Vísir - 29.08.1913, Síða 1
716
6
§
gi
I
Ostar
bestir ug ódýrastir
í verslun
Einars Árnasonar.
p5 Rv
i Sfimnla Off ','tvev^|safflr- |
Sýnishorn
Stimpla og
Innsiglismerki
liggja frammi. S
Kemur út alla daga. — Sími 400.
Afgr.í Hafnarstræti 20, kl. 11-3 og 4-6.
25 biöð (frá 24. ág.) kosta á afgr, 50 aura.
Send út um land 60 au.— Einst. blöð 3 au.
Föstud.29. ágúst 1913.
^ Höfuðdagur.
Háf!óðkl.3,25‘árd. og kl. 3,50‘ síðd.
Afmœli.
Frú Magdalena Jósepsdótlir.
Ágúst Sædal, sfýrimaður.
Guðmundur Guðmundsson, Vega-
niótum.
Guðni. Þorkelsson, Pálshúsum.
p
A tnorgun:
Póstáœtlun.
lngólfur fer til Borgarness.
Vestan- og norðanpóstar fara.
Póstvagn fer ti! Þingvalla.
Hafnarfjárðarpóstur kemur og fer.
Veðrátta í dag:
Loítvog xt V lllUílId.Ul Veðurlag ,
Vesfme. Rvík. ísaf. Akureyri Grímsst. Seyðisf. Þórshöfn 757,3' 7,2 756,6' 7,5 755.7, 5,7 758,8| 3,0 720.8, 5,5 757,2, 5,5 760,8’ 9,5 i SA NA SA A VNV ) Skýað Alsk. 2 Alsk. 3 Skýað 3,Skýað 4 ’ Regn 1 jSkýað
O ' | Biografteater | ölOJ Reykjavíkur j Bíó
29., 30., 31. ág. og 1. sept.:
Sjónleikur í 3 þáíium,
leikinn af listfimustu leikurum
ítala.
Aðalhlutverkið leikið af
sorgleikasnillingnum mikla
Ernesto Zacconi.
Fögur, góð og áhrifamikil mynd
og stórkostlega fagurt
leiksvið.
Þetta er mynd, sem
menn munu viija sjá
hvað eftir annað.
Takið sjerstaklega eftir
hinum feikna mikla eldsvoða
í síðasta þætti.
Hin alþekta kvikmyndaverksmiðja
»Itala«, sem Gainla Bíó svo
oft sýnir myndir frá, liefur
hjer gert meistaraverk.
Áhorfendur horfa á myndina
gagnteknir af hinum afburðafagra
leik.
Sorgleikasnillingurinn Zacconi
hefur hjer reist sjer
ógleymanlegan minnisvarða.
Allir ættu að sjá þessa fádæma
fögru niynd, sem engan veginn |
stendur að baki allra bestu
mynda, sem almenningur hefur {
nokkurntíma sjeð.
í/1 WiQt ii Pn Qr’viðuikendu> ódýru,fást
ul-h-lvlblUl Udl ávait tilbunar á Hverhs-
götu 6.—Simi 93.—HELGI og F.INAk.
Gunnars Þorbjörnssonar
í Hafnarstræti
fæst til leigu frá 1. okt. næstk.
Skip brennur.
í fyrradag kviknaði í vjeiarúmi
mótorkúttarans Ágústs úr Reykjavík,
þar sem hann var á siglingu undan
Búlandshöfða á Breiðafirði.
Varð eldurinn brátt svo magnaður,
að ekkeit viðiit var að reyna að
slökkva hann, og björguðust menn
með naumindum heilir frá skipinu,
en urðu að láta eftir alt sitt dót.
Skipið gerði út Brillouin ræðism.
f^eðri deild
í gær.
6. Strandferðir 3. umr. Frmsm.
V. G.: Nefndin vill nú feila burt
þaö skilyrði,i að strandferðaskipin
sjeu samskonar aö farþega- og Iest-
a-rúmi og jafnörskreiö setn Vestri og
Austri/ Er það samkv. ósk bráða-
b.stjórnar Eimskipafjel. íslands. Fje-
iagið hugsar sjer nfl., og margir
telja hentugt, að skipin sjeu ekki
eins, t. d. annað sje mestmegnis fyrir
farþega en hitt til vöruflutninga. En
í þess stað ætlar nefndin landsstjórn-
inni að hafa hönd í bagga með
fjelaginu um gerð skipanna, lestarúm,
hraða o. s. frv. Ól. Br. vill láta
felia burt 2.—4. gr. frv., um að
iandssjóður taki að sjer útgerð strand-
ferðaskipanna, ef Eimsk.fjel ísi. ekki
tekur að sjer strandferðirnar. Nefndin
fellst ekki á þetta, því að mark-
mið frv. er að koma samgöngunum
á sjó í innleudar hendur.
