Vísir - 30.11.1913, Síða 1

Vísir - 30.11.1913, Síða 1
■Vh 6 S\* Vísir er blaðið þitt Hannáttu að kaupa fyrst og fremst.. ! Kemur út alla daga. — Sími 400. lag; Afgr.í Hafnarstr. 20. kl. llárd. tíl 8síöd. 25 hlöðffrá 25.nóv.) kosta á afgr. 50 aura. Send út um land 60 au,—Einst blöð 3 au. Skrifstofa í Hafnarstræti 20. (uppi), opin kl. 12-3. Sími 400. Langbesti augl.staður i bænum. Augl. sje skilað fyrirkl. 6 daginn fyrir birtingu. Sunnud. 30. nóv. 1913. 3 A»3 hefst i Vísi: Palladómar um alþingismenn og Ný saga stórmerkileg, fió stutt sje. Visir flytur œtíð sannar og gagnorðar innlendar og útlendar frjettir, lausar við ýkjur, skáld- skaparhnoð og skvaldur. Nú er tœkifœri að gerast á- skrifandi. BíóJ ' ' I Biografteater Reykjavíkur 29. 30. nóv. og 1. des. Þegar gríman fellur. Sjónieikur í þrem þáttum eftir Urban Gad. Aðalhlutvcrkið Ieikur frú Asta Nielsen Gad. .íkklstur fást venjulega tilbúnar á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og gæði undir dómi almennings. — Sími 93. — Helgi Helgason. Jesús Kristur er sannur guð“ er umtalsefni fyrirlesturs, er , haldinn verður í Landakotskirkju sunnudaginn 30. nóv. kl. 6 síd. Allir velkomnir. Meulentierg, prestur. f Beiel (lugólfsstræti og Spítalastíg) í kvöld kl. 6i/2. Efni: Sions hreyfingar. Munu Gyðingar safnast í Pa- lestínu áður en Kristur kemur? Er það eitt af táknum tímans? Allir veikomnir. O. J. Olsen. ÚR BÆNUM Trtilofuð eru Loftur Ólafsson stýilmaður, á Lindargötu 18, ogym. Águsta Pálsdóttir, Vatnsstíg 12. >'Þjóðreisn« heitir politískt fje- lag, sem L. H. Bjarnason stofnaði í Teiiiplarahúsinu í gærkvöld með f lokksbræðrum sínum, erásamt honuni höföu sagt sig úr fjelaginu »Fram«. Messur í dómkirkjunni í dag kl. 12: sjera Jóhann (altarisganga); kl. 5: sjera Bjarni. Til leigu er neðri hæð hússins nr. 12 við Hverfisgötu, sem er stór sölubúð með skrifstofu og tveimur geymsluherbergjum. Ef um leigu til fleiri ára væri að ræða, mundi fást breyting á herbergjaskipun svo við hæfi leigjenda væri, og notfært til skrif- stofu, lækningastofu, saumastofu eða skólastofu. Nánari upp- lýsingar fást hjá G. Gíslason & Hay. v vjvB SvundavsU^ í dag kl. 6Vs síðd. Efni: Hið spámannlega orð. Ókomna tímanum lýst. Merkilegdæmi um áreiðanlegleika spádómanna. Allir velkomnir. D. ÖSTLUND. Kaupmannahöfn í gær. Ragnar Lundborg, riístjóri í Svíþjóð, hefurskrif- að allrækilega um fánamálið íslenska og telur úrslit þess ófær. • Vogatungu í gær. Skemmdir urðu af sjó allmiklar á Akranesi á fimmtudaginn. Meðal annars eyðilagðist með öllu skipa- bryggja, er Haraldur Böðvarsson var að láta byggja. Er skaðinn melinn kr. 1000,oo. •j* Brynjólfur Jónsson, bóndi á Súlunesi, andaðist á fimmtudag. Akureyri í gær. Þjófnaðarmál hefur staðið hjer á aðra viku. Var Jaknb nokkur Guðmundsson kærður fyrir að hafa stoiið 100 krónum í peningum. Hann þverneitaði framanaf, en var hafður í varðhaldi sökum líka, sem á hann bárust. Loks játaði hann á síg glæpinn í fyrradag. Guðmundur á Sandi er hjer kominn til bæarins sína venjulegu vetrarferð og ætlar að byrja fyrir- lestra sína á mánudagskveldið. Heita »GlárnsaugU’t það sem hann fyrst ræðir um. Nýan leik er leikfjelagið hjer að Ieika þessa dagana fyrir bæar- mönnum. Heitir hann Happið og er cftir Pál Jónsson barnakennara. Efn- ið alíslenskt. Fer leikurinn fram á hreppstjóraheimili í sveit. Leikur- inn líkar einkar vel og er aðsókn mikil. E/s lngófur fer í dag frá Seyðis- firði hingað á leið. Er hálfum mán- uði eftir ác&tlum. E/s Ceres er á Seyðisfirði í dag á útleið. Orðin 6 dögum á eftir áætlun. Tíðin er hjer ágæt og góð út- beit. Afli mikill úti á Eyafirði. Aða|- lega útundir Óláfsfjörð og þar fyrir utan. En jnni á firði enginn afli að kalla. Vestmanneyar í gærkveldi. Flöskupóstur var sendur hjeðan til lands í dag og er búist við að hann komi til skila á morgun sökum hagstæðs vindar og straums. Á síðari tímum hefur flöskupóstur verið r.otaður hjer Iítið. Leikfjelagið Ieikur hjer í kveld Hermannaglettur og Nei. Skuggasveinn var leikinn hjer í gær af nýu Ieikfjelagi. Islands Falk hafði eyarskeggja í boði sínu, er hann fór hjer framhjá heim til sín. Voru um hundraö manns boðnir, en ekki komu nema um 30. Kampavín og aðrar góð- ar veitingar voru fram reiddar. Var íslenski fáninn þar á borðum. Flug- eldum var skotið um kveldið. Hafrót er hjer og hið versta veður. Eyrarbakka í gær. Strandmennirnir frá >Lord Carlington«, 12 að tölu, eru væntan- legir hjer þessa dagana. Söngskemtun heldur í kveld hjer í kirkjunni Sœmundur Gíslason fra Ölvesi. Hefur hann leigt kirkjuua af sóknarnefnd og selur aðgang 35 aura. Eru ýmsir hjer óánægðir yfir að! kirkjan sje notuð þannig (að- gangur seldur). Ungfrú Guðmunda Nielsen aðstoðar með píanóspili. Sjónleika hefja Stokkseyringar. annað kveld. Uppboð var haldið hjer í gær á tveim kúm og þrem hrossum, er átti Stefán bóndi Ólafsson í Kumbaravogi, og seldust allir gripirnir fyrir kr.W3,oo. Hann seldi sökum heyskorts. Leikfjelag Reykjavíkur: í dag 30. nóvember 1913 kl. 8* Trú og heimili eftir Karl Schönherr. Aðgöngumiðar seldir í Iðnað- armannahúsinu. tnaBtuæiia^ ' .... Bjarni Björnsson hefur aftur söngskemmtun í dag (kl. 6) í Báru- búð og hefur nu hljóöfæraslátt í hljeum. Gefin saman í gærkveldi Símon Egilsson, útgerðarmaður frá Ásgarði í Vestmannaeyum, og ym. Valgerð- ur Sigurðardóttir, Brekkustíg 11. Sendisveinaskrifstofan. Mikilli þörf er þar bætt úr fyrir bæarbú- um, sem slík skrifstofa er á stofn sett, er auglýst er á öðrum stað í blaðinu. Allsstaðar erlendis, jafnvel í smábæum, eru slíkar skrifstofur *til. Þeir lierrar Emil Sirand á Elliða- vatni og Páll Stefánsson, fyrrum bóndi þar, gangast fyrir því að koma henni á laggirnar. Hafa þeir Iengi hafl þetta í hyggju, ,en ekki sjeð sjer fært ýmsra hluta vegna að byrja fyrri en nú. Það eru ekki smáræðis þægindi, að geta að ör- fáum mínútum liðnum eftir sfma- kall fengið sendisvein til að reka smáerindi sín, hlaupa með brjef, fara með boð o. s. frv. og þurfa ekki sjálfur að tefja sig frá störfum eða sína menn, ekki síst þar sem einatt er næstum ómögulegt að fá nokkurn mann til þess að gera viðvik fyrir sig, þótt heilar hers- ingar yngri og eldri manna gangi vinnulausir með hendur í vösum og hími á strætum og torgum víðsvegar. Tíminn er peningar og Starfsömum mönnum míklu dýr- mætari, en þeir fáu aurar, er fara til þess að kaupa af sjer tafir og ómök. Frh. bæarfrjetta á öftustu síðu. Palladómar. I. Yfirlit. Fyrir 25—28 árum flutti blaðið »Fjallkonan« tíðindin af alþing- ismönnum, þau er nefnd voru *Palladómar«. Var þar lýst þing- manna yfirlitum, háttum þeirra á þingi og hæfileikum, svo og mála- fylgi þeirra þar. Þótti alþýðu manna betra en ekki að fá þáu tíðindi, og sumum þótti svo mikill fengur í, að telja mundu frjeítabót, ef fengju nú að heyra nokkura lýsing al- þingismanna. Hefur því verið til þéss stofnað, að svo yrði.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.