Vísir - 26.12.1913, Blaðsíða 2

Vísir - 26.12.1913, Blaðsíða 2
V 1 S I R nyjum kröftum og með nyju fyrirkomulagi ? Eða verður hann moldaður fyrir fullt og allt? þannig spyrja menn nú, Sumir vilja endurreisa hann, og fá atorkusama og heiðarlega menn til að stjórna honum. Aðrir, svo sem blaðið New York World; vilja að Hringurinn verði brotinn fyrir fullt og allt, og nafnið Tam- any aldrei framar endurvakið. En i allflestir eru sammála um það, að \ Charles F. Murphy verði að | leggja forustuna niður, og á því j er enginn vafí, að svo verður, | þó hann raunar þvertaki fyrir það. j Eftir hrakfarirnar, sem Tamma- ! ny-hringurinn beið fyrir W árum, j þegar Tweed var hrundið, varð j gagnger breiting á stjórn hans, og j Hringurinn íjekk ágætis orð á sig ! um tíma, og var talinn hinn heið- ' virðasta og heiðarlegasta stjórn- málaklikka í ríkinu. En svo fór' aftur að sækja í gamla horfíð, er John Kelly gerðist leiðtogi hrings- ins, hann var það í tuttugu ár, og gerði hann íllræmdan mjög fyrir glæfra og spillingu. þá varð Richard Crooker leiðtogi hans og vann hann það þrekvirki, að sameina undir merkjum Hrings- ins skríl og annan óbótalýð, samhliða mörgum af heiðvirðustu mönnum ; borgarinnar. Hann vissi, að nauðsynlegt var, til þess að Hringurinn gæti náð verulegri fótfestu, að hann hefði allar stétt- ir manna undir merkjum sínum. þetta tókst honum,og völd Hrings- ins uxu með ári hverju, en er jarðvegurinn tók að hitna um of, lagði Crooker niður forustuna og fór til írlands og keypti þar land- setur, og hefur síðan átt þar 1 heimili og Iifír við auð og als- nægtir, en helzta starfsemi hans eru veðreiðar. Tii Bandaríkjanna hefur hann enga löngun að koma aftur. Sumir spá því, að Murphy, sem er íri eins ogCrooker muni fylgja dæmi hans og tlytja til ír- lands alfarinn, og það hið bráðasta, þvíannars muni hann verða neydd- ur til að fara sömu leiðina og Tweed. Tammany-hringurinn er al- ræmdur um alla Ameríku fyrir að vera sú sterkasta fjelagsmynd- un, sem til er, stofnuð eingöngu í því augnamiði, að ná á sitt vald allfiestum opinberum embættum og nota þau svo til ráns og fjár- dráttar. Allar þær stofnanir, sem lögin ekki heimila, og þær eru margar í New York-borg, sem öðrum stórborgum, voru að ein- hverju leyti undir vernd Hrings- ings, og guldu honum svo ærið fje fyrir verndina. Öll ólifnaðarhús, hverju nafni sem nefnast, spilahús, danssalir, veðmálahús, drykkju- krár, pútnahús, stóðu í sambandi við hann, — það voru þær menn- ingarstofnanir, er hann veitti þjóð- inni. Frá spila- og veðmálahúsum hafði Hringurinn tekjur, sem svar- aði hálfri þriðju miljón dollara ár- lega, er þær guldu höfðingjum flokksins sem mútufé. Frá ólifn- aðarhúsum, drykkjukrám og dans- knæpum, er álitið að Hringurinn hafi dregíð ennþá drýgri tekjur. fá fikki betii gjatir, en hinar ágætu inynda- bækur og sögnbækur með myndnm frá Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar. £awdsins stærsta og besta Einars Arnasonar. Sími 49. Aðalstræti 8. sem stöðva hárlos eftir eitt eða tvö böð, f fást í Þingholtsstræti 26. — Talsími 436. Kristín Meinholt. )akksamlega er tekið á móti allskonar náttúrugripum til náttúrusafnsins í barnaskóla ísafjarðar, svo sem fuglum, fiskum, eggjum, sniglum, steintegundum o. s. frv. SCHLESCH. Ennig seldi Hringurinn embætti fyrir ærna peninga, og þeir, sem fengu eitthvert verk að vinna fyrir hið opinbera, urðu að borga Hringnum ríflega fyrir þau hlunn- indi; og þegar um stærri bygg- ingar var að ræða, urðu verkhaf- ar að gjalda Hringnum ákveðinn hluta samnings-upphæðarinnar og skifti það oftlega tugum þúsund- a dala. Einnig urðu hinir minni- háttar verkamenn borgarinnar, lög- regluþjónar, skrifarar og jafnvel daglaunamenn, að gjalda Hringnum vissan hluta aflaunum sínumáborg- unardögum, ella misstu þeir vinn- una umsvifalaust. Hringurinn mok- aði saman fje á þennan hátt, og honum stóð á sama, með hverj- um hætti það var fengið. Var fje þessu varið um kosn- ingar til að kaupa fyrir atkvæði og koma þjónum Hringsins til embætta, og svo mun drjúgur skerfur hafa gengið í vasa höfð- ingjanna sjálfra. Vel væri því, ef þessari pest væri ljett af þjóðinni sem allra fyrst, og nú erfyrsta stóra spor- ið stígið. RADDIR ALMENNINGS Atyinmifjelag Eeykjavíkur. Herra ritstjcri Vísis! — Þjer niælt- ust til þess um daginn, að jeg sendi yður skeyti um, hvernig gengi með Atvinnufjelagið, og sendi jeg yöur þvi þessar línur. Fjelag það var stofnað s. 1. sum- ar með fáeinum mönnum; hefur nú um 20 meðlimi. Það hefur fengið útmældan 2 heklara blett með erfða- festurjetti til ræktunar, norðan þjóð- vegarins og austan við Laugastíginn hjer austan við bæinn, og hefur von um, að geta fengiö mikið fneira land þar síðar, er búið er aö rækta þetta. En vegna þess, hve hörð fraus snemma hjer í haust, — rjett um það leyti, að búið var að mæla út blettinn, — þá hefur enn ekkert verið unnið að ræktun þessa útmælda lands, — en verður vænt- anlega gert með wrinu. Um framkvæmdir þessa fjelags er nú ekki hægt að segja mikið I i meira, — en um það, hvað slíkt fjelag ætti að gera, og gæti gert, ef nógu margir vildu, mætti segja mikið og margt. Þegar jeg hreyfði því hjer við Skólavörðuna í júní s. I., hversu fá- tækir daglaunamenn bæarins gætu með samtökum veitt sjálfum sjer arðsama atvinnu á vinnuleysistímum með því meðal annars, að taka eitt- hvað af hinu óræktaða bæarlandi til ræktunar, og jafnframt til eign- ar með erfðafesturjetti, — vitandi það, sem allir vita, að mest allt, sem ræktað er af því nú, er eign efn- aðra og efnaðasta fólksins í bæn- um, og færir um 25% netto arð árlega af ræktunarkostnaðinum (sem er allt, er landið hefur eiginlega kostað eigendurnar); — og vitandi, að nálega allur sá kostnaður, sem fram þarf að leggja landinu til um- bóta og verðgildis, er innifalinn í vinnu; og vitandi ennfremur, að nál. hver einasti ræktaður blettur hjer í bæarlandinu er 4—5 sinnuin meira virði í reyndinni, sem gras- land eingöngu, en til hans heíur verið kostað (og mikið meira en það, þegar til þess kernur að mæla hann út í hússtæði), og er auk þess sjálfkrafa. hækkandi, fastur arð- berandi höfuðstóll, sem gefur viss- ari og enda hærri árlega vexti en flest annað í öllum árum eða flestum. — Já, — þá hjelt jeg satt að segja, að allir myndu hlaupa upp til handa og fóta, og stofna hjer öfluganfjelagsskap meðal vinnulausu, vinnufæru mannanna, til þess að nota sjer þetta álitlega, lengi ónot- aða tækifæri, þeim til lífsbjargar og bæarfjelaginu í heild sinni til sóma og hagnaðar. — { það minnsta hefði átt að mega vænta þess, að vinnulausu mennirnir yrðu fúsir til, að hópa sig saman í slíkum fjelags- skap, — og þá var hjer mikill fjöldi vinnulausia manna í bænum, um hábjargræðistímann í þessu fólkseklunnar landi.— Enhvað skeði? -— Svarið er hjer að framan: »At- vinnufjelag Reykjavíkur* meö um 20 meðlimum, er vonandi á sjer þó veglega framtíð. Frh. iAGKLEFJALL1 Eftir Albert Engström. ----- Frh. Fyrsta sinn á bak íslenskum hesti. Við vorum að leggja af stað. Umhverfis okkur þyrptust íslend- ingar, forvitnir, sumir í þjóðlegum búningi, stuttbuxum með mjúka sauðskinns- eða selskinnsskó, enskar húfur, stutta jakka og tóbak upp í sjer. Hestarnir voru teymdir ti) okkar. Nú eru í.lensku hestarnir orðnir svo vel þekktir í Svíþjóð, að jeg þarf ekki að vera að íýsa þehn, þessum smávöxnu, sterku, huguðu, aðdá- unarverðu dýrum. Jeg beiddist að fá kyrlátan hest, því jeg hafði ekki komið á hest- bak í 22 ár. Og það var komið með einn lil mín. Hnakkurinn var slitinn garmur. Og auk þess lagði hesturinn kollhúfurnar og athugaði mig með íilúðiegu augnaráði, svo mjer fór ekki að verða um sel, Jeg vaft mjer tiginmannlega á

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.