Vísir - 10.01.1914, Síða 1
Vísir er blaðið þitt
Hann áttu að kaupa fyrst og fremst
Kemur út alla daga. Sími 400.
Agr. í Hafnarstr. 20. kl. 11 árd.til 8 síðd.
25 blöð (frá 8. jan) kosta á afgr. 50 au.
Send út um land 60 au.—Einst. blöð 3 au.
Skrifstofa í Hafnarstræti 20.
opin kl. 12—3, Sími
Langbestí augl.staður i bænum. AugL
sje skilað fyrir kl. 6 daging fyrir birtíugu.
Laugard. lO. ]an. 1914.
12. vika vetrar.
Háflóð kl. 4 árd. og kl. 4,24' síðd.
Á morgun
Afmœli:
Frú M. N. A. Ólsen.
Frú Svanlaug Benediktsdóttir.
Lúðvíg Lárusson kaupmaður.
Magnús Vigfússon Miðseli.
Tryggvi Árnason trésmiður.
■ fkklstur fást venjulega tilbúnar
■ á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og
I gæð
gæði undir dómi almennings. —
Sími 93. — Helgi Helgason.
D ' ' Biografteater
13IO Reykjavíkur
Glæpamannaforinginn
„ TI G E R E N “
Leynilögregluleikur í 4 þátt-
um; hin áhrifamesta kvik-
mynd, sem enn liefir sýnd
verið. — Sýningin stendur
yfir miklu lengur en 1 kl.st.
Betri sæti 50 aura, almenn
sæti 35 aura, börn 15 aura.
r
Arvakur 9. janúar.
Innihald: þingmannaefni.
Ljenharður fógeti.
Af verkunum skuluð
þjer þekkja þá.
Minnisseðill.
Innl. og útl. frjettir
o. fl. o. fl.
Biblí ufyrirl e stur
í Betel
sunnudag 11. jan. kl. 6V2 síðd.
Efni: Vltruntii í Dan, 7.
kap.
Hver eru hin 4 dýr, sem þar
nefnast? lltuu mlk.ll and>
stæðingur Gnðs; liver er
hannl Allir velkomnir.
O. J. Olsen.
Myndir sýndar fyrirlestrinum
til skýringar.
Akureyri í dag.
Kornforðabúr hefur sýslunefnd
samþykkt að setja á stofn. Felur
hún einum kaupmanni að út-
vega svo fljótt sem hægt er 600
tunnur af korni og greiðast hon-
um kr. 1,25 á tunnuna fyrir að
liggja með það.
Sildarafli er nokkur inni á
Eyaíirði.
Selur talsverður úti á firðin-
um og hefur verið skotinn all-
mikið.
Dánir eru Guðmann Jónsson,
bóndi og hómópati í FJjótum,
og Jón Haltsson, bóndi i Skíðadal.
laugard. ÍO. jan. kl. 8V2 líðd. í Inist K.. F. tJ. 91. (við
Amtmannsstíg). Fundarefni: 1. Bœjavstjórnavkosn-
ingin. 2. Fánamálið.
Aríðaudi að bæjarstjórnarkjósendur úr Sjálfstæðis-
flokki fjölmenni, jafnt konur sem karlar.
U. M. F. R.
Fundur á morgun í Bárunni kl. 4 síðd. (ekki ld. 6).
Fundarefhi: Fyrirlestur — Skinlaxi (mjög fjörugur).
Aðalfundur undirbúinn o. m. fl. — Mjög áríðandi að allir
fjelagar ltomi og það stundvíslega.
Stjórnin.
(Hockey-fj elag-ið).
Fundur á morgun (sunnudag) kl. 1* á liád. í Bár-
unni uppi.
Áríðandi ínálefni. Allir meðlimir mæti.
Stjórnin.
UR BÆNUM
Fánanefndin hefur auglýst út
um land, að menn sjeu beðnir
að gefa henni nýar tillögur um
fánagerð og sjeu þær komnar
henni í hendur fyrir marslok.
