Vísir - 26.07.1913, Qupperneq 4
stóðu þar og ræddu ákaft sarnan,
en þegar Euvstiqui varð Kornei’s
var, skildu þau fljótlega.
Kornei bauð Kouzma að fá sjer
te með þeim. En áður en teið
kom, tók Kornei fram gjafir þær,
er hann haföi haft með sjer frá
Moskva. Móðir hans fjekk ullarsjal,
Fedka sonur hans myndabók, dauf-
dumbi frændi hans fjekk vesti og
konan hans efni í kjól.
Meðan þau drukku tetið sat
Kornei þegjandi og þungbrýnn;
það var að eins endrum og sinn-
um að hann brosti, er hann sá
gleði málleysingjans yfir vestinu;
hann var aö brjóta það saman á
alla vegu, fara í það, kyssa á fing-
ur að Kornei og hló svo um leið.
Frh.
Frá alþingi.
Skjöt, lögðfram á lesfrar-
sal alþingis.
A.
73. Hólmfríður Árnadóttir biður
um 800 kr. styrk fyrra árið
og 600 kr. seinna árið, til
kenslu. (Nd. 130.)
74. Hjálpræðisherinn sækir um
2000 kr. styrk til að koma
upp gistihæli og sjónianna-
heimili. (Nd. 131.)
75. Ásgeir Torfason, efnafræðing-
ur sækir um launahækkun. (Nd.
131.)
76. Sami fer fram á, að veittar
sjeu 1000 kr. á næsta fjár-
hagstímabili til áhahlakaupa
handa rannsóknarstofunnf. (Nd.
133.)
77. Erindi frá|Jóni prófasti Sveins-
syni og sex mönnum öðrum
um að Arnór Þorlákssyni verði
veitt viðurkenning fyrir jarða-
og húsabætur sínar á Hesti.
(N. d. 54).
78. Erindi frá Ásgeir Eyþórssyni
um að Ragnari syni hans veröi
veittur styrkur á næstu fjárlög-
um, til garðyrkjunáms (300 kr.
hvort árið). (N. d. 135).
79. Einar Helgason beiðist þess
að Sigmar Quttormssyni verði
veitturstyrkurtil garðyrkjunáms.
(N. d. 136).
80. Erindi frá Ólafi Gunnarssyni
lækni, þar sem hann býðst til
að ganga í þjónustu landsins
til að kenna við læknadeild
háskólans og starfrækja tilvon-
andi Röntgen-stofnun í Reykja-
vík. (N. d. 139).
81. Erindi frá Jóni landskjalaverði
Þorkelssyni um launahækkun
starfsmannaviðlandskjalasafnið.
(N. d. 140).
82. Þrír menn í Selvogi mótmæla
grein í ísafold eftir Th. Krabbe
og láta uppi það álit sitt, að
fyrirhuguð járnbraut ætti að
rjettu lagi að Iiggja um Sel-
voginn og Krísuvík; skora
þeir loks á alþingi, aö veita
nægilegt fje til að rannsaka
þá leið. (Nd. 142.)
83. Bæarstjórnin í Hafnarfiröi skor-
ar á alþingi að veita fje til
rannsóknar á járnbrautarstæði
V f S I R
yfir Hafnarfjörð, Krísuvík og
Selvog til Ölfuss. (Nd. 143.)
84. Ymsar málaleitanir frá sýslu-
nefnd Vestmannaeya'(fjárbeiðni-
ir o. fl.). (Nd. 144.)
85. Jónatan Jónsson, vitavöröur í
Vestmannaeyum, biður um
200 kr. launaviðbót á ári.
(Nd. 145.)
86. Erindi frá 53 kjósendum í
Rauðasandshreppi, um styrk
til vjelarbátsferða. (Nd. 146.)
87. Magnús Guðmundsson biður
um styrk til að fullkomna sig
í skipasmíði. (Nd. 147.)
88. Erindi frá þingmönnum Rang-
æinga um brú á Eystri-Rangá.
