Alþýðublaðið - 26.09.1957, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 26.09.1957, Blaðsíða 1
Símar blaðsint: Kitstjórn: 14901, 10277. Preatsmiðjan 14905 XXXVIII. árg. Fimmtudagur 26. sept. 1957 217. tbl. Sírnar biað-iins: Augiysmgar i49o«. Auglýslngar og aí- greiðsla: 14900. Segir einn af ritstjórym Borba, aðaímál- gagns Titó í Júgóslavíu í við- tali við Alþýðublaðið SKKIFFINNSKAN ræður ríkjum í Sovétríkjunum, allir þræðir liggja þar til miðstjórnarinnár, sem hleður upp skrif- stofubákni en fólkið sjálft, starfsmenn hinna einstöku fyrir- tækja ráða í Júgóslavíu, sagði einn af ritstjórum, Borba, aðal- málgagns Tito í Júgóslavíu í viðtali við Alþýðublaðið í gær. Er hann hcr á ferð ti þess að safna efni í greinar um ísland. Friðrik að tafli. Ilann leikur í þessa mund gegn Gunnari Huseby. Ingvar að tafli. Alþýðublaðið átti í gær við- tal við Zivko Milic, einn af rit- stjórum Borba stærsta blaðs Júgóslavíu og aðalmálgagns Tito forseta. Er Milic hér á ferðalagi til þess að safna efni' í greinar um ísland, er hann hyggst rita í blað sitt. KOM FRA NOREGI — FER TIL GRÆNLANDS. Milic kom hingað frá Oslo og hafði þá ferðast nokkuð um Nor eg í þeim sama tilgangi að safna efni fyrir blaði sitt. Hér hvggst hann dvelja í viku til 10 daga, en heldur síðan til GræhTands, ef hann fær landvistarleyfi þar í landi. HEFUR ÁIIUGA Á ÖLLU. Er fréttamaður Alþýðublaðs- ins innti Milic eftir því, hvað hann mundi helzt kynna sér hér, svaraði hann, að hér mundi hann kynna sér stjórnmál, efna hagsmál og hið daglega líf. „Ég hef áhuga á öllu í svona litlu landi“, sagði Milic. ÆTLAR TIL KEFLA- VÍKURFLUGVALLAR. Milic hafði þegar rætt við nokkra ritstjóra í Reykjavík og hafði pantað viðtal við menntamálaráðherra. Mikinn hug hafði hann á 'því að skreppa upp í Hvalfjörð, og sjá hvalvinnsluna þar svo og að kynnast öðru varðandi útveg- inn. Þá gerði Milic sér vonir um að fá að fara inn á Kefla- víkurflugvöll til þess að skoða flugstöðina. 100 BL AÐAMENN VIÐ BORBA. Fréttamaður Alþýðublaðsins spurði Milic nokkra spurninga varðandi Borba. Kvað Milic blaðið korna út í 250 þús. ein- tökum og vera stærsta blað Júgóslavíu. Yfir 100 blaðamenn starfa fyrir blaðið, þar af eru 50 staðsettir í Belgrad. EINN FLOKKUR í JÚGÓSLAVÍU. Er Borba gefið út af júgó- slávneska kommúnistaflokkn- um? spurði blaðamaður Al- þýðublaðsins. Nei, Sósialista- hreyfingin (The Socialist Move- ment), sem stendur að rikis- stjórn Titos gefur blaðið út. Sósialistahreyfingin hét áður t „alþýðuhreyfingin“, (The Peo- ples Union), en hún var mynd- uð af mörgum flokkum í lok stríðsins. — Er leyfilegt að stofna aðra stjórnmálaflokka í Júgóslavíu, t. d. jafnaðarmannaflokk? — Já, svo framarlega sem þeir flokkar berjast ekki gegn stefnu Titos varðandi fram- kvæmd sósialismans. — Leyfist þá ekki að gagn- rýna stefnu-Titos og boða jafn- aðarstefnu í Júgóslavíu? — Nei, júgóslavneska þjóðin hefur samþykkt stefnu Titos og barátta gegn þeirri stefnu gengur í berhögg við vilja þjóð arinnar. — Er þá ekki leyfilegt að gefa út jafnaðarmannablað í Júgó- slavíu? — Jú, ef það berst ekki gegn „stefnuskránni um framkvæmd