Vísir - 03.10.1913, Side 1
7§4
Ostar
bestir og ódýrastir
í verslun
Einars Árnasonar.
19
\S\Y
Stimpla og
Innsiglismerki
útvegar afgr.
Visls.
Sýnishorn
llggja framml.
Kemur út alla daga. — Sími 400.
Afgr.í Hafnarstræti 20, kl. 11-3 og 4-6.
25 blöð(frál8.sept.) kosta á afgr. 50 aura.
Send út um land 60 au.—Einst. blöð 3 au.
Skrifstofa i Hafnarstræti 20. fuppi),
°Pin kl. 12-3. Sími 400.
Langbesti augl.staður bænum. Augl. i
sje skilað fyrirkl. 6 daginn fyrir birtingu.
Fsöiud. 3. oki. 1913.
Háflóð kl. 7,13’ árd. og kl. 7,37 ’ síðd.
Afmœli.
Frú Þórhanna Eyþórsdóttir.
Bjarni Jónsson húsgagnasmiður.
Símon Bjarnason, verslunarm.
f
A morgtm:
Pðstáœtlun.
Ingólfur fer til Borgarness.
Póstvagn kemur frá Ægissíðu.
Veðrátta í dag:
Loftvog £ Vindhraðill Veðurlag
Vestme. 760,1 6,9 ASA 6 Skýað
Rvík. 760,9 9,0 ANA 3 Alsk.
ísaf. 762,7 3,3 0 Ljettsk.
Akureyri 762,7 2,5 0 Þoka
Grímsst. 727,5 1,0 0 Heiðsk.
Seyðisf. 764,1 3,5 0 Heiðsk.
Þórshöfn 763,5; 9,2 1 SA 2 Alsk.
N—norð- eða norðan,A—-aust-eða
austan.S—suð- eða sunnan, V— vest-
eða vestan
Vindhæð er talin ístigumþann-
ig: 0—logn.l—andvari, 2—kul, 3—
gola, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6—
stinningskaldi,7—snarpur vindur,8—
hvassviðri,9 — stormur, 10—rok,l 1 —
ofsaveður, 12—fárviðri.
Skáleturstölur í hita merkja frost.
Bíó
Biografteater |o í A
ir jOlO
Reykjavíkut
30. sept., 1., 2. og 3. okt.:
Afturgangan
Sjónleikur í 2 þáttum,
leikinn af þýskum leikurum.
í aðalhlutverkinu hin fræga
Ieikkonn Henny Porten.
Lifandi frjeifablað.
Aukamynd.
2 sfúlkur
geta fengið góða atvinnu nú þegar
Uppl. á afgr. »ÁIafossi« Laugav. 32.
Fallegustu líkkisturnar fást
hjá mjer—altaf nægar birgð-
ir fyrirliggjandi — ennfr. lik-
klæði (einnig úr silki) og lík-
kistuskraut.
Eyvindur Árnason.
Els*ur fást venjulega tilbúnar
Iverfisg. 6. Fegurð, verð og
h' undir dómi aimennings. —
Sími 93. — Helgi Helgason
Jeg tek enn nokkur læs börn til
kennslu. Mig verður að hitta dag-
Iega í K. F. U. M. kl. 2—4.
Páll Guðmundsson.
?
ÍMiðdegisverður
fæst keyptur á Laugaveg 30 A. ^
Einnig allar máltfðir ef k
^ þess er óskað. a
Sanikomu-
húsið
við Grund-
arstíg.
Opinberar samkomur hefjast aftur
sunnud. 5. okt. kl. 6V2 síðd.
Allir velkomnir.
D. Östlund.
ÚR BÆNUM
Eldeyarfararnlr komu aftur í
gærkvöld seint. Höfðu þeir harða
útivist við eyna, en gekk þó að
öllu slysalaust. Veiddu rúm 400
af súluungum. (Nánar um ferð-
ina síðar í Vísi).
Bæarstjórnarfundur var hald-
inn í gær. Meðal annars var
samþykkt þar, aðveita 181 barni
ókeypiskennslu í vetur í barna-
skólanum, sem ekki eru á skóla-
skyldualdri. Brunabótavirðinga-
menn endurkosnir sömu og verið
hafa.
