Vísir - 29.08.1913, Qupperneq 2
v I SIR
Bækur,
innlendar og erlendar, PAPPÍR og RITFÖNG,
kaupa nienn í
BÓKAVERSLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR,
Lækjargötu 2.
SÖNGSKEMTUN
heldur
Eggert Stefánsson
með aðstoð
»
frú Astu Einarsson
í Bárunni á sunnudag 31. ágúst kl. 9 e. m.
PBgT Aðgöngumlðar verða seldir í Bárunni frá kl. 10—12 og
frá kl. 2 e. m. og kosta kr. 1,50.
y.úsa^e\$usamt\vt\$a
“ aura eintakið.
selur D. Östlund. 5
Hundraðið 4 kr.
Um Mið-Græniand Iá leið þeirra ;
2500 til 3000 stikur fyrir ofan
sjáfarmái; loftþrýstingurinn gerði
þeim allmikinn óleik og sólsterkjan
á daginn ekki síður; þeir sól-
brunnu hroðalega í andliti og fengu
sár í framan, því á nóttunni var
frostið í júnímánuði að jafnaði ekki
minna en 30°. Svo fengu þeir
oft krampa þann, er norðurförum
er hætt við.
Sleðaferðin var örðug, færið ílt
og lá í snjónum, og loks var að
eins einn hestur eftir. Skár gekk,
er hjlla fór vestur af, Iengdust
þá dagieiðir og þeir höfðu von
um að koma þessum eina hesti
lifandi með sjer, er var þolgóður
og traustur með afbrigðum.
Þeir sáu auða jörð 2. júlí, en það
höfðu þeir ekki sjeð síðan 6. maí.
Hallinn varð mjög mikill, snar-
bratt niður að fara, hitinn óx, því
nú steyptu þeir sjer ofan úr vetri
hájöklanna niður í sumar strand-
lcndisins. En þá tóku við nýir
örðugleikar. Snjórinn bráðnaði, —
djúpar jökulár með afarháum
bökkum tengdu saman fjölda smá-
vatna. Þar varð ekki hesti við-
komið, nú urðu þeir sjer til mik-
illar sorgar að farga hestinum
góöa, er þeir höfðu haft með sjer
um 1000 rastir yfir hájökla og
heljarfirnindi, þegar ekki voru nema
10 kílómetrar til frjósamra strand-
beitilanda.
Nú þurftu þeir að komast yfir
Laxá eða Laxafjörðinn, en bátlaust
var það engin leið. Þeir bjuggu
þá til bát úr sleðanum og hvílu-
pokadúkunum. Hann báru þeir 20
rastir yfir fjöllin að Laxá,höfðu með
sjer matvæli til 5 daga, en hvorki
tjald nje hvílupoka og ekkert til að
skýla sjer í óveðrum, þótt á kynnu
að skella.
Síðasti áfanginn varð þeim erfið-
ur. Þeir fóru 11. júlí yfir Laxá
og hjeldu áfram ferðinni áleiðis til
Pröven. Þann 13. júlí náðu þeir
Kangeks-skaga, um 20 rastir
frá Pröven. Þar skall á þá þoka,
regn og hríð. Þeir gerðu sjer
skýli að Eskímóasið úr steini og
mosa og lágu þar veðurteptir og
matarlausir í 35 kl.tím. Þegar
veðrinu slotaði og birti í lofti 15.
júlí hjeldu þeir af stað, en nú voru
þeir að þrotum komnir af hungri,
kulda og bleytu, — þeir gátu ekki
brotist áfram fyrir þróttleysi um
óvegu í ófærðinni. Slátruðu þejr
nú hundi, er hafði fylgt þeim alla
leið, suðu kjötið og ætluðu að
taka til matar síns, er þeir sáu segl-
bát úti á firðinum fyrir austan
Pröven. Þeir hrópuðu, gáfu merki
með skotum og það hreif. Bátinn
átti Chemnitz prestur í Uppernivik,
lagði hann til, Iands og tók þá.
Fór prestur, sem.var á fermingar-
ferð, með þá til Þröven og fengu
þeir bestu viðtökur, sem þeiin var
ekki vanþörf á.
