Alþýðublaðið - 31.07.1957, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 31.07.1957, Qupperneq 9
Sliðvikudagur 31. júlí 1957 AlþýgublaStH .ÍÞRÓTTnO (íþróttír; (íþróttír) C íþrÓttír) C íþróttír. Knattspyroa: VALUR gjörsigraði Akureyr inga í íslandsmótinu á sunnu- dagskvöldið í bráðfjörugum og skemmtilegum Ieik, þrátt fyrir slæmar aðstæður, hálan og þungan völl, vegna mikillar rigningar. Vegna fjarveru nokkurra leikmanna Vals úr liðinu, en l>eir eru í Noregsför, þ. á m. markvörðurinn, var almennt búizt við því að Akureyringar, sem oft hafa sýnt bæði dugnað og keppni, ættu mikla mögu- leika til sigurs í leiknum. En það var nú eitthvað annað. Því þetta var tvímælalaust allra bezti Ieikur Vals í sumar, eink- um reyndist framlínan vel, virk, hröð og skiptingar góðar, enda skoraði hún alls sex mörk gegn tveim. Fyrri hálfleik lauk með 2:1 fyrir Val og þeim síðari 4:1. Gunnar Gunnarsson skoraði foæði mörkin í fyrri hálfleikn- um og þrjú í þeim seinni, auk hans skoraði Sigurður Sigurðs- son eitt mark. Fyrir Akureyr- Inga skoraði Baldur Árnason í fyrri hálfleik, en Ragnar Sig- fryggsson í þeim síðari. Dómari var Helgi Helgason. Ahorfendur voru allmargir og spenningur mikill meðal þeirra, einkum í fyrri hálfleiknum. FYRRI HÁLFLEIKUR Þegar er leikur hófst, hófu Valsmenn sókn og áður en ein ínínúta var liðin höfðu þeir skorað mark. Knötturinn gekk viðstöðulaust upp að marki og úr sendingu fyrir skoraði Gunn- ar Gunnarsson með snöggu skoti. Fyrsta marktækifæri Akur- eyringa kom á 8. mínútu, er mið'herji þeirra, Jakob Jakobs- son, skauzt í gegn, en var of seinn að skjóta, og klemmdist milli tveggja Valsmanna og datt við. Dómarinn dæmdi aukaspyrnu á vítateigi, en hún var varin. Þrem mínútum síðar jafna Akureyringar, Baldur h. innh. skorar, eftir mjög snjalla sendingu frá Jakobi, sem renndi knöttinum með léttri utanfótar- spyrnu til hans og framhjá varnarleikmanni Vals, sem kom gegn honum. Baldur átti síðan gott skot á markið. Mark- vörðurinn, Gunnlaugur Hjálm- arsson, gerði virðingarverða til raun til að bjarga, en mistókst, enda erfitt um vik. Stóðu síðan leikar jafnir þar til aðeins voru 2 mínútur eftir. Hins vegar áttu foáðir tækifæri fram að þeim tíma. T. d. Gunnar Gunnarsson, Siáa sendingu að marki, sem markvörður varði naumlega, og Árni Njálsson fast skot yfir, eftir snögga sókn, þar sem ann- ar bakvörður Akureyringa rrjiss ír hann inn fvrir sig, hálka og foleyta kom þarna vel til liðs við Akureyringa. því að öllu sjálfráðu hefði Árna ekki mis- fekizt skotið, úr svo góðu færi. Sókn Akureyringa skömmu síð- ar saí þeim eitt bezta tækifærið í leiknum, v. framherji beirra er kominn unp að rnarki, en skýtur of fljótt, hittir þó mark- íð, Gunnlaueur varpar sér ör- ugglega og bjarear. Loks á 43. mín. skora Valsmenn síðara mark sitt í þessum hálfleik eft- ir sókn frá vinstri. Hörður fær knöttinn og skýtur síðan föstu skáskoti á markið. markvörður- ínn heldur ekki knettinum, enda er hann háll og þungur, hrekkur hann frá honum, en Gunnar Gunnarsson, sem fylgt hefur vel á eftir, nær til hans og skorar örugglega. Þessi hálfleikur var ekki ó- jafn, bæði iiðin áttu góðar sókn arlotur, þó' lék það ekki á tveim tungum að Valsmenn voru á- kveðnari í öllum aðgerðum. SEINNI HÁLFLEIKUR í byrjun hálfleiksins sækja Akureyringar fast fram, og v. útherji þeirra er enn í góðu færi við markið á vítateigi, jöfn unarmöguleikar virtust ótví- ræðir, fast var skotið, en knött urinn þaut veg allrar veraldar, langt