Vísir - 31.12.1911, Blaðsíða 4

Vísir - 31.12.1911, Blaðsíða 4
±&jbbbbbbbbbbbbbbbbb**dbbbbbbbbb^ 104 VISIK icdbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb^ TIL KAUPMANNA. Eg leyfi mér að tilkynna, að verzlun sú, sem eg að undanförnu hefi rekið í félagi með Mr. James Hay, er nú gjörð að hlutafélagsverzlun og verður framvegis rekin undir firmanafninu O. GÍSLASON & HAY, Limited Eg hefi ótakmarkað umboð til þess að reka erindi verzlunarinnar hér á landi, °g er jafnframt framkvæmdarstjóri hennar. Við þessa breytingu hefur veltufé verzlunarinnar töluvert aukist, og hún þar með náð því þroskastigi, sem nauðsynlegt var til þess að geta fullnægt sem bezt kröfum þeim, sem viðskiptamenn hennar gera, og STAÐIÐ BEZT AÐ VÍGI í samkeppninni. Meðal annars verður eptirleiðis mikið fullkomnara og fjölbreyttara SÝNISHORNASAFN verzlunarinnar hér í Reykjavík í hinu nýa steinhúsi (niður af »Kaupangi«), sem er kallað „SKJALDBORG“. Þangað hefi eg einnig flutt skrifstofu mína. Á rekstri eða fyrirkomulagi verzlunarinnar verður að öðru leyti engin breyting. Eg gríp tækifærið til að þakka um leið fyrir samvinnuna öllum þeim, sem skilvís og ánægjusöm skipti hafa haft við okkur Mr. Hay undanfarin ár, óska þeim GLEÐILEGS NÝÁRS og vona að verzlunin njóti framvegis viðskipta þeirra. Reykjavík 30. Des. 1911. GARÐAR GISLASON. hpppppppppppppppppppf^^ ippppppppppppppppppf^7ppppppppppppppppppppppppppf!¥!¥¥¥¥

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.