfjórðung hefur sjö- tugur garðyrkjumaður í Tékkóslóvakíu unnið að því að kynblanda tómata. Hann ræktar nú 200 afbrigði. í garði hans vaxa tómatar með aprí- kósubragði, jarðarberjabragði og appelsínubragði. Þeir stærstu vega 750 grömm. Markmið bóndans er að fram- leiða tómat, sem inniheldur 10% sykur. HANNES Á HORNINU VETTVAmUR DAGSIJSS Daglega teknir menn ölvaðir við akstur — Sið- leysi og ábyrgðarskortur — Þjóðfélagið hefur gert allt, sem í þess valdi stendur — Hvað getur það nú gert til úrbóta þessu vandamáli? SVO AÐ SEGJA á hverjum einasta elegi tekur lögreglan ölv aða menn við akstur bifreiða. Hve margir eru þeir þá, sem sleppa alveg og lögreglan nær ekki í? Menn geta gert sér í hugarlund hve alvarlegt ástand ið er með því að gera sér grein fyrir þessum staðreyndum. Á- rekstrarnir og slysin af völdum ölvunar við akstur eru óteljandi. Nú síðast eru sagðar fréttir af einum, sem skemmdi fjóra bíla í árekstrí. Vagnstjórinn var ölv- aður. EIN NÖTTINA um klukkan þrjú vaknaði fólk við mikinn hávaða. Húsbændurnir, sinn á hvorri hæð, en báðir áttu bíla, sem stóðu fyrir utan húsið, litu út og sáu þá ófagra sjón. Bifreið stóð á götunni rammskökk, en önnur bifreið íbúanna var kom in þveráum á götuna, öll úr Iagi gengin, rifin og tætt. ÞEGAR ÚT VAR KOMIÐ stóð dauðadrukkinn maður við dyr bifreiðar sinnar og annar eins drukkinn hjá honum. Þeir höfðu valdið árekstrinum. Kall- að var á lögregluna, en svo vit- laus var sá, sem árekstrinum hafði valdið, að honum fannst það hið versta hneyksli, að lög- reglan skyldi taka lyklana að bifreið hans af honum. Óskamm feilnin ríður ekki við einteym- ing hjá þessu fólki. LÖGGJAFINN HEFUR SETT sín ákvæði og viðurlög fyrir ölvun við akstur, mörg útvarps- erindi hafa verið flutt um þetta, þúsundir blaðagreina hafa rætt málið og daglega birtast dæmi, sem sýna og sanna svo að ekki verður betur gert hve glæpsam- legt það er að setjast undir stýri á bifreið eftir að maður hefur neytt áfengis. SAMT SEM ÁÐUR láta menn sér ekki segjast. Samt sem áður tekur lögreglan svo að segja daglega menn, sem aka ölvaðir. Hvað er hægt að gera? Úr því sem komið er er ekki hægt að gera neitt annað en að svipta menn ævilangt ökuleyfi þegar þeir eru teknir í fyrsta sinn ölv aðir undir stýri. Þó má ef til vill hafa þetta öðruvísi: Dæma menn til dæmis í fyrsta sinn í a. m. k. tíu þúsund króna sekt og svipt- ingu ökuleyfis í ársfjórðung, í annað sinn í tuttugu og fimm þúsund króna sekt og sviptingu ökuleyfis í heilt ár, og í þriðja sinn að bifreiðin sé gerð upp- tæk endurgjaldslaust og svipt- ingu ökuleyfis ævilangt. ÞJÓÐFÉLAGIÐ á engin önn- ur vopn gagnvart þeim mönm um, sem haga sér eins og þeir, sem aka ölvaðir. Það hefur gert allt, sem í þess valdi stendur til þess að leiðbeina þeim, vara þá við og forða þeim frá vandræð- unum. En þegar varnarráðstaf- anir þess duga ekki betur en raun ber vitni, þá er ekkert fyr- ir hendi annað en að beita refs- ingum svo að um munar. Hannes á horninu. .

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.