Alþýðublaðið - 26.09.1957, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 26.09.1957, Blaðsíða 4
4 A í fx ýSublagig Fiinnituclaguir 26. sept. 1957 Otgetandi: Alþýöuflokkaima, Ritstjori: Heigi Sæmundssoa /uigiýsrngastjóri: Emilía Samúelsdéttíi'. fátstjórnarsímar: 14901 og 14902. Au'glvsingasíLii: 14906. Afgreiðslusími: 14900. ^œa'crmiöta Alþýðublaðsins, Hv &rfis«ðta i® MORGUNBLAÐIÐ þreyt- ist aldrei á að fordæma nú- ýerandi rikisstjórn. Það er fyrirfram andvígt öllum störfum hennar og þarf þess i-egna ekki að bíða einn dag avað þá lengur eftir árangri sða reynslu. Blaðið lifir þann ig dyggilega samkvæmt boð- skap nazistans, sem kenndi íhaldinu einu sinni að gefa andstæðingi aldrei rétt og viðurkenna aldreí annars málstað. Einræðishneigðin og áróðursofsinn segir löng- um til sín. Margt er spaugilegt í þess um málflutningi Morgun- blaðsins, en fátt hlægilegra an vandlæting þess í garð Alþýðuflokksins og Fram- sóknarflokksins vegna sam- starfsins við Alþýðubanda- iagið. Því er lýst sem þjóð- hneyksli og landráðum. En hefur Sjálfstæðisflokkurinn hreinan skjöld í þessu efni? Eða er Morgunblaðið kann- ski að krefjast annars af AI- býðuflokknum og Framsókn arflakknum en Sjálfstæðis- flokknum? Lítum á stað- reyndirnar. Sjálfstæðisflokkurinn hafði á sínum tíma náið samstarf við kommúnista í verkalýðs- ireyfingunni, og verkstjóri oess fyrirtækis mun hafa verið Bjarni Benediktsson. Og ólafur Thors hikaði ekki við að mynda rikisstjórn rorðum daga með sjálfan ís- tenzka kommúnistapáfann Brynjólf Bjarnason við hlið sér og trúði honum fyrir menntamálunum. Slíkur og pvílíkur er málstaður Sjálf- stæðisflokksins, þegar saga hans er skoðuð og metin. Samræminu milli orða og at hafna er ekki fyrir að fara. Tíminn víkur að þessu efni í forustugrein sinni í gær að gefnu tilefni og segir: „Maðurinn í Morgun- blaðshöllinni, sá, er gerði samninginn við konimún- ista fyrir stríð um að eyða áhrifum Alþýðuflokksins í verkalýðshreyfingunni, sat síðan með þeim í stjórn árum saman, biðlaði til þeirra 1946 og aftur í fyrra, þykist þess umkominn í dag, að brigzla öðrum um óheilbrigt samstarf við kommúnista. Orð hans í Morgunblaðinu í gær eru eins og að nefna snöru í hengds manns húsi. Skemmdarstarf það, sem Bjarnj Benediktsson og komxnúnistar unnu í félagi í verkalýðshreyfingunni fyrir stríð, greiddi veg kommúnista í þjóðlífinu meira en nokkuð annað, og af því súpum við seyðið enn í dag,- í stjórnmálayfirlýsingu umbótaflokkanna fyrir síð ustu kosningar var heitið að reyna að koma á sam- starfi á milli ríkissijórnar og samtaka verkalyðs, laun þega og bænda og annarra framleiðenda. Þetta var kjarninn í stefnuskrá flokk anna. MeiriHÍUti til stjórn- armyndunar fékkst ekki í kosningunum. Þá var efnt íil pólitísks samstarfs á breiðara grundvelli TIL AÐ KOMA ÞESSUM ’SAM TÖKUM Á. Ummæli Ey- steins Jónssonar á fundin- um í Eyjafirði, sem Mbl. í gær reynir að hártoga, voru því í algeru samræmi við staðreyndir. Án sam- starfs við framleiðslustétt- irnar var óhugsandi að stöðva hrunadans íhaldsins í dýrtíðarmálunum. I kosn- ingabaráítunni var þetta kjarninn í boðskap Frarn- sóknarmanna. Eysteinn Jónsson hélt þessu fram á fundum víðs vegar um land ið í kosningahríðinni. En hann og aðrir leiðtogar um- bótaflokkanna lýstu því líka yfir, AÐ EKKI KÆMI TIL MÁLA AÐ EFNA TIL SAMSTARFS Á NÝ MEÐ ÍHALDINU. Braskararnir hefðu nteð framferði sínu clærnt sig úr leik. Skrif Mor-gunblaðsins í gær sýna, að undan þessum sannleiks orðum svíður enn í clag.