Alþýðublaðið - 24.04.1957, Side 5
SfiSvikuctagur 24. apríl 1957
AlþýSublaSid
5
Samtal við Ingimund Erlendsson,
varaformann félagsins, sem hefur
verið ráðinn framkvœmdastjóri þess
ÞAÐ VAKTI mikla athygli
um land allt, þegár kommúnist-
ar töpuðu meirihluta við stjórn-
arkjör í Iðju, félagi verksmiðju
fólks í Reykjavík. Þetta var að
vonum, því að um langt ára-
skeið höfðu þeir ráðið einir öllu
í félaginu, rekið það eins og
pólitískt einkafyrirtæki sitt og
beitt því í öllum átökum fyrir
Siagsmuni Kommúnistaflokks-
íns.
Björn Bjarnason hafði verið
aðaldriff jöðurin í félaginu árum
saman, en jafnframt og fvrst
og fremst verið einn heitasti
Moskvatrúarmaður hér á landi
pg trúnaðarmaður innsta hrings
flokksins í fjölda mörgum mál-
'iim og tíður gestur á kommún-
ístaþingum erlendis. Bimi
Bjarnasyni er ýmislegt vel gef-
ið, en pólitískt einsýni hans og
ofsatrú á gömul hindurvitni
skemmdi öll verk hans, svo að
oft urðu þau til þess að auka á
erfiðleika fólksins í Iðju, sem
átti þó að njóta verka þeirra en
ekki gjalda. Það bætti heldur
ekki úr skák, að Björn og flokk
ur hans völdu til starfa með
Birni og skrifstofu félagsins
annan harðvítugan Moskvatrú-
armann, sem sá aðeins hags-
muni flokks síns, að vísu vel-
greindan mann og ritfæran, en
óvenjulega harðvítugan og of-
stækisfullan, sem sjaldan sást
fyrír og vílaði ekki fyrir sér að
reka þau erindi fyrir flokk sinn
í félaginu og meðal iðnaða-
verkafólksins, sem hvergi eiga
heima í stjórn á verkalýðsfélög-
um.
BRÖGÐUM BEITT.
Iðnaðarverkafólk í Reykjavík
var orðið langþreytt á því að
vera í félagsskap, sem eingöngu
var beitt til hagsmuna fyrir
flokk, sem það var andvígt. Það
hafði gert allmargar tilraunir
tíl þess að frelsa félag sitt úr
Móm kommúnistaflokksins og
verkfæra hans, en mistekizt, og
ástæðan var alltaf sú sama, að
þrátt fyrir það að kommúnist-
ar væru í minnihluta meðal fé-
lagsfólksins, tókst þeim alltaf
að halda völdunum með ýmiss
konar bellibrögðum, þannig til
dæmis, að þegar til stjórnar-
'kjörs kom áttu hundruð félags-
manna ekki kosningarrétt,
stjórnendur félagsins gættu
þess sem sé. að flokksmenn
þeirra greiddu gjöld sín og nytu
þar með kosningaréttar, en hin-
ír voru látnir afskiptalausir.
Mikill fjöldi af ungu fólki,
sem gerzt hefur starfandi í iðn-
aðinum, hefur gengið í félag'ið,
sótt nokkra fundi, en hætt því
svo og látið félagsmálin ogfund
ína afskiptalausa. Þetta er
gamla sagan úr fjölmörgum
verkalýðsfélögum, sem kom-
múnistar hafa náð undir sig,
þeim hefur tekizt að gera and-
stæðinga sína óvirka.
FÓLKIÐ RÍS UPP.
Vitur jafnaðarmaður hefur
sagt, að það sé hægt að blekkja
fólk einu sinni, kannski tvisv-
ar en ekki til lengdar — og þeg-
ar það komist að raun um, að
það hafi verið blekkt, þá sjái
þeir, sem blekkingunum hafa
beitt, að förin var verri en ekki,
því að oft geta afleiðingarnar
orðið þeim hættulegar. Og
smátt og smátt vaknaði iðnað-
arverkafólkið til meðvitundar
uim þá haittu, sem félagf þess
og því sjálfu stafaði af ævin-
týrunum, er kommúnistaflokk-
urinn leiddi það út í. Allmargt
manna, konur og karlar úr verk
smiðjum og á vinnustöðum,
batzt samtökum gegn kommún-
istaklíkunni og það vann all-
lengi og markvisst að því að
skipuleggja félaga sína til átaka
við kommúnista. Þetta varð
eins og nýtt félag innan félags-
ius og starfsemi þess var bein
afleiðing af brýnni nauðsyn fyr-
ir iðnaðarverkafólkið, svo að
Ingimundur Erlendsson
félagsskapur þess gæti orðið það
sem verkalýðsfélagsskapur á að
vera fyrir meðlimi sína.