Ól. Br. Jeg er ekki beint and-
vígur landssjóösútgerð, en er þó
tregur við. Tími er nægur að út-
kljá nrálið á þingi 1915, fyrst frv.
er ekkí ætlað að komasí í framkvæmd
fyr en 1916. Ef Eimskipafjei. ísl.
ekki tekur að sjer strandferðirnar,
sje jeg ekki betur en að vanti í frv.
skilyrði fyrir stjórnina um það, liví-
lík skipin skuli vera.
V. G.: Ól. Br. þarf ekki að óttast
frv., því hjer er aðeins um heimild-
arlög að ræða, svo að stjórniti get-
ur látið vera að leggja út í útgerð-
ina, ef henni þykir hún óráðleg.
Satt, sem ÓI. Br. sagði síðast, og
vil jeg því biðja forseta að fresta
frv. til morguns, til þess að þetta
verði lagað.
Frv. frestað til morguns.
(Meira frá Alþingi á öftustu síðu.)
Kveimaþing'ið og
ísland.
í Berlinske Tid. 10. þ. m. stendur
svohljóðandi grein:
»Á kvennaþinginu í Budapest bar
rnikið, sjerlega mikið á íslandi og
Skrifstofa í Hafnarstræti 20. (uppi),
opin kl. 12-3. Sími 400.
T
til lítils sóma fyrir Danmörk. í þing-
setningarræðu sinni nefndi Mrs.
Chapman Catts ísland fyrst og fremst
og skýrði frá því, að baráttau fyrir
kosuingarrjetli kvenna á íslandi hefði
aldrei beðið neinn ósigur iijá al-
þiugi, en að það liafi verið sam-
tvinnað öðrum málum og þess
vegna hafi því verið frestað, mál-
inu að vansalausu. Til þess að veita
' kvennþjóðiniú nokkra huggun og
uppreist fyrir þau vonbrigði, sem
þessi frestun hefði veriö þeim, þá
hafi sijórnin vcitt 2 fuiitrúum ferða-
styrk til þess að vera á þinginu í
Budapest. Með því að á hinu litla,
fátæka íslandi hafi ekki verið til
neinn sjóður, sem hægt hafi verið
að taka þetta fje af, hafi orðið að
draga það frá öðrum úfgjaldaliðum
og ísland fái fyrir bragðið einni
póstferð minna á næsta ári. Þessi
fórn, að þetta fjarlæga iand þannig
svifti sjálft sig því, að fá fregnir
frá umheiminum, virtist frú Catt
vera hið átakanlegasta dæmi um vel-
vild gagnvart kosningarrjetti kvenna,
sem nokkur stjórn hingað til hefði
sýnt. Frú Catt var hrærð og það
með rjettu: ísland er mjög lítið
land, en heimurinn þekkir enga
þjóð, sem er eins mikillát, hraust
og Iýðholl. Með þessum aðdáunar-
orðum var ísland kynt fuiltrúun-
um.
Þessir 2 fulltrúar, sem þannig
komu í staðinn fyrir eina milli-
landapóstferð, voru frú Bríet Ás-
mundsson og dóttir hennar, ungfrú
Laufey Ásmundsson. Hin síðar-
nefnda hafði orð fyrir þeim og
átíi þannig að skýra afstöðu íslands
gagnvart heimsménningunni og fuil-
trúaþinginu. Á fundi, sem var hald-
inn í Pester Lloyds-sahnun, og sem
mjög var fjölment á, taiaði svo
ungfrú L. Ásmundsson — á ensku.
Húnj er grannvaxin, ung stúlka,
bjarthærð, andlitið mjótt, drættirnir
minna dálítið á myndina af Jeanne
d’Arc eftir Chapu. Hún var dálítið
hrædd, en þessi hræðsla gerði hana
engan veginn’ klaufalega í framkomu,.
