Alþýðublaðið - 05.05.1957, Side 6

Alþýðublaðið - 05.05.1957, Side 6
-VuSÍWÍ*. A I Js ý S u b 8 a H i «S Sunnudasur 1957 Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Helgi Sæmundsson. Fréttastjóri: Sigvaldi Iíjálmarsson. Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902. Auglýsingasími 4906. Afgreiðslusími: 4900. Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgötu &—10. Fögnuður Morgunblaðsins MGRGUNBLAÐIÐ fagnar ákaft þessa dagana. Vinnu- stéttir Reykjavíkur gátu ekki orðið sammála um há- ' tíðahöLdin 1. maí, úlfúð kom up-p í röðum þeirra, þær gengu tvístraðar til leiks. Það er í eðli sínu sorgleg saga, sundraður verkalýður er máttvana og manndóms- taus, en Morgunblaðið fagn- ar. Milli línanna í fagurgala. þess og fádæma loddaraskap út af kjarabaráttu launastétt anna má lesa auðsæjan fögn uð. Nú verður ríkisstjórninni vandi á höndum, í verkalýðs samtökunum er hver höndin upp á móti annarri, yfirstétt- in fleytir af því rjómann, sérhagsmunastefnan fær enn byr undir vængi. Svona hugsa þeir Morgunblaðs- menn. Annað kemst þar ekki að. Deildu og drottnaðu, var kjörorð Rómverja. Illu heilli voru Morgun- blaðinu lögð vopn í hendur að þessu sinni. Kommúnistar gerðu ágreining um mál, sem ekki er þannig vaxið, að það réttlæti sundraðan verkalýð og fámenn fundahöld á al- þjóða baráttu- og hátíðisdegi verkamanna. Mikill meiri- hluti þjóðarinnar, vinnu- stéttir ekki síður en aðrir, eru þar á öndverðum meiði við þann fámenna kommún- istakjarna, sem stefnunni ræður. Enginn græddi á þessu gönuskeiði nema Morg unblaðsmenn. Þeir lifa á sundrung, eins og púkar á bölvi. Hitt er svo auðsætt mál, að öli hneykslun Morgunblaðs- ins út af hliðarstökki komm únista er loddaraskapurinn einn. Það leynir sér ekki á- nægjan undir niðri, þegar á- fellisópin stíga sem hæst. Þá verður ríkisstjórnin og kom- múnistar alltaf eitt og hið sama. Kommúnistar eru blaðinu aðeins verkfæri til að ráðast á frjálslynda menn í landinu og ríkisstjórn þá, sem nú situr að völdum. Þannig hefur þetta alltaf Verið. Þrátt fyrir allt upp- gerðarvæl Morgunblaðsins út af kommúnistum og sýnd aPhneykslun þess yfir, að þeir skuli vera í ríkisstjórn, hafa Morgunblaðsmenn allt- af og ævinlega verið reiðu- búnir að fallast í faðma við Moskvumenn, ef þeir gátu á þann hátt komið höggi á vinstri sinnaða menn í land- inu. Um það eru dæmin deg- inum ljósari. Hugsjón var aldrei að baki bægslagangi þeirra út í kommúnista, enda lætur þeim margt betur en heilög vandlæting. Peningar samrýmast illa hugsjónabar- áttu. Ofstopinn er líka sam- ur á báða bóga, er til innsta ■ kjarnans kemur. En þótt illa hafi tekizt til um 1. mai að þessu sinni, mun Morgunblaðsmönnum ekki verða kápa úr því klæði að nota sundrungina sem áfellisdóm yfir ríkis- .stjórninni. Þeir geta sparað sér fögnuðinn þess vegna. Stefna stjórnarinnar mark- iðist í upphafi af þeim á- setningi að freista þess með öllum ráðum að stemma stigu við áframhaldandi ó- heillastefnu gróðabralls- manna í efnahagsmálum. Arfurinn var ekki glæsileg- ur, þjóðhagsfyrirtæki fjár- vana, framkvæmdir allar að stöðvast, atvinnuvegírnir á heljarþröm. Mitt í