Vísir - 08.08.1911, Blaðsíða 2

Vísir - 08.08.1911, Blaðsíða 2
2 V í S I R Raddir almennings. Fáninn. Það er ekki langl síðan 17. júní 1911, Þá hjeldum við hundrað ára afmæli Jóns Sigurðssonar, og þá var til minningar um hann sem uppreisnarmann gegn danska of- ríkinu settur Háskóli íslands, opnuð íslensk iðnsýning, sett íþróttamót íslendinga og fánum veifað í hund- raðatali. Og það var hugþekt að sjá í hve miklum meiri hluta íslenski fáninn var þá. Menn fundu það að engum öðrum fána mátti veifa til minning- ar um forvígismanninn, og þeir sem ekki eru svo ríkir af þjóðar- metnaði að þeir hafi fengið sjer enn íslenskan fána, en hanrpa á lofti innlimunarmarkinu við öll tækifæri, voru þó svo snortnir af anda dagsins að þeir kusu heldur að draga engann fána á stöng en »Dannebrog« og var það þó virð- ingarvert. En all-skammvinn hafa þau áhrif verið, því 2. ágúst, sjálfan þjóðhá- tíðardaginn okkar, voru svo margir innlimunarfánar dregnir á stöng hjer í bænum að lirein vanvirða var að. — Og hafi íslendingar ekki nú stökt landvættum af landi brott, þá mættu þær nú gráta fögrum tárum er slíkar sýnir blasa við augum. Eða erum við ekki Iengur íslendingar, heldur þegnar í »det samlede danske Rige«, er við á okkar eigin þjóðhátíðardag látum okkur sama að vinda fjölda af »Dannebrog« upp við stangarhúna? Nú verður minnisvarði Jóns Sigurðssonar afhjúpaður innan skams. þá má ganga að því sem vísu að Reykvíkingar sýni þeim degi þá virðingu að láta sem flesta fána blakta yfir bænum. Það verður nógu fróðlegt að sjá hve mikið lifir þá í þeim glæðum sem hviknuðu um 17. júní. Á. „Miklir menn ernm vjer Hrólfur minn” Frú Bríet Bjarnhjeðinsdóttir fer talsvert geyst í 106. tbl. »Vísis« út af slúðursögu um hana, sem hún segir að hafi staðið í Vísi, viðvíkj- andi kaupgjaldi verkamanna við væntanlega hafnargerð hjer í bænum. Jeg ,er hissa á því hvað frúin tekur sjer nærri þetta meinlausa slúð- ur, sem ber auðsæ merki ósanninda með því að vera sett í samband við verk, sem enn er ekki líkt því svo á veg komið, að farið sje að ræða um kaupgjald verkalýðs. Svo vita líka allir að bæarstjórnin ræður engu um það. Jeg þekki til þess að frúin er ekkert viðkvæm þegar hún útbýr sínar eigin slúðursögur, s. b. brjefið góða, svo það fer ekki vel á því að hún sje hávær um svona smá- legt. Ritsrjóri Vísis gat um það við mig að hún hefði beðið um leiðrjetting á »slúðrinu« og að með því hefði fylgt vottorð bæarstjórnar en þar eð frú Bríet hafði ekki beðið mig uin mína undirskrift þá beiddi jeg liann að bæta nafni niínu við til að fyrirbyggja notkun þess á annan hátt. Það hefur borið við að frú Bríet hefur leitað aðstoðar minnar til þess að að komast í nefnd í bæarstjórn- inni, svo jeg gat búist við því að henni hefði ekki þótt minna varið í að jeg bæri hana undan slúður- sögu, sem hún gat losast við. Þessi litlu afskifti mín ganga ekki hljóða- laust fyrir sjer, frúin sendi dóttur sína til þess eftir því sem næst varð komist i einingu hennar, að láta mig taka aftur nafn mitt og athugasemd, sem jeg auðvitað gerði ekki. Frúna hefur víst mint að hún væri í kvenrjettindafjelagsfundastappi þegar hún vísar til fundarbókar í bæarstjórninni, það er kvenrjettinda- fundarbókin, sem í eru skrásettir hennar vísdónismolar, en ekki í funda bók bæjárstjórriar. Jeg ætla að geta þess hjer að það hafa nokkrir bæarbúar spurt mig um það hvort Bríet hafi Sagt það sem hún er að bera sig und- an og jeg hefi sagt þeim að jeg hafi aldrei heyrt hana segja það. Reykjavík 5. ágúst, 1911 Guðrún Björnsdótlir. SJfil herra Jóhans. Herra ritstjóri Vísis hefir bent mjer á að jeg liafi orðið fyrir umtali í 105. tölubl. »Vísis«. Hr. Jóhann Jóhannesson afsakarmig víst þó jeg nenni ekki að Iesa hvað Jón Jóns- son skrifar um Fríkirkjuveginn og J núverandi heilbrigðisfulltrúa, því það kemur ekki mál við mig. En eina villu vil jeg leiðrjetta hjá hr. Jó- hanni sjálfum. — Jeg kannast sem sje fyllilega við að hafa skipað fyr- ir um, og mundi gera enn, ef til þess kæmi, að hylja óhroða og ó- hreinindi með mold, því jeg vil leyfa mjer að fræða hann um að það erekki heimskulegbábilja, held- ur áreiðanleg vissa að mold er sótt- verjandi, og hið ódýrasta og hand- hægasta meðal til þess að gera ó- skaðleg þau efni, sem hjer ræðir um, enda víðast hvar um heim þess- konar óhroði brúkaður til þess að hækka jarðveg með ef til hans næst, enda alls kostar óhætt, ef moldar- Iagi er mokað ofan á. Hvað stíflunni ílæknum viðvíkur má vel vera að slíkt sje úrelt að- ferð, þó ekki sje mjer það kunn- ugt, en í öllu falli nægir þessi að- ferð til þess að vinna sitt ætlunar- verk í bráð, nefnil. að halda vatn- inu lyktarlausu og rnikið til hreinu í Læknum, og væri því heimsku- legt að nota hana ekki meðan ekki er á betra völ. J. Iialldórsson læknir. Bæarstjórnin hélt fund 3. þ. m. Mörg mál voru á dagsskrá og umræður um þau talsverðar; þó sýndu fulltrúarnir þá lofsverðu sjálfsafneitun, að bíða eftir kvöldmatnum þangað til eftir fund í þetta sinn. Enda gafst það illa seinast, þegar þeim var sleppt af fundi heim í búrið. — Komu þá bara ekki aftur sunúr hverjir, svo ekki var fundarfært. Talsvert eftirtektarverðar voru um- ræður og undirtektir fulltrúanna í fyrsta málinu á dagskránni, sem var um leigusamning á bletti undir stakkstæði vestur í bæ niður undir sjó, handa útgerðarfjelagi nokkru. Hafði fasteignanefndin lagt til að bletturinn yrði leigður fjelaginu til 30 ára, með 40,00 kr. ársleigu fyrir dagsláttuna. Auðvitað með því skil- yrði, að bænnm væri heimilt að leggja vegi á landinu og byggja þar ef með þyrfti. Allir fulltrúarnir, sem töluðu í máli þessu, að þeim undanskildum borgarstjóra og Knud Zimsen, mæltu eindregið á móti því, að leigja blett þennan til svo langs tíma, þar sem bletturinn væri einmitt á þeim stað, sem vegna hafnargjörðarinnar fyrirhuguðu hlýt-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.