Vísir - 16.05.1913, Page 1
609
24
Ostai ^ bestir oy- ócíýrastír i versiun - Einars Árnasarar. ! i <4 < 1- I 1 Fæðingardagar. | j Besta afmælisgjöfin, fæst á afgreiðslu jj j: VÍSÍS.
Kemur venjul.út alla daga nema laugard.
.vígr.í Hafnarstræti 20. kl. 11-3og4-8,
25 blöð frá 18. apríl kosta áafgr,50 aura.
Send út uin land 50 au,— Einst. blöð 3 au.
Skrifstofa t Hafnarstræti 20. Venju-
lega opin kl. 2—4. Sími 400.
Langbesti augkstaður i bænuni. Augl.
sje skilað fyrir kl.3 dagitm tyiir birtingu.
Föstud. 16. maí 3913.
Háflóð kl.2,14 ‘árd.og kl.2,39 ,síðd.
Afmœli.
Frú Jórunn Norðmann.
Sjera Richard Torfason.
Á morguít:
Póstáœtlun.
Sterling fer til Austfjarða og út-
landa.
Vesta fer til Auslíjarða og út-
landa.
Flóra fer til Austfjarða og út-
lánda.
Ingólfur fer til Garðs.
Mafnarfjarðarpóstur kemur og fer.
Veðrátta í dag.
Loftvog '£ < IVindhraði Veðurlag
v'esmie. 758,1 4,5 N i Ljettsk.
Rvík. 759,5; 3,5 V 2 Skýað
ísaf. 759,9; 3,2 A 5 Alsk.
Akureyri 757,7 0,5 NNV 1 Hríð
Grímsst. 722,0 0,0 N i Hríð
Seyðisf. 754,9! 5,2 0 i<egn
Þórshöfn 757,6 8,2 VNV 2 Alsk.
N—-norð- eða norðan,A —aust-eða
austan, S—suð- eöa sunnan, V—vest-
eða vestan.
Vmdhæð er taiin í stigum jjann-
ig : 0—logn,l — andvari, 2—kul, 3 —
gola, 4—kaldi, 5—stinningsgoia, 6—-
siinningskaldi,7—snarpur vindur,8 —
hvassviðri,9 — stormur,10—rolc, 11 —
ofsaveður, 12—fárviðri.
Skátafjelag Reykjavíkur.
Æfing sunnudag ki. 11 r/2 stund-
vlsleSa- Stjórnin.
Síðustu forvöð.
Aðeins fáar stúlkur, sem vanar
eru fiskverkun, geta í uag og á
morgun sætt þeim góðu kjörum
sem jeg lief áður auglýst.
Kaupíð afarhátt.
Jón Árnason, Vesturg. 39,
. Freðýsa undan Jökli er til sölu
ÍL Klapparstíg 1.
L;íkkktiirníir viðurkendu, odýru.fást
^mmbiurnai ávalt tilbúnar á Hvertis-
kotu ó._Simi 93.—HELQl og EINAR,
LJr bænum
Vísir kemur út í fyrramálið kl. io.
Indriði Reinholt hefur skrifað
bæarstjórninni og tjáir sig hættan
við samninga við hana unt spor-
hrautina um bæinn.
Botnvörpuskip íslensk komu í
gær: Eggert Ólafsson með 50 þús.
°g Snorri Sturluson með 60 þús.
*-ögrjetta flytur þessa daga ná-
kvæma skýrslu um hin undaríegu
lyrirbrigði f pistilfirði, og hefur
hún góðfúslega leyft Vísi að taka
hana upp.
Vesta kom í gær norðan um
land frá útlöndum.
B'ðjið kaupmann yðar
Mm Pá Imasmjör!
Baearstjórnarfundur var haldinn
hjer í gærkveldi og stóð til kl. 12V4
Flóra fer hjeðan til Noregs
laugardaginn þ. 17. maí kl. 8 ár-
degis, kemur við í Vestmannaey-
um, Norðfirði, Seyðisfirði og
Færeýum.
um lágnætti. 17 mál voru á dag-
skrá öll afgreidd. Þar á meðal var
samþykt að láta læknadeild háskól-
ans fá 300 kr. styrk til húsaleigu
við ókeypis lækningar næstaár v*914)
að gjöra teikningu og kostnaðar-
áætlun um byggingu á stóru íbúðar-
húsi (er taki 30 heimili) fyrir hús-
næðislausa; að bjóða gamla spítala-
hús'ið opinberlega til sölu; að rífa
burtu slökkvitóla luí«ið gainla úr
Templarasundi fyrir 1 júlí í sumar
fl. o. f!.
Auk dagskrár málanna var lesin
upp tilkynning* frá Indriða Reinholt
að hann tjáði sig taka aftur umsókn
sína, að fá einkaleyfi til sporbrauta-
lagningarí bænum o. s. frv. Spunn-
ust út af því nokkrar umræður og
var auðheyrt á öllum þeim fulltrú-
um eru um það töluðu, að þeim
kom afturköllun þessi á óvart, ekki
síst þar sem engar ástæður voru
greindar fyrir henni og öllum hefði
verið það áhuganiál að samningar
tækjust með I. R. ogað sporbrautir
kæmust sem fyrst á í bænum.
Það virðist því að aðdróttanir
þær sjeu með öllu ósannar, er gengið
hafa manna á meðal í bænum og
jafnvel komist í blöðin, um óvilja
fulltrúanna f þessu máli, heldur hafi
I. R. hætt við alt saman eftir nánari
íhugun, svo ekki sje lakara til getið.
M, G.
Hvað vikublöðin segja.
ísafold (15.) Hvað sem öðru líð-
ur. (upphaf að stjórnmálagrein.)
Leikhúsið eftir Ego. Afreksverk stud-
entafjelagsins eftir Einar Hjörleifsson.
