Vísir - 18.07.1911, Blaðsíða 1
95
14
Kemurvenjulegaiít kl. 11 árdegis sunnud.
þrjðjud., miðvd., fimtud. og föstud.
Þriðjud. 18. júlí 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12,34‘.
Háflóð kl. g,38‘ árd. og kl. 10,4‘síðd.
Háfjara ld. 3,50‘ síðd.
Póstar I dag.
Sterling fer til Stykkishólms.
Póstar á morgun:
Botnía fer til útlanda kl. 6 síðd.
Þingvallavagn fer kl. 9 árd.
Hafnarfjarðarpósturkemurkl. 12 fer 4.
Álftauespóstur kemur og fer.
Veðrátta í dag.
Loftvog r s i -< v’indhraði: | Veðurlag
Reykjavik 759,0 4- 6,0 N 4 Alsk.
Isafjörður 763,9 -1- 5,0 NA 5 Skýað
Blönduós 762.9 4- 4,4 N 3 Alsk.
Akureyri 760,8 4 4,5 NNV 4 Þoka
Grímsst. 724.0 -i- 2,8 N 4 Alsk.
Seyöisfj. 758,1 -+- 7,5 0 Alsk.
Þórshöfn 753,0 4 8,0 ANA 7 Skýað
Skýringar:
N = norð- eða norðan, A = aust- eða
austan, S = suð- eða sunnan, V = vest-
eða yestan.
Vindhæð er talin í stigum þannig :
0 = logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 =
go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 =
hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 =
ofsaveður, 12 = fárviðri.
Aldarafmæli forseta hjá
Vesturíslendingum.
Samkoma sú, sem klúbburinn
Helgi magri hafði efnt til í minn-
ingu um hundrað ára afniæli Jóns
Sigurðssonar, og sem haldin var í
Ooodtemplara-húsinu í Winni-
peg — fór vel fram og myndar-
lega. Var húsfyllir, svo sumirurðu
frá að hverfa sem komu.
Samkomuna setti formaðurfor-
stöðunefndarinnar, ÓlafurS.Thor-
geirsson, með stuttri tölu. Þá Ijek
hljómleikaflokkur Th. Johnsons
fiðluleikara nokkur lög, sem tók-
ust mjög vel, sjerstaklega vöggu-
Ijóð Jóns Friðfinnssonar. Því næst
varsungið. Þeir, sem ræður fluttu
á samkomunni, voru: Dr. Jón
Bjarnason og sjera Lárus Thor-
arensen, báðir fyrir minni Jóns
Sigurðssonar, og prófessor Run.
Marteinsson fyrir minni íslands.
25 blöðin frá 25. júní. kosta: Á skrifst. 50 a.
Send út um landöOau. — Einst.blöð 3 a.
Afgr. á horninu á Hotel Island 1-3 og5-7.
Oskað að fá augl. semtímanlegast.
Fyrstur ræðumanna var dr. Jón !
Bjarnason. Flutti hann langt er- j
indi og fróðlegt um Jón Sigurðs-
son og starfsemi hans. Einnig las
hann upp ávarp, er minnis-
varða-samskotanefndin hjer vestra
hafði sent heim með samskota- !
fjenu. Að ræðunni lokinni var
|esið upp kvæði fyrir minni Jóns
Sigurðssonar, er sjera LárusThor-
arensen hafði ort, ogannaðkvæði
eftir Stephan O. Stephansson.
Fyrir hinu sama minni var sungið
af Gísla Jónssyni prentara, og var
gerður að sóng hans hinn besti
rómur.
Næstur ræðumanna var próf-
essor Runólfur Marteinsson; flutti
hann skörulega ræðu fyrir minni
Islands, hápólítíska ræðu með
köflum; hallaðist að skilnaði ís-
lands frá Danmörku og vildi, að
Vestur-íslendingar styddu að því
eftir mætti. Vildi hann alfrjálsa
þjóð í alfrjálsu landi. Einnig
átaldi hann alvarlega, hversu ís-
lensku þjóðerni væri á glækast-
að hjer meðal Vestur-íslendinga.
Skoraði hann á landann,að varð-
veita þessa dýrmæta erfðagjöf.
Þeir hefðu fulla ástæðu að veru
íslendingar. Að þessari ræðu var
gerður hinn besti rómur. Þá
voru kvæði sungin, meðal ann-
ara eitt fyrir minni Jóns Sigurðs-
sonar, er Þorst. Þ. Þorsteinsson
hafði ort.
Síðastur ræðumanna var sjera
Lárus Thorarensen. Flutti hann ]
aðra minningarræðuna um Jón !
Sigurðsson. Var hún vel flutt,
skáldleg og hrífandi, og hlaut
alment lof áheyrendanna. Upp-
runalega var ætlast til, að Baldur
Sveinsson, meðritstjóri Lögbergs,
hjeldi hina aðra minningarræðu,
en er það fórst fyrir, var sjera
Lárus fenginn. Að þessari ræðu
lokinni voru lesin upp þrjú kvæði
fyrir minni Jóns forseta eftir Sig.
Júl. Jóhannesson, Magnús Mark-
ússon og Guttorm J. Guttorms-
LUNDI
er seldur í dag. TÚNGÖTU 6
son. Og í samkomulok sungu
allir »Eldgamla fsafold«.
Samkomusalurinn var skrýddur
íslenska fánanum og fálkanum og
feldur mikill blasti við áheyrend-
unum með mynd Jóns Sigurðs-
sonar í miðju, blómum prýddri.
Á feldinum var letrað, fyrir ofan
myndina: »Óskabarn íslands,
sómi þess, sverð og skjöldur«,
en fyrir neðan myndina: »Jón
Sigurðssonl811—17.júní—1911«;
og myndir af sverði, skildi, lár-
viðarsveig.—Hafði Friðrik Sveins-
son málað feldinn.
Samkoman fór vel fram og
var hin besta og á Helgi magri
þökk og heiður skilið fyrir að
hafa stofnað til hennar og stað-
ið einn straum af kostnaðinum.
Kvæðin, sem ort voru fyrir
minni Jóns Sigurðssonar, eru
birt á öðrum stað í þessu blaði.
(Eftir »Heimskringlu«.)
)
Ur bænum.
Flóra fór á sunnudaginn kring
um landogtil útlandaogmeð henni
fjöldi fólks (um 80). Til Patreks-
fjarðar Þórarinn B. Þorláksson
málari að mála þar vestra um
stund. Til ísafjarðar Sigfús Ein-
arsson, söngkennari með frú, að
halda þar söngskemtun og Ól.
Jónsson myndamótasmiður. Til
Akureyrar landlæknisfrú Þ. Jón-
assen, Jón Stefánsson málari af
Sauðárkrók, Guðm. Sveinbjörns-
son cand. jur., ungfrú Elín Matt-
híasdóttir ogjakob Möller banka-
ritari ásmt frú. Til Húsavíkur
F.ggert Claessen með frú til
skemtiferðar um Þingeyarsýslur
(Mývatn, Dettifoss, Ásbyrgi).
Notið SUNDSKÁLANN