Vísir - 19.07.1912, Qupperneq 1
349
17
„ a c? •• o w "ýar °s samlar fást 1
Kartföflur vöruhúsinu
Austurstræti 10.
Föt og Fataefni Slaufur mesta
úrval. Föt saumuð og afgreidd á 12-14 tímum.
Hvergi ódýrari en í ,DAGSBRÚN‘. Sími 142.
Kemur venjulega út kl. 12alla virkadaga. j 25 blöð frá 1. júlí kosta: Áskrifst.50a. 1 Afgr.í suðurenda á Hótel fsl. lP/^-SogH-T Send út um landóO au. — Einst. blöð 3 a. Skrifstofa í Pósthússtræti 14A. Venju- lega opin kl. 8—10, 2—4 og 6—8. Langbesti augl.staður í bænum. Augl. sjeskilað fyrir kl.3daginn fyiir birtingu.
Föstud. 19. júlí 1912. Háflóð kl.8,14 1 árd. og kl. 8,34‘síðd. Háfjara hjer um bil 6 st. 12‘ síðar. Afmœli. Hannes Hafliðason, skipstj. Á morgun: Póstar. Vestan- og norðanpóstar fara. Ingólfur til og frá Borgarnesi. Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer. Póstvagn fer til Ægissíðu. Drengja og unglinga fötin eru komin aftur. Einnig hin viðurkendu SLITFÓT , Austurstræti 1 Asg. G. Gunnlaugsson & Co. Ljereftin margþráðu nýkomin með sama verði ogáður. Austurstræti 1 Ásg. G, Gunnlaugsson, & Go
Veðrátta í dag.
■ Loftvog ‘43 £ íi '< Vindhraði| Veðrluag
Vestm.e. 766,1 10,1 NNV 4 Alsk.
Rvík. 764,9 11,0 V 1 Alsk.
ísaf. 765,0 11,2 0 Hálfsk.
Akureyri 766,6 9,5 NNV 1 Þoka
Grímsst. 730,0 14,8 0 Heiðsk.
Seyðisf. 765,2 7,3 0 Þoka
Þórshöfn 766,3 9,2 VSV 1 3 Skýað
Skýringar.
N—norð- eða norðan, A —aust-eða
austan, S—suð- eða sunnan, V—vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þann-
ig: 0—logn.l—andvari, 2—kul, 3—
gola, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6—
stinningskaldi,7—snarpur vindur,8—
hvassviðri,9—stormur,l 0—rok, 11 —
ofsaveður, 12— fárviðri.
S.d.Aðventistar.
Fyrsti söfnuður.
Opinbera samkomu heldurDavid
Östlund á sunnudag kl. 6V2 síðd. í
Samkomusalnum í Berg-
staðasiræti n o. 3.
Allir velkomnir.
Frá alþingi.
Neðri deild.
Fundur í gær kl. 12.
Dagskrá:
1. Frv. til laga um heimild fyrir
ráðherra íslands til þess að gera
samning um einkarjettarsölu á
steinolíu um tiltekið árabil; 1.
umræðá.
2. Frv. til laga um hagfræðisskýrsl-
ur um tóbaksinnflutning árið
1913; 1. umr.
3. Frv. til Iaga um viðauka við
toll-lög fyrir ísland 11. júlí 1911;
1. umr.
4. Frv. til Iaga um viðauka við
lög um útflutningsgjald af fiski,
lýsi o. fl. frá 4. nóvbr. 1881;
1. umr.
Áður til dagskrár kæmi ávarpaði
ráðherra deildina nokkrum orðum
út af stjórnarskrárfrv. síðasta þings.
Kvað það vera lagt fram eins og
þá var frá því gengið, en ekki sem
stjórnarfrv., vegna þess, að konung-
ur vildi eigi svo vera láta. Að vísu
hefði hann (ráðii.) haft von um að
lu'nn látni konungur, Fr. 8., mundi
fallast á frv., r.-cö því fororði, að
það hefði eigi þær afleiðingar, að
hætt yrði að bera lögin upp í rík-
isráðinu, en hinn núverandi kon-
ungur vildi eigi gera það, nema I
samtímis yrði ákveðið um ríkisrj. |
samb. landanna með samhlj. álykt- j
un alþingis og ríkisdagsins danska.
Þá var gengið til dagskrár, og 1
mælti ráðh. nokkur orð um hvert
frv. Kvaðst leggja þau fyrir þingið
eins og fjármálanefndin hefði frá
þeim gengið og vænti þess, að þau
yrðu athuguð af nefndum. Um
steinolíuna gat hann þess, að á
henni væri því nær einokun nú
þegar.
1. málinu var vísað til 7 manna
nefndar og í hana kosnir með hlutf.
kosn:
H. Hafstein
Pjetur Jónsson /
L. H. Bjarnason
Eggert Pálsson
Valtýr Guðmundsson
Björn Kristjánsson
Bj. Jónsson frá Vogi.
2. málinu vísað til 5 manna
nefndar, og í hana kosnir, sömul.
með hlutf. kosn.:
Guðl. Guðmundsson
Halld. Steinssen
Þorl. Jónsson
St. Stefánsson (Eyf.)
Jóh. Jóhannesson
3. málinu vísað til sömu nefndar
og því 1.
Um 4. málið urðu nokkrar um-
ræður.
Guðl. Guðm. kvað það ekki svo
margbrotið, að setja þyrfti í nefnd,
en það gæti orðið til dráttar á mál-
inu, sem bakaði landinu skaða, með
þvf að þá þegar mundi hefjast
allmikill útflutningur á þessum af-
urðum, en sanngjarnt væri, að sama
gengi yfir þær og aðrar þeim líkar.
L. H. B. vildi nefnd, með því
að málið væri lítt skýrt. Óttaðist
ekki drátt, því að bæði geti nefnd
flýtt sjer, og svo mætti Iáta lögin
ná fyrir sig fram, þótt óyndisúrræði
væri. Slíkt hefði verið gjört 1911.
Valt. Guðm. áleit frv. athugavert
og fara í öfuga átt, eins og önnur
slík, er tolla afurðir landsins sjálfs.
Hjer væri um nýjan atvinnuveg að
ræða, sem ekki mætti kyrkja, nje
fæla aðra frá að fitja upp á öðru
þvílíku.
Guðl. Guðm. kvað seint að sjá
það nú, eftir liðug 30 ár, ef stefn-
an væri öfug. Utlendir menn eigi
þessar verksmiðjur, þótt íslenskar
heiti, og þeir muni ekki fælast við
þetta. Miklu fremur mundi verða
brosaö að oss, ef vjer hefðum eigi
II. M. F. Iðunn og
U. M. F. Eeykjavíkur
fara skemtiferð upp að Elliðavatni Sunnudaginn þ. 21. þ. m.
Lagt verður af stað kl. 9. árd. frá Norðurpólnum.
Lúðrafjelagið »Harpa« skemtir í förinni.
vit á að hagnýta þetta, þar sem líka
hvalafurðirnar sjeu í rjenun, en
þessi útflutningur muni nema þús-
undum smálesta.
Málinu var vísað til nefndarinnar
í 1. málinu.
Dagskráin í dag .
í n. d. kl. 12:
Færsla þingtímans.
Símakerfin.
Vestmanneyja-símakaup.
Alt 1. umræða.
/ e. d. kl. 1:
Skipaöryggi,-
Þilskipaeftirlit.
Sjómannavátrygging.
Siglingalög.
Sameinað ping kl. 5.
1. Vestur-ísafj. kosningin.
utlówdum.
Verkfall hafnarverkmanna í
London helst enn og sverfur þó
mjög að verkmönnum. í austur
hluta Londou deyja margir úr
hungri. Okurkarlar hættir að veita
lán, jafnvel þeim er nokkuð hafa
að veði að láta. Börn hafa verið
borin tilskírnarí umbúðapappír, því
engir aurar eru til að kaupa fyrir
skírnarkjólinn. Vandræðin oghung-
ursneyðin vex daglega og jafnvel í
London hefur aldrei áður slík eymd
sjest meðal fátæklinganna.
Tukfhúslimur einn slapp út
í Wight-ey, braust inn í hús yfir-
valds eyjarskeggja, tneð járnkail f
hendi, stórskemdi silfur-borðbúnað,
mölvaði alt og bramlaði og eyði-
lagði veggmyndir. Eftir harðan bar-
daga tókst að drasla honum út og
setja hann aftur í »steininn«.
Loftfarið Akron, sem Mel-
ville Vaniman ætlaði í haust að fara
í um Atlantshaf, fórst, sprakk á lofti
í þúsund feta hæð við borgina
Atlantic í New Jersey f Banda-
ríkjunum 2. þ. m. Á farinu voru
Vaniman og bróðir hans og 3
menn aðrir. Þrjár þúsundir rnanna
og þar á meðal kona Vanimanns
horfðu á slysið, — fjekk frúin yfir-
lið, er gasbelgurinn mikli stóð í
ljósum loga og loftfarið tók að
falla. Var ægilegt að sjá er eldur
brennandi ljek um alt skipið og
gulan reykjarmökkinn lagði fyrir
vindi yfir borgina. Skipið hring-
snerist í lofti á fleygiferð til jarðar
og fjell í vatn þar við borgina.
Vjelabátar fóru þegar út til að
bjarga, en náðu aðeins einu líkinu,
þrjú sukku til botns með loftfar-
inu, en áður hafði einn maður kast-
ast útbyrðis í háa lofti og fallið í
vatnið, og auðvitað biðið bana.
Upphlaup í Albaniu gegn
Tyrkjum hefur grafið um sig svo
mjög, að mælt er að Tyrkir muni
nú kjósa frið við ítali til þess að
komast hjá að stórveldin blandi sjer
í málin. — Milli Grikkja og tyrkn-
eska setuliðsins á Samos-ey hafa
verið skærur og búist við upphlaupi.
— Abdúlla Pasha, varðforingi í
Smyrna hefur verið settur af, en
neitað að fara frá. í Saloníkihafa
hafa og verið óeirðir og uppreistar-
hugur allmikill gegn Ung-Tyrkj-
um.
í Tripoiis gengur hvorki nje
rekur, stórsóttir og sjúkdómar gera
usla í her ítala, svo öll sjúkraskýli
hersins eru full. '—
Sendiherra ítala í Berlfn, Panza,
hefur að sögn látið uppi friðarskil-.
málana af ítala hálfu og eru þeir
þessir:
ítalir eru fúsir að kveðja heim
herinn frá eyjunum í Egeifshafi,
ef Tyrkir taka aftur her sinn heim
frá Tripolis. Af því stríðið hefur
kostað ítali stórfje, fái Tyrkir eng-
an herkostnað hjá þeim, en fúsir
sjeu þeir með sjerstökum skilyrð-
um að viðurkenna soldán sem and-
legan yfirdrotnanda í Tripolis og
Kyrenaika. Loks heimta ítalir ey
nokkra í Egeifshafi til þess að setja
á kolabirgðir.