Vísir - 31.12.1911, Síða 2

Vísir - 31.12.1911, Síða 2
102 V i S 1 R sem JvJyvy Jsast !i\i Reinholt Andemon i ^.óVet Bæarpósturinn er einn af þeim fáu útvegum lands- sjóðs, sem gerir hvortveggja í senn, er til gagns öllum almenningi og gefur allálitlegar tekjur. Pað má gera ráð fyrir að tekjur af brjefa- útburði nú um jólin og nýárið borgi fast að helmingi þess fjár, er hann kostar landssjóð alt árið. Það er handtak að koma þessum 13 þúsund brjefum til skila, sem borin voru um bæinn nú á jólun- um. Oss fýsti að vita nánari grein á því og hittum því að máli ann- au aðalbrjefberann, þann er ræður yfir Vestanbæarpóstum, herra Þór- odd Bjarnason. Það má víst fullyrða að Þórodd- ur sje sá maður hjer á landi, er flesta menn þekki. Þess er getið í fornum ritum að Miþradates hafi þekt alla hermenn sína, en þeir voru 10000. Öss kæmi ekki á óvart þó Þóroddur gengi honum næst í mannglegni. — Jólapósturinn var æðistór í þetta sinn sögðum vjer. — Já, það var meiri pósturinn! allir kassar fullir og meira en það, sagði Þóroddur. — Þið hafið auðvitað orðið að fá ykkur aukamenn til aðstoðar? — Við tókum 12 aukamenn og dugði þó tæplega. Við byrjuð- um að safna spjöldunum saman, stinipla þau og raða litlu eftir há- degi á aðfangadaginn og hjeldum áfram við það langt fram á kveld. Þeir síðbúnustu komust ekki af stað fyr en um kl. 10 og hjeldu áfram fram yfir miðnætti. — Var þá öllu Iokið? — Svo mátti það heita; í Vestur bænum varð ekki borið í 5 eða 6 hús því að þeim hafði verið lok- að áður. — Ónei, jeg kom ekki heim fyrr en eftir miðnætti og þá smakkaði jeg mat í fyrsta og síðasta skiftið heil- an sólarhring. — Var mikið í kössunum morg- uninn eftir — á Jóladæginn? — Já, talsvert. Við sofnuðum alls ekki, heldur byrjuðum strax um nóttina, litlu eftir að atburðin- um var lokið, að raða því sem komið hafði frá því að við fórum að bera út kveldinu áður; um kl. 4 á Jóladæginn vorum við lausir. — En þið fáið þetta starf sjer- staklega vel borgað? — Kaupið er sama og áöur, en alla aðstoð verðum við að borga úr eigin vasa. — Var greinilega skrifað utan á öll spjöldin? — Læt eg það vera, en ekki hefði tafið fyrir þótt nánaraværi og rjettara tilgreint heimilisfang sumra. Það tefur afleitlega þegar götunöfn og húsnúmer er skakkt eða vantar á brjef til lítt þekktra manna og spjöld sern að eins stendur á »frá Guddu til Veigu« verður varla kom- ið til skila viö fyrstu tilraun. — Hve mörg hundruð spjöld urðuð þið að auglýsa? — Biðjum fyrir okkur, þau skiftu ekki hundruðum. Eg held 18 eða 20. — Það var vel gert, sögðum vjer og þökkuðum Þóroddi upplýs- ingarnar. — Verið þjer sælir. * ÍYe\S&\\ta$ttY til snúninga getur fengið pláss 1. jan. £. JSyuuyv Útgefandi: Einar Gunnarsson, cand. phil. Prentsmiðja Östlunds , JtoYítatifcxtiduY (Kcifli úr Bœndaförinni 1910.) Niðurl. Reykjavik er að mörgu leyti hjarta landsins. Þaðan liggja lífæðar þær er veita ýmsuin straumum rás, út um landið. Margar breytingar, margar stefnur, sem gengið hafayf- ir, siðari árin, eiga þar upptök sín. Bæjarlífið í Reykjavík og hugsun- arhátturinn þar hefur því mikla þýð- ingu fyrir alla þjóðina. Ýmislegt má eflaust að þessu finna, en að mörgu virðist Reykjavík vera orðin þjóðlegust íslenskra bæja. Brodd- borgaraskapurinn Qg hinn krakka- legi sjerþótti er að hverfa. Bærinn er vaxinn frá því stíginu. Víst er um það, að ekki er annarstaðar betri staður fyrir unga mennaðafla sjer menningar, utan skólanna, en í Reykjavík. Mafgir efnilegir ung- ir menn, út um landið, gætu haft mjög gott af því, að dvelja í R.vík einn vetrartíma og hagnýta sjer hin almennu menntatæki, kynnast þar málefnum og leiðandi mönnum, Væri þá sjálfsagt að velja til þess þingvetur. Hvergi kynnist maöur opinberu þjóðlífi eins vel og í Reykjavík og þar ætti að vera sjálf-

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.