Vísir - 03.03.1912, Qupperneq 1
Kemur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud- 25 blöðin frá 15. feb. kosta:Áskrifst.50a.
Þriðjud., miðvikud.jiimtud. og föstud. Send út um landóO au.—Einst. blöð 3 a.
Afgr. í suðurenda á Hotel Isjand 1-3 og5-7
Óskað að fá augl. sem tímanlegasi.
Sunnud. 3. mars 1912.
Aftnœli. ■
Ámundi Árnason, kaupmaður.
Jón Þorláksson, verkfræðingur.
Á morgun:
Frú Ragnhildur Ólafsdóttir.
Ásgrímur Jónsson, máíari.
Kristján Jónsson, ráðherra.
Norðan- og Vestan-póstar koma.
Ingólfur kemur frá Borgarnesi.
D. Östlund predíkaríSílóam sunuud. k!. 6l/s.
>
Ur bænum
Ásigling. Tvær fiskiskútur iijeðan
sigldust á fyrir sunnan land, »Guð-
rúm frá Gufunesi og »Bergþóra«.
Brotnaði aftur-siglan úr »Guðrúnu«
en »Bergþóra« braut brandinii.
Bæði skipin eru komin hingað.
Dáinn er Magnús Guðbrandsson
í »Brennn« við Bergstaðastíg, rosk-
inn að aldri, skírleiksmaður vel
látinn.
Dr. Helgi Jónsson befur fyrir-
lestra í háskólanum á morgun kl.
5 síðdegis um eðli jurta. Fiytur
síöan tvo fyrirlestra á viku þennan
mánuð um þetta efni. Vafalaust
verða fyrirlestrarnir fróðlegir og
ættu þeir sem vilja lcynnast þessari
fræðigrein ekki að láta jafngottfæri
ónotað.
Jón Jónsson docent er byrjað-
ur að flytja fyrirlestra við háskólann
um bókmenta-iðkanir íslendinga fyr-
ir siðaskiftin.
Ókyrð mikil.í bænurn þessa dag-
ana út af nýju rannsókninni í lands-
bankanum.
Dóttir okurkarlsíns, sagán sem
byrjar í þessu blaói segir þýðandinn
að sje enn betri en »Gistihúsið«,
sem var í almennu áliti, en þeási
saga er að mun styltri.
f
Agtíst Bjarnason prófessor held-
ur á morgun ld. 7—8 fyrirlestur
á Háskólanuin (allir velkomnir með-
an húsrúm Ieyfir) u‘m ítölsku skáldin
Petrarca og Boccaccio.
Ari Jónsson aðstoðarmaður í
stjórnarráðinu hefir aillengi legið
veikur, en er nú orðinn heill heilsu
aftur.
Nokkrir húnvetnskir bændur
komu hingað tjl bæarins af bænda-
fræðslunni á Hvanneyri. Þeir fóru
hjeðan aftur heimleiðis í morgun á
»Ingólfi« til Borgarness.
Prenivilla var í grein minni um
»Flatarstærð Reykjavíkúr* í 242. tbl.
á miðri bls. 42 stendur:
»MilIum Bræðraborgarstígs og
Vésturgötu«, en á að vera »mill-
um Bræðraborgarstígs og Tjarnar-
götu«. 5. £
Aukaskip ætlar sameinaða að
senda hingað í þessum mánuði.
Það heitir Moskow og Ieggur af
stað frá Höfn annan mánudag. Það
skip .fer beina leið hinga^ en lijeð-
an fer það til Vestfjarða.
Vörur ár Ceres þærsemóskemd-
ar náðust koma með Bofniu. Vör-
urnar eru sendar frá Orkneyum til
Leith í vegin .fyrir ha na. Hingað
á Botnía að koma 18. þ. m.
■ Morðlendingámót vár haldið í
nótt éins og til stóð og sóttu það
um liálft þriðja hundrað manns karl-
ar og konur, varð það fríður hóp-
ur, enda eru flestir höfðingjar bæ-
arins að norðan. Menn komu sam-
an um kl. 8 á Hótel Reykjavík og
var von bráðar sest undir borð.
Kristján ráðhera (Þingeyingur) bauð
menn velkomna til mólsins, Guð-
muridur landlæknir (Húnvetningur)
hjelt ræðu miklá fyrir minni fjórð-
ungsins og bar þar margt á góma,
sagði hann kost og löst á Norð-
lendingum, en duglegir hafa þ'eir
ætíð verið hvar sem þeir hafa lagst
að t. d. afburða þjófar meðan sá
siður var og voru 11 frömuðir list-
arinnar hengdir eitt sinn í einu á
sömu ránni, sem Iögp var yfir gil.
Hannes fyrv. ráðlierra (Eyfiiðingur)
talaði fyrir íslandi. Pá. mintist Dr.
B. M. Ólsen háskól^rektor (Húnv.)
norðlenska kvenfÓlksms, sem hon-
um þótti hundrað miljón sinnum
fallegra en annað kvenfólk og frú
BríetBjarnhjeðinsdóttir (Eyfirðingur)
mintist Reykjavíkur. En Skagfirð-
ingar Ijetu ekki til sín íaka um
ræðuhöld.
Eftir að staðið /var upp fráborð-
um Ias Einar Hjörleifsson byrjun á
sögu frá 16. öld, sem hann hefur
í smíðum. Sagan var ágæt, en ekki
vel fallin fyrir tækifærið, þar sem
efni hennar var fremur dauflegt.
Nú var tekinn upp dans og hjelst
hann fram undir morgun.
Þó mótið væri all-líflegt, hefði
betur mátt vera. Hjer vantaði einnig
marga góöa menn, einkum úr Suður-
þingeyarsýslu, svo sem biskup lands-
ins, dómkirkjuprestinn, bæarfógeta,
Benedikt Sveinssonalþingismann o.fl.
Baddir
almennings.
Frá borg'arafundimim.
Þctt mjer varla þyki þurfa að
leiðrjetta frásögn síðasta tbl.Isafoldar,
um ræðu mína í Iðnó á borgara-
fundinum 29. febr. þ. á., þar sem
jeg veit, að hver maður muni að
sjálfsögðu fyrirfram hafa gert ráð
fyrir að hún muni svo sem vant
sje, vera ósönn og síst andstæðing-
um í vil.
Upphafið af fráögninni er að mestu
rjett en jeg frökstuddi þetta með
því að benda á, að enginn sem
inni væri þekti kæru bankastjóranna,
og gætu því eigi uni hana dæmt.
Bankastjórarnir voru þar báðir við-
staddir, og andmæltu því ekki einu
orði.
Að öðru leytj talaði jeg fátt um
málið vegna þess að jeg gat ekki
fengið hljóð, svo sem við var að
búast á slíkum fundi.
Seinni hluti af grein ísafoldar er
hrein og bein ósannindi.
P. J. Halldórsson.