UNGUR MAÐUR FRÁ
ÍSAFIRÐI.
Meðal helztu forystumanna í
þessum hópi er Ingimundur Er-
lendsson, ung'ur skósmiður, ætt-
aður vestan af ísafirði og alinn
upp í anda verkalýðssamtak-
anna á heimili sínu og við störf
sín eftir að hann komst á legg.
ITann var kosinn varaformaður
Iðju og hefur nú verið ráðinn
ráðsmaður félagsins. Mun hann
nú kynnast iðnaðarverkafólk-
inu í sambandi við dagleg störf
sín í þágu þess. — Alþýðublað-
ið hafði nýlega stutt samtal við
þennan unga starfsmann verka-
lýðsfélaganna. Hann er traustur
á að líta, rólegur í framkomu,
hæglátur, en skapfastur, fast-
mótaðar skoðanir, myndarlegur
ungur maður, sem mikils má af
vænta.
,,Verkalýðsmálabaráttan var
mjög hörð á Isafirði, þegar ég
var barn að aldri. Nokkru áður
en ég fæddist urðu straumhvörf
í bænum, gömlu goðin hrundu
og nýjar félagsmálahreyfingar
ruddu sér til rúms. Þetta hafði
áhrif á öll heimili og alla menn,
unga sem garnla. Alþýðuflokk-
urinn varð að taka við öllu í
rjistum, og hann hófst handa
með að reisa við atvinnuvegina
og skapa fólkinu lífvænleg kjör.
Eg fæddist þegar þessi endur-
reisn var að byrja, árið 1930,
og ég'minnist mai'gra viðræðna
á heimili mínu og alls staðar
þar sem maður for um bæinn
um þessi mál.
Foreldrar mínir eru Gestína
Guðmundsdóttir og Erlendur
JÓJisson skósmiður. Bæði voru
þau Alþýðuflokksfólk, og það
var eins og við börnin drykkj-
um í okkur hugsjónir alþýðu-
hreyfingarinnar með móður-
mjólkinni. Við vorum áíta syst-
kinin og var því oft þröngt í búi
eins og tíðkaðist. og enn er á
barnmörgum alþýðuheimilum,
en ekki man ég þó eftir öðru
en bjartsýni og áhugi ríkti á
heimili okkar — og það held ég
að sé gott veganesti. Eg fór
fyrsta sinn í sveit þarna vestra
þegar ég var 9 ára gamall og
síðan var ég oft í sveit. Eg vann
líka þegar eitthvað var að gera
fvrir krakka, en að barnaskóla
loknum fór ég í Gagnfræða-
skóla ísafjarðar og sat þar í tvo
vetur. En svo fluttumst við hing
að til Reykjavíkur. Það var árið
1946. Faðir minn fór að stunda
skósmíði og eldri systkini mín
ýmis störf. Sjálfur fór ég í
Gagnfræðaskóla Austurbæjar
og útskrifaðist þaðan. Ég stund-
aði ýmsa verkamannavinnu hér
í bænum, en fór svo að læra
skósmíði hjá föður mínum. Þeg-
ar hann hætti að reka sjálfsíætt
verkstæði á Langholtsvegi 44,
gerðist hann verkamaður í skó-
gerðinni h.f. og fór ég með hon-
um þangað og lauk náminu —
og þar hef ég unnið þangað til
nú, að ég hef fallizt á einróma
áskorun hinnar nýju stjórjiar
Iðju að gerast starfsmaður fé-
lagsins.
ÞAÐ ÞARF AÐ ENDUR-
SKIPULEGGJA FÉLAGÍÐ.
Mér er það vel ljóst, að þetta
er mikið ábyrgðarstarf og að
það er vandastamt starf, en ég
mun gera a'ílt sem í mínu valdi
stendur til þess að endurreisa
félagið, bæta skipulag þess og
vaka yfir hagsmunum þess og
félagsmannanna. Mig dreymir
Frajnhalcl á 7. síðu.
