Vísir - 03.03.1912, Side 2
48
V 1 S I R
óskast til kaups ekki síðar en 22. næsta mán. Helst ætti bát-
urinn að vera með 6 hesta Danmótor.
Nánari upplýsingar gefur Jónas H. Jónsson Bárubúð.
yHfT Prátt fyrir verðhækkun á kolum, seljum við framvegis
KOCES
frá Gasstöð Reykjavíkur fyrir sama verð og áður. 1 tonn í einu á
24 krónur, og í smásölu (minst 160 kíló) á 25 krónur.
Timbur- og Kola-verslunin „Reykjavík”.
I S K I M E N N
Nokkrir góðir fiskimenn geta fengið skiprúm á
ágæfum þiiskipum á Vesturlandi nú þegar.
Góð kjör í boði.
Upplýsingar hjá ritstjóra.
Kolaeinokun.
Jeg hef lesið langar lofdýrðar-
rollur; um kolaeinokun í síðustu
blöðum »ísafoldar« og »Lög-
rjettuc. Blöðin segja að samningar
geti fengist við eina skoska kola-
námu og það svo ríflegirað útsölu-
verð kola »langlíklegast« þurfi ekki
að hækka fram úr því, sem nú er
algengt hjer á landi. Þetta er nú
gott og blessað —, en hvorugt blað-
anna fræðir okkur um það, sem
almenning þó varðar miklu hver
gæöi kolanna sjeu, er skoska nám-
an byðst til að okra á. Hvort ein
skosk náma getur framleitt allar þær
tegundir kola, er þarf hjer á íslandi,
þykir mjer efamál, og ekki þykja
skosk kol eins góð og ensk kol eða
Waleskol. Hjer þarf bæði skipakol
og einnig lakari tegundir, til bús-
nota, gasframleiðslu o. s. frv. Að
þessi skoska náma geti bæði látið
í tje góð skipakol, og einnig algeng
kol, þykir mjer næsta ótrúlegt. —
Svo fræða blöðin okkur á, að
sjálfsagt sje, að selja útlendum skip-
um, — þ. e. þeim er ekki sigla
undir dönsku flaggi — kolin dýrar
en þau sjeu seld innlendum skipum.
Þeim er finst slíkt sannsýni, find-
ist víst heldur ekki ósannsýni, þó
útlendar þjóðir gerðu okkur lík
skil og legðu skatt á farma er fara
frá útlöndum til íslands.
Greinar blaðanna eru óljósar að
mörgu leyti og virðist svo sem þau
slái úr og í um ýms mikilsvarðandi
atriði þessa einokunarbralls.
Lögrjetta er kom út í gær, flytur
en nýjar upplýsingar um þetta kola-
mál. Kolin eiga að eins að fást
keypt á 36 höfnum hjer á landi,
og útsöluverð á að vera mismun-
andi, eftir því hvað hafnirnar eru
góðar, minst kr. 20,00 til kr. 25,00
pr. tonn. Útsöluverðið hækkandi
eftir kolamarkaðinum utanlands.
Lögrjetta segir að sje gengið frá
samningnum og vil jeg því skora
á blöðin að þau birti samningin
(rjettara sagt einokunaruppkastið)
allan í heilu lagi; þá fyrst er hægt
að gera sjer Ijósa hugmynd um
hvað hagar og bagar uppkastið.
Uppástunga þessi um einokun er
komin frá hendi þeirra tolltrúuðu
hagfræðinga okkar, er álíta að þareð
þjóðin nú sleppi við aðborga vín-
fangatollin, þá þurfi endilega að
koma í staðin einhver nýr tollur.
Efnahagur þjóðarinnar vex þó við,
að þjóðinni sparast að borga bæði
tollin og vínverðið, og vinnumegn
landsins eykst. Mjer er því til efs
hvort þarf að auka skattabyrgði þjóð-
arinnar með nýjum tolli eða ein-
okun, og nær finst mjer Iiggja við,
að auka beina skatta, ef enn þarf
meiri fjárframlaga frá landsmanna
hálfu í landsjóðshítina.
En næst væri það óskum alþýð-
unnar að stjórn landsins og þorri
alþingismamja vildu viðhafa meiri
spameytni á almannafje — landsjóði
— en síðari árin, því þannig og
ef með þarf, með litlum vakstaskatti
á núverandi landsjóðslaun starfs-
manna og embættismanna landsins,
mætti áreiðanlega bæta úr tekju-
hallanum, er stafar af missir vínfanga-
tollsins, án þess að íþyngja þjóðinni
með örþrifaráðum nýs eða nýrra
tolla. F.
Útgefandi:
Einar Gunnarsson, cand. phil.
Östlunds-prentsm.
Dóttir
okurkarlsins.
(Þýtt).
1. kapituli.
AfdrifamikiII víxill.
Það var orðið dimt af kvöldi.
Þokan grá og þungbúin grúfði sig
yfir strætum Lundúnaborgar.
Ungur maður var þar á reiki.
Hann hjelt lengra og lengra inn í
strætavefinn í City, og var von
bráðar kominn þangað, sem gömlu
Lundúnir Iiggja.
Á þeim stöðvum eru strætin enn
þann dag í dag með miðaldasniöi,
þröng og hlykkjótt. Húsin eru
rismikil, og ekkert þeirra er hærra
en tvíloftað. Til að sjá eru þiu
svo mjó, að lítið útlit er fyrir að
rúmt sje þar inni.
En'' þegar inn í þessi hús er
komið verður útlitið annað. Þá