Vísir - 04.12.1912, Síða 4
V í S I R
-<aa
væri fyrir því, að Monberg vildi
nota liana, og eigi væri hægt að
skylda hann tii þess; einnig væri
mál þettað eigi vel undirbúið, út-
gerðarmannafjelagið ekki spurt að
því, hvort það vildi nota skrifstof-
una.
G ðrún Lárusdóttir sagðist hafa
komið með þá breytingartillögu, að
hækka hinr áætlaða styrk til barna-
lesstofunnai úr 150 kr. upp í 200
kr. Hún k/aðst vera þeirrar skoð-
unar að lesstofan gerði talsvert
gagn fyrir fátæk börn, enda væri
það eingöngu bau, sent notuðu
hana, þareð hjá rnörgum efnalitlum
væri lítið um húsakynni, þar af
leiðandi hefðu börn þeirra lítið
næði til að lesa heima það, sem
þau þyrftu að læra til þess að
hafa gagn af kenslunni í barna-
skólanum. Fyrir þessi börn hefði
»Lestrarfjelag kvenna* sett á stofn
lesstofuna, og væri hún talsvert
notuð, því þar sætu oft um 30
börn við lestur. Tihagið, sem þau
greiddu fyrir að nota hana, væri
10 aurar fyrir hvert á mánuði, og
gætu allir sjeð að það væru ónóg-
ar tekjur til að borga húsaleigu,
eldivið, til Ijósa o. s. frv. Þar sem
þettað mætíi álítast gjört í þarfir
bæarfjelagsins, kvaðst hún vonast
til að bæarfulltrúarnir samþyktu
breytingartihögu sína, þar sem ekki
væri um stærri fjárupphæð að ræða.
Sveinn Björnsson kvað það
hyggilegt hjá J. Þorlákssyni, að
vilja spara, hitt væri annað, hversu
heppilegt það væri, þar sem vöxt-
ur bæarins hlyti að hafa það í för
með sjer að gjöidin hækkuðu, það
væri óhjákvæmilegt. Þess vegna
yrði líka aö hugsa um að auka
tekjuruar, og minti á það, að hann
hefði áður, undir 1. umræðu, bent
á veg til þess,
L. H. B.: »Það er ekki hægt að
gjöra nú, nema með auknum út-
svörum.*
Sv. Bj.: > Það er rjetí, en úr því
má bæta síðar.*
Hann sagði það lifla ástæðu
til að vera á móti ráðningar-
skrifstofu verkamanna, að halda
það, að Monberg mundi ekki nota
hana, það væri aftur á móti mjög
líklegt, að hann þæði með þakk-
læti leiðbeiningar þær, er skrifstofan
veitti honum til að fá verkamenn.
Skrifstofan gæti komið góðu til
leiðar fyrir bæinn, þar sem meiri
von væri fyrir því, að þeir menn,
er þyrftu vinnu, fengju hana.
(Niðurl. næst.)
Herðasjöl
mjög góð
og
ódýr
nýkomin.
Sturla Jónsson.
Útgefandi:
Einar Guunarsson, cand. phli.
Östlunds-prentsmiðja.
VINDLAR í
II 1
h,
& 'L kössum.
IVIeð innkaupsverðk
Seljast meðan byrgðir endast, í
VERSLUNINNI > S I F-,
Laugaveg 19, Talsími 339.
Botnvörpuskip til sölu.
Folio 1109 — 139 feta. — Byggour 1906. Lloyds-þrí-gangs vjelar 67
fullk. hestaöfl, 10 míiur á kl. tímanum með lítilli kolaeyðslu
Folio 1103. — 130 feta. — Byggcur 1911. Lloyds-þrí-gangs vjelar, 75
fullk. hestaöfl. 10 mílur á kl. tímanum með 6 tonna kola-
brúkun á sólarhringnum. — Hvalbak.
Folio 1078.—130 feta—Byggður 1904. Lloyd þrí-gangs vjelar 70 fullk.
hestöfl. 10V2 mílu á klt., 6 tonna kolabr á sólarhr. - Hval-
bak. Lágt verð.
