Vísir - 22.10.1912, Page 1
430
23
Föt og Fataefni s7ílfSmeSI
úrval. Föt saumuð og afgieídd á_ 12-14 tímum
Hvergi ódýrari en í ,DAGSBBÚN‘. Sími 142.
Kemur venjul.út alla daga nema laugard,
Afgr.í suðurenda á Hótel ísl. ll-3og4-6.
25 blöð frá 26. sept. kosta: Á skrifst.: a,
Send út um !and 60 au. — Einst. biöð 3 a.
Skrifstofa í Pcsthússtræti 14A. Venju
lega opin kl. 2—4 og 6—8 .
Langbesti augl.staður í bænum. Augl
sje skilaö fyrir kl.3 daginn fyiir birtingu-
Þriðjud. 22. okt. 1912.
Háflóð kl. 2,54‘ árd. og kl. 3,12‘síðd.
Háfjara hjer um bil 6 st. 12' síðar.
Afmœli.
Frú Helga Thorsteinsson.
Guðmundur Ólsen, kaupmaður.
Sig. Cuðmundsson, afgreiðslumaður.
Hermann Jónasson, fv. alþm.
Fyrirlestrar í háskólanum.
Dr. B. 1M. Ólsen: Bókmentasaga íslend.
inga kl, 5—6.
JónJónsson, dócent: Saga fsl. kl. 7-8.
Á morgun.
Pðstar.
Sterling fér til Kaupmannahafnar
Sunnanpóstur kemur.
Álftanespóstur kemur og fer.
Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer.
Veðrátta í dag.
Loftvog r '< 16 a J= TJ G > i Veðurlag i
Vestm.e. 747,0 6,6 A 9 Regn
Rvík. 744,7 5,5 SA 4 Regn
ísaf. 748,0 4,5 A 4 Alsk.
Akureyri 749,7 1,0 0 Hálfsk.
Grímsst. 715,0 0,5 SA 6 Ljettsk.
Seyðisf. 755,2 1,8 ANA 2 Skýað
Þórshöfn 753,5 8,1 ANA 2 Alsk.
Skýringar.
N—norð-eða norðati, A—aust-eða
austan, S—suð- eða sunnan, V—vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þann-
ig: 0—logn,l—andvari,2—kul, 3—
gola, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6—
stinningskaldi,7—snarpur vindur,8—
hvassviðri,9—stormur.10—rok, 11 —
ofsaveður, 12—fárviðri.
Kuldi táknaöur með skáletri.
lu, ódýru, fást
ínaráHverfis'
il og EINAR-
Líkkisturnar Sí£
götu 6.—Sími 93,—HELC
roTlIBV IWI ggaaaá TOrrygar
IHjermeð tilkynnist vinum
vandamönnum, að dóttir
systir okkar elskuleg, Jóri- |
ína Margrjet Guðbrandsdóttir, |
andaðistá Landakotsspítalanum p
16. þ. m. Jarðarför hennar er |
ákveðin miðvikudaginn 23. þ. I
m. Hefst kl. 11 y2 árd. frá spít- 1
alanum og til Fríkirkjunnar. 1
Móðirog systkini hinnar látnu. 1
Vakningasamkomurnar
í Hjálpræðishernum halda áfram
í kvöld kl 31/2.
Br. Hjörtur Frederiksen talar.
Miðarnir veita aðgöngu.
jrrá utlöwdum,
Nýustu frjettir
af ófriðnum.
London 15. okt. 1912.
Innrás í Serhíu.
Tyrkir hafa sent um 3000 her-
menn inrf í Serbíu og hafa þeir
barist við lið Serba skamt frá land-
amærum. Skothríð hefur heyrst
heilan dag og þykjast Serbar hafa
rekið Tyrki af höndum sjer, en
óvíst hvort það er rjett hermt.
NYKOMIÐ
í verslun
ÁRNA EIRÍKSSONAR,
AUSTURSTRÆTI 6?
Miklar byrgðir af : Flúneiuum,
Tvisftauum,
Ljereftum,
Loðhúfum,
Vetrarsjölum,
Dömukiseðum,
Moiskinnum og fjölmargt fleira.
Allt með|hinu alþekta lága veröi og viðurkendu gæðum.
Vinnin«yíírnit* frá siðustu viku útsölunnar þ. 14—19. þ. m. eru aug
v íiiiiuijgcH iiai jýst|r hjer j f,|agjnu j {jag a öðrum stað.
Skærur á landamærum
Búlgaríu.
Á mánudaginn var rjeðust 500
Tyrkir a búlgarska hermenn í Tam-
rosch við landamæri Búlgarfu.
Búlgarar ljetu undan síga við
lítið manntjón.