fyrir utan og ofan mark- ið. Valsmenn herða nú sókn sína og eiga skot á mark, en það er varið. Það er ekki fyrr en á 12. mín. sem þeir skora þriðja mark sitt, það gerði-Sig- urður Sigurðsson með beinu og föstu skoti. Akureyringar herða sig nokkuð, en allt kemur fyrir ekki, þeim tekst ekki að skapa sér skotaðstöðu, þó þeir eigi all góðar sóknir, og enn bæta Vals menn marki við, er Gunnar Gunnarsson skorar á 20. mín- útu. Það er loks fimm mínútum síðar, að Akureyringar fá tæki- færi, sem nærri hafði kostað Val mark, en sem þó bjargar á síðustu stundu. Haukur Jak- obsson v. innlherji fær knött- inn, leikur fram með hann, sendir hann frá sér og skot þrumar að marki, framherjar Akureyringa fylgja fast, en knötturinn hittir aðra mark- súluna, markvörður Vals hleyp ur fram um leið og skotið er, tekst honum að grípa knöttinn úr frákastinu og bjarga þannig að hann lendi hjá mótherja, varpar hann knettinum langt fram á völlinn. Síðan skiptir það engum togum, að knötturinn er kominn upp að marki Akureyringa og skot dynur á mark þeirra frá h. inn- herja Vals, en aftur er mark- súlan fyrir. Þá fær Iiörður h. útherji Vals knöttinn, hleypur fram með hann og sendir fyrir, ^ Sigurður Sigurðsson v. útherji skaut þegar, en markvörður varði. Nokkrum mínútum síðar skora Akureyringar seinna mark sitt, úr sókn frá hægri, og h. útherji, Ragnar Sigtryggs son, spyrnir vel að marki, föstu skáskoti og knötturinn hafnar í netinu, var þetta vel fram- kvæmt úr knappri vinkilstöðu. Stóð nú 4:2 um skeið. En á 40. mínútu á framlína Vals góða sókn, knötturinn gekk hratt mann frá manni, með stuttum sendingum og endar á skoti frá Árna Njálssyni, föstu og snöggu, en einu sinni verður stöngin fyrir og knötturinn hrekkur fram á völlinn. Þessi sóknarlota var jafn prýðileg' fyrir því. Hins vegar skora Valsmenn rétt á eftir sitt fimmta mark, Gunnar Gunnars son skaut af allöngu færi og fast og' vel, síðan er svo sjötta markinu bætt við rétt fyrir leikslok og aftur var Gunnar Gunnarsson þar að verki. * Eins og fyrr segir hefur fram lína Vals ekki leikið eins vel í sumar og í þetta sinn, einkum þó í seinni hálfleik. Samvinna öll og heildarskipulag var með allt öðrum hætti en áður, og sannar það, að hægt er að gera hlutunum góð skil, ef rétt er á haldið. Gunnar Gunnars- son' lék nú miðherja í stað Björgvins Daníelssonar, sem er erlendis. Gerði Gunnar hlut- verki sínu í leik þessum ágæt Framhald á 11. síðu. ngln úrslif í annarri detld ÚRSLITALEIKUR II. deild- ar keppninnar í knattspyrnu fór fram hér í Reykjavík sl. laugardag. Það voru ísfirðing- ar og Keflvíkingar, sem áttust við. Leiknum lauk með jafntefli og án þess að mark væri skor- að. Var þá framlengt um hálf- tíma, 15 mínútur á hvort mark. Framlengingunni lauk einnig með jafntefli, 1:1. Verður því nýr leikur þessara aðila að fara fram. Væntanlega fæst þá úr því skorið, hvorir fara upp í I. deild. * Keflvíkingar eru sýnilega sterkari en ísfirðingar, hins vegar er leikur ísfirðinganna allur mun liðugri og nokkur til- þrif hjá þeim til samleiks úti á vellinum, hins vegar skorti þá að vera ákveðnir uppi við mark ið og skjóta án allrar feimni. Keflvíkingana skortir ekki á- gengi og fullan vilja, en leikni þeirra er ekki að sama skapi, hins vegar eiga þeir duglegan miðframherja, Högna Gunn- laugsson, sem ekki er feiminn við að skjóta og er mjög fljótur, enda skoraði hann mark þeirra í fyrri hálfleik framlengingar- innar er þrjár mínútur voru af leik. Brunaði hann inn fyrir vörn