fagnaðar- ópi sínu yfir sundrungu verkalýðsins, segir Morgun- blaðið, að vinstri stjórnin hafi ekki átt upptök að ýms- um þeim framkvæmdum, sem hæst ber nú. Á þeim hafi verið byrjað í tíð fyrr- verandi stjórnar. Sumt af því má til sanns vegar færa. Vegna þunga verkalýðssam- takanna og fyrir skelegga baráttu vinstri manna varð íhaldið að láta undan og hefja ýmsar framkvæmdir, sem til þjóðarhagsbóta horfðu. Þannig hefur það alltaf verið. íhaldið hefur orðið að láta undan, þótt aldrei væri það fyrr en í fulla hnefana. En á undan- haldinu ól sérhagsmunaflokk urinn alltaf þá von í brjósti, að framkvæmdirnar yrðu til að auka gróðavon einstak- linga, en ekki hagsæld heild- arinnar. En hvernig var á- standið, þegar íhaldið stóð upp? Hvernig var málum komið í raforkuframkvæmd- um, sementsverksmiðju, fisk iðjuverum? Allt var staðnað vegna fjárskots. Þessum arfi varð núver- andi ríkisstjórn að taka við. Auk þess þurfti að samræma mörg ólík sjónarmið, og sömuleiðis var skrúfa dýr- tíðar í svo fullum gangi, að hún varð ekki stöðvuð í snöggu bragði. Á þessu hyggst Morgunblaðið græða. Því blæs það í allar ófriðar- glæður í þjóðfélaginu og fagnar sundrungu verkalýðs ins. En þroski þjóðarinnar og gifta mun reynast óheil- indabrauki Morgunblaðsins meiri. Því mun ríkisstjórn- inni takast að þoka málum í rétta átt, þótt hræsporar þjóðfélagsins fremji sinn ó- heillagröft. En fögnuður Morgunblaðs- ins út af mistökunum 1. maí ætti að vera verkalýðssam- tökunum áminning um það, að sundrung vegna pólitískra hliðarhoppa leiðir aðeins til vanmáttar og vandræða. Mis heppnaður pólitískur sóló- dans á götum höfuðborgar- innar 1. maí er verkalýðn- um aðeins til skaða og sönn- um verkalýðssinnum til van sæmdar. HINN MIKLI danski gagn- ■rýnandi og bókmenntafræðing- ur, Georg Brandes, sem haft hefur varanleg áhrif á bók- menntirnar í Danmörku eftir 1870, víkur öðru hvoru að því í ritum sínum, hve öfundsverð- ir þeir rithöfundar séu, sem geti, á móðurmáli sínu, skrifað fyrir stærri lesendahóp en þann, sem er í landi á stærð við Danmörku — hversu mikil sem lestrarfýsn þjóðarinnar annars kann að vera. Og samt á þetta land, sem í dag hefur ekki nema liðlega fjórar milljónir í- búa, því láni að fagna að hafa fóstrað rithöfunda, sem átt hafa sin þátt í að færa út landamæri þess og kynna menningu þess erlendis. Þegar fyrir andlát sitt, 1875, hlotnaðist II. C. Ander- sen, hinum frábæra ævintýra- þul, sú sæmd að verða þýddur á fjölmargar þjóðtungur, og hinar frumlegu hugsanir heim- spekingsins Sorens Kierkegárds eru í dag þekktar í öllum menn- ingarlöndum. Þessi. þrjú stóru nöfn í bók- menntum nítjándu aldar mega þó ekki verða til þess, að aðrir danskir höfundar, sem vegna þýðingar rita sinna á erlendar tungur eru kunnir í öðrum löndum og enn í dag eru mikið lesnir í landi sínu, falli í •gleymsku. Einn þessara Evr- ópu-þekktu rithöfunda er Her- man Bang, en danska þjóðin heldur nú í aprílmánuði upp á 100 ára afmæli hans í þakklátri minningu um hlut hans að því að auðga danskar bókmenntir. urðu Daninn Vilhelm Topsöe og Norðmaðurinn Jónas Lie lif- andi innblásturslind. Með skóldsögunni