Viðureign Grikkja og
Tyrkja.
Pingmenn Krítar hafa fengið frjáls
an aðgang að þingi Grikkja, og
höföu Tyrkir margsinnis tjáð Grikkj-
um, að þeir virtu það til fulls fjand-
skapar og friðslita, með því að Kn't
væri hluti tyrkneska ríkisins.
IJeir tóku þá nokkur kaupför af
Grikkjum til hefnda. Grikkir hafa
krafist þess að skipin yrði laus látin,
en enga áheyrn fengið.
Nú eru 130 þúsund Grikkja þegar
undir vopnnm og búist við 40 þús-
undum í viðbót. Þar af eru margir
sjálfboðar.
Sögur ganga um morð kristinna
Grikkja í Albaníu, og hafa þær kveikt
vígahug meðal almennings á Grikk-
landi, svo að rnargir sjálfboðar ganga
óðfúsir í ófriðinn til hefnda.
Svartfellingar
berja á Tyrkjum í jötunmdði og
verður vel ágengt. Hafa þeir náð
átta fallbyssum af Tyrkjum, fjórum
gunnfánum og allmiklum þerbúnaði
öðrum. Telja þeir fallið af Tyrkjum
hátt á sjöunda hundrað manna, en
sjáifir kveðast þeir eigi hafa mist
nema háift annað hundrað manns.
Stórveldin
hafa að minnsta kosti þóst vilja koma
sættum á, en ekkert orðið ágengt.
• aj ta\\d\
Umferð um Kolviðarli'1-
Sigurður bóndi Daníelsson á Kol
viðarhól heldur skýrslu um umferð
þar og byrjaði hann á henni l. júní
síðastl. Áður hjelt hann skýrslu um
næturgesti og heldur hann henni
enn. Þessar skýrslur eru einkar fróð-
egar, og því birtur hjer úrdráttur
úr þeim.
Ríðandi tnenn
í júní 2378
- júlí 1875
- ágúst 645
- sept. 1379
- okt., til 16. 1567
Ftcstir ríðandi menn fóru um 23.
júní. Þeir voru 251 að tölu.
Gangandi og hjólandi menn.
í júní 53
- júlf 57
- ágúst 107
- sept. 45
- okt., til 16. 25
Flestir voru þeir 10. ágúst, 10
að tölu.
Akandi menn
menn fólksvagn;
í júní 443 79
- júlí 669 122
- ágúst 381 66
- sept. 724 98
- okt., til 16. 195 22
Flestir voru 2. júlí, ~7\ að tölu
á 11 vögnum.
i
Ur bænum
738 pd. uterling fjekk Halldór
skipstj. Þorsteinsson fyrir afla sinn,
er hann fór með á »Skúla Fógeta*
nýlega til Grimsby og seldi þar.
Botnia kom hingað í gærdag;
með henni komu Ólafsen ræðism.,
Karl Einarsson, sýslumaður, Braun
kaupm. og eitthvað fleira af fóíki.
»Vísir« seldist óvenjulega vel á
sunnudaginn var (þó salan sje ætíð
góð og varla komi fyrir, að lág-
mark nokkurs mánaðar sje ekki yfir
M-marki því, sem »Dagblaðið«
sál. seldist). Af því að ekki var
von neinna mikilvægra fregna að
því sinni, var ekki auðráðið, hvern-
ig á svona mikilli sölu stóð — en
í gærkveldi var gátau • leyst.
Það frjettist sem sje þá, að hinn
tryggi styrktarmaður »Vísis«, J. Ó.
(fv. J. Ól.), hefði farið í pontuna í
sínu fv. sannsöglis-málgagni á laug-
ardaginn og liaft fyrir texta litla
auglýsingu, er staðið hafði í Vísi
þá fyrir hálfri annari viku.
J. Ó. er gamall prestur (Únítara-
prestur) og er því fimurað úískýra,
þó textinn sje nokkuð erfiður, og
þá er ekki að spyrja að inælsk-
unni, þegar hann er búinn að snúa
svo út úr textanum, að hann er
koniinn inn á efni, sem hann er
alla vega þvældur í, hefur meðal
annars skrifað um í »Fjallkonunni«
eitt sinn af andagift mikilli,þó vind-
urinn kæmi þá úr öfugri átt.
Allar sínar óskir innibindur hann
svo í þeirri aðalósk sinni, að heim-
ilisfeður sjái um, að »Vísir« komi
ekki inn fyrir húsdyr í neinu heið-
virðu (sic!) Inísi.«
Það eru slíkar bænir og fyrir-
bænir, sem »Vísir« getur aldrei
fullþakkað sínum trygga styrktar-
manni.