ísfirðinga og skaut óverj- andi. Aftur skoraði svo Högni með svipuðum hætti 7 mínút- um síðar, en var dæmdur rang- stæður. í seinni hálfleiknum skoruðu svo ísfirðingar stuttu eftir að hann var hafinn, léku þeir vel í gegnum vörnina, en það mark var einnig dæmt ó- Igilt vegna rangstöðu, og fram á síðustu mínútu héldu Keflvík- ingar þessu eina marki sínu, svo flestir voru farnir að telja þá örugga að komast í I. deild- | ina. En rétt fyrir leikslok fengu ísfirðingar hornspyrnu, hún var J ágætlega framkvæmd, mark- vörður Keflvíkinga var vel á verði, stökk í loft upp og greip knöttinn örugglega, en þar sem þetta var alveg á marklínunni, uggði hann ekki að sér og sveigði sig inn í markið um leið og hann kom niður, með þeim afleiðingum að hann fór inn fyr ir línuna með knöttinn. Línu- vörðurinn fylgdist nákvæmlega með því, sem var að gerast, og mark var dæmt á Keflvíking- ana. Merki um leikslok var gef- ið svo að segja um leið og horn- spyrnan var afstaðin og leikn- um lauk með jafntefli. j í liði Keflvíkinga voru þeir Högni Gunnlaugsson miðherji og Páll Jónsson h. útherji bezt- ir í framlínunni. Páll er sérlega snar og sprettharður. í vörninni var það Hafsteinn Guðmunds- son, sem af bar, en hann er for- ustumaður liðsins og aðaldrif- fjöður knattspyrnuíþróttarinn- Framhald á 11. siðu. 9 Örn Eiðsson: !s!ai?líme! Krisfjéns í 3009 m. hlaupi vakfi hrifningu. áhorfsnda í Nalmö. Isleozk stiíSka afhentS Valhirni verð- launin fyrir sigur hans í stangarstökki. ' Mjölby, 24. pjlí 1957. NÚ E'RUM við komnir til Mjölby eða Mjölbæjar, eins og fiestir okkar kalla þennan vina- leg'a 10 þúsund manna bæ, sem er ca. 250 km. frá Stokkhólmi. Við komum hingað klukkan 7 í gærkvöldi og fengum ágætar i móttökur. Bær þessi minnir okk ' Hafnarfjörð, nema það að skóg I ur er töluvert meiri. Á mótinu I hér í kvöld keppa margir af1 beztu frjálsíþ'róttamönnum Svía og Bandaríkjamaðurinn Bob Appelman, sem fylgir okk ur eins og skugginn. Snúum okkur nú að keppn- inni í Malmö, en þangað var komið á laugardagskvöldið um sjö leytið. Malmö er þriðja stærsta borg Svíþjóðar, íbúar eru um 200 þúsund. Dvalarstað ur flokksins var í íþróttasal M FF félagsins, sem er eitt rík- asta og stærsta knattspyrnufé-, lag Svíþjóðar, fór mjög vel um okkur þar, það væri ekki dóna- legt eiga jafnstóran og glæsi- legan sal heima, því að á vet- urna er keppt þarna í stangar- stökki, 60 m. hlaupi og 60 m. grindahlaupi. Á mótinu í Málmey kepptu auk okkar Bandaríkjamenn, Danir, Norðmenn, Þjóðverjar og svo auðvitað Svíar. Meðal á- horfenda voru nokkrir íslend- ingar, sem hvöttu strákana ó- spart og einnig afhenti íslenzk stúlka' verðlaun fyrir stangar- stökkið og var henni fagnað mjög, enda falleg. Fyrstu greinarnar, sem land- arnir tóku þátt í voru 100 m. hlaup, B-flokkur, en þar keppti júníórinn Unnar Jónsson, há- stökk Ingólfur Bárðarson og kúluvarp Skúli Thorarensen. Unnar var mjög taugaóstyrkur, sem von var, mótvindur var töluverður og varð hann fjórði og komst ekki í úrslit, tíminn var 12,0 sek. Svipuð umsögn gildir um Ingólf, hann fór mjög hátt yfir 1,70, næst var hækkað í 1,80, hann var mjög stífur og mistókst í öll þrjú skiptin, Ing- ólfur var í 6.