Drekkið Egilsmjöð og Malt-
extrakt frá innlendu ölgerð-
inni» AgHSkalIagrímssyni«.
Olið mœlir með sjer sjálft.
Sími 390.
Stóróifshvol í Hvolhreppi keypti
Rangárvallasýsla í fyrradag fyrir
14180,oo kr. Jörðinni fylgdu all-
ar hjáleigur og 12^2 kúgildi. Hún
var að nýu mati 74,3 hdr. að dýr-
leik.
Fífuhvamm, í Seltjarnarneshr,
með áhöfn hefur nýlega keypt
Kristján bóndi frá Gilstúni fyrir
14000,oo kr. Jörðin var að nýu
mati 17,4 hdr. að dýrleika.
Kristinn Daníelsson, prófastur
að Útskálum, er kosinn alþingis-
maður fyrir Gullbringu- og Kjósar-
sýslu og Hafnarfjörð. Hiaut hann
235 atkv. Aðrir frambjóðendur
voru Björn búfræðingur í Grafar-
holti er hlaut 100 atkv., og Þórður
Iæknir T/wroddsen er hlaut 65 athv.
25 seðlar voru dæmdir ógildir.
Skógræktardagur.
Um eða eftir aldarafmæli Jóns
Sigurðarsonar beittu Ungmennafje-
lögin hjer sjer fyrir skógræktardegi
í fyrsta sinni. Fyrir forgöngu þeirra
hefur hann verið haldinn síðan og
ætla þau að halda uppteknum hætti.
Áformið var og er það, að einn
dagur á ári verði — um alt land —
helgaður skóggræðslu, Undanfarin
ár hefur skógræktardagurinn verið
haldinn á virkum degi, en þátttaka
hefur ekki getað verið almenn vegna
þess, að atvkinurekendur hjer í bæ
hafa verið ófúsir á að veita vinnu-
liði sínu frí, þennan eina dag til
gróðursetningar trjáa. — Nú í vor
verður hann haldinn á helgidegi
seni sje næstkomandi sunnudag 1S.
maí. ef veður leyfir. — Gróðursett
verður að Vífilstöðum. —
Kl. 9 árd. verður lagt upp frá
Gróðrarstöðinni. Allir sem nokkur
ráð hafa iil að útvega sjer skóflu,
verða að hafa hana með þangað.
Óefað mun engan iðra þess, að
hafa eytt deginum til skóggræðslu;
og því ætti enginn, sem hefur tíma
og hentugleika — hvert heldur hann
er ungmennafjegi eða ekki — að
setja sig úr færi að taka þátt í skóg-
ræktardeginum.
I MagnúsSigurðsson
Yfirrjettarmálafutningsmaður.
Kirkustrceti 8.
Venjulega heima kl. 10—11.
Austur uð Lambafita-
gosi.
Ferðamolar eftir Magnús Ólafsson.
----- Frh.
Brátt fóru nú skinandi eldstólpar
að teygja sig upp fyrir Valahnúka
og var nú ferðinni hraðað sem
færð leyfði, en vikri þakinn snjór-
inn og hraun undir tafði ferðina.
Þó var nú brotist áfram ýmist ríð-
andi eða gangandi, en hugurinn
bar okkur hálfa léið, því logarnir
seyddu okkur að sjer og hugðum
við »gott til glóðarinnar«. Þegar
komið var inn yfir Valahnúka fór
eldurinn að skírast, en ennþá skygði
melalda á sjálf gosin. Við settum
okkur það markmið, að komast
upp á þessa öldu með hestana og
tókst það eítir nokkra stund (kl.
12 um lágnætti). Enginn gleyniir
alla sína æfi þeirri sjón jsem nú
blasti við okkur. Gígurinn hamað-
ist beint í austur, á að giska rúma
r/4 mílu fjariægð og þeytti 3 og
4 um eldgusum á víxl stanslaust
um 200 fet beint í loft upp (ystu
gosin lítið eitt skáhalt öðru hvorul.
Eldstólparnir báru í Hrafnabjörg
snæfi þakin og eldrauð af bjarm-
anum, en þar efra báru við eld-
þrungna næturhvelfinguna ferlegir
skyjabólstrar, sem enginn útsynn-
ingur getur sýnt, þeir liðu í loft
upp frá gosunum og breyttust í alls-
konar myndir. Þessar hreyfanlegu
kynjaverur teygðu úr sjer, lutu
fram eins og þær væru að líta yfir
fæðingarstað sinn, roðnuðu og
riðluðust inn í mökkinn míkla, er
»glóðþrunginn« lá yfir öllu eld-
svæðinu, en aðrar ófreskjur fædd-
ust og byltu sjer upp á við. Sjálf-
ur var gígurinn sjónum hulinn
bakvið svo kallaða Lambaöldu, en
ofan eftir öldunni þeim megin,
sem að okkur sneri, hrundi stór-
felt gulllitað og glóandi sindur
eins og brimlöður við björg í
breiðum straumum. Eldsvæði þetta
var áður grasgróinn flötur, er hjet
Lambafit, en var nú þakin rjúkandi
hrauni og einnig rymjandi hver-
um. Allstaðar glórði í smáelda eða
eldleðju hjer og hvar um svæðið
og norður frá eldgígnum eins
langt og augað eygði gaf að líta
ljósa röð mikla, sem stórborgar-
stræti og var það glóandi hraun
er virtist fylla farveg Helliskvíslar
á löngu svæði og gjörði það sitt
til, að nætursýn þessi heillaði mann
svo, að enginn er svo orðfær, að
fá því lýst til hlítar.
Jeg veit ekki hve lengi við stóð-
um sem steini lostnir þarna á
ölduhryggnum nieð hestana í
taumi. NI.