Súlu-unginn er kominn og er
seldur við Zimsensbryggju í dag.
Pantendur sæki sinn unga í dag.
Skólarnir voru flestir settir hjer
1. okt.
Almenni menntaskólinn er
búist við að hafi um 140 nemend-
ur í vetur, en margir þeirra eru
ókomnir enn.
Stýrimannaskólinn hefur
í efstu deild 24
- mið — 19
- yngstu — 19
- vjelfræðis— 6
og von er á fleirum.
Kvennaskólinn hefur 104 náms-
meyjar í fjórum deildum en 12 af
þeim eru og í hússtjórnardeild. Ef
til vill bætast nokkrar við enn.
Iðnskólinn hefur von um eitt-
hvað 50 nemendur í vetur.
Háskólinn er og settur en mjög
marga nemendur vantar enn og koma
ekki fyr en með Vestu og Ceres um
7. þ. m.
Kennaraskólinn er ekki settur
fyr en 1. vetrardag (25. þ. m.)
Eitrað er nú, þessa og næstu
viku, úti í Effersey fyrir rottur. Tal-
ið að ekki sje óhætt fyrir börn og
skepnur að koma þangað út meðan
á því stendur.
Nýstárleg hestasala. Nú eru
hestar ódýrir hjer sökuni heyskorts
af óþurkunum í sumar. Sem dæmi
má geta þess, að nýlega var góður
reiðhestur seldur hjer í borginni fyrir
20 pd. af confect (brjóstsykri).
Skerjafjarðarbryggjunni miðar
lítið áfram. Á vinnu við hana var
byrjað í júlí og hafa unnið venju-
lega 5—8 menn þar síðan, þó var
eitt sinn algjört hlje um 3 vikur og
heldur hefur staðið á efni til vinn-
unnar. Sem stendur vinna þarna 6
menn, en búist við að vinna hætti
algjörlega mjög bráðlega.
Eggert Claessen
Yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Pósthússtræti 17.
Venjulega heima kl 10—11 og 4—5.
Talsími 16.
HFRÁ ÚTLðNDUHljgl
Vopnaðir bankaþjónar.
Eftir að mörg bankarán hafa
framin verið af vopnuðum ill-
þýðum, eru bankar farnir að búa
betur um sig.
f síðastliðnum mánuði var öll-
um starfsmönnum í Noregsbanka
og útibúum hans, fengnar marg-
hleypur, sem þeir eru skyldir til
að hafa allt af hlaðnar og hand-
bærar er þeir eru í bankanum.
Sömuleiðis eru rafmagnsleiðslur
um allan bankann og typpi að
styðja á víðsvegar og hringir þá
samstundis á lögreglustöðinni.
Ýmsir aðnr bankar hafa tekið
upp líkar varúðarreglur, svo nú
fer illþýði að verða erviðara og
hættara að ráðast í bankana.
Skipafeið fíl Síberíu.
í ráði er að byrja fastar gufu-
skipaferðir á næsta vori milli
Noregs og Síberíu. Eiga skipin
að ganga til Ooltschicha, þorps við
Jenissei-flóann, og liggur leiðin
um Ingcr-sund, en þar er búið
að reisa loftskeytastöð á Vaigatsch
og sem liggur skammt norður og
austur af Nowaja Semlja.
Ferðir þessar njóta styrks
af ríkissjóðum Norðmanna og
Rússa.
Einkaleyfi fll hvalveiða.
Englendingar hafa eftir nýkomnu
símskeyti boðið út einkaleyfi til að
stunda hvalveiðar og selveiðar við
eyar sínar Nightingale, Inacces-
sible og Gongh Island svo og
til að reka þar áburðarverksmiðjur.
Eyar þessar liggja í Atlantshafi
á 37°—40° suðurbreiddar og 10°—
13° vestur lengdar. Eru þær 120
ferrastir að stærð, mjög hálendar, og
er þar einn tindurinn 2330 stikur |
að hæð. íbúar eru þar alls um 80 '
en fjenaður 700 kindur og 600 \
nautgripir. Gróður er þar góður
og myndi korn þrífast, ef ekki væri '
rottugangur þar afskaplegur sem
hindrar það með öllu.