Háblöse Slægter (1880), sem samin var í anda náttúruhyggjunnar og fjallaði um ættgengi með úr- kynjun sem uppistöðu, ávann hann sér óvefengjanlegt rithöf- undarnafn og kannaðist við and legan skyldleika sinn við hina Herman Bang fæddist hinn 20. apríl 1857, sonur tauga- veiklaðs og þunglynds prests, sem lézt skömmu áður en son- urinn lauk stúdentsprófi. Á mjö ungum aldri varð hann sannfærður um, að hann væri af einni elztu aðalsætt lands- ins, og honum fannst sem hann væri hinn seinasti úrkynjaði I teinungur á ævafornum stofni, | fyrir fram dæmdur til að verða skammlífur. í Kaupmannahöfn, þar sem Herman Bang átti að lesa hagfræði, hlaut hann at- hvarf hjá efnuðum afa sínum, lækninum Ole Bang. Námið varð honum ekki sérlega hug- leikið, en hann einbeitti því gífurlega viljaþreki, sem var eitt helzta einkenni hans •— þýzki rithandarfræðingurinn Langenbrúch kvaðst ekki hafa séð meira viljaþrek í annarri rithönd en Bangs eftir Napó- leon — að því að búa sig undir að komast á leiksvið Konung- lega leikhússins. Tilraunin mis- heppnaðist reyndar, því að hæfileikar hans til að breyta leikskyni sínu í lifandi verur hrukku ekki til. Árið 1877 dó afi hans, og Herman Bang hætti algerlega við háskólanám- ið til þess að vinna fyrir sér með blaðamennsku og ritstörf- um. Herman Bang, sem átti fyrir sér að verð i dæmigerður full- trúi náttúruhyggjunnar í Dan- mörku, sneri sér á námsárum, sínum. eins og eðlilegt var. til Frakklands, þar sem einmitt þá hafði oroið svo feiknarleg end- urnýjun í bókmenntunum. í ritgerðasafninu Realisme og Realister, sem hann sendi frá sér 1879, aðeins 22ja ára gam- all, segir hann í guðmóði frá Balzac, Flaubert og Zola, sem ásamt Goncourt-bræðrum og Guy de Máupassant átti eftir að hafa svo mikil áhrif á hann. Af Norðurlanda-höfundum Hermann Bang. frönsku lærimeistara sína — á- hrif, sem ekki voru síður áber- andi í næstu skáldsögu hans, Fædra (1883), sem minnir á Goncourt-bræður. Árin 1886—’90 eru merkileg- asta tímabilið í ritferli Hermans Bangs, ekki sérstaklega vegna skáldsagnanna Stuk (1887) og Tine (1889) — hin síðarnefnda er að vissu marki dönsk hiið- stæða „La Débácle“ eftir Zola — heldur öllu fremur margra smásagna, þar sem listræn sér- kenni hans virðast koma skýr- ast og áþreifanlegast fram. Á mannlýsingum sínum hefur Herman Bang varla náð traust- ari tökum en í Ved Vejen (í safn inu „Stille Existenser“). Aðal- persónan, Kathinka Bai, er ein af þeim umkomulausu vesaling- um, sem eiga hina ríku samúð Hermans Bangs og Goncourt- bræður hafa einnig lýst. Þessi írábæra smásaga minnir líka að mörgu leyti á Emmu Bovary P'lauberts og „Un Vie“ Maupass ants. Sem andstæða hinnar fín- gerðu Kathinku stendur maður hennar, hinn síngjarni og rudda legi stöðvarstjóri, sem Herman Bang fyrirlítur. Hrífandi rit- snilld höfundarins, „impres- sjónískt" folikið og sannfærnis- leg tæpitungan. sem hann hafði lært af Jónasi Lie, hefur ef til vill risið hærra í þessari rauna- legu smásögu en nokkurri ann- arri ritsmíð hans. I smásögun- um En dcjlig Dag og Irene Holm—; sem kallaðar hafa ver- ið grátbroslegar sveitalífsíýsing ar — sýnir Bang nýja hlið