Vísir - 18.07.1911, Side 1

Vísir - 18.07.1911, Side 1
95 14 Kemurvenjulegaiít kl. 11 árdegis sunnud. þrjðjud., miðvd., fimtud. og föstud. Þriðjud. 18. júlí 1911. Sól í hádegisstað kl. 12,34‘. Háflóð kl. g,38‘ árd. og kl. 10,4‘síðd. Háfjara ld. 3,50‘ síðd. Póstar I dag. Sterling fer til Stykkishólms. Póstar á morgun: Botnía fer til útlanda kl. 6 síðd. Þingvallavagn fer kl. 9 árd. Hafnarfjarðarpósturkemurkl. 12 fer 4. Álftauespóstur kemur og fer. Veðrátta í dag. Loftvog r s i -< v’indhraði: | Veðurlag Reykjavik 759,0 4- 6,0 N 4 Alsk. Isafjörður 763,9 -1- 5,0 NA 5 Skýað Blönduós 762.9 4- 4,4 N 3 Alsk. Akureyri 760,8 4 4,5 NNV 4 Þoka Grímsst. 724.0 -i- 2,8 N 4 Alsk. Seyöisfj. 758,1 -+- 7,5 0 Alsk. Þórshöfn 753,0 4 8,0 ANA 7 Skýað Skýringar: N = norð- eða norðan, A = aust- eða austan, S = suð- eða sunnan, V = vest- eða yestan. Vindhæð er talin í stigum þannig : 0 = logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 = go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6= stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 = hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 = ofsaveður, 12 = fárviðri. Aldarafmæli forseta hjá Vesturíslendingum. Samkoma sú, sem klúbburinn Helgi magri hafði efnt til í minn- ingu um hundrað ára afniæli Jóns Sigurðssonar, og sem haldin var í Ooodtemplara-húsinu í Winni- peg — fór vel fram og myndar- lega. Var húsfyllir, svo sumirurðu frá að hverfa sem komu. Samkomuna setti formaðurfor- stöðunefndarinnar, ÓlafurS.Thor- geirsson, með stuttri tölu. Þá Ijek hljómleikaflokkur Th. Johnsons fiðluleikara nokkur lög, sem tók- ust mjög vel, sjerstaklega vöggu- Ijóð Jóns Friðfinnssonar. Því næst varsungið. Þeir, sem ræður fluttu á samkomunni, voru: Dr. Jón Bjarnason og sjera Lárus Thor- arensen, báðir fyrir minni Jóns Sigurðssonar, og prófessor Run. Marteinsson fyrir minni íslands. 25 blöðin frá 25. júní. kosta: Á skrifst. 50 a. Send út um landöOau. — Einst.blöð 3 a. Afgr. á horninu á Hotel Island 1-3 og5-7. Oskað að fá augl. semtímanlegast. Fyrstur ræðumanna var dr. Jón ! Bjarnason. Flutti hann langt er- j indi og fróðlegt um Jón Sigurðs- son og starfsemi hans. Einnig las hann upp ávarp, er minnis- varða-samskotanefndin hjer vestra hafði sent heim með samskota- ! fjenu. Að ræðunni lokinni var |esið upp kvæði fyrir minni Jóns Sigurðssonar, er sjera LárusThor- arensen hafði ort, ogannaðkvæði eftir Stephan O. Stephansson. Fyrir hinu sama minni var sungið af Gísla Jónssyni prentara, og var gerður að sóng hans hinn besti rómur. Næstur ræðumanna var próf- essor Runólfur Marteinsson; flutti hann skörulega ræðu fyrir minni Islands, hápólítíska ræðu með köflum; hallaðist að skilnaði ís- lands frá Danmörku og vildi, að Vestur-íslendingar styddu að því eftir mætti. Vildi hann alfrjálsa þjóð í alfrjálsu landi. Einnig átaldi hann alvarlega, hversu ís- lensku þjóðerni væri á glækast- að hjer meðal Vestur-íslendinga. Skoraði hann á landann,að varð- veita þessa dýrmæta erfðagjöf. Þeir hefðu fulla ástæðu að veru íslendingar. Að þessari ræðu var gerður hinn besti rómur. Þá voru kvæði sungin, meðal ann- ara eitt fyrir minni Jóns Sigurðs- sonar, er Þorst. Þ. Þorsteinsson hafði ort. Síðastur ræðumanna var sjera Lárus Thorarensen. Flutti hann ] aðra minningarræðuna um Jón ! Sigurðsson. Var hún vel flutt, skáldleg og hrífandi, og hlaut alment lof áheyrendanna. Upp- runalega var ætlast til, að Baldur Sveinsson, meðritstjóri Lögbergs, hjeldi hina aðra minningarræðu, en er það fórst fyrir, var sjera Lárus fenginn. Að þessari ræðu lokinni voru lesin upp þrjú kvæði fyrir minni Jóns forseta eftir Sig. Júl. Jóhannesson, Magnús Mark- ússon og Guttorm J. Guttorms- LUNDI er seldur í dag. TÚNGÖTU 6 son. Og í samkomulok sungu allir »Eldgamla fsafold«. Samkomusalurinn var skrýddur íslenska fánanum og fálkanum og feldur mikill blasti við áheyrend- unum með mynd Jóns Sigurðs- sonar í miðju, blómum prýddri. Á feldinum var letrað, fyrir ofan myndina: »Óskabarn íslands, sómi þess, sverð og skjöldur«, en fyrir neðan myndina: »Jón Sigurðssonl811—17.júní—1911«; og myndir af sverði, skildi, lár- viðarsveig.—Hafði Friðrik Sveins- son málað feldinn. Samkoman fór vel fram og var hin besta og á Helgi magri þökk og heiður skilið fyrir að hafa stofnað til hennar og stað- ið einn straum af kostnaðinum. Kvæðin, sem ort voru fyrir minni Jóns Sigurðssonar, eru birt á öðrum stað í þessu blaði. (Eftir »Heimskringlu«.) ) Ur bænum. Flóra fór á sunnudaginn kring um landogtil útlandaogmeð henni fjöldi fólks (um 80). Til Patreks- fjarðar Þórarinn B. Þorláksson málari að mála þar vestra um stund. Til ísafjarðar Sigfús Ein- arsson, söngkennari með frú, að halda þar söngskemtun og Ól. Jónsson myndamótasmiður. Til Akureyrar landlæknisfrú Þ. Jón- assen, Jón Stefánsson málari af Sauðárkrók, Guðm. Sveinbjörns- son cand. jur., ungfrú Elín Matt- híasdóttir ogjakob Möller banka- ritari ásmt frú. Til Húsavíkur F.ggert Claessen með frú til skemtiferðar um Þingeyarsýslur (Mývatn, Dettifoss, Ásbyrgi). Notið SUNDSKÁLANN

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.