Vísindalegur árangur af för Kochs
virðist allmikill. Hjer skulu aðeins
birt aðalatriðin;
Honum hefur tekist að Ijúka við
uppdráttinn af hjeröðunum fyrir vest-
an Danmerkurhöfn, og sjerstaklega
hefur hann aukið talsvert þekking-
una á miðbiki Iandsins, staðháttum
5 herbergja
íbuð
móti sólu
er til leigu í Austurbænum.
Semjið við
G. Gíslason & Hay.
f BRENNI !
” til uppkveikju fæst hjá J
Timbur- og Kolaversl.,Reykjavik‘. ^
þess, gróðri og dýralífi. Uppdrátt
hefur hann gert af aðalhlutum Lovísu-
lands.
Þá hafa í för þessari verið gerð-
ar hitamælingar, sem virðast muni
bregða nýu Ijósi á ýmislegt í eðli
landsins, sem hingað til hefur verið
óþekkt, og sýnist sú þekking hafa
allmikla þýðingu fyrir jöklafræðina.
Þá eru hreyfingar og breytingar
skriðjöklanna hátt á norðurhjara
heims sýndar og skýrðar með fjölda
Ijósmynda.
Veðurfræðilegar athuganir eru
gerðarallmargar og með þeim lagður
grundvöllurinn að ritum um eyði-
merkurloftslag hájöklanna þar nyrðra.
Tekist hefur nú í fyrsta sinni aö
taka Ijósmyndir af hillingum eða
tíðbrá með sjerstakri kíkis-ljósmynda-
vjel, og norðurljósamyndir á kvik-
myndaplötur mjög nákvæmar eftir
aðferð Störmers prófessors.
Fjöldi mjög nákvæmra athugana
hefur verið gerður um geislasamdrátt
ljóssins í gufuhvolfinu. Á ferðinni
um innlandsisinn rannsökuðu þeir
nokkuð ljósbrot og ijósvarpsmegn
eða afturkast geislanna frá snjónum.
Þá hafa þeir og rannsakað »hvíta
regnbogann* svonefnda við alt að
34 V2 0 frost. (Hvíti regnboginn, sem
sannar það, að þokubakki myndast
af undirkældu vatni, en ekki af ís-
krystöllum, hefur aldrei fyrri verið
athugaður við meira frost en 22 #.
Þá er og tekinn mesti fjöldi ljós-
mynda og örsmárra rúmsjármynda
af hrímkrystöllum. Fuglaspor og
refa og fleira, er náttúrufræðislega
er markvert, hefur Koch athugað í
sjálfu miðbiki Grænlands, 4—500
rastir frá næsta landi.
Einkennilegt brjef.
Þingfararkaup, bitiingar
og iistir.
Einkennilegasta brjefið, sem jeg
hef fengið, barst mjer í gær.
Vill Vísir flytja það — eftir ósk
höf., og svar nieð dálítilli athuga-
semd, — að tilmælum mínum?
Reykjavík í ágúst 1913.
Herra Vigfús Guðmundsson.
Jeg legg fyrir yður þessarspurn-
ingar:
1. Er það satt, að alþingi í fyrra
hafi skaffað sjer og sínum mönn-
um 10 kr. um hvern dag í laun
fyrir að slæpast á götum borgar-
innar dag eftir dag?
2. Er það satt, að alþingi nú í sumar
hafi gefið aumingja fátæklingnum
og silfurbergsmanninum Guð-
muncli Jakobssyni — krónur sextán
hundruð handa strákunum sínum
til að skemta sjer fyrir í Kaup-
mannahöfn og fleiri löndum er-
lendis?
3. Væri ekki heppilegt, að alþingi
tæki þessar þúsundir króna, er
það ætlaði dauða rektornum, og
skifti þeim á milli Bjarna frá Vogi
og biskupsins?
Svo framariega, sem þjer eruð
vinur íslensku þjóðarinnar, þá kom-
ið þessum spursmálum á prent ann-
aöhvort í dag- eða viku-blað sem
allra fyrst.
Yðar með virðingu
Borgarbúi.
Svar.
Alþingi 1912 hækkaði daglaun
alþm. úr 6 kr. í 8 kr., meðan þeir
eru að heiman í alþingisferðunum,
og auk þess 2 kr. um hvern dag,
sem utanbæar alþm. dvelja í Reykja-
vík um þingtímann (húsaleiga og
fæði m. fl. dýrara þeim, er að koma).