(Nd. 150.)
89. Cand. phil. Páll E. Ólafsson,
biður um 1800 kr. styrk á
ári til að semja skrá yfir hand-
ritasafn Landsbókasafnsins. (Nd.
152.)
90. Reynir Gíslason sækir um 800
kr. styrk árið 1914 til að
nema hljómfræði og hljóð-
færaslátt í hljómlistaskólanum
í Kaupmannahöfn. (Nd. 154.)
91. Erindi frá sambandsstjóra U.
M. F. I. um, að styrkur sá,
er ungmennafjelögin hafi notið
af landsfje, verði hækkaður upp
í 3000 kr. (Nd. 155.)
92. Hafsteinn Pjetursson sækirum
500 kr. ferðastyrk til að leita
sjer atvinnu. (Nd. 166.)
93. Steingr. Jónsson, stud. polyt.
sækir um 2000 kr. styrk til
að ljúka námi við »po!ytekn-
iska« skólann í Kaupmanna-
höfn. (Nd. 167.)
94. Bandalag tóbaksbindindisfje-
lags íslands, biður um 300 kr.
styrk úr landssj. hvort árið,
næsta fjárhagstímab. (Nd. 169.)
95. Sigríður Sigurðardóttir biður
um 400 kr. utanfararstyrk til
að Iæra hjúkrunarfræði. (N. d.
170).
96. Sophia Berthelsen biður um
800 kr. utanfararstyrk til þess
að fullkomna sig í yfirsetu-
kvennafræði. (N. d. 174).
97. Erindi frá Bjarna Jónssyni frá
Vogi um að alt að 4000 kr.
styrk til þess rð gefa út á þýsku
bók Einars háskólakennara Arn-
órssonar, er hann kallar »Rjett-
arstöðu Íslandsí' (N. d. 175).
Þingskjöl.
161. Nefndarál. um siglingalög.
162. Nefndarál. um prestssetra-
byggingalán.
163. Vatnsveitingar eftir 3. umr.
í n. d.
164. Nefndarál. um vörutoli.
165. Mannanöfn eftir 3. umr. í
e. d.
166. Bæarnöfn eftir 3. umr. í e. d.
Lög frá Alþingi.
I. Þá er skáldið Steingrímur
Thorsteinsson lætur af rektorsembætti
við hinn almenna mentaskóla, veit-
ist lionum í viðbót við lögmælt
eftirlaun kr. 1333,33 sem árleg heið-
urslaun.
Brúkaðir karlmanna-
fatnaðir,
hreinir og vel útlítandi, eru keyptir
og teknir til sölu á Laugaveg 50.
Östlundsprentsm.
innlendar og erlendar, PAPPÍR og RITFÖNG
kaupa menn í
BÓKAVERSLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR,
I Lækjargötu 2.
Botnvörpuskip til sölu.
Folio 1109.— 139 feta,—Byggður 1906. — Lloyds-þrígangs vjelar. 60
fullk. hestöfl, 10 mílur á kl. tímanum með lítilli kolaeyðslu.
Folio 1103. — 130 feta. — Byggður 1911. Lloyds-þrígangs-vjelar, 75
fullk. hestaöfl. 10 mílur á kl. tímanum með 6 tonna kola-
brúkun á sólarhringnum. — Hvalbak.
Folio 1078.— 130 feta—Byggður 1904. Lloyds þrígangsvjelar. 70fullk.
hestöfl. 10V2 mílu á klt., 6 tonna kolabr. á sólarhr,— Hval-
bak. Lágt verð.
Folio 1663.— 120 feta — Byggður við endir ársins 1901. Lloyds þrí-
gangs vjelar. Árið 1908 voru vjelarnar teknar úr skipinu og
fullkomlega endurbættar. — Þá var einnig núverandi ketill,
sem var að mestu leyti nýr 1905, settur í skipið. Kostnaður
um 36 þús. krónur. Endurbótin með tillögðum Acetylen-Gas-
tækjum kostaði í heild sinni allt að 50 þús. kr.