Folio 1063. — 120 feta — Byggður við endir ársins 1901. Lloyds þri-
gangs vjelar. Árið ly08 voru vjelarnar teknar úr skipinu og
fullkomlega endurbættar — þá var einnig núverandi ketill,
sem var að mestu leyti nýr 1905, settur í skip.ð. Kostnaður
um 36. þús. krónur. Endurbótin með tillögðum Acetylen-Gas-
tækjum kostaði í heild sinni allt að 50 þús kr.
Folio 1073. — 100 feta — Byggður af járni 1891 til Lloyds, C. S. C
vjelar, 45 fullk. hestöfl. Nýr ketill innsettur við enda
ársins 1909, er þoldi 120. c. pda. n. þrýsting. Mikið nýtt
1911. Nýr skrúfuás 1909 Lágt verð.
Viðvíkjandi frekari upýsingum, uppdráttum o. s. frv.p
snúi iysthafendur sjer til Sharp Brothers, Baltic Chamers,
Newcastle-on-Tyne, sem hafa til sölu allskonar fisksibkv
Símnefni: »Speedy«, Nwecastle-on-Tyne. Scotts Code.
Það er
LIVERPOOL,
sem selur
fiskibollurnar
',íslensku.
Stofa fæst til leigu með hús-
gögnum, rúmi og hreingerningu.
R. v. á.
Góð stofa til leigu möbleruð, ef
vill, fæst á Vesturgötu 23.
L E I G A
Píanó fæst til leigu. R. v. á.
En Julegave
til Deres Kone!
En broderet Kakkelovnsskærm,
smukt indrammet, er til Salgs,
>Broderiet<
Norsk Vinterlandskab.
Prú M. Gruðnmndsson.
Laugaveg 52.
mr Nýmjólk
fæst allan daginn í glösum og
pottatali á Laugaveg 23.
Kristín Johnsen.
Eggert Claessen
Yfirrjettarmálaflutningsmaður
Pósthússtræti 17.
Venjulega heima kl. 10—11 og4—6
Talsími 16.
Jórunn Þórðardóttir,
Þingholtsstræti 31, sem er nýkom-
in frá útlöndum, tekur að sjer:
hárgreiðslu (Damefrisure)
og
hattasaum (Modepynt)
eftir nýustu tísku.
Lintau,
slifsi og slaufur,
stórt og vandað úrval,
selst mjög ódýrt.
Dóussow.
Takið eftir!
Sveitamaður spyr:
»Hvar get jeg fengið skaftnálina,
sem kvað vera auglýst í ísafold.*
Bæarmaður svarar: »Já það er
gripur, sem vert er um að tala. Hún
fer vel í vasa og með henni get-
urðu gert við beislið þitt eða ístaðs-
ólar ef bilar, það er ómetanlegt
þing í Iangferðnm.«
»Hana færðu hjá aðal-umboðs-
manni fyrir ísland»
Martin Haldorsen, kaupm.
Bergstaðastræti 38. Sími 337.
KAUPSKAPUR
Hænsnahús stórt fæstmeðgjaf-
verði. R.v.á,
Ofn lítill til sölu á Grettisg. 22.
Kartöflur og rófur eru til sölu
á Hæðarenda á Seltjarnarnesi.
Kæfa ágæt fæst fyrir 40 au. pd,,
á Vesturg. 24 uppi.
Barnarólur eru seldar á Lauga-
veg 46 B og ný kommóða.
Mór óskast í skiftum fyrir kol.
Fataskáp og skrifborð
hefi jeg verið beðinn að útvega.
Borgun strax.
Jóh Norðförð Bmkastræti 12
Legubekkur (chaiselongue) með
plyss-yfirdekki fæst nú þegar til
kaups, mjög ódýrt. R.v.á.
Grammofón alveg nýr, sjerstak-
lega góður með ca. 90 ágætum
plötum, fæst nú með hálfvirði. R.v.á.
TAPAD-FUNDiÐ
Skinnhanski brúnn tapaðist
milli Landsbankans og vesturbæar.
Skilist á Stýrim.stíg 10.
Stúlka þrifin, getur fengið vist
frá 1. jan. Matth. Þórðarson, forn-
menjav. Grettisg. 2.
Reglusamur maður, vanur skríf-
stofustörfum og sein korresponderar
á dönsku, óskar eftir atvinnu við
skrifstofustörf núna strax eða frá
næstu áramótum. Ágæt meðmæli.
R.v.á.