NÚ ER heimsókn þýzku hand
knattleiksmannanna frá Hass-
loch lokið, en þeir þeir fóru
héðan s.l. miðvikudagsmorgun.
Þeir léku sinn síðasta leik hér
á þriðjudagskvöldið og mættu
þá íslandsmeisturunum FH.
Leikur þessi var frá upphafi
til enda mjög skemmtilegur og
vel leikinn. Fvrri hálfleik lauk
með sigri FH 13:12. Þegar 5—6
mínútur voru til leiksloka höfðu
FH-ingar aukið markamuninn
upp í 3 mörk, en Þjóðverjar
sóttu mjög á síðustu mínúturn-
ar og jöfnuðu, úrslit urðu því
20:20. Beztu mennirnir í liði
FH voru Ragnar og Birgir, en
hjá Þjóðverjunum Stahler og
Korn.
KVEÐJUIIÓF.
Eftir leikinn var kveðjuhóf
fyrir þýzku handknattleiks-
mennina í Tjarnarcafé. Ræður
voru fluttar og skipzt á gjöf-
um. Rúnar Bjarnason, formað-
ur móttökunefndar flutti ræðu,
þakkaði Þjóðverjunum fyrir
komuna og hijra góðu leiki, sem
þeir hefðu sýnt. Perrey, farar-
stjóri Hassloch, flutti ræðu.
Þakkaði hann ÍR og Þorleifi
Einarssyni fyrir að hafa komið
þessari ferð á. Hún væri þeim
öllum ógleymanleg, hér er gott
að vera, sagði Perrey, aðbúnað-
ur allur og skipulag til fyrir-
MIÐVIKUDAGINN 18. apríl
voru háðir tveir leikir í meisG
aramóti íslands i handknattleik.
Fyrst kepptu Víkingur og Aft- l
urelding og sigruðu þeir sið-'
arnefndu með 28 mörkum gegn
21. Leikurinn var frekar til- j
þrifalítill.
Einnig kepptu IR og Ármann
og sigraði ÍR með 26:19. Það j
giklir sami dómur um þann j
leik eins og leik Víkings og;
Aftureldingar, leikmenn virtust;
viðutan og var ósköp lítið um j
skemmtileg tilþrif. ÍR-ingarnir
voru þó alltaf öruggir um sigur.
FH VALl.R 19:17.
Á annan í þáskum kepptu
Valur og FH og Þróttur og Aít-
urelding.
Leikur Vals og FH var jafn-
ari en búizt var við. FH tók
forystuna, Birgir óg Sverrir
skoruðu, 2:0. Valsmenn jafna
og standa leikar 3:3. Síðan mun-
ar þetta einu til þrem mörkum,
en fyrri hálfleikur endaði 12:10
fyrir FH.
í byrjun seinni hálfleiks er
góður kafli hjá FH, og standa
leikar um tíma 18:11. En þá
taka Valsmenn til að slcora og
eru Jóhann, Geir og Bogi að
verki. Birgir bætir einu marki
við, en Valsmenn enda leikinn
vel, því að þeir skora þrjú síð-
ustu mörkin, voru það Jóhann,
Geir og Ingi. FH verður að
leika sterkar gegn ÍR og KR, ef
þeir ætla að sigra, en það er
eins og þeir vaxi með verkefn-
unum, svo að búast má við mjög
skemmtilegum leikjum, þegar
þeir mæta þessum tveimur
sterkutsu félögum Reykjavikur.
ÞRÓTTUR AFTURELDING
23:22.
Þessi leikur var fi'emur lé-
myndar, en eins og kunnugt er
bjuggu Þjóðverjarnir í IR-hús-
ánu og voru Jmjög ánægðir með
dvölina þar. Aðrir, sem fluttu
ræður, voru Jakob Hafstein,
formaður ÍR, og Hallsteinn
Hinriksson, þjálfari FH, en
Perrey afhenti FH handknatt-
leiksknött til minningar um
mjög góðan leik.
LEIKIR HASSLOCH.