“ Við þstta er því að bæta, að eftir síðustu kosningar var Sjálfstæðisflokkurinn skki andvígari kommúnist- um en svo, að hann þráði innilega að komast í stjórn- arsamvinnu við þá. Af því gat ekki orðið vegna þess að Alþýðubandalagið treystist ekki til samstarfs við íhald- ið, en áreiðanlega hefði ekki úaðið á Ólafi Thors og Bjarna Benediktssyni að slá til. Slík og þvílík var löngun Sjálfstæðisflokksins í völd ag áhrif. Og þess vegna ætlar hann öðrum valdagræðgi. Hann fær ekki skilið, sð grundvöllur núverandi stjórnarsamvinnu sé annar 2n hugur forustumanna and stöðuflokkanna til ráðherra- stólan-na. Hér sannast einu sinni enn, að margur heldur mig sig. Hins vegar væri Sjálfstæðisflokknum hollt að hyggja að málefnum í þessu sambandi, því að vissulega koma þau við þessa sögu. Og málstaður íhaldsins er nú með þeim hætti, að enginn íslenzkur stjórnmálaflokkur vill með því vinna •— ekki einu sinni kommúnistar. Þess vegna er Sjálfstæðis- Elokkurinn utanveltu. Hann minnir á strandað skip. Og 3vo á þetta að vera farkost- ar framtíðarinnar sam- kvæmt áróðri Morgunblaðs- ins! Þannig mun það stæra sig þangað til skipið sekkur. En sviðinn er í sálinni eins og skítur í sári. Mannalætin oru aðeins til að sýnast. KOMIN er út ný bók um heimspeki eftir Gunnar Dal rit höfund (Halldór Sigurðsson). Fjallar hún um spekinginn Sokrates og ber nafn af honum. Bókin er 126 blaðsíður að stærð. Henni er skipt í sex meginkafla, sem bera yfirskrift irnar: Uppruni vestrænnar heimspeki, Aþena á dögum Sokratesar, Ævi Sokratesar, Lærdómur Sokratesar, Köllun Sokratesar og Heimspeki Sokra tesar. Nafnaskrá fylgir bókinni. Útgefandi bókarinnar er , Gamlir og nýir pennar“, prent un annaðist Prentsmiðja Guð- mundar Jóhannssonar. Kápu- teikningu gerði Eggert Guð- mundsson listmálari. Þetta er fimmta bók Gunnars Dal. Hinar eru: Vera 1919, Rödd Indlands 1953, Sfinxinn og hamingjan 1953 og aftur 1954, og Þeir spáðu í stjörnurnar 1954. rrKári iifli í sveitinni" og rrÁuður og Ásgeir" effir Sfefán Júlíusson. TVÆR einkar vinsælar barna bækur eftir Stefán Júlíusson eru komnar út hjá Prentsmiðj- unni Leiftri, Þær eru „Kári litli í sveitinni1' og „Auður og Ásgeir“. Báðar komu út’ fyrst 1948 og því nú í annarri útgáfu. Halldór Pétursson listmálari hefur myndskreytt báðar skemmtilega. Hin fyrrnefnda er 176 blaðsíður, en hin síðar- nefnda 152. „DVERGURINN með rauðu húfuna“ heitir lítil smábarna- bók eftir Ingólf Jónsson frá Prestbakka, prýdd myndum á hverri síðu eftir Þóri Sigurðs- son, gefin út snoturlega af prentsmiðjunni Leiftri. Hanna oo hófelþjóf- urinn. ÞRIÐJA Hönnubókin, Hanna og hótelþjófurinn, er komin út hjá Prentsmiðjunni Leiftri. Höfundurinn er Britta Munk. Þær tvær/sem út komu í fyrra nutu þá mikilla vinsælda hjá unglingsstúlkum. Von mim vera á þeirri fjórðu fyrir há- tíðir. Þessi bók er 96 blaðsíður. Nóa. KOMIN er út fyrir allmörg- um árum telpnabókin Nóa eííir Edgar Jepson. Axel Guðmunds son þýddi, en Leiftur gaf út. Hún varð vinsæl mjög, mun enn vera fáanleg. NÝ MATREÍÐSLUBÓK, H ráir grænmetisréttir, eftir H^igu )S)ig'á'ð:irdóttur,. skój’a- stjóra Húsmæðrakennara- skóla Islancls, er komin út hjá Prentsmiðjunni Leiltri. Bókinni er skipt í kafla eft- ir mánuðum og uppskriftum hagað eftir því, hvaða græn- meti er fáanlegt. Höfundur segir í formála: „Það er eink- um tvennt, sem hefur hvatt mig til að láta þessa litlu bók frá mér fara. í fyrsta lagi sú von, að ég geti með því stuðl- að að aukinni neyzlu græn- metisrétta til hollustu og heilsubótar fyrir þjóðina. Hin ástæðan er sú, að ég álít það hepppilegra fyrir húsmæðurn- ar að fá litlar bækur um þá grein matreiðslunnar, sem