Vísir - 21.05.1911, Blaðsíða 2

Vísir - 21.05.1911, Blaðsíða 2
2 V í S I R bæöi á íslandi og í Færeyum og söng kvæöi, en þaö var aðeins einn dag og á Færeyum var hún aðeins 1 klukkutíma . . . hún ljet gufu- skipið bíöa meöan hún fór í bát og í land, skilaöi nokkrum vísum og eymdi svo af stað. 1. júlí er jeg aftur í Kaupmanna- höfn — ef til vill einni tálvon fá- tækari.« » Ur bænum. Skipafrjettir. E/s Sterling fór á föstudags- kveldið til Austfjarða og útlanda og með því hátt á þriðja hundr- að farþegja og var margt af því verkafólk austur. Nokkrir þingmenn tóku sjer far með skipinu ogallmargirGood- templarar, sem fóru á stórstúku- þing, er haldið verður á Seyðis- firði að þessu sinni. Til útlanda fóru meðal annara Skúli ritstjóri Thoroddsen á leið til Rúðu, Björn Jónsson fv. ráðh. til Noregs, sjer til heilsubóta og Vilh. Finsen loftskeytafræðingur. E/s Ask fer í dag kl. 6 til Aust- fjarða og útl. E/s Perwie fer í strandferð kl. 12 á hád. í dag. E/s Vesta fer til Austfj. og útl. á morgun. Fermt er í dag í Dómkirkj- unni 28 börn (sjera Bjarni) og í Fríkirkjunni 78 börn. 30. f. m. voru fermd í Dómkirkjunni 65 börn (sjera Jóhann). Þjóðólfur gamli á aö seljast á uppboði 9. n. m. Ritstjóri hans er nú orðinn Jón Ólafsson alþingis- maður. Afmœlishátíð Steingríms rektors fór fram hið besta. Mentaskóla- nemendur gengu heim til hans í skrúögöngu um daginn og fluttu honum kvæði og Venusar-líkneski að gjöf. Tugir af símskeytum bár- ust honum úr öllum áttum. Það, sem var lengst að, mun hafa verið frá Poestion, og var líka styttst: »Gratulor.« Samsætið hófst kl. 7. f veislulokin vardansað ogdrukkið —í hófi. Nákvæm lýsing áf hátíðahaldinu var í fsafold í gær. Altaw aj lawdv. Slys. Á Hornafiröi vildi það til, er Perwie kom þar, að maður nokkur stökk út úr mótorbát er flutti fólkið í land. Báturinn hafði orðið fastur á eyri og maðurinn ætlaði að vaða í land. Hann lenti í ál sem var óstæður og sökk þar. Honum skaut upp og kallaði hann á hjálp, en því varð ekki við kom- ið að bjarga honum, enginn mað- ur syndur þarna, og drukknaði hann fyrir augum bátshafnarinnar. Þetta var vinnumaður frá Hoffelli, silfurbergslandinu. Frá Hornafirði er að frjetta uppgrip af fiski, svo stórfeld að menn muna varla dæmi til slíks. í Vestmannaeyum eraltafhlað- afli. Eyarskeggar fjölga óðum mótorbátum. Tveir komu þangað með Kong Helge síðast. Frá Akureyri er von á hóp manna til sýningarinnar hjer. Þeir j rjeðust, þegar frjettin kom um að | Flora biði hjer fram yfir 17. júni. AxelTúliníussýsIumaðursunn- mýlinga hefur sótt um lausn frá embætti sökum bilunar á heyrn. Loftskeytaframfarirnar. Marconi, loftskeytauppgötvarinn, er um þessar mundir að setja upp loftskeytastöð í þorpinu Coltano hjá Pisa á Ítalíu. Þessi stöð er að ýmsu miklu fullkomnari en þær Ioftskeytastöðvar, sem nú eru not- aðar og verður hún opnuð í byrjun ágústmánaðar. Er búist við að hún geti sent skeyti miklu lengri veg en áður hefur verið hægt að senda þau. Sólmyrkvinn síðasti. Svo sem kunnugt er varð aimyrkvi á sól 28. f. m. á mjóu belti á Kyrra- hafinuTrá Australiu til Miðameriku. Stjömufræðingar láta sjaldan á sjer standa, ef færi gefst til að athuga almyrkva á sól, og í þetta skifti fóru þeir frá mörgum löndum þang- að suðureftir sem myrkvinn sást. Meðal annars fóru enskir stjörnu- fræðingar með hinn ágætasta útbún- að og höfðu þeir stöð sína á eyunni Vavan sunnarlega í Kyrra- hafinu. Veður var ekki heppilegt þá stundina sem myrkvinn stóð yfir en samt varð töluverður vísinda- Iegur árangur af för þeirra. Af sólarkrónunni sáu þeir að sólblettir eru með minsta móti og boðar það gott veðurlag. Svart dauði er nú mjög í rjenun í Austurlöndum, sem betur fer, en Kólera hefur stungið sjer nið- ur í Pjetursborg, þó er búist við að útbreiðsla hennar verði varin. Uppreistnin f Kfna er enn í fullu fjöri og blóðugir bardagar á hverjum degi. Um morguninn 2. þ. m. reyndu upphlaupsinenn að ná lögregluslöðinni í Kanton með áhlaupi, en unnu ekki á. Ensk her- deild, sem verndar borgarhluta þann Norðurálfumenn búa í hefur fært þangað allmargar fallbyssur til varn- arinnar. Úr ruslakistu Plausors. i. Yeisluspjöllin í Dal. ----- Nl. Gísli hafði í fyrstu haft á móti því, að maturinn væri seldur svona á uppboði, en þegar hann sá, hvernig grauturinn seldist, ljettist brúnin á honum. Hann átti líka að fáfullan þriðjung af peningunum, og svo gat hann reiknað sjer nokkuð fyrir húspláss og átroðning. Uppboðið hjelt því áfram. Fyrst var grautur- inn boðinn upp og keyptu ýmsir; síðan var steikin seld og varð hún afardýr, en örast var þó boðið, þegar toddyglösin voru borinn fram; þá ægði hringjaranum, svo hann keypti ekki neitt; en í nokkur glös bauð hann fyrir hreppstjórann, sem var orðinn hás af að kalla upp, svo hann varð að fá sjer eitthvað til að væta kverkarnar. Þegar uppboðinu var lokið, voru margir orðnir ölvaðir. »Nú er ekki meira að gera hjer,« sagði hreppstjórinn, og fóru menn þá að týnast af stað heim til sín, og voru sumir ekki orðnir sjálf- bjarga betur en svo, að þeir veltust um þúfurnar í túninu, þegar þeir fóru að leita hestanna. En þó er

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.