Vísir


Vísir - 22.02.1911, Qupperneq 2

Vísir - 22.02.1911, Qupperneq 2
21. Húsmæðraskóli á Akureyri s. u 2000 kr. styrk. 22. Matth. Joehumsson, skáld s. u. hækkun eftirlauna. 23. sjera Jónas Jónasson Akureyri s. u. 400 kr. launaviðbót. 24. Ungniennafjelag gagnfræðaskól- ans á Akureyri s. u. 400 kr. til leikvallar. 25. Metusalem Stefánsson, skólastj. s. u. 3000 kr. til læknisbústaðar í Hróarstunguhjeraði. Eftirlaun opinberra starfsmanna, þar sem þau nema fullum 1000 kr. M. Stephens. fv. lanJsh. 6000,00 kr. H. Hafstein fv. ráðherra 5000,00 — Tr. Gunnarss. fv. bankastj. 4000,00 — Júl. Havsteen ív. amtm. 3900,00 — B. M. Ólsen fv. skólstj. 2255,56 — Þorv.Jónssonfv. hjeraðsl. 1626,66 — Franz Siemsen fv. sýslum. 1601,40 — Ein.Thorlaciusfv.sýslum. 1593,78 — Þorgr. Johnsen fv.hjeraðsl. 1586,20 — Sk.Thoroddsenfv.sýsIum. 1500,54 — Halld. Briem fv. kennari 1440,00 — Júl. Halldórss. fv. héraðsl. 1133,33 — Mar. Havsteen fv.sýslum. 1008,00 .— Eftirlaun pósta. Sumarliði* 200,00 kr. Hannes* 200,00 — Gísli Eirfksson 200,00 — Jóhann Jónsson 200,00 — Egill Gunnlögsson . 100,00 — Böðvar Jónsson 100,00 — Dagsfæði sjúklinga er áætlað í fjárlagafrumvarpinu þannig: Á Holdsveikrahælinu 49 au. - Geðveikrahælinu 50 - - Vífilstaðahælinu 87 - Altan aj tanA\. íþróttamót Ungmennafjelaga íslands á að fara fram daganal7. til 25. júní næstk. íþróttirnar, sem reyndar verða, eru: Leikfimi, glíma, sund, hlaup, ganga, stökk, kast, reip- tog, knattleikar, grísk-rómversk glíma, hjólreiðar og lyfting. *) í fjárlagafrumvarpi stjórnarinnar sjest ekki hvers son hann er. Bændanámsskeið var lialdið við Hvanneyrar búnaðarskóla frá 20. f. m. til 4. |i. m. og sóttu það um 50 manns. Kent var á morgn- anaog fræðandi fyrirlestrar haldn- ir eftir morgunverð, en kl. 5 síðd. talaði Einar Hjörleifsson skáld um ýms efni, var það fyrir alþýðu- fræðslu Stúdentafjelagsins. Áheyr- endur voru oft nokkuð á annað hundrað. Á kvöldin voru umræðu- fundir, en síðasta kvöldið dans. Var þá boðið til námsstúlkunum á Hvítárvöltum og þótti hin besta skemtun. Ráðunautar Búnaðar- fjelagsins, þeir Ingimundur Guð- mundsson og Sigurður Sigurðs- son stóðu fyrir námsskeiði þessu. Skíðaskóli er í ráði að haldinn verði á Kolviðarhóli dagana 10.-15. næsta mán. K'nnarinn verður L. Miiller verslunarstjóri hjá Braun. 12nemendurgetakomist að. Kostn aðurinn er alls 18 kr. auk skíðanna. Akureyri 6. febr. Heilsufar manna nú yfirleitt fremur gott. /ývíýhefur gengið hjer mjög slæmt og lagst mjög þungtá n enn, en nú er það í rjenun. Tíð- aifar óvenju stöðugt, en frostalítið og snjóljett og núna síðustu vik- una þýðvindi og góðveður ogjörð góð. — Þoskafli hefur að heita má enginn verið síðan í Nóvember og alls ekki fiskvart siðasta mánuðinn en síldarafli var góður í haust lijer á Pollinum og lijelst hann fram undir miðjan janúar. Frá þeim tíma og þar til í gær hefur engin síld aflast, en í gær fekkst góður afli í eina setningu. Ekki er gott að segja með vissu hve mikill síldarafli hef- ur verið í haust hjer á Pollinum, þó telja megi mjög líklegt að afl- ast hafi allt að lOOOtunnum. Einn báturinn fjekk það jeg veit best um 150 tunnur. Verð á síldaríunnu um 3—4 krónur. Útlit fyrir að fjárhöld verði góð því ekki heyrast neinar raddir enn um heyskort. Bæjarstjórn og hafnarnefnd selur nú hverja Ióðina af annari á besta staðnum í bænum — við Torfu- nefsbryggjuna — enda dýrustu, sem seldar hafa verið. — Síðustu lóð- ina keypti Sig. Sigurðsson kaupm. fyrir 4800 kr. og kvað hann ætla að byggja stórhýsi á henni ogveisla mikið, draga mikið frá öðrum, og selja ódýrt, enda er það liaft fyrir satt að lians verslun sje sú besta í bænum - auðvitað að undsnskildu Kaupfjelagi Eyfirðinga, sem nú er að sölsa allt undir sig. Og þá verður annað stórhýsi reisl hjer á þessu ári, en það er sölubúð, sem Carl Hölpfners versl- un ætlar að byggja við innri Hafn- arbryggjuna; verslunarstjóri þeirrar verslunar er Hallgr. Davíðsson, sem allir þekkja að góðu einu hjer á Eyrinni. — M. Húsbruninn. Hás Helga kaup- manns Björnssonar í Borgarfirði, sem brann 25. f. m., var vátryggt ásamt vörum sem í því voru fyrir 19 þúsund krónum. Ur bænum. Síðustu blöðin. Þjóðólfur 17. febr. Innlimunar- spor sjálfstæðisflokksins.—Þingmála- fundur Skagfirðinga. Skipafrjettír. E/s Mjölnir fór frá Færeyjum hingað á leið 19. síðd. og ætti því að koma f dag. í blaðinu stóð áður að lngólf ætti að koma í stað Mjölner. Þetta var haft eftir af- greiðslu Thorefjelagsins hjer. Austf irðingasamkoma var hald- in í Hótel Reykjavík laugardags- kveldið og fram til kl 6 Sunnud,- morgun. Etið dansað og leikið. Um 80 manns þar. Aheyrendapallarnir koma að minni notum fyrir það að fjöldi unglinga streymir þangað inn. Nú er í ráði að hólfa af stúkur handa frjettariturum og verður þá því meiri nauðsin að nota vel það rúm sein eftir verður. Ættu því unglingum sem ekkert gagn liafa af umræðutn, að vera bægt frá, þegar aðsóknin er mikil. Gefin saman 16. þ. m. Guðm. Jónsson, Nýlendug. 15 ogym. Kristín Hansdóttir, Bakkastíg. S. d. Kristinn Eyleifsson, sjóm.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.