Vísir - 22.02.1911, Side 2
21. Húsmæðraskóli á Akureyri s. u
2000 kr. styrk.
22. Matth. Joehumsson, skáld s. u.
hækkun eftirlauna.
23. sjera Jónas Jónasson Akureyri s.
u. 400 kr. launaviðbót.
24. Ungniennafjelag gagnfræðaskól-
ans á Akureyri s. u. 400 kr. til
leikvallar.
25. Metusalem Stefánsson, skólastj.
s. u. 3000 kr. til læknisbústaðar
í Hróarstunguhjeraði.
Eftirlaun opinberra starfsmanna,
þar sem þau nema fullum 1000 kr.
M. Stephens. fv. lanJsh. 6000,00 kr.
H. Hafstein fv. ráðherra 5000,00 —
Tr. Gunnarss. fv. bankastj. 4000,00 —
Júl. Havsteen ív. amtm. 3900,00 —
B. M. Ólsen fv. skólstj. 2255,56 —
Þorv.Jónssonfv. hjeraðsl. 1626,66 —
Franz Siemsen fv. sýslum. 1601,40 —
Ein.Thorlaciusfv.sýslum. 1593,78 —
Þorgr. Johnsen fv.hjeraðsl. 1586,20 —
Sk.Thoroddsenfv.sýsIum. 1500,54 —
Halld. Briem fv. kennari 1440,00 —
Júl. Halldórss. fv. héraðsl. 1133,33 —
Mar. Havsteen fv.sýslum. 1008,00 .—
Eftirlaun pósta.
Sumarliði* 200,00 kr.
Hannes* 200,00 —
Gísli Eirfksson 200,00 —
Jóhann Jónsson 200,00 —
Egill Gunnlögsson . 100,00 —
Böðvar Jónsson 100,00 —
Dagsfæði sjúklinga er áætlað í
fjárlagafrumvarpinu þannig:
Á Holdsveikrahælinu 49 au.
- Geðveikrahælinu 50 -
- Vífilstaðahælinu 87 -
Altan aj tanA\.
íþróttamót Ungmennafjelaga
íslands á að fara fram daganal7.
til 25. júní næstk. íþróttirnar, sem
reyndar verða, eru: Leikfimi, glíma,
sund, hlaup, ganga, stökk, kast, reip-
tog, knattleikar, grísk-rómversk glíma,
hjólreiðar og lyfting.
*) í fjárlagafrumvarpi stjórnarinnar
sjest ekki hvers son hann er.
Bændanámsskeið var lialdið
við Hvanneyrar búnaðarskóla frá
20. f. m. til 4. |i. m. og sóttu það
um 50 manns. Kent var á morgn-
anaog fræðandi fyrirlestrar haldn-
ir eftir morgunverð, en kl. 5 síðd.
talaði Einar Hjörleifsson skáld
um ýms efni, var það fyrir alþýðu-
fræðslu Stúdentafjelagsins. Áheyr-
endur voru oft nokkuð á annað
hundrað. Á kvöldin voru umræðu-
fundir, en síðasta kvöldið dans.
Var þá boðið til námsstúlkunum
á Hvítárvöltum og þótti hin besta
skemtun. Ráðunautar Búnaðar-
fjelagsins, þeir Ingimundur Guð-
mundsson og Sigurður Sigurðs-
son stóðu fyrir námsskeiði þessu.
Skíðaskóli er í ráði að haldinn
verði á Kolviðarhóli dagana 10.-15.
næsta mán. K'nnarinn verður L.
Miiller verslunarstjóri hjá Braun.
12nemendurgetakomist að. Kostn
aðurinn er alls 18 kr. auk skíðanna.
Akureyri 6. febr.
Heilsufar manna nú yfirleitt
fremur gott. /ývíýhefur gengið hjer
mjög slæmt og lagst mjög þungtá
n enn, en nú er það í rjenun. Tíð-
aifar óvenju stöðugt, en frostalítið
og snjóljett og núna síðustu vik-
una þýðvindi og góðveður ogjörð
góð. — Þoskafli hefur að heita má
enginn verið síðan í Nóvember og
alls ekki fiskvart siðasta mánuðinn
en síldarafli var góður í haust lijer
á Pollinum og lijelst hann fram
undir miðjan janúar. Frá þeim tíma
og þar til í gær hefur engin síld
aflast, en í gær fekkst góður afli í
eina setningu. Ekki er gott að segja
með vissu hve mikill síldarafli hef-
ur verið í haust hjer á Pollinum,
þó telja megi mjög líklegt að afl-
ast hafi allt að lOOOtunnum. Einn
báturinn fjekk það jeg veit best um
150 tunnur. Verð á síldaríunnu
um 3—4 krónur.
Útlit fyrir að fjárhöld verði góð
því ekki heyrast neinar raddir enn
um heyskort.
Bæjarstjórn og hafnarnefnd selur
nú hverja Ióðina af annari á besta
staðnum í bænum — við Torfu-
nefsbryggjuna — enda dýrustu, sem
seldar hafa verið. — Síðustu lóð-
ina keypti Sig. Sigurðsson kaupm.
fyrir 4800 kr. og kvað hann ætla
að byggja stórhýsi á henni ogveisla
mikið, draga mikið frá öðrum, og
selja ódýrt, enda er það liaft fyrir
satt að lians verslun sje sú besta í
bænum - auðvitað að undsnskildu
Kaupfjelagi Eyfirðinga, sem nú er
að sölsa allt undir sig.
Og þá verður annað stórhýsi
reisl hjer á þessu ári, en það er
sölubúð, sem Carl Hölpfners versl-
un ætlar að byggja við innri Hafn-
arbryggjuna; verslunarstjóri þeirrar
verslunar er Hallgr. Davíðsson, sem
allir þekkja að góðu einu hjer á
Eyrinni. — M.
Húsbruninn. Hás Helga kaup-
manns Björnssonar í Borgarfirði,
sem brann 25. f. m., var vátryggt
ásamt vörum sem í því voru fyrir
19 þúsund krónum.
Ur bænum.
Síðustu blöðin.
Þjóðólfur 17. febr. Innlimunar-
spor sjálfstæðisflokksins.—Þingmála-
fundur Skagfirðinga.
Skipafrjettír.
E/s Mjölnir fór frá Færeyjum
hingað á leið 19. síðd. og ætti því
að koma f dag. í blaðinu stóð
áður að lngólf ætti að koma í stað
Mjölner. Þetta var haft eftir af-
greiðslu Thorefjelagsins hjer.
Austf irðingasamkoma var hald-
in í Hótel Reykjavík laugardags-
kveldið og fram til kl 6 Sunnud,-
morgun. Etið dansað og leikið.
Um 80 manns þar.
Aheyrendapallarnir koma að
minni notum fyrir það að fjöldi
unglinga streymir þangað inn. Nú
er í ráði að hólfa af stúkur handa
frjettariturum og verður þá því meiri
nauðsin að nota vel það rúm sein
eftir verður. Ættu því unglingum
sem ekkert gagn liafa af umræðutn,
að vera bægt frá, þegar aðsóknin
er mikil.
Gefin saman 16. þ. m. Guðm.
Jónsson, Nýlendug. 15 ogym. Kristín
Hansdóttir, Bakkastíg.
S. d. Kristinn Eyleifsson, sjóm.