Vísir - 26.07.1913, Blaðsíða 2
Gouda
Edam
Mejeri
Mysu
ódýrastir í verslun
Jóns Zoega.
Rfleð næstu ferð kemur stórtúrval
af Pylsum og Ostum,
um morðið, dæmdir sekir og
teknir af lífi. Segi Helfinstein satt,
liefur því dómsmorð verið framið
á stúdentunum.
Conan Doyle,
enski læknirinn og leynilögreglu-
sagnaskáldið alkunna, er nú orðinn
hugvitsmaður á fleira, en að skapa
skarpleg snarræði í skáldsögum.
Hann hefur fundið upp nýa gerð á
hjólhestum; er þessi hjólhestur hans
sambland af venjulegum hjólhesti
og sjálfhreyfivjelar-reiðhjóli. Er hann
talinn einkarstöðugur, þar sem slæm
færð er. Hestur þessi fer geysihratt,
en svo hægt getur hann farið, að
auðveldlega má söfna yfir sögum
skáldsins á baki honum!
Kuldaiíð
hefur verið, það sem af er þessum
rnánuði, á Englandi eins og hjer.
Eftir því, sem »DaiIy MaiU skýrir
frá 12. þ. m., hefur veðrið þar ver-
ið úrkomusamt og líkara október-
veðráttu en júlíveðri. í Lundúna-
borg var lagt í ofna fyrrihluta mán-
aðarins.
Galdrairú og galdra-
brenna á vorum dögum.
Á Ítalíu er enn þá ómenguð hjá-
trú, alveg eins og á miðöldunum.
Fyrir skömm voru 4 bændur dregn-
ir fyrir lög og dóm í FLóretiz, sak-
aðir um að hafa ætlað að brenna
gamla konu fyrir galdur. Þeir þótt-
ust vissir um að hún væri versta
galdra-norn. Kerling hjet Faustina
Bulli. Hún var vanskapaður aum-
■nííi, og töldu bændurnir sannað að
hún hefði blindað stúlku þar í
sveitinni með fjölkyngi.
Faustínu hafði sem sje sinnast við
stúlkuna og hrópað til hennai
bræði sinni: »Guð svifti þig sjón-
inni!« En svo brá svo undarlega
og sorglega við, að stúlkan varð
steinblind skömmu seinna.
Þegar Faustína gekk fram hjá
bænum, þar sem stúlkan átti heima
einu sinni eftir það, rjeð faðir stúlk-
unnar á haha, og sagði henni að
leysa dóttur sína úr álögum. Og
blinda stúlkan orgaði á eftir henni
í heiftarhug, að hún hefði svift sig
sjóninni og yrði nú að gefa sjer
hana aftur. Faustína kvaðst alsaklaus
af þessum áburði. En fólkið vildi
ekki trúa henni og þrír bændur voru
kvaddir til aðstoðar að handsama
kerlu. Þeir vöfðu hana nú inn í
brekán og ætluðu að troða henni
inn í steikaraofn og brenna hana
til kaldra kola, þegar lögreglumann
bar þar að, sem hreif kerlu úr klóm
þeirra.
Heimska bændanna og fáfræði var
færð þeim til afsökunar á þessu
íllræðisverki fyrir rjettinum, og þeir
voru dæmdir hver um sig í 6 mán-
aða fangelsi; er það vel sloppið
Eftir
Y í g I R
Nýkomnar miklar byrgðir af Súkkulaði frá kr. 0,70 til lcr. 1,15.
Atsúkkuíaði margar tegundir. Einnig mikið af Konfekt og
Birjósfsykri. Keyktóbak, allskonar í dósum og pökkum. Munn-
tðbak (Mellem-, Smal- og Skipper-skraa. E. Nobel) í smáum og stórum
pökkum.
Vindlar og Vindlingar, ótal sortir, enskir og egypskir, og
ótal margt fleira, sem hvergi fæst eins ódýrt og gott. Allir, sem fara út
úr bænum sjer til gagns og skemtunar, ættu því að kaupa sjer tobaks-
og sælgætis-nestið á
LAUOAVEOI 5.
MARGARINE
á 0,48, 0,52 og 0,60 aura pundið.
Allir, sem reynt hafa, hrósa gæðunum. Reynið og þá munið þið sannfærast.
Verslun Jóns Zoega. — Bankasfræti 14.
ev tatsmanúmev-
^ons ?&oe$a.
Tll sðlu nú, og íbúðar 1. okt.
næstkomandi, er húsið nr. 71 við
Laugaveg. Semjið við
Sig. Pjetursson.
Skólavörðustíg 9-
>
Agætan
Yagnhest,
stóran og fallegan, vill
Jóci Zoega
selja. Ennfremur sterkan og
fallegan fjórhjólaðan
Lystivagn.
fyrir slíka fúlmensku. Saksóknari
konunnar hafði krafist þeim til handa
miklu harðari refsingar.
6000 ára gamalt trje.