Folio 1073. — 100 feta — Byggður af járni 1891 til Lloyds, C. S. C.
vjelar, 45 fullk. hestöfl. Nýr ketill innsettur við enda
ársins 1909, er þoldi c. 120 pda. þrýsting. Mikiö nýtt
1911. Nýr skrúfuás 1909. Lágt verð.
Viðvíkjandi frekari upplýsingum, uppdráttum o.s.frv. snúi lysthafendur
sjer til Sharp Brothers, Baltic Chambers, New-Castle-on-Tyr»e,sem
hafa til sölu allskonar fiskiskip. Símnefni: New-CastIe-on-Tyne,Scott’s Code.
í útreiðartúra og
aðrar skemtiferðir
fá menn lang best og ódýrast í verslun Jóns Zoega: Niðursoðna
ávexfi, Lax, Tungur og Kjöt.
Ennfremur Vindla, Vindlinga og Tóbak.
Jóll Zoega, Bankastræfi 14.
Heilræði,
sem í hag koma,
Bjarni; Sæll, Árni minn! Þá
hittumst við aftur hjerna, hvað er
að frjetta síðan seinast? Ertu búinn
aö kaupa leirtauið í Kolasundi?
Árni: Já, jeg held nú það. Jeg
fór þangað strax í fyrradag, þegar
búðin var opnuð í fyrsta sinn, og j
út fór jeg ekki, fyr en jeg var
búinn að kaupa allt sem ætlaði
mjer að fá, af því tagí. — Já, því-
líkt leirtau, og þvílíkt verð. — Jeg
ræð þjer til að kaupa hvergi annar-
staðar, þegar þú ferð á stúfana
vinur.
Bjarni: Jeg heyri hvað þú segir.
Vertu blessaður!
^ KAUPSKAPUR
Barnavagn af bestu tegund, lítið
brúkaður, er til sölu í Ingólfsstr. 21.
Lundi fæst í dag og næstu daga
í Túngötu 6. Reittur 8 au., óreitt-
ur 12 au.
»Sm,oking«-föt, lítt brúkuð, til
sölu með tækifærisverði. Afgr. v. á.
Lítill ofn, sem hægt er að eida
á, rúmstæði fyrir 1 mann og
vönduð reiðföt handa litlum kven-
manni, til sölu með tækifærisverði
Afgr. v. á.
Fjallkonan 5.—13. árg., tilsölu
með góðu verði. Sömuleiðis »Frem«,
11. árg. Afgr. v. á.
»GamtneI-norsk Ordbok ved
Hœgstad og Torpt er til sölu. Sýnd
á afgr. Vísis.
Ágætur reiðhestur til sölu-
Afgr. v. á.
H Ú S N Æ DJ
2-3 herbergi og eldhús óskast
frá 1*. okt. fyrir barnlausa fjölskyldu.
Helst vestan við Miðbæ. Afgr. v. á.
Lítil íbúð. 2 lítil herbergi og
dhús eða 1 stórt óskast frá l.okt.
fgr. v. á.
Herbergi (með eða án hús-
agna) eru til leigu á Óðinsgötu 1.
3—4 samliggjandi sólrík +
herbergi og eldhús óskast til m
leigu frá 1. okt. í miö- eða f
vesturbænum. Tilboð, merkt A
»Húsnœði«, sendist afgreiöslu w
Vísis, sem allra fyrst.__J
gjTAPAP-FUNPIP jjg|
Peningabudda töpuð frá Lauga-
eg 33. að Vatnsstíg 10. Skilist á
augav. 33.
V I N N A
Maður,
sem er vel fær í reikningi, skrifar
góða hönd, skrifar og talar dönsku
og sænsku og skilur þýsku, óskar
atvinnu. Tilboð, merkt »X«, leggist
inn á afgreiðslu Vísis.
Útgefandi:
Einar Gunnarsson, cand. phil.