Iieldur þvert á móti varð húti há-
tíðiegri og tígulegri. Roði var í
kinnum og gráthljóð í röddinni og
augun tárvot. Hún var til að líta
eius og sorgargyðja, en æska, við-
kvæmni og hjálparleysi gerði orð
hennar meira heillandi: »Þegarjeg
heyrði, að jeg ætti að tala hjer,
varð jeg fyrst hrædd við að eiga
að koma fram meðal frægra kvenna,
en þó var jeg glöð yfir, að eiga
að tala einmitt fyrir yður, glöð af
því, að eiga að kynna yður mitt
litla land. Jeg verð að segja yður
frá þessu litla landi, einu af þeim
minstu í heiminum, heimkynni mínu,
Iangt, langt í norðri. Jeg á að færa
þinginu kveðju frá æskulýðnum þar.
En til þess að þjer getið skilið
æskulýð íslands, verð jeg að segja
ögn af sögu vorri og verð að grípa
Langbesti augl.staður í bænum. Augl,
sje skilað íyrirkl. 6 daginn fyrir birtingu.
iangt aftur í límann«. Þá byrjaði
ungfrú Laufey á Eiríki rauða og
drap síðan á helslu viðburði á næstu
öldum, þegar þessir hraustu afkom-
endur hinna traustu og frjálsu Norð-
manna lifðu frjálsu lífi á þœsari
og núkillátu klettaeyu í Atlantshaf-
inu, þangað til þeir 1487 voru yf-
irbugaðir af Dönum á ríkisárum
Margrjelar drotningar. Ognú, sagði
ungfrú Laufey með grátstaf í kverk-
unum, nú get jeg ekki sagt yður
hina löngu og sorglegu raunasögu
um öll vor óhöpp og auðmýkingar.
Danir tóku fje vort og gerðu ísland
að fátæku og snauðu landi, brendu
klaustur vor og kirkjur, viku hin-
um síðasta biskup vorum frá, vörp-
uðu bestu mönnum vorum í fang-
elsi og drápu þá. Hjer við bættist
óáran og fellir. Þúsundir fólks dóu
af sulti og orð geta ekki lýst, hvað
við urðum að þoia. Þangað til
loksins að hreyfingar 19. aldarinn-
innar náðu til okkar og oss tókst,
árið 1874, að losa fjármál vor und-
an Dönum. Síðan hefur oss smárn
saman þokað áfram. Ungfrú Laufey
sagði ennfremur frá því, að hún
væti sú fyrsta stúlka, sem hefði
notíð kenslu í æðri skóla og lauk
máli sínu með þessum orðum:
»Þetta er mín eina lífsreynsla.*
En jeg varð að þegja, því það
var harölega bannað öðrum en þeim,
sem fyrirfram var búið að ákvarða,
að taka tii máls. Jeg huggaði mig
með því, að menn, sem hefðu sjálf-
stæða hugsun, mundu vissulega taka
eftir og draga ályktanir af þessari
játningu ungfrú Laufeyar, að þetta
væri hennar »eina lífsreyuala«.
En mjer finst þó, að það sje ekki
ófróðlegt að sjá, hvernig komið sje
fram fyrir Danmerkur hönd af ís-
lendinga hálfu á alheims ulltrúa-
þingum.
Palline Bagger.
Grrænlandsför Xochs
höfnðsmanns.
----- Nl.
Þeir fóru nú um landið frá 6.
mars til 14. apríl. Bar þá enn slys
að höndum. Larsen nokkur hrap-
aði ofan af snjóhengju yfir árfar-
veg og marðist mjög á öðrum fæti.
Þó var hann nokkurnveginn heill
orðinn, er lagt var að fullu af stað
í aðalleiðangurinn yfir inniandsís-
inn, 1100 til 1200 kílómetra, þvert
yfir Grænland að vesturströndinni.
Sú ferð gekk ekki greitt. Fyrstu
40 dagana var gott veður í aðeins
2 daga. Þeir urðu að halda kyrru
fyrir í 12 daga vegna stórhríða og
urðu oft að vera á ferð í skafrenn-
ingi móti veðrinu í 12 metravind-
hraða. Hestarnir urðu snjóblindir
og gáfust upp, svo drepa varð 3 af
þessum 5. Suma kól mennina, en
ekki að ráði.