efst er á dagskrá hverju sinni, — heldur en að auka alltaf við bókina Matur og drykkur. Bókin er um 60 baðsíður að stærð í mjög smekklegri út- gáfu. Hverjum kafla fylgja. eyð ur, sem húsmæður geta fyllt út með eigin uppskriftum. Oskubuska. ÖSKUBUSKA er enn einu sinni komin út. Bókin er þýdd af Theodór Árnasyni, gefin út af Leiftri. Hún er prýdd mörg,- um stórum teiknimyndum. rrSkylda ríkja og fiepa að ásfunda samúð fil að fryggja flótfamönnum hæli og vinnu" Þrír íslendingar sóttu fund aiþjóða þingmannasam- bandsins í London. Hann sóttu alls 506 fulltrúar XLVI. FUNDUR alþjóðaþing mannasambandsins var að þessu sinni haldinn í London dagana 12,-—19. þ.m. Fundinn sóttu 506 fulltrúar frá 48 ríkjum. Auk þess sátu fundinn áheyrnarfulltrúi frá þjóðþingi Ghana, hins nýstofn- aða lýðveldis í Afríku, og alls 9 áheyrnarfulltrúar frá Evrópu ráðinu, vísinda- og menningar- stofnun Sameinuðu þjóðanna, alþjóðavinnumálastofnuninni o. fl. alþjóðastofnunum. Af hálfu íslands sátu fundinn þingmennirnir Jóhann Hafstein og Pétur Pétursson og Friðjón Sigurðsson, skrifstofustjóri Al- þingis. í 1. grein samþykkta Alþjóða þingmannasambandsins segir svo: Markmið Alþjóðasambands- ins er að stuðla að kynnum milli þingmanna allra þjóðþinga, og greinast þeir í þjóðdeildir, og að sameina þá til átaka í því skyni að tryggja og efla fulla þátttöku ríkja þeirra, hvers um sig, í stofnun og þróun lýðræð- islegra stjórnarhátta og til þess að efla störf að friði og sam- starfi þjóða í milli, einkum með samtökum allra þjóða. í þessu augnamiði ber Alþjóðaþing- mannasambandjnu einnig að at- huga og reyna að leysa öll vandamál, sem alþjóðleg eru í eðli sínu og hægt er að ráða fram úr með þingræðislegum ráðstöfunum, og skal það gera tillögur um þróun lýðræðislegra stjórnarhátta og skapa þeim aukna virðingu. MÁL TIL UMRÆÐU. Elísabet drottning Bretaveld- is og Harold Macmillart forsæt- isráðherra fluttu ræður, er fund urinn var settur með hátíðlegri athöfn í Westminster höll. Sel- wyn Lloyd utanríkisráðherra Breta flutti og ræðu á íundin- um. Þessi mál voru rædd: 1 Sltýrsla aðalritara þingmanna sambandsins um starfsemi þess og horfur í alþjóðamál- um. 2. Flóttamannavandamálið. 3. Áhrif þjóðþinga á og eftirlit með ríkisstjórnum. 4. Festing verðlags á hráefnum. Mestar umræður urðu um skýrslu aðalritarans. Miklar umræður urðu einnig um flótta mannavandamálið. Forseti ráð- stefnunnar varð að takmarka umræður. Fram komu tillögur um að bæta á dagskrá ráðstefnunnar: stofnun alþjóðalögreglu, tak- mörkun á framleiðslu og tíl- raunum með kjarnorkuvopn. Var fellt að taka tillögurnar á dagskrá, einkum með tilvísun til þess, að ekki mundi vinnast tími til að ræða fleiri mál en þau, sem fyrir voru á dag- skránni. FLÖTTAMANNA- VANDAMÁLIÐ. í þessu máli lá fyrir fundin- um ályktunartillaga frá félags- og mannúðarmálanefndinni, Sendinefndir Bandaríkjanna, Líbanon, Ráðstjórnarríkjanna og ísrael báru hver um sig fram breytingartillögur. Nefndin breytti nokkuð orðalagi álykt- unartillögu sinnar, þannig að tekið var tillit til sumra þess- ara breytingartillagna. Þannig breytt var ályktunartillaga nefndarinnar samþykkt gegn atkvæðum sendinefndarinnar frá ísrael. í ályktuninni er vitn að í tiltekin ákvæði Genfar sam þykktarinnar frá 28. júlí 1951, um stöðu flóttamanna, og mann réttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. Enn fremur segir m. a. í ályktuninni: Að það sé skylda ríkja og þegna að á- stunda sam.úð til þess að tryggja flóttamönnum hæli og vinnu. Framhald á 7. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.