Þá var um Ieið ferðakostnaðurinn
(hestar, fylgdarmaður — fargjald o.
fl.) fast ákveðinn fyrir hverja sýslu,
og jafnt livar í sýslu sem bústaður
þingm. er. Áður gerðu þingmenn
sjálfir ferðareikninga sína. Voru þeir
einatt misjafnir, eftir samviskusemi
manna, og oft nokkuð hærri en nú
er lögákveðið.
Festa ferðakostnaðarins er þá til
bóta, og til jafnaðar venjulega.
Hitt var — vægast sagt — cerið
óviðfeldið og gerræðislegt af þingm.,
að hækka daglaun sín svona alt í
einu, án þess það væri einu sinni
— svo jeg viti — hreyft á nokkr-
um þingmálafundi eða meðal kjós-
enda og gjaldenda til landssjóðs.
Annað mál er það, hvort hækk-
unin var alveg órjettmæt, eða kaup-
ið nú of hátt. Um það mun
sýnast sitt hverjum. |Sagt get jeg
fyrir mitt leyti, að jeg finn alls
ekkert til öfundar yfir því.
Þingm. þeir, sem úr sveitum koma,
fara flestir frá búum sínum og sumir
frá embættum. Þeir verða víst flest-
ir að setja valinn mann í sinn stað
yfir heimilið. Ráðsm. kostar valla
minna en 4—5 kr. á dag, og fæði
húsnæði (2 herbergi) og þjónusta
í minsta Iagi 2—3 kr. á dag. Er
þá eftir í daglaun þingm. 2—4 kr.
Það nær ekki sláttumanns-kaupi (með
fæði) að meðaltali. Og ekki þarf
að fara í miklum handaskolum
stjórnin á heimili þingm., eða muna
miklu á heyaflanum t. d., ef ekki
nemur það fleiri kr.
Að sjálfsögðu eiga þingm. aö
vinna vel og trúlega fyrir kaupi
sínu, en ekki »slæpast á götum bæ-
arins dag eftir dag«.
Að »slæpast dag eftir dag«, það
gera þingm. valla, a. m. k. ekki
aðrir en þeir, sem eru svo lítilsigld-
ir eða gálausir, að ekki þyki í nefnd-
ir kjósandi. Nú orðið, síðan hvert
smámál er nefndum falið, hlaöast
margskonar störf og gagnólíkustu
mál á alla nýta þingm. til umsagnar
og úrræða. Þeir verða því að hugsa
og lesa feiknin 611, og spyrjast fyrir
til að kynna sjer alla málavexti,
halda marga fundi sín á milli, semja
frumvörp, rita álit o. s. frv. Nálega
allur undirbúningur niálanna og til-
búningur laganna fer fram fyrir ut-
an þingsalinn. Og það er fyrir
utan þingsalina, sem mest reynir á
kosti þingm. og ókosti þeirra. Ræð-
urnar í þingsölunum og alþ. tíð.
sýna þjóðinni ekki nema brot af
því, hver þingmaðurinn er í raun
og veru þarfastur þjóðinni eða
óþarfastur. Sá, sem mest talaði í
þingsal, gæti vel verið mesti slæp-
ingurinn, og eins vel þvert á móti.
Enginn þingm. kemst hjá því,
að láta sjá sig á götum bæarins.
Og þeir, sem starfa af mesta kappi
aö lagasmíði, þurfa þess með, ekk-
ert sfður en aðrir, að rjetta sig upp
viö og við.
Fjárveitingin, 1600 kr., til Eggerts
og Þórarins Guðmundssona (en ekki
til Guðm. Jakobss., föður þeirra),
var samþ. nýlega við 2. umræðu
fjárl. í neðri deild með 12 atkv.
gegn 10. Ekki komið lengra enn
(24. ág.), svo jeg viti. Er þá enn
eftir fyrst og fremst 1 umr. í neðri
deild, 3. umr. í efri deild, síöan aö
líkindum ein umr. aftur í hvorri
deild og loks máske í sameinuðu
þingi, áður en sagt verður, hyaö
þingið »gefur« hverjum einum.