Alls léku Þjóðverjarair 7
leiki hér í þetta skipti. þar af
3 í skyndimóti, sem haldið var,
en í tveimur leikjum í skyndi-
mótinu stilltu þeir ekki upp
fullu liði. Þeir sigruðu í 3 leikj-
um, töpuðu 3 og gerðu eitt jafn-
tefli. Hassloch er rnjög gott lið,
að öllu samanlögðu betra en
íslenzku liðin, hafa betri knatt-
meðferð, hraðara samspil og
meira öryggi, einnig er úthald
þeirra mjög gott. Taka verður
tillit til þess, þegar íslenzk lið
eru borin saman við þetta þýzka
lið, að það er vant að leika í
sal, sem er 20X40 m, en sal-
urinn að Hálogalandi er aðeins
24X12 m.
Að öllu samairlögðu hefur
verið mikið gagn af heimsókn
þessari, sumum finnst að leik-
ur Þjóðverjanna sé full harð-
ur, leikur okkar handknatt-
leiksmanna sé prúðmannlegri
og þar reyni nieira á fimi og
legur, en frammistaða Aftur-
eldingar var þó. öllu betri og
sanngjamara hefði verið, að
sigurinn hefði fallið þeim í
skaut. Þeir léku nefnilega með
einum manni fæi’ra allan leik-
inn. Hvorki Helgi Jónsson eða
Jóhannsson v.oru með, en í
þess stað lék nýr maður með
þeim, Þórir Ólafsson, og átti
hann góðan leik. Þetta er fvrsti
sigur Þróttar í meistaraflokki í
mótinu.
í II. flok-ki kvenna sigraði Ár-
•mann (A). Yal. með. 12:2-.- ••. '
Næstu leikir mótsins eru á
morgun. en þá leika FH og ÍR
ogtValur og KR í meistaraflokki
kárla. Það verður mjög spenn-
andi leikir.
Skíðamót íslands
SKÍÐAMÓT ÍSLANDS það
20. í röðinni fór fram á Akur-
eyri núna um páskana, en skráð
ir þátttakendur v.oru rúmlega
eitt hundrað.
Helztu úrslit urðu þessi: Eyv
steinn Þórðarson (IR) Reykja-
vík sigraði í þrem greinum, þ.e.
svigi, bruni og svokallaðri alpa-
þríkeppni, Jakobína Jakobs-
dóttir (ÍR) Reykjavík sigraði í
sömu greinum kvenna. Jón
Kristjánsson (HSÞ) sigraði í 15
km göngu og sveit HSÞ í 4X10
metra göngu. Árni Höskuldsson
ísafirði sigráði í 30 km, gÖngu,
A-sveit Reykjavíkur: bar sigur
úr býtum í flokkakeppni í.svigi
og Stefán Kristjánsson (Á) í
stórsvigi. Marta- Bíbí Guð-
mundsdóttir Isafirði sigraði i
stórsvigi kvenna. Sveinn Sveins
son Siglufirði sigraði í norrænní
tvíkeppni (göngu og stökki).
Nánar verður skýrt frá mót-
inu síðar.
mýkt. En ef við ætlum okkur
að taka þátt í heiipsmeistara-
keppni í þessari íþrótt og yfir-
leitt að þreyta keppni við aðrar
þjóðir, verðum við líka að
kunna skil á því, sem talið er
leyfilegt í alþjóðaleikjuin, en
margt af því, sem dómarar hér
telja gróft. brot, segja Þjóðverj-
ar, að ekki sé flautað á erlendis.
BLAÐAMENN FENGU
EKKI SÆTI.
í sambandi við leik Hassloch
gegn FH urðu nokkur mistÖk.
Það er að vísu ekki nýtt má),
að íþróttafréttaritarar dagblao-
anna hafi slæma aðstöðu til
starfa, hvorf sem er á íþrótta-
vellinum., í Sundhöllinni eða að
Hálogalandi. Þetta er mál, sem
lagfæra verður, því að íþrótt-
irnar þurfa á aðstoð blaðanna
að halda og lesendur blaðanna
vilja fá nákvæmar fréttir af
íþróttamótum.
Ekki er gott að segja, hverj-
um kenna skal um svona mis-
tök, þeim aðila, sem. stendur
fyrir móti eða kappleik, eða
þeim er leigja félagi afnot af
leikvangi eða íþróttahúsi. Slíkt
skiptir heldur ekki aðalmáii,
heldur að íþróttablaðamenn og
íþróttafrömuðir skilji bvora
annan og reynt verði að kippa
þessum málum í eins gott lag
og mögulegt er.
Hugleiðingar um komu