Vísir - 03.03.1912, Blaðsíða 4
52
V I S I R
í Túsbýátti hún að mæta kala
og lítilsvirðingu Hugginsons-
flokksins. Pegar hún giftist hafði
hún búist við að eiga fyrir hendi
mörg ár í farsælu hjónabandi
með manni sínum. Sambúð þeirra
hlyti að verða björt. En vesl-
ings konunni brugðust vonir, því
vegna ofsókna þeirra, er maður
hennar varð fyrir, varð lífið henni
mæða.
Maður hennar var nú dáinn
fyrir 7 árum. Var hún á þeim
tíma búin að ná hinni fyrri sál-
arrósemi sinm, og hafin yfir allar
þær árásir, er ætlaðar voru til að
auðmýkja hana. Pær árásir gátu
ekki framai sært hana eða gjört
henni Iífið leitt, því fyrir sjálfa
sig vænti hún ekki framar neinna
gæða í lífinu, og þó var hún
enn ung og fögur.
Hún bar með auðmýkt fyrirlit-
ningu vonbrigði og fátækt í fullu
trausti á guð, sem aldrei sleppir
hendinni af sínum. Hún sat ein-
mana heima hjá sjer, því til ein-
kis vinar átti hún athvarf í Tús-
bý, sem gæti hughreyst hana
eða ráðlagt henni. Oft varð það
henni að umhugsunarefni, hvernig
smásyndir annara hefðu verið sjer
til svo mikillar sorgar og mæðu.
Pá gátu gat hún ekki ráðið, að
mönnum leyfðist að vinna hver
öðrum óbætandi tjón.
Sorglegt er að hugsa til þess
að þó nóg sje af illu hjer í heimi
neyð og dauða, þá auka menn
á þjáðningar annara, með því
að lítilsvirða og móðga hver
annan. — Með því að vera ó-
vandaðir í orðum við aðra, óalúð-
Iegir og harðir í dómum, særum
við og hryggjum aðra. En hryggj-
um við og særum þá með því
þann mest, sem bestur er og
hreinastur af hjarta, —Jesú Krist,
er dó fyrir oss alla.
Sonur hennar var það eina er
batt hana við þennan heim, —
föðurleysinginn, átti ást hennar
óskerta. Harry Kenrick þótti
reyndar vænt um móðir sína og
mikið hefði hann lagt á sig held-
ur en að sjá henni líða illa, en
dagfarslega var hann kaldur við
hana, einráður og hugsagði Iítið
um hvað móður sinni Iíkaði betur
eða ver. Hann elskaði hana ekki
eins og hún hann — og svo
mun vera um flest börn. Víst
er að honum fanst eins og farg
hvíla á sjer ávalt er hann var
Skrlfstofa
bæarverkfræðingsins
er flutt í Slökkvistöðina í Tjarnargötu (uppi).
Opin frá kl. 11—12.
heima í Túsbý. Og svo mjög
hataði hann sveitina og fólkið
að þó hann væri með móður
sinni, þá var hann aldrei kátur
heima hjá sjer.
í skóla var hann ör og fjörug-
ur, en heima hjá sjer þurr og
kuidalegur.
Mikið angraði það móður hans
er hún sá hvað hann var óánægð-
ur og kærði sig lítið um hana,
þó hún elskaði hann innilega.
Frh.
jxi úUöudum.
Kolaverkfall um alt stóra
Bretland varð í fyrradag og Iögðu
allir námamenn niður vinnu þann
dag. Kol hækkwðu mjög í verði
þar þann dag, an fyrir verkfallið
liöfðu þau verið að stíga alllengi.
Búist er við að verkfall þetta standi
ekki mjög lengi.
"UW Uudi.
t Sjera Eyjólfur Kolbeinn
Eyjólfsson á Mel í Miðfirði Ijest
á heimili sínu aðfaranótt föstudags-
ins 1. þ. m. eftir mánaðarlegu. Hann
var fæddur 22. febrúar 1866, út-
skrifaður úr prestaskólanum 1890
og varð fyrst prestur að Staðarbakka.
Faðir hans var sjera Eyjólfur
Jónsson á Árnesi Þórðarsonar á
Kjarna í Eyjafyrði. Var sjera Eyj-
ólfur á Árnesi bróður sjera Janusar
í Holti og bræðrungur sjera Lárus-
ar Benediktssonar frá Selárdal. Kona
sjera Eyjólfs á Árnesi var systir
Halldórs heitins Friðrikssonar yfir-
kennara.
Sjera Eyjólfur Kolbeins var fjör-
rnaður mikill og gleðirnaður, stál-
minnugur, drengur góður. Hann
lætur eftir sig ekkju og 10 börn.
Hjálpræðisherinn. Vakninga-
samkomur kl. 4 og kl. 8l/2 í dag.
Hornaflokkurinn spilar.
TAPAD-FUMDIB
Karlmanns úr fundið. Vitja
má á Laugav. 52 (uppi) gegn fund-
arlaunum.
Sessa, úr ekilssæti, fundin Lauga-
veg 66.
Peningar fundnir á götum bæ-
arins. Vitja má á Hverfisg. 28
Jónas Jónsson.
Úr tapað í miðbænum. Skilist
til ritstj. gegn fundarlaunum.
3 herb.ogeldh. laus H.maí.Östlund.
Tvær stofur ásamt eldhúsi til
jeigu 14 maí n. k. á Laugav. 33.
Ein stofa nálægt miðbænum til
leign nú þegar. Ritstj. vísar á.
íbúð, stór og góð á besta stað
í bænum fæst til íbúðar frá 14.
maí, einr.ig stofa með forstofuinn-
gangi. Uppl. í versl. Jóns Þórðars.
KAUPSKAPUR
Rúmstæði fyrir tvo, nýsmíðað,
sjerlega vandað, fæst keypt með
góðu verði. Afgr. vísar á.
Áburðarfjelag Reykjavíkur
heldur fund í K. F. U. M. þriðjud.
5. mars kl. 7. e. h.
Ýmislegt áríðandi fyrir fjelagið
verður rætt, því nauðsynlegt að sem
flestir fjelagsmenn sæki fundinn.
Tryggvi Qunnarsébn.
MUNIÐ
brjef spjaida
úrvalið
á afgr. Vísis
Kosta fra 3 au.