íbúarnir eru flestir afkomendur
Englendinga, er þangað fluttu í það
mund sem Napoleon var á St. He-
lenu, og nokkrir skipbrotsmenn hafa
þar blandast saman við
Um þvera Brasilíu.
---- Frh.
Sextán daga matarlausir.
Fjelagar mínir voru svo illa á sig
komnir, að við urðum að hafa mjög
stuttar dagleiðir. Nestið kom að
þrotum. í skóginum fanst ekki
neitt kvikt, hvorki ávextir nje æti-
jurtir, fuglarnje apar—ekkert nema
mývargur og mauraher.
Eftir sex eöa sjö daga sult, er
við smökkuðum hvorki þurt nje
vott, vorum við orðnir mjög veik-
burða. Eigi að sfður drógumst við
áfram, í þeirri von, að við mundum
ná fljótinu, og komumst þetta áfta
til tólf mílur á dag. Það bagaði
mest hve rnikið rigndi. Þegar
dagarnir liðu hjá og ekkert
fjekkst til matar, þá misstu fjelagar
mínir kjarkinn algerlega. Þeir
marg afsögðu að lifa lengur, og
lögðust fyrir hvað eftir annað til
að deyja. En þess á milli ásök-
uðu þeir mig allan daginn fyrir að
hafa leitt sig f slíka raun, en stund-
um æjuðu þeir og veinuðu. Þeir
Ijetu mig sannarlega kenna á þeim
þrautum sem við vorum í staddir.
Það varð mjer mikið þungbærara
heldur en matarleysið aö eiga við
þá og koma þeim áfram.
Við skreiddumst áfram nokkur
hundruð fet f einu, þá datt einhver
okkar og leið yfir hann, og gekk
svo koll af kolli. En jafnvel þess
var okkur varnað, að liggja á
jörðinni í fáeinar mínútur. Skóg-
urinn skreið kvikur af maurum.
Jafnskjótt og við duttum, rjeðu
á okkur maurar og bitu okkur hátt
og lágt. Einn daginn datt eg á
höfuðið og lá í öngviti. Eg rakn-
aði við við það, að eg hafði stór
sár á höfðinu; það var bitsár þeirra
maura, er kallast ‘sauba* en þeir
eru stærstir og skæðastir allra
maura. Eina nóttina átu þeir
skóna mína upp til agna og eftir
það varð eg að þola þá þraut að
ganga berfættur, ofan á allt annað.
Hvílunet fjelaga minna og nálega
alt annað, er ekki var úr gleri eða
málmi, skemmdu þeir eða átu upp.
Viö hengdum allt upp á nóttunni,
en jafnvel það vildi ekki duga.
Maurarnir nöguðu sundur snærið,
svo að niður fjell það sem upp
hafði verið hengt.
Bjargað af maurum.
Þessum hræðilegu maurum eig-
um við þó það að þakka, að því
er eg hygg, að við hjeldum lífi. Ef
þeir hefðu ekki ráðið á okkur þeg-
ar við duttum og bitið þangað til
við röknuðum við af kvölum, þá
má vel vera, að við hefðum aldrei
staðiö upp aftur.
Nú hjeldum við áfram dag eftir
dag með þessu móti. Þeir dag-
ar voru lengi að líða. Á þeim
tólfta komun við að ánni Canuma,
stórá, sem rennur í Madeira. Við
það jókst fjelögum mínum dálítið
hugur. Við fórum niður með ánni
og vonuðum jafnar að viö mund
um hitta menn, en svo liðu margir
dagar að engan sáum við manninn.
Háir bakkar lágu að fljótinu
og mjög brattir, og áttum við mjög
erfitt með að komast niður að
vatninu; þar sáum við marga
fiska, en ekki gátum við náð í þá,
því að áin var hyldjúp og snörur
gátum við engar búiö til. Færi
höfðum viö að vísu, en enga beitu;
ormar eru engir í jörðu, þarsem
sauba-maurinn býr og aðrir bit-
vargar. NI.