sósialismans“. Dilas gat t. d. gagnrýnt Tito í okkar eigin blaði, Borba. — Já, hann lenti líka í fang- elsi fyrir bragðið. —• Ja, ekki fyrr en hann tók að berjast gegn júgóslavneskri utanríkisstefnu og „stefrru- skránni um framkvæmd sósial- ismans í Júgóslavíu“. Ágóði af bókinni verði þó gerðyr upptækur OSLÓ, miðvikudag, (NTB). I Mikle-má-Iinu krafðist ákær- anclinn í dag sektardóms yfir Agnari Mykle og Harald Grieg, samkvæmt ákærunni, en ekki hegningar. Ilann áleit, að í þessu máli væri rétt að nota þann rétt, sem nú væri veittur í iögum, til að kveða upp sekt ardóm, án þess að um hegningu sé að ræða“ sagði ákærandinn. Hins vegar verður að gera gróð ann af bókinni upptækan, en hann er talinn 241.000 krónur hjá Mykle og 152.000 krónur hjá Gyldendal. Loks krafðist ákærandinn þess, að bókin væri gerð upptæk, ekki vegna þess að það liefði nokkra hagnýta þýðingu, eftir að húið væri að selja af henni 60.0000 einstök, heldur vegna nauðsynarinnar á að gefa fordæmi. í ræðu sinni í dag hlét Rickel es því fram, í samræmi við fyrri réttarvenjur og samkvæmt á- liti lögfróðra manna, að það hefði engin úrslitaáhrif á spurninguna um, hvort rit væri klám, að það sé bók- menntalegt verk. „Hjá þeirri staðreynd verður ekki komizt, að bókmenntalegt- verk verkar sem klám, ef það fer út yfir þau takmörk, sem þjóðfélagið setur, og vegna listrænnar framsetningar sinnar mun það í rauninni hafa meiri áhrif en Framhald á 2. síðu. Friðrik efsfi með 7 vinninga Níuncla umferð Stórmótsins var teflcl í gærkvöldi. Guð- mundur Á. vann Inga R., Guð- mundur S. vann Ingvar, Friðrik vann Guðmund P. og Gunnar vann Arinbjörn. Skákir Benkös og Pilniks, og Stáhlbergs og Björns fóru í bið. Staðan er þessi: 1. Friðrik, með 7 v. 2. Pilnik 6V2 og bið- skák. 3.—4. Benkö og Stáhl- berg 5V2 v. og báðir með bið- skák. 5.—6. Guðmundur P. og Ingi R. 5 v. 7. Guðmundur S. 4 og biðskák. 8. Ingvar 3Vh og biðskák. 9. Guðmundur Á. 2V> og biðskák. 10. Gunnar 2V> v. 11.—12. Arinbjörn og Björn með IV2 og báðir með biðskák. 10. umferð verður tefld í kvöld og tefla þá Arinbj., Ingvar. Ingi R., Guðm. S. Guðm. P., Guðm. Á. Björn, Friðrik. Pilnik, Stáhl berg og Gunnar Benkö. Átökin í Little Rock: Fallhíífahermenii mei hyssustigi á byssum sínum fylgdu neqrunum í skólann Maður stunginn í handlegginn og annar barinn, er hvítur lýður stofnaði til átaka við hermennina. LITTLE ROCK, miðvikud. Himtm níu, þeldökku nemend- um við menntaskólann í Little Rock var í dag fylgt til skól- ans af amerískum fallhlífaher- mönnum með byssustingi á byss um sínum. Nemendurnir níu — sex stúlkur og þrír piltar — komu til skólans í herbifreið og gengu inn í skólahúsið, án þess að nokkuð gerðist. Nokkru síðar var rnaður þó stunginn í handlegginn með byssusting og annar fékk hart liögg af byssuskefti, er til átaka kom við fastahcrmenn utan við skól ann. Fa.ll4lifahermennirnir tóku á móti negrabörnunum, þegar þau komu akandi til skólans. Um leið og þau stigu út úr bíln um slóu hermennirnir hring um þau og gengu með þeim inn í skólann, en aðrir hermenn stóðu vörð fyrir utan. Engir svertingjar voru meðal fallhlífa hermannanna, en þó