Vísir - 25.10.1913, Blaðsíða 1
18
778
§
m
fr*
m
m
m
m
6íS5?
Ostar
bestir og ódýrastir
í verslun
Einars Árnasonar.
\s\x
1
§
K
Stimpla og
Innsiglismerki
útvegar afgr.
Vísis.
Sýnishorn
liggja framml.
Kemur ut alla daga. — 9,°'-» .
Afgr.í Hafnarstr. 20. ld. llard. til 8 siöd.
Laugard. 25. okt. 1913-
1. vetrardagur. — Gormánuour.
Háflóðkl. l,38‘árd.ogkl.2,8’síðd.
Afmœli.
Hannes S. Blöndal skáld, 50 ara.
Magnús G. Guðmundsson,steinsm.
Á morgun:
Pósíáœtlun.
Botnia fer til Vesturlands.
Iugólfur kemur frá Borgarnesi og
Straumfirði.
BÍÓ| Re°ykí^r |BÍÓ
25., 26. og 27. október.
GlæpamannafjelagicS
Nýtísku leynilögreglusjónleikur
í 2 þáttum.
Leikinn af frönskum leikurum.
Jx\i% V\W\
drekkur vín á laumi.
Gamanleikur,
Fallegustu líkkisturnar fást |
hjá mjer—altaf nægar birgö-
ir fyrirliggjandi — ennfr. lik-
klæði (einnig úr silki) og lík-
kistuskraut.
Eyvindur Arnason.
■mmmm
| tkkistur fást venjulega tilbúnar
á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og
gæði undir dómi almennings.
,gn Sími 93. — Helgi Helgason.
Gunnlaugur Glaessen |
læknir
Bókhlöðustíg 10. ■
Heima kl. 1—2. Sími 77. gjl
1 ÚR BÆNÖM m
Nýar póstafgreiðslur. Póst-
stjórnin hefur ákveðið að stofna
póstafgreiðslur um áramót á eftir-
farandi stöðum, og auglýst þær til
umsóknar: Bíldudal, Flatey,
Hólmavík, Hvammstanga, Mjóafirði,
Norðfirði, Önundarfirði.
Dagblað nýtt ætlar Vilhjálmur
Finsen loftskeytamaður að fara að
gefa út um næstu mánaðamót í
sambandi við ísafold.
f Frú Sigríður Bruun á Skjald-
breið andaðist að heimili sínu í
gærniorgun úr krabbameini eftir
langa legu.
FRÁ OTLðNDUM. fl
»Volturno* í björtu
bálí
Nánari fregnir. Frásögn
sjónarvotta.
Blaðið »The Daily Mirror« flyt-
ur nákvæma frásögn af skipsbruna
þeim hinum mikla á Atlantshafi, er
getið var í símskeyti til *Vísis«.
25 blöð(frá 10. okt.) kosta á afgr. 50 aura.
Send ut um land 60 au.—Einst. blöð 3 au,
Skrifstofa í Hafnarstræti 20. (ur,"’i)i
opin kl. 12-3. Sími 400.
Langbesti augl.staður i bænum. AugL
sje skilað fyrirkl. 6 daginn fyrir birtingu.
Þessi ágætu allra bestu, sem ekki einn af tíu gátu náð í síðast,
koma nú aftur fyrir næstu mánaðamót.
Tryggiá yður þessi góðu kaup með því að snúa
ykkur annaðhvort beint til mín undirritaðs eða í
Tóbaksbúðina á Laugaveg 5.
Virðingarfyllst
ÓLAFUR ÓLAFSSON.
Um þýðingu drauma
heldur D. Östlund fyrirlestur í Sílóanr við Grundarstíg annað kvöld kl.
61/2. Aðgangur ókeypis. AUir velkomnir.
Er þar sögnin eftir sjónarvottum.
Það var mannflutningaskipið »Vol-
turno« er brann.
Ofsastormur var á og stórsjór,
er eldurinn kom upp í skipinu. En
það var fimmtudagsmorguninn 9.
okt. að eldurinn kom fyrst upp;
voru þá þegar send loftskeyti í allar
áttir. Komu 10 gufuskip til hjálpar,
en gátu lengi vel ekkert að hafst
fyrir ofviðri. Skipverjar höfðu sett
út 6 báta en 4 þeirra brotnuðu við
hlið skipsins og drukknuðu allir er
í þeirn voru.
Fyrst skipanna er til hjálpar
komu, var Carrnania, eimdreki
Cunardlínunnar, og hin dreif síðan
að smáin saman, en svo leið dagur
sá og nóttin að ekki varð hjálp við
komið. Má nærri geta, hver skelf-
ing hefur ríkt úti á skipinu, er
logarnir ljeku utn það, eldarnir
ágerðust meir og meir og alltaf varð
skipskrokkurinn heitari og heiíari,
enda varð skipsstjóri að beita valdi
og geklc ógnandi með hlaðna marg-
hleypu; voru þýskir og belgiskir há-
setar á skipinu þar verstir viðfangs.
