Vísir - 29.09.1911, Side 3
GrÍStÍllÚSÍð í
skóginum.
Rússnesk saga
eftir Gaston.
Þýdd úr Dönsku.
---- Frh.
Belsoff varð hverft við og hop-
aði aftur á bak.
Andlit stúlkunnar var fölt, en
frmúrskarandi aðlaðandi. Augun
voru stór og dökk, og mændi
hún þeim raunalega á hann.
Varir hennar voru afmyndaðar
og saman kipraðar, og sögðu
hinum unga manni heila langa
sögu sorgar og örvæntingar.
Búningur stúlkunnar var ó-
brotinn en enganveginn fátæk-
legur. i
Stormurinnlosaðiumhárhennar j
sem var ljóst á lit, og þyrlaðist
það eins og ský fyrir andlit
hennar, og fór hún nú að skjálfa
og titra.
»Hvers vegna látið þjer mig
ekki veraífriði?« kallaði hún með
grátstaf í kverkunum. »Pekkið
þjer nokkuð til þeirrar ógæfu,
sem hefur rekið mig út í nátt-
myrkrið til að leita dauðans?«
Belosoff fannst eins og hann
væri stunginn í hjartað. Hann
gat ekki giört sjer grein fyrir til-
finningum sínum.
Svo ung og fríð — og samt
sem áður ákveðin í með frjálsum
vilja að ráða sjer bana svo váveif-
lega.
»Hafið þjer mist alla von, svo
að þjer ætlið að fleygja burt lífi
yðar svona ljettúðugt?« spurði
hann og var ekki laust við að
málrómurinn væri reiðilegur.
Stúlkan leit upp og horfði undr-
andi á hann.
Hún hafði óttast að vera fallin
í hendur einhvers dýrslegs ómenn-
is, en sá ótti hvarf við þessi orð
lögregluþjónsins.
Belosoff sá hvernig varir henn-
ar kipruðust eins og í krampa.
Allt í einu greip hún báðum hönd-
um fyrir andlitið og fór að há-
gráta.
Hann ætlaði að fara að hugga
hana og hughreysta, biðja hana
að segja sjer ástæðuna fyrir sorg
hennar, og spyrja hana hvort
hann gæti ekki hjálpað henni.
V í S I R
Hans eigin' sorgir voru honum
nú alveg gleymdar. Þá sá hann
að stúlkan skjögraði, og hneig
allt í einu meðvitundarlaus niður
á fönnina.
Geðshræringin, sem hver veit
hve lengi hafði gagntekið sál
hennar og líkama, hafði nú bor-
ið hana ofurliði. Mótstöðuafl
hennar var þrotið.
Belosoff varð hálf hræddur.
Hann litaðist um í allar áttir.
Ennþá var enginn vökumaður
sýnilegur, er gæti hjálpað honum
til að bera hina ungu stúlku til
næstu lögreglustöðvar. Áth' hann
nú að gjöra það sjálfur.
En eins fljót og þessi hugsun
hafði verið að koma, jafn fljót
var hún að hverfa aftur.
Honum kom nefnilega í hug
hvernig umhorfs er á hinum rúss-
nesku lögreglustöðvum.
Það gat ekki komið til mála
að láta hina ungu stúlku rakna
við á slíkum stað.
Önnur ákvörðun þróaðist fljótt
í huga hans.
Hann beygði sig ofan að hinni
ógæfusömu stúlku, sópaði snjón-
um af höfði hennar og herðum
og virti fyrir sjer um stund hið
föla and'it með lokuðu augunum.
»Hún hlýtur að hafa tekið mikið
úb< sagði hann lágt við sjálfan
sig.
Hann strauk hendi sinni um
ennið, og fann hvernig blóðið
barðist í gagnaugunum:
Tilfinning, sem hann ekki þekti
áður, hafði læst sig í huga hans
með óstjórnlegu afli. En með
því að beita öllu viljaþreki sínu
tókst honum að vísa þessari
! tilfinningu á bug, og tók hann
nú hina meðvitundarlausu stúlku
í fang sjer.
Hann gat þó ekki varist því,
að titringur fór um hann allan á
ný-
»þetta er einkennilegt« sagði
hann og beit á jaxlinn. »Hvað
gengur að mjer?« »Getur líkami
meðvitundarlausrarstúlku nú trufl-
að jafnvægi huga míns. Líkir
viðburðir og þessi hafa komið
víst hundrað sinnu fyrir mig, og
hefi jeg þó ætíð haldið hugarró-
semi minni óskertri að þessu.«
Hann hraðaði sjer nú sem
mest hann mátti yfir ófærðina
í áttina að liúsi móður sinnar.
Byrðin virtist vera eins og fis í
höndum hans.
19
Einu sinni staðnæmdist hann
á leiðinni og horfði til baka. Hon-
um hafði heyrst eins og fótatak
á eftir sjer. — Það gat verið
vökumaður. —- En hann gat þó
einskis orðið var.
Eftir fjórðung stundar náði
Belosoff heim að garðshliðinu.
Gamla konan var enn ekki farin
að hátta.
Hún vissi að sonur hennar var
kominn úr ferðalaginu, og átti
von á honum heimá hverri stundu.
Hún hafði kveikt á fampanum
og farið að lesa í bók, og leit
svo við og við út um gluggann.
Óþreyan og kvíðinn, sem hafa
þjáð hana alla vikuna sem Belo-
soff var í burtu, hvarf á sama
augnabliki sem hún fjekk vitneskju
um, að hann væri kominn aftur
til borgarinnar.
Allt í einu heyrði hún að bar-
ið var á útidyrnar.
Gamla konan stóð fljótt á fæt-
ur glöð í bragði og fór fram í
ganginn með ljósið.
»Hver er þar?« spurði hún
áður en hún opnaði dyrnar,
»það er jeg — sonur þinn!»
var svarað. — Eins og móð
mundi ekki þekkja málróm sonar
síns! —
Hún flýtti sjer að opna dyrnar,
og Pjetur Belosoff kom inn með
stúlkuna meðvitundarlausa í fang-
inu.
Móðir hans gat ekki varist því
að reka upp hljóð.
Ljósið skalf svo í hendi henn-
ar, að við sjálft lá, að hún misti
það.
»Pjetur!« kallaði hún óttasleg-
in. »Hvað er það, sem þú kemur
heim með?«
Hún einblíndi á son sinn, sem
allur var fannbarinn. Hann ýtti
hurðinni aftur með fætinum og
svaraði henni loks: »Það er ein-
hver vesalingur, móðir mín, sem
ætlaði að fyrirfara sjer. Það er
miskunarverk af okkur að reyna
að bjarga henni.«
Móðir hans skildi undireins,
hvernig í öllu lá. Hún aflæsti
dyrunum og flýtti sjer síðan, án
þess að mæla orð frá munni, inn
í stofuna, en þaðan streymdi hit-
inn fram til þeirra.
Belosoff lagði nú stúlkuna í
legubekkinn og stakk kodda undir
höfuð henna.r. Frh.