—8 sæti með 1,70 m. Skúli var heldur ekki í stuði, enda bólginn í.fæti, hann náði ekki 15 m. varð fjórði með 14,94 m. . Björgvin Hólm tók þátt í 110 m. grindahlaupi og stóð sig vel þrátt fyrir mótvindinn, fyrstur varð Svíinn Lennart Karlsson á 15,6, en Björgvin varð annar með 16,2 sek.. Rétt þegar Björgvin hafði nýlokið keppni komu miklar þrumur og skýfall strax á eftir, en um daginn var hiti óvenjumikill í Málmey eða um 30 stig í skugg anum. Stangarstökkvararnir áttu í miklum erfiðleikum í rigning- unni og mótvindinum. Valbjörn sigraði með miklum yfirburð- um, fór yfir 4,00, 4,10, 4,20 og 4,30 í fyrstu tilraun, en mis- tókst við 4,42 enda var þá far- ið að skyggja. Lennart Lind stóð sig vel fór yfir 4,20 í fystu tilraun en átti enga mög'uleika að fara yfir 4,30. Heiðar átti í harðri baráttu við Appelman hinn bandaríska og Rinaído hinn sænska, sem hafa stokkið 4,22 og 4,17. Röðin var Appel- man 3,90 (fór yfir þá hæð í 3. tilraun, annars hefði Heiðar orðið 3.), Heiðar varð 4. með 3,80 og Rinaldo fimmti með 3,80. Atrennubrautin í langstökki var slæm og auk þess mótvind- ur, Vilhjálmur sigraði með mikl um yfirburðum, stökk lengst 7,02 m., annar varð Þjóðverj- inn Hajek með 652, en hann hefur stokkið yfir 7 m. í sumar, þriðji Svíinn Mánsson 6,41 m. 3000 m. hlaupið var skemmti legt, en þar voru með margir af beztu langhlaupurum Norð- urlanda, alls voru keppendur 10, meðal keppenda var Dan- inn Thyge Thögersen. Kristján hélt sig í miðjum hópnum allt hlaupið, en Svíinn Jönsson hafði forustuna lengst af. Milli tíminn á 1500 m. var 4:07,0 á fyrsta manni en 4:15,0 á Kristj- áni. Kristján hljóp síðasta hring inn vel, en tvö endamörk voru og á því tapaði hann um 1 sek. Svipað kom fyrir Guðmund Lárusson í úrslitum 400 m. hlaupsins á EM í Brussel 1950. Þrjár klukkur voru á Kristj- áni og sýndu allar 8:37,5 mín. Kristján fékk sérstök aukaverð- laun fyrir metið og var einn af vinsælustu keppendunum. 'Höskuldur keppti í A-flokki 100 m. hlaupsins og auðvitað í sama mótvindinum sem aðrir. Hann fékk allgott viðbragð, en tími hans hefði átt að vera betrf, því að hann var aðeins meter á eftir þriðja manni, sem fékk tímann 10,8, fyrstur varð Svíinn Malmroos á 10,7, annar Jan Carlsson 10,8 og þriðji Löv gren 10,8, fjórði Ove Johnsson 11,3, 6. Þjóðverjinn Kron 11.4. Daníel Halldórsson hljóp 400 m., en meðal andstæðinga hans var boðhlaupsheimsmethafinn Maiocco frá Bandaríkjunum. Maiocco sigraði á 48,6 og Daníel varð annar með 50,0, en þó tap aði hann nokkrum sek.brotum, þar sem hann hægði aðeins á sér þegar hann hafði hlaupið ca. 10 m., vegna þess að honum heyrðist ræsirinn kalla hlaup- arana til baka vegna þjófstarts. Sigurður Guðnason stóð sig vel í 1500 m. hlaupin, en meðal keppenda var Daninn Benny Stender, sem sigraði í 1500 m. hlaupinu í landskeppni Dana og íslendinga 1. og 2. júlí sl. Stender hafði íorustuna allt hlaupið, en Sigurður var í 2.— 3. sæti fyrstu 800 m., þá fór einn Svíi fram úr. Þegar 400 m. voru eftir var Sigurður orð- inn 30—40 metra á eftir þriðja manni, en tók mjög glæsilegan endasprett og á síðustu metr- unum tókst honum að fara fram úr Svíanum við mikil fagnaðarlæti og varð þriðji á sínum bezta tíma í sumar, 3:57,8, fyrstur varð Stender á 3:51,7 og annar Svíinn Bengts- son á 3:53,5. Alls voru keppend- ur 10. Nú er aðeins eftir að geta um boðhlaupið, sem var 4X100 m. 3 sveitir tók þátt í því, ÍR-sveit in, sænsk sveit og úrvalssveit (2 Bandaríkjamenn og 2 beztu Sví arnir!), var því ekki hægt að búast við íslenzkum sigri, Hösk uldur hljóp fyrsta sprettinn mjög vel og skilaði til Vil- hjálms, þá var ÍR-sveitin jöfn úrvallsveitinni, Daníel hljóp þriðja sprettinn á móti Pear- man hinum bandaríska og vann Framhald á 11. síðu. ,

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.