Sýpresviður vex í kirkjugarði ein-
uin nálægt Mexíkóborg, sem talinn
er elstur alls þess,j er líf hefur á
jörðu. Vísindamenn ætla, að hann
sje ekki minna en 5—6000 ára
gamall, og þó ef til vill eldri. Þessi
merkilegi æruverði öldungur trjánna
hefur þá fyrst veriö frjóangi þegar
Menes konungur rjeði ríkjum á
Egyptalandi, nieð öðrum oröum,
hann er jafn gamall mannkynssög-
unni. Hann hefur verið ofurlítill
sýpres-angi, þegat Cheops konung-
ur ljet svipuna ríða um bak þræla
sirina, er slitu kröftum sínum við
pýramíðasmíðina, og á æskuskeiði,
þegar ísraelsbörn fóru um eyöi-
mörkina. Dr. v. Schrenk hefurmælt
hann nýlega, og var hann 126 fet
ummáls 4 fetum fyrir ofan jörð.
REYKTUB
LAX
ágætur
fæst hjá
IIC. BJAMASOI.
wpf
KaffihúsiO, !™„dgöu,f
52., Hafnarfirði, er flutt til Reykja-
víkur,
Þingholtsstræti 26.
Selur heitan mat allan daginn,
kaffi, öl og límonaði. — Einnig
fæði um Iengri og skemri tíma.
TTTT'
§W\t\Mt$-
v\M\n^uY\vm
ágæti er ennþá til á
Laugavegi 63.
Sömuleiðis nýkomið
Stumpasirs,
Kariöflur,
Ymiskonar niðursuða
o. m. fl.
••
Einar A rnórsson.
---- Frh.
Af því, sem nú hefur sagt verið,
sýnist ljóst, að heimilt hafi verið
að hafa blálivíta fánann í aftur-
stafni snekkjunnar, sem tekin var
hjer á Reykjavíkurhöfn fimtudags-
morguain 12. júní 1913. En af
því sýnist aftur leiða, að atferli
varðskipsins gagnvart snekkju-
manni og flaggi hans hafi eigi
verið löglegt. Hafi maðurinn
mátt lögum samkvæmt hafa blá-
hvíta fánann í afturstafni snekkju
sinnar, þá var það alveg óheimilt
að knýja hann til þess að láta
fána sinn af hendi og senda
han'n til lögreglustjóra, svo sem
það væri einhver sá hlutur, sem
glæpur eða afbrot hefði verið
framið með, og gera skyldi upp-
tækan samkvæmt almennum
hegningarlögum 25. júni 1869,
35. gr.
Lolcs er þess að geta, að
skipaskrásetningarlög 13. des.
1895, 2. gr., gera ráð fyrir því,
að skip geti átt hjer heima án
þess, að þeim sje heimilt að
hafa danskt flagg, enda þótt þau
væru svo stór, að þau væru
skrásetningarskyld. Þetta mætti
hugsa sjer, ef skipin væru hjer,
en fullnægðu eigi skilyrðum
laganna til þess, að hjer mætti
skrásetja þau, enda væru þau
eigi skrásett annarstaðar. Slík
skip mundu eigi hafa rjett til
þess, að nota neitt löggilt ríkis-
flagg. Og þeim yrði þess
vegna ekkert gert fyrir það út
af fyrir sig, þótt þau notuðu
einhver önnur merki.
2. Notkun fána á landi. Eng-
in þeirra ákvæða, er getið hefur
verið hjer*á undan, varða þetta
aíriði. Þau hníga öll að notkun
fána á skipum. Málefnið er því
alveg ólögákveðið. / Danmörku
banrTaði Kaneellíið með um-
burðarbrjefi sínu 7. jan. 1834 að
festa fána á hús. En Dómsmála-
ráðaneytið breytti þessu banni
þannig með umburðarbrjefi 2.
ág. 1854, að öllum skyldi þar í
landi heimilt að vinda upp Danne-
brogsfánann óklofinn, en eigi
önnur flögg. Hjer á landi gildir
ekkert slíkt bann sem í Dan-
mörku. Þó er auðvitað, að
óheimilt muni vera að vinda
upp fána annara ríkja1), svo og
einstökum mönnum konungs-
fána (»Splíttfiaggið og »Vimpla«,
veifur). Á húsum stjórnarinnar
og þeiin húsum, sem hún hefur
beinlínis forræði yfir, svo sem
stjórnarráðshúsinu, er, svo sem
kunnugt er, látinn blakta klofinn
fáni. Einstakir menn geta notað
kaupfánann danska á húsum sín-
um og á landi alment. En auk
þess verður þeim eigi að lög-
um meinað að nota önnur flögg,
ef þeir fara eigi út fyrir þau tak-
mörk, sem áður var getið. Frh.
1) Hjer eru auðvitað undanskildir
ræðismenn annara rikja, og ef til vill
þegnar þeirra, sem hjer eru búsettir
eða dvalfastir. Þeir hafa að minsta
kosti stundum leyft sjer að flagga með
I fána þess ríkis, er þeir tilheyrðu.