Daginn eftir lægði veðrið og gátu
þá skipin þegar að morgni byrjað
að bjarga, en ekki gekk það greitt.
Tókst þó að bjarga 421 manns, en
136 fórust (að því er »Daily Mirror«
segir. — »PolitikenTelur 236 hafa
farist, er mun vera prentvilla). Loks
skildu skipin við Volturno í
björtu báli þarna úti á reginhafi á
48°25’ norðurbr. 34°33’ vesturl.;
var- það kl. 9.20’ árd. iaugard. 11.
þ. m.
Enginn getur lýst að fullu ógn-
um þeim og skelfingum, er bar
fyrir augu skipverja á . björgunar-
skipunum, meðan þau Iágu þarna
og gátu ekkert aðhafst. Þar var
grátur og kveinstafir kvenna og
barna, óp og köll og beint vit-
firringaæði. Kl. 9 að kvöldi þess
9. sprakk eimketillinn með gnýsvo
miklum, sem skotið væri af hundrað
fallbyssum.
Carmanía reyndi fyrst hvað eftir
annað að koma bát út að Volturno,
— voru um 30 stikur milli skip-
anna, en svo voru sjóir tniklir að
þess var enginn kostur. Flugeldar
voru sendir upp frá Volturno úr
bál- og reykhafi því hinu mikla, er
, um skipið ljek, en á þessum 10
björgunarskipum varð ekkeft aðhafst
annað en það, að kasta út björg-
unarhringjum með ljósi og ná
þannig einstöku manni er barðist
við dauðann í öldunum.
Um miðnætti á föstudagsnótt tók
storminn að lægja, en ekki var það
fyrri en birtingu að auðið varð
að koma bátuin við til að bjarga
fólki. Svo voru þrengslin mikil og
atgangurinn að komast í bátana.að
konur og börn tróðust undir og
mörðust til bana, en karlmenn bók-
staflega flugust á í einhverju æði.
Sást það af skipunum að bardagi
var svo ákafur úti á brennandi skip-
inu meðal farþegja, að hásetar rjeðu
ekkert við.
Eldurinn og hræðslan var á hæsta
stigi þegar ketillinn sprakk, en við
það brotnaði skipið um þvert.
Álitið er að eldurinn hafi komið
upp við sprengingu eldfimra efna í
forstafni skipsins, og hafi þá þegar
margir farþegar og ljásetar látið líf-
ið og meiðst.
Slys þetta er hið t stórkostlegasta
sjóslys, er orðið liefur, síðan »Tita-
nic«- slysið mikla. Skipið Volturno
var með tvöfaldri skrúfu, 3 600
smálestir og eign »The Canadian
Northern Steamship Company«, en
í þessa ferð hafði Uraníu-línan í
Rotterdam leigt það með Ameríku-
kx y:
Alþingismeim 1913,
ión Magnússon
bæarfógeti.
fara til New-York. Er það ný lína,
er aðallega flytur rússneska vestur-
fara til New-York. Skipstjórinn heit-
ir Inch, ungur maður, kvæntur f
London.
Uppskeran og stjórnin.
Á margan hátt hefur Wilson,
Bandaríkja forsetinn nýi, sýnt það
að hann er stöðu sinni vaxinn, og
að hann ber umhyggju fyrir vel-
líðan landsmanna í ýmsum grein-
um.
Síðasta dæmi þess eru ráðstaf-
anir stjórnarinnar sunnan landa-
mæranna til að greiða fyrir því
að bændur geti komið uppskeru
sinni í lóg, en ýmsar bægðir
í hafa verið á því, vegna þeirra
erfiðleika, sem verið hafa á að fá
peningalán á þessu sumri.
Til þess að bæta úr þessum vand-
ræðum, og gera bændum auðveldar
söluna hefir Bandaríkjastjórn
lagt 50.000,000 dala í ýmsa banka í
Iandinu. Með því móti vill
stjórnin girða fyrir það, að bænd-
ur þurfi að skorta fje að láni til að
koma uppskeru þeirra í peninga,
svo að þeir geti nú fengið fje
handa á milli, til skulda greiðslu
og annara nauðsynja sinna, og til
þess að koma verslunar straumi
landsins í rjettan og eðlilegan far-
veg aftur. Lögberg.
Forsijóri
Þjóðbankans danska er orðinn Marc-
us Rubin yfirtollmálastjóri og yfir-
skattamálastjóri, einhver hinn merk-
asti þjóðhagsfræðingur Dana, er nú
er uppi.
Húrra!
Hermaður nokkur í Vordingborg
vildi ekki hrópa »Húrra« fyrir Hans
Hátign konunginum. Herrjetturinn
dæmdi hann fyrir þetta í 5 daga
svartholsgistingu.