Stúdentafjelagið hjelt fund í
gærkvöldi og skýrði formaður
alþýðufræðslunefndarinnar, Jón
Þorkelsson skjalavörður, frá
starfi hennar síðastliðið ár og
lagði fram endurskoðaða reikn-
inga, sem voru samþ. með öll-
um samhlj. atkv. Alþýðufræðslu-
nefndin var síðan endurkosin.
Þá hjelt Björn bankastj. Krist-
jánsson skörulegan fyrirlestur
um þingræði og voru síðan
stuttar umræður.
Þýskur botnvörpungur kom hjer
snöggvast inn á liöfn í gær.
Sagði fisk mikinn við Reykjanes,
en ílt til veiða sökum storma.
„Baldur“ kom í fyrrakvöld og
»Bragi«. í gærdag, af veiðum við
Vesturland; höfðu fiskað lítið.
„Apríl“ fór til Englands í gær.
Með honum tóku sjer far: Jón
Björnsson kaupmaður, Ólsen
umboðssali, Björn Ólafsson skiþ-
stjóri, að sækja nýtt botnvörpu-
skip, »Maí«, Jensen-Bjærg kaup-
maður, Tómas Jónsson, Bjarni
Bjarnason klæðskeri og nokkrir
aðrir farþegar.
102 máltiðir gaf »Samverjinn«
í gær. 79 börn komu, 10 karl-
menn og 6 konur. En 7 manns
var sendur matur heim, voru
sumir þeirra veikir, en aðrir of
klæðlitlir til að koma. Nokkrir
menn komu forvitnisferð inn í
matstofuna, einn þeirra lagði á
borðið 18 kr. gullpening, er
hann fór.
K. HV XJ. 3ML
fimmtán ára.
Fyrir 15 árum, 2. jan. 1899,
stofnaði sjera Fr. Friðriksson
»Kristilegt fjelag ungra manna«
hjer í Reykjavík. Var stofn-
fundurinn haldinn í framfara-
félagshúsinu á Vesturgötu og
fjelagsmenn voru tómir drengir.
Afmælisfundur þess var hald-
inn hjer í fyrrakveld í sam-
komuhúsi fjelagsins og var
allfjölmennur. Fyrst var byrjað
með sálmasöng og bænagerð,
eins og venjulegt er. Þá var
samspil, Karl Rudin ljek á
harmóníum, en Loftur Guð-
mundsson og Jón Helgason
ljeku á fiðlur. Þá hélt sjera
Bjarni Jónsson stutta ræðu og
minntist ýmsra atvika frá fyrstu
árum félagsins. Hann gat þess,
að hann teldi það eina af
gæfustundum lifs síns, er hann
hafði fyrst kynnst sr. Fr. Fr. og
þá um leið K. F. U. M.; það
hefði meðal annars haft þær
afleiðingar, að hann hefði, undir
eins og hann kom til Hafnar
til guðfræðisnáms, gengið i K.
F. U. M. í K.höfn og kynnst
þar ýmsum af bestu mönnum
dönsku kirkjunnar.
Eftir ræðu sjera Bjarna söng
söngflokknr K. F. U. M. 4 lög
undir stjórn Halld. Jónassonar
cand. phil. Tókst það mjög
vel, enda þótt flokkurinn sje
fámennur (13) og hafi ekki
Leikfjelag Reykjavfkur
Laugard. (10. jan.) kl. 8 síðd.
Ljenharður
fógeti.
Aðgöngumiða má kaupa í
Iðnó.
haft mikinn tíma til æfmga.
Sungið var: »Fannaskautar
faldi Iiáunm, »Yfir syeitum tíbrá
titrar«, »Birlir ijfir breiðum«
og »Eldgamla fsafold«.
Þá sagði Guðm. Kr. Guð-
mundsson kaupm. frá æfi fje-
lagsins meðan það hjelt fundi