á ritsnilld sinni og áhuga sinn á óbh’ðum örjögum, þjáhingum og niðurlægingu. Þótt Ilerman Bang fengi ekki að sjá þann æskudraum sinn rætast að verða leikari, mátti hann síðar gleðja sig við þann óúmdeilda orðstír, er hann gat sér sem leikstjóri og upplesari, einkanlega eigin verka. Hann ferðaðist um mörg Evrópulönd og var langdvölum í Þýzka- landi, því landi utan hans sjálfs, þar sem hann var mest og bezt metinn, já, á hröðum upplestr- arferðum sínum . komst hann alla leið til Rússlands og Ame- ríku. Hann lifði það að sjá snilldarverk sín, sem -snemma höfðu verið þýdd á hollenzku, koma út á Þýzkalandi, Frakk- landi, Englandi, Rússlandi og Framhald á 9. síðu. Sinfóníuhljómleikar á hljóm- eikahátíð íslenkra tónskálda Björnsson, athyglisvert verk. Eftir hlé var fyrst flutt Sin- fonietta seriosa, eftir Jón Nor- dal, langdregin og lét ekki rétt vel í eyrum, en auk þessa áttú sér stað nokkur mistök hjá hljómsveitinni, sem auðheyri- lega reyndi mjög á sjálfstjórn stjórnandans. Næst vann Krist- inn Hallsson það þrekvirki að syngja vel, og án þess að láta hljómsveitina hrekja sig út af laginu, tvö sönglög eftir Jón Leifs. Bezt gæti ég trúað því, að herra Leifs hafi aldrei sung- ið nokkra nótu. Síðasta verkið á efnisskránni var svo Minni íslands, forleikur op. 9 eftir Jón Leifs, sem Þjóðleikhússkór- inn söng lokasönginn í. Maður er svolítið farinn að venjast hljómunum hjá herra Leifs, svo að manni finnst þeir ekki út af eins hræðilegir og í fyrstu. Eftir þessa tónleika . finnst manni sem komið hafi fram, að margir eru kallaðir en fáir útvaldir. Satt að segja virðist enginn þessara tónskálda út- valinn, ef dæma má eftir þeim „pródúktum", sem menn heyrðu í Þjóðleikhúsinu 30. apríl. Það er að vísu mjög skemmtilegt að fá að heyra, hvað þessir menn hafa gert, en hafandi heyrt það langar mann lítið í meira. Þetta voru afskap- lega leiðinlegir tónleikar. G. G. FYRSTU hljómleikahátíð ís- lenzkra tónskálda lauk með symfóníuhljómleikum í Þjóð- leikhúsinu þriðjudagskvcldið 30. apríl. Mér gafst ekki kostur á að heyra stofutónleikana og því miður komst ég ekki á kirkjutónleikana. Eftir að hafa hlustað á þessa síðustu tónleika, get ég ekki sagt, að ég sakni hinna tveggja mikið. Á symfóníuhljómleikunum voru verk eftir 7 íslenzk tón- skáld, flutt af Sinfóníuhljóm- sveit íslands, undir stjórn Ol- avs Kjellands, Guðmundi Jóns- syni og Kristni Hallssyni. Fyrsta verkið á efnisskránni var forleikurinn Sogið, eftir Skúla Halldórsson. Eins og' mörgum öðrum verkum Skúla er þarna að finna nokkuð skemmtilegt stef, en úrvinnsl- an finnst mér ekki sem bezt. Verkið minnir meira á sjávar- gang í einhverjum helli við Skotlandsstrendur en Sogið. Næst koma Canzone og vals eftir Helga Pálsson, fremur bragðdauft, en ekki óskemmti- legur vals. Þá kom „Draumur vetrarrjúpunnar“, sinfónísk mynd eftir Sigursvein D. Krist- insson. Hálfgerð martröð. Næst síðustu verkin fyrir hlé voru tvö sönglög eftir Pál ísólfsson, sungin vel af Guðmundi Jóns- syni. Páli hefur oft tekizt betur. Loks voru svo hljómsveitartil- brigði við rímnalag eftir Árna

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.