Alþýðublaðið - 30.07.1957, Blaðsíða 4
AlþýgublaSlg
Þriðjudagur 30. júlí 1957
Útgefandi: AlþýQuflokkurlsa.
Ritstjóri: Helgi Sœmundsson.
Auglýsiugastjóri: Emilía Samúelsdóttir.
F!réttastjóri: Sigvaldi Hjálmamon.
Blaðamenn: Björgvin Guðmundsson og
Loftur Guömundsson.
Ritstjórnarsímar: 14901 og 14902.
Auglýsingasími: 14906.
Afgreiðslusími: 14900.
Prontamiðja Alþýðublaösini, Hverfisgðtu 8—1C.
Tungan og hjartað
MORGUNBLAÐIÐ ber
mjög á móti því, að far-
mannadeilan sé á nokkurn
hátt runnin undan rifjum
Sjálfstæðisflokksins. Ástæð-
an er auðvitað sú, að almenn
ingsálitið fordæmir tvífara-
leik Bjarna Benediktssonar,
og óánægjan nær meira að
segja langt inn í raðir gætn-
ari Sjálfstæðismanna, sem
vilja meta þjóðarhag meira
en pólitíska ævintýra-
mennsku. En Morgunblaðinu
verður ekki kápan úr klæði
afsökunarinnar. Tunga Sjálf-
stæðisflokksins er margklof-
in, og málflutningur íhalds-
blaðanna kemur upp um til-
finningarnar og viðleitnina,
sem Morgunblaðið ber á
móti. Sannanirnar eru vissu-
lega fyrir hendi.
Hvað eftir annað vék
Morgunblaðið að því í ár-
dögum farmannadeilunnar,
að dómur hennar ætti að
falla á ríkisstjórnina. Nú
fer það sér hægt í þessari
iðju af því að Bjarni Bene-
diktsson veit sig kominn
helzt til langt út á hálan ís.
En þá taka hinir tunguhlut-
ar Sjálfstæðisflokksins við.
Vísir kunni þaðráðtil Iausn
ar farmannadeilunni á dög-
unum, að ríkisstjórnin
segði af sér. Það er tung-
unni tamast, sem hjartanu
er kærast. Og nú er Mánu-
dagsblaðið látið ganga feti
Iengra en henta þykir um
Vísi og Morgunblaðið, sem
teljast opinber málgögn
Sjáifstæðisflokksins. Mánu
dagsblaðið f jölyrðir um far-
mannadeiluna og segir í
millifyrirsögn á forsíðu í
sínum alkunna upphrópun-
arstíl: „Ætti að segja af
sér“. Hér er átt við ríkis-
stjórnina. Og á öðrum stað
ályktar einn af heilum
Mánudagsblaðsins orðrétt:
„Að því loknu ættu Sjálf-
stæðisflokkurinn og Sósíal-
istaflokkurinn að taka hönd
um saman um stjórn lands-
ins með Alþýðuflokknum
eða hlutleysi hans. Báðir
flokkarnir, Sjálfstæðisflokk
urinn og Sósíalistaflokkur-
inn, eru vinsælirmeðalvinn
andi stétta og líklegastir til
að hafa bætandi áhrif á
stéttafélögin í borg og bæj-
um“. Er hér kannski ekki
fullskýrt að orði kveðið?
ÆtJi þurfi frekari vitna við
um hinar raunverulegu
hugsanir Sjálfstæðisflokks-
ins bak við sakleysisgrím-
una?
SjálfstæSisflokkurinn lít-
ur á farmannadeiluna sem
mikilvægt atriði í áróðri sín-
um og valdabrölti, hvað svo
sem Morgunblaðið þykist
hafa til þeirra mála að leggja
í afsökunarskyni. Hendurnar
eru hendur Esaú, en röddin
er rödd Jakobs. Og það er
tungunni tamast, sem hjart-
anu er kærast, þó aldrei
nema orðin komi úr barka
Mánudagsblaðsins. Sam-
göngumar milli hans og
hjarta íhaldsins eru sannar-
lega engin nýlunda, þó að
ekki sé gott til afspurnar fyr
ir hvorugan málsaðilann. En
enginn má sköpum renna.
Stúdentaskákmótið
STÚDENTASKÁKMÓT-
IÐ, sem staðið hefur yfir hér
í Reykjavík undanfarið,
vakti mikla og almenna at-
hygli. Aðsóknin bar fremur
svipmót stórþjóðar en smá-
ríkis. Hér var líka um merki-
legan atburð að ræða, og
skákíþróttin á vaxandi vin-
sældum að fagna meðal ís-
lendinga. Ber mjög að fagna
því, að stofnað skyldi hér til
þessa móts í þessari skemmti
legu íþrótt hugkvæmninnar
og ályktunarinnar. Árangur
þess heima fyrir mun segja
til sín áður en langt um líð-
ur.
Úrslitin komu engum á ó-
vart. Rússnesku stúdentarn-
ir báru glæsilegan sigur af
hólmi eins og við var búizt.
