Vísir - 19.07.1912, Qupperneq 4
V I S I R
Skrifstörf.
Maður, sem er vanur skrifstofustörfum á verslunarskrifstofum og
hefur unnið svo árum skiftir á sýslumanns og bæarfógeta skrifstofu, og
hefur meðmæli merkra manna, óskar eftir atvinnu við skrifstörf nú
þegar.
Ritstjóri vísar á.
Verslunarstjett Galveston er fyrir-
mynd í Vesturheimi, — þar eru
frábærlega hagsýnir og duglegir
auðmenn, er oft hafa sýnt afbragðs
fjármálavit þegar örðugleikar koma
í ljós á markaðinum.
Borgarstjórn er þar ólík því sem
annars tíðkast í Vesturheimi. Þar
er borgarstjóri og fjórir ráðsmenn
sem stýra hver sínu starfi: fjármál-
efnum, vatnsleiðslumálum, vegamál-
um og brunarnálum og hefur bæj-
arstjórn þessi alræðisvald í Galves-
ton. Alt stefnir að því að gera
borgina aðsetur auðæfa og vel-
gengni og styðja hana öflugt í sam-
keppninni.
Galveston er mjög holl og hrein-
Ieg borg. Þar hafa ekki áórsóttir
gengið í manna minnum. »Gu)a
sýkin« er þar í frásögur færð frá
liðnum tímum, en nú óþekt þar.
Og á sumrin streyma auðkýfingar
Vesturheims þangað hópum saman
í Galvez-gistihúsið, sem er skraut-
Iegt mjög með 5—6 þúsund her-
bergjum; alt er þar afskaplega dýrt,
en þar eru öll þægindi að fá, sem
Vesturheims baðvistarstaðirnir einir
geta veitt. Þar eru litlu Vesturheims-
meyjarnarj laglegu í ljósum sumar-
kjólum á gangi um sandana, sem
bárur flóans brotna á og þarna
baða þær fögru fæturna í volgu
saltvatninu, en ungu prúðmennin
hvísla þeim faguryrði í eyru milli
þess sem rþeir lesa síðustu sím-
fregnirnar um verðlagið á baðmull
og hveiti.
Margir Norðmenn eiga heima í
Galveston. Sumir þeirra eru nafn-
kunnir starfsýslumenn. Einn þeirra,
Dalson að nafni, er meðeigandi í
stóru útflutningsfjelagi, er hefur
stofnað sjerstaka söludeild fyrir
ostruskeljar. Þessar skeljar eru ágæt
verslunarvara og eru þær muldar í
járnbrautapalla og götur. Þeim er
náð með til þess gerðum áhöldum,
er skafa botninn milli sandrifjanna,
en þar er aragrúi slíkra skelja.
Þar er fjöldi norskra daglauna-
manna einkum við baðmullarútskip-
unina. Þeir fá hátt kaup: kr. 1,50
um tímann og kr. 3,00 fyrir auka-
vinnu. Launin eru að vfsu góð,
en vinnan er líka ströng. Og ekki
aðrir teknir en úrvals fólk.
Annars eru svertingjarnir þar
hættulegir keppinautar. Þeir hafa
lægri laun en hvítir menn, en hafa
þó betri kjör en bræður þeirra ann-
arstaðar í ríkjunum. Svertingjar í
Galveston geta sjer góðan orðstír;
þeir eru stærri og sterkari en frænd-
ur þeirra í New Orleans. Niðurl.
Almennur kvennafundur
verður haldinn í Bárubúð föstudag-
inn 19. júlí kl. 9 e. h.
Fundarefni: stjórnarskrármálið o. fl.
Koniir! fjölmennið!
Kvenrjettindafjel. íslands i Rvík.
Líkkisturnar
viðurkendu, ódýru, fást
ávalt tilbúnar á Hveríis-
ötu gó.—Sími 93.—HELGl og EINAR,
>
Ur bænum.
Kvenrjettindafjelagið. Eins og
sjest á auglýsingu hjer í blaðinu
ætlar það að halda fund um Stjórnar-
skrármálið í kvöld. Þykir konum
ekki byrlega blása um rjettindi sín
ef stjórnarskrármálið á að fá að
eiga sig á þessu þingi. Frjettst
hefur, að konur og stúlkur ætli að
fjölmenna á fundinum og er það
vel farið að konur sofa ekki og
taka því ekki með þökkum að stjórn-
arskrármálinu sje stungið svefnþorn
þegjandi og hljóðalaust.
2 stúlkur og 1 maður geta fengið
atvinnu á morgun í Vöruhúsinu.
1 stofa óskast nú þegar í mið
bænum eða grend. R. v. á.
Stofa með húsgögnum óskast
til leigu. H. Överaas, Hotel Island.
TAPAD-FUNDIÐ
Peningabudda fundin í búð.
Má vitja í búð Sturlu Jónssonar.
KAUPSKAPUR
TAÐA
verður seld í dag síðd. við bæjar-
bryggjuna með góðu verði.
Lúther Lárusson.
Þing’Yísur.
Það er orðin tíska á þinginu hjer
að þingvísur sjeu samdar. Þærkrydda
þetta afar bragðdaufa löggjafarstarf,
og varla verður sagt, að þing sje
byrjað, fyr en þingvísurnar fara að
koma á gang. Þær koma brosi á
varirnar, meðan ýsurnar eru dregnar.
Fyrsta þingvísan í ár fannst á
Krínglu* í gær, og er hún svona
með öllu tilheyrandi:
Þakkarfórn fyrir föðurlandið
til » Guðs í Görðum«.
Nú leysist alt bráðum úr læðing,
því liðna í vasann jeg sting.
Guð blessi nú uppkast og bræðing,
því bragðið er hreinasta þing.
*) Svo heitir kaffihús (á máli Guðm,
Hannessonar: »letigarður<-) alþingis.
fÍÍMÍSHÍNt
■ VERSLUNIN
| BJÖRN KRISTJÁNSSON
selur ódýrast
Vefnaðarvörur,
Pappír og Ritföng,
Málningarvöru,
Leður og Skinn,
Skóflur og þaksaum-
É Vandaðar vörur. Odýrar vörur.
1 VERSLUNIN
I BJÖRN KRISTJÁNSSON
émmmmmmmmmm®
Lárus Lárusson
IJtvegar karlmannafatatau og kápntau
með innkaupsverði að viðbættu flutnings-
gjaldi.
Sauðakjöt og slátur
fæst í dag og framvegis.
5 Laugaveg 5. \
M eru aftur kominn liin margeftirspurðu [
I
#*
*
stubbasirz aldrei eins falleg og nú.
Lárus Lárusson.
Útgefandi Einar Gunnarsson, cand. phil. — Östlunds-prentsmiðja.