Vísir - 31.12.1911, Blaðsíða 1
204
Kemur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud-
Priðjud., miðvikud.jiimtud. og föstud.
25 blöðin frá 3. des. kosta: Áskrifst.50a.
Send út um land 60 au. — Einst. blöð 3 a.
Afgr. ísuðurendaáHotellsland l-3og5-7.
Oskað að fá augl. sem tímanlegast.
Sunnuud. 31. des. 1911.
Sól í hádegsstað kl. 12,30'
Háflóð kl, 1,5 árd. og kl .1,50 síðd.
Háfjara er um 6 stundum 12 mín.
eftir háflóð.
Afmæli i dag:
Sigvaldi Bjarnason, snikkari.
ö-uðsþjónusta
í Sílóam við Grundarstíg njársdag
kl. 12 á hád. D. Óstlund
Hjálpræðisherinn. Samkomur
í dag kl. 4 síðd. og 8^/2
Bænanótt kl. 11 —1272-
Úr bænum,
Messur í kveld:
Dómkirkjan:
kl. 6 sr. Jóhann Þorkelsson,
kl, 11 ^2 Sigurbjörn Ástv. Gíslason
Fríkirkjan:
kl. 6 sr. Ólafnr Ólafsson.
Nýársdag:
Dómkirkjan:
kl. 12 sr. Bjarni Jónsson
kl. 5 sr. Jóhann Þorkelsson.
Fríkirkjan:
kl. 12 sr. Ólafur Ólafsson.
Trúlofuð eru MontörJónas Guð-
mundsson og frk. Hólmfríður Jó-
hannsdóttir, Njálsgötu 33 A.
ífýárssimdið.
Kappsund um »Nýársbikarinn *
verður háð við Bæarbryggjuna á
nýársdag kl. 1045 árd. stundíslega.
Keppendur verða þessir:
Erlingur Pálsson
Guðm. Kr. Guðmundsson
Jón Sturluson
Sigurður Magnússon
Sigurjón Pjetursson
Sigurjón Sigurðsson
Ef til vill fleiri. —
Dómnefnd skipa:
Landlæknir Guðm. Björnsson
læknir Mattías Einarsson
leikfimisk. Björn Jakobsson.
Að afloknu sundinu talar land-
læknir og afhendir sigurvegaran-
um bikarinn, fyr og eftir sundið
verður leikið á »Lúðra«. —
Allir ungir og gamlir bœarbúar
eiga að vera viðstaddir nýárs-sundið.
Það flytur oss hreisti og táp á
nýársdaginn. —
Aðgangur ókeypis,- en lítið eftir
drengjunum sem munu ganga fram
og aftur með kassa á bakinu, á þeim !
stendur: Sfyrkið sundskálann.
fþróttavinur.
Baddir
almennings.
Bæarstjórnarfundurinn.
Mig langar að biðja Vísi fyrir
þessa stuttu skilgrein af bæarstjórn-
arfundinum 28. þ. m. Hann var
um mál sem almenning varðar og
gott að heyra við og við vísdóms-
orð bæarfulltrúanna.
Þetta var aukafundur og voru
umræður fjörugar. Þaðvar hafnar-
málið sem var á dagskrá.
Fyrst talaði borgarstjóri og reif-
aði hann hafnarmálið með allra-
handa tölum og óskaði að fram-
kvæmdir biðu þar til Petersen sendi-
maður Monbergs & Co kæmi, þá myndi
hann geta reiknað úr tölunum þó
háar væri.
Þá tók H. J. til máls og skýrði
í frá að nú hefði Krabbe sagt sjer
það sem hann hefði ekki ' vitað fyr
að verkfræðingafjelögin væri fjarska
stór í útlöndum og sami rassinn
undir þeim öllum svo ekki væri
til neins annað en að láta Monberg
hafa höfnina.
Þá talaði J. Þ. og setti öfug-
streymi í allar Monbergshugleiðing-
arnar. Áleit að nú ætti þegar að
bjóða verkið út, ef svo ekkert til-
boð líkaði ættum við sjálfir að
byggja höfnina. Við gætum það
vel. Hjer væri enginn hörgull á
öðru en góðum verkstjórum.
Þá talaði Kl. J. og var á sama
máli og J. Þ. en þó hræddur við
að við tækjum verkið sjálfir að
okkur.
Þá talaði Tr. G. og vildi láta
bjóða verkið út en bíða eftir Mon-
berg því þá gætum við lært að
byggja höfn.
Þá talaði L. H. B. og tók í sama
streng og J. Þ„ viðættum aðbyggja
höfnina sjálfir því við og eftirkom-
endur vorir myndum fá smjerþefinn
af höfninni.
Þá talaöi J. J. og sagði að ekki
væri búið aðrannsaka höfninanægi-
lega, það myndi vera meiri leðja í
botninum en menn hefðu gert ráð
fyrir.
K. Z. vitnaði í J. Þ. og sagði
að heimska væri að draga útboðið
og ætti að gera útboðið strax til
þess að draga Monberg ekki á
tálar.
Loks voru samþyktar þessar til-
lögur í máiinu: »Bæarstjórnin sam-
«xw vms ico
þykkir aö gera höfnina • á • grund-
velli áætlunar G. Smiths* með öll-
um atkv. og þessi viðauki: »og
bjóöa verkið út sem fyrst* samþ.
meö 10: 4 en þeir 4 voru: Bríet
og borgarstjóri, Tryggvi jog J. JeriT
son.
Haraldur.
Metodistakirkjan.
Nýársguðsþjónusta í Sílóam á ný-
ársdag kl. 4. e. h. við O. Thor-
steinsson frá Hammerfest.
Allir velkomnir.