Þeim og öðrum sigurvegur-
um mótsins skal hér með ósk
að til hamingju. Sumir munu
hafa vonað, að íslenzka sveit
in yrði ofar í röðinni en raun
bar vitni. En vissulega er
rík ástæða til að fagna
frammistöðu okkar manna.
Þeir urðu landi og þjóð til
sóma. Og þeim er það að
þakka, að stúdentaskákmót-
ið var haldið hér og verður
skákíþróttinni á íslandi til
framdráttar.
00
Ritstjóri: Ingvar Ásmundsson.
STÚDENTASKÁKMÓTINU
er nú lokið með glæsilegum
sigri sveitar Sovétríkjanna,
sem hlaut 43 Vé vinning.
Á fyrsta borði tefldi skák-
meistari Sovétríkjanna, Lettinn
Tal, og hlaut hæsta vinnings-
hlutfall á því borði, vann 7
skákir, gerði 3 jafntefli og tap-
aði engri. Tal virðist erfiða
manna minnst yfir skákborð-
inu, en arkar gjarna um gólf
sem í leiðslu og rankar þá helzt
við sér ef hann stígur ofan á
einhvern, biður góðlátlega af-
sökunar og heldur áfram göngu
sinni fram og aftur um salinn.
Stöku sinnum staldrar hann við
og horfir augum skilnings og
sköpunar á stöður okkar minni
spámannanna, sem sitjum með
sveittan skalla í endalausum
efa um hvor sé betri brúnn eða
rauður. í Sovét-sveitinni voru
auk Tals Rússarnir Spasskí,
sem er heimsmeistari unglinga,
Polugajevski og Nikitín, Georg-
íumaðurinn Gurgenidze og Lit-
háinn Gipslis. Hlutu þeir titil-
nn: Heimsmeistarar stúdenta í
skák 1957. í öðru sæti höfnuðu
svo Búlgarar eftir harða bar-
áttu við Tékka. Hlutu þeir 37
vinninga. en Tékkar 36. Ung-
verjar hlutu 34VÍ* vinning,
Bandarikjamenn 31, Rúmenar
29, Austur-Þjóðverjar 28, ís-
lendingar 27, Englendingar
23V2, Danir 19, Svíar 16, Equa-
dormenn lölá, Mongólar 141Ú
og Finnar 914.
Þótt frammistaða íslenzku
sveitarinnar hafi ekki orðið
framar vonum, átti hún ýmsa
góða daga. Má þar einkum
nefna sigurinn yfir Dönum, A-
Þjóðverjum og Englendingum.
Ekki verður heldur með sanni
Áthugasemd frá Vlnnuveitendasambandi
íslands og Vinnumálasambandi S.Í.S.
SAMNINGANEFND Stýri-
mannafélags íslands sendi frá
sér yfirlýsingu í dagblöðunum
í gær, þar sem reynt er að gera
útreikninga og yfirlýsingar út-
gerðarmanna tortryggliegar.
Grein samninganefndar Stýri
mannafélags íslands er skrifuð
í mjög óviðfelldnum tón og lít
ur út fyrir, að hún sé ekki skrif
uð til þess að finna lausn á erf-
iðu vandamáli, heldur til hins
gagnstæða.
Vér munum ekki hirða um að
svara dylgjum og leiðinda orð-
bragði stýrimanna nú frekar en
hingað til, en snúa oss að
kjarna málsins. Þó skal það
tekið fram, að tölur þær, sem
stýrimenn birtu úr „Hvítu bók
inni“ eru birtar án heimildar
og er það brot á lögum um sátta
tilraunir, þar sem ekki var leit
að samþykkis útgerðanna um
birtingu þeirra skjala, er þær
hafa lagt fram á sáttafundum.
Til þess að ekkert fari á milli
mála um útreikninga útgerð-
anna, skal hér birt í heild, sem
sýnishorn, blaðsíða sú í „Hvítu
bókinni“, sem snertir II. stýri-
mann í millilandasiglingum (V.
fl.) og getur fólk þá borið sam-
an við staðhæfingar stýrimann-
anna.
„II. stýrimaður á 5. fl. skipi.
I. N.ú: Krafa:
Grunnkaup 2.730,00 3.555,00
Vísitala 2.129,40 2.772,90
Fæðispen. í orlofi 56,07 160,20
Sumarleyfi 404,95 527,30
Fridagar (2) 323,90 (3) 1.537,92
Ffirvinna 850,00 2.550,00
Fæðispen. í hafnarfríum 192,09
6.494,32 6.494,32 11.295,41 11.295,41
(74%)
H
Eignatrygging 11,25 22,50
Lífeyristrygging 291,56 379,67
Alm. trygging 30,63 245,00
Sjúkrasamlag 45,00 45,00
Fatnaður 266,66 316.66
Fæði 750,00 750,00
Sængurföt og hreinlæti 230,00
Atv. skírt. trygging 166,67
1.395,10 1.395.10 2.155,50 2.155,50
(54,5%)
7.889,42 13.450,91
III.
Gjald.hlunnindi 1.712,80 2.663,40
9.602,22 16.114,31
Mismunur 6.512,09 % með gjaldeyri: 67,8
sagt að sveitin hafi nokkurn-
tíma beðið afhroð á mótinu.
Þegar öllu er á botninn
hvolft voru það samt fyrst og
fremst íslenzkir skákunnendur,
sem gerðu garðinn frægan að
þessu sinni. Á hverju kvöldi
komu þeir hundruðum saman
til þess að fylgjast með mótinu.
Með því hafa þeir sýnt skák-
heiminum að Islendingar eru
ótvírætt ein mesta skákþjóð
veraldar.
Stúdentamótið hefur orðið
okkur til sóma og mun áreiðan-
lega ekki spilla fyrir því að Is-
lendingum verði falið að halda
alþjóðaskákmót í framtíðinni.
Hér birtist svo ein af skák-
um Tals, tefld í 5. umferð stúd
entamótsins.
Hvítt: Tal (Sovétríkjunum).
Svart Kolarov (Búlgaríu).
1. e4, c5. 2. Rf3, d6. 3. d4, c:
d4. 4. R:d4, Rf6. 5. Rc3, a6.
(Þetta afbrigði Sikileyjarvarnar
er kennt við argentínska stór-
meistarann Najdorf og er mjög
í tízku.) 6. Bg5, Rbd7. 7. Bc4,
Da5. 8. Dd2, e6. 9. o—o—o, b5.
(Hvítur er nú kominn út með
alla sína rnenn og hefur auk
þess náð að hrókfæra. Svartur
er aftur á móti með báða bisk-
upa sína uppi í borði og á óhrók
að. Það er því engin furða þótt
Tal telji sig hafá efni á að
fórna biskupi fyrir 3 peð. Kol-
arov hefur sennilega búizt við
fórnir, teflir mjög vel og fær
hættulega mótsókn á hvíta
kónginn.) 10. B:e6?!, f:e6. 11.
R:e6, Kf7. 12. R:f8, H:f8. 13.
D:d6, b4. 14. Rd5, D:a2. 15.
Hhel, Kg8. (Hvítur hótaði 16.
e5.) 16. B:f6, g:f6? (Betra hefði
verið að drepa með riddaranum
16. — R:f6. 17. Re7, Kf7 og
svartur stendur mun betur.) 17.
Hd3, D:alt 18. Kd2, D:b2. 19.
f4, b3. 20. Re7t, Kh8. 21. H:b3,
Da2. 22. Dd5, Ha7. 23. Rg6t,
Kg7. (Ef 23. h:g6 þá 24. Hh3t
og drottningin fellur.) 24. R:f8,
K:f8. 25. e5, R:e5. (Örvænting-
arfullur leikur, sem bendir til
þess að svartur sé í tímahraki,
en staða hans er vonlaus hvort
eð er. Hvítur hótaði 26. e6 og
Dc5t) 26. Dc5t, Kg8. 27. D:c8,
Kf7. 28. f:e5, Da5t 29. Dc3,
Hd7t 30. Kcl og svartur gafst
upp.
án gjaldeyris: 70,5
Aí' : VAbót líkleg vegna langf. uppb., námskostn., aldurs-
hækkun, í'yrir fullt sumarleyfi, frídagur fyrst í mán., matur í
herb. og mr.rgt fleira.“
Til skýringar skal það tekið
fram, að þeir liðir í útreikningn
um, sem háðir eru vísitölu, eru
reiknaðir með vísitölu 178 stig,
en í yfirlýsingu útgerðanna 12.
og 18. þ. m. er reiknað með nú-
gildandi kaupgjaldsvísitölu 182
og er því bæði kaup og kröfur
að því leyti of lágt reiknaðar í
„Hvítu bókinni“.
Það skal tekið fram, að í yf-
irlýsingu útgerðanna 12. þ. m.
er aðeins birt fasta mánaðar-
kaup að viðbættri vísitöluupp-
bót en í. framangreindum út-
Framhakl á 7. síðu.
Smælki
•**<5
I Spánardeild bandaríska
þingbókasafnsins eru geymdar
einu hljómupptökurnar, sem til
eru, þar sem spánska Nóbels-
verðlaunaskáldið Juan Ramon
Jimanez les sjálfur upp úr verk
um sínum. Upptökurnar voru
gerðar árið 1949. Ljóðskáldið
dvaldi í Washington frá 1948
til 1951, er hann og kona hans
sóttu heim fyrirlesara við Mary
landháskóla. Hljómupptakan
stóð yfir í eina og hálfa klst. og
las skáldið m.a. tvö kvæði, sem
hann orti meðan hann dvaldist í
Washington. Nefnast þau „Ro-
mances de Virginia“ og „Con
los Olmos de Riverdale".
Heitoginn af Windsor og
kona hans hafa stofnað svo-
nefnd Windsor-verðlaun til
styrktar amerískum og evrópsk
um listamönnum. Fyrstu verð-
laun úr sjóðnum hljóta fransk-
ir listamenn. Síðar munu styrk
veitingar ná til listamanna allra
Evrópulanda. . J