Vísir - 27.02.1912, Page 1
240
Kemur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud. 25 blöðin frá 15. feb. kosta:Áskrifst.50a. Afgr. isuðurendaáHotellsland l-3og5-7
Þriðjud., miðvikud.,iiintud. og föstud. ! Send út um landóO au,—Einst. blöð 3 a. Óskað að fá augl. sem tímanlegast.
JÁ
óskast til kaups ekki síðar en 22. næsta mán. Helst ætti bát-
urinn að vera með 6 hesta Danmótor.
Nánari upplýsingar gefur Jónas H. Jónsson Bárubúð.
Þriðjud. 27. febr. 1912.
Afmœli.
Frú Guðrún Olafsdóttir.
Á morgun:
Ingólfur kemur úr Hvalfirði.
Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer.
Álftanespóstur kemur og fer.
Ur bænum
Manntjón varð á »Langanesu,
fiskiskútu miljónarfjelagsins í ofviðr-
inu á fimtudaginn. Skipið var fyr-
ir sunnan land og hafði legið sólar-
hring í rjett. Bilaði þá segl og fóru
nokkrir menn upp til þess að gera
að því. Meðan á því stóð reið alda
yfir skipið og tók út 5 merin.
Druknuðu allir. Menn þessirvoru:
Sigurgeir Ólafsson frá Bjarnaborg,
fjölskyldumaður.
Jón Pálsson (prests Pálssonar frá
Prestbakka, síðar Þingmúla).
Sigurður Jónsson úr Árnessýslu.
Guðjón Jónsson vinnum. frá Ána-
naustum og
maður vestan af Patreksfirði.
Skipið kom hingað í gær.
Sæborg, fiskiskúta frá Duus, varð
fyrir áföllum í veðrinu. Braut borð-
stokk, skipsbáturinn molbrotnaði,
fiskkassar flutu út og saltkassar brotn-
uðu. Manntjón varð ekki.
Áfall mikið fjekk fiskiskútan
»Haffari« í ofveðri, er gekk fyrir
sunnan land á fimtudaginn var.
Sjór fjell yfir skipið, kastaði því á
hlið, braut brandinn (»bugspjótið«)
og varpaði út einum manni er drukn-
aði. Hjet liann Þórður Erlendsson,
bróðir Jóns Erlendssonar hringjara,
ötull sjómaður. 'Farmur raskaðist,
en þó rjetti skipið við og náði hjer
höfn á sunnudaginn.
Sigurður Jónsson í Görðunum er
formaður og eigandi skipsins.
Frakknesk fiskiskúta koin hing-
að á sunnudaginn og er það hin
fyrsta er sjest hefur hjer á þesssutn
vetri.
Bíó sýnir þessa daga meöal ann-
ars einkar góða mynd frá dýraveiðum
í Afríku.
Communicaiion postale
de Reykjavík á I’étranger pendant
l’été 1912 sera publiée comme
l’anneé passée. Cette bróchure sera
expediée gratis et les etrangiers
peuvent la recevoir toute la saison.
Les frais d’ annonces commé
usuel. On souhaite le manuscrit
au plus vite
Bankamálið,
Vísir var fyrstur til þess allra
blaða höfuðstaðarins að flytja les-
endum sínum upplýsingar um þann
dularfulla þátt málsins, sem verið
hefur að gerast síðustu mánuðina
og blöðin hafa svo grandvarlega
þagað um.
Nú hefur ísafold birt álitsskjal
bankarannsóknarnefndarinnar, sem
fyrr liefur verið getið og má nokk-
uð sjá af því, hvernig í málinu Iiggur,
Lesendum vorum til yfirlits birtist
hjer örstutt skrá um helstu atburði
þessa máls.
13. des. s. 1. kæra bankastjórn-
ar landsbankans til stjórnarráðsins út
af ýmsum taluabreytingum í forvakst-
areikningi gjaldkera bankanum í
óhag og öðrum talnaskekkjum þar,
á tímabilinu 1. sept. — 13. des.
s. 1. Lögðu þeir til að gjaldkera
væri þegar vikið frá og rannsókn
hafin.
Stjórnarráðið varð ekki við til-
lögum bankastjóranna og var málið
í þófi til ársloka. Þá varð það
úr, að landstjórn og bankastjórn
settu tvo menn, Gísla Sveinsson og
Þorsteiii Þorsteinsson til þess að
rannsaka forvakstareikning gjaldker-
ans yfir þennan tíma.
7. þ. m. lauk rannsóknarnefndin
störfum sínum og sendi stjórnarráð-
inu álitsitt. Kveðast þeir hafa fund-
ið tölur »sem viröist hafa verið
breytt úr rjettri tölu í ranga«, »vant-
andi heilar forvakstaupphæðir«,
»smá mismun« og »stærri mun
á forvakstaupphæðum sjerstáklega
tilgreindra víksla« og nemur þetta
alt kr. 1252,40 bankanum í óhag,
en hjer að auki fundu þeir of hátt
reiknaðar tölur um kr. 253,70.
8. febr. eða daginn eftir, sendu
bankastjórarnir framhaldskæru til
stjórnarráðsins um forvakstareikinng
gjaldkera árið 1910. Kveða þeir
talnabreytingar, of lágt skráðar upp-
hæðir, vantandi tölur og samlagn-
ingarvillur nema samtals hátt á fimta
þúsund króna bankanum j"í 'óhag
og árjetta kröfu sina um frávikng
og rannsókn.
13. febr. eða tæpri viku seinna,
gefur stjórnarráðið úrskurð þann,
sem Vísir birti um daginn og »finn-
ur stjórnarráðið enga ástæðu til að
gera frekara íþessúmáli«, en segist
munu svara bankastjórninni »innan
fárra daga«.
Um fyrri helgi sendi 'Stjórnar-
ráðið endurskoðendum bankans,
Benedikt Sveinssyni og Eggert
Briem skrifstofustjóra málið til um-
sagnar og munu þeir hafa sent svar
sitt til stjórnarinnar um síðustu helgi
og fundist kæran koma lieim við
bankabækurnar.
Hálfgert er nú búist við að stjórn-
in láti eitthvað meira til sín heyra
í máli þessu innan skamms.