er vitað, að svertingjar eru í því 1000 manna liði, sem sent hefur ver ið til Little Rock til þess að gæta þess, að farið sé að fyrir mælum hæstaréttar um að kynþáttamismunun skuli hætt. Þeir einu, sem revndu að troðast að nemendunum, þegar þeir komu til skólans, voru blaðamenn og ljósmyndarar, en hermennirnir viku þeim úr vegi. Er nemendurnir voru komn- ir í skólann, kom til áreksturs milli hóps hvítra manna og her manna. Maður, sem ekki hlýddi skipun um að hafa sig á brott, var stunginn í handlegginn, og annar, sem reyndi að afvopna hermann, fékk þungt högg með byssuskefti. Er hóp hvítra, fjölgaði nokkuð, komu tveir hópar hermanna í viðbót á stað inn. Hermennirnir sóttu að mannfjöldanum úr tveim átt- um ,og eftir stutta stund hafði hann dreift sér. Þá var tilkynnt í hátalara, aðhandtökurmundu fara fram, ef fleiri en tveir menn söfunðust saman við skól ann. Fjöldi hvítra nemenda gekk á brott úr skólanum, er svert- , ingjarnir voru komnir inn. IIRIFNIR AF GOMULKA OG IMRE NAGY. Fréttamaður Alþýðublaðsins Franihald á 3. síðu. Þórður Gíslason FULLTRÚARÁÐ Alþýðu- flokksins í Reykjavík heldur fund annað kvöld kl. 8,30 i Iðnó (uppi). Fundarefni: I) Undir- búningur bæjarstjórnarkosn- inganna. 2) Verðlag landbún- aðarafurða, framsögumaður Þórður Gíslason, verkamaður, en hann á sæti í verðlagsnefnd landbúnaðarafurðanna. 3) Önn- | ur mál. Frá Allsherjarþinginu: Indland leggur tll að öllum tllraunum með kjarnorkuvopn verði jiegar hætt Rússar hera fram tillögu um bann við kjarnorkuvopnum. NEW YORK, miðvikudag, NTB-AFP. Á allsherjarþiiigi Sameinuðu þjóðanna í dag lagði Indland fram ályktunartil lögu, þar sem aðildarríkjunum er gert að hætta tafarlaust og skilyrðislaust öllum tilraunum með ltjárnorkuvopn. Tiilagan gerirráð fyrir, að aðildarríkin skuli tilkynna aðalritara S. Þ., þegar þau hafi framkvæmt kjarnorkusprengingar einhvers staðar í heiminum. Það er í þágu mannkynsins, að aðildarríkjunum er gert að hætta þegar í stað og skilyrðis laust öllum tilraunum með kjarnorkuvopn. Að hætta slík- um tilraunum myndi að minnsta kosti draga úr spenn- unni í heiminum að nokkru leyti og væri fyrsta skrefið til ; afvopnunar, að því er segir í indversku ályktunartillögunni. i Samfímis lagði sendinefnd Sovétríkjanna fram ályktunar- tillögu A. Gromykos um bann við kjarnorkuvopnum. ' Báðar tillögurnar verða , ræddar í stjónmálanefndinni. Tillaga Snvétríkjanna beinist að þeim ríkjum, sem eiga kjarn orkuvopnum á að skipa. Náist ekki samkomulag um afvopn- un skal flytja tillöguna að nýju, segir þar. ÖSá reynir bráiiegja !lug skeyfi, er dregur miili meginiauáa Washington, miðvikudag'. (NTB-AEP). AMERÍSKI flugherin býr sig nú undir að reyna flugskeyti af gerðinni Atlas, sem slcjóta má milli meginlanda, að því er tilkynnt er frá tilraunasvæðinu í Florida. Það er þessi gerð flug skeyta, sem sennilega á að vera svar Bandaríkjamanna við hinw langdræga flugskeyti, sem Rússar skutu nýlega í Síberíu. Sérfræðingarnir reikna með, að skeytið nái 960 klómetra hæð og muni á lokastigi sínu ná 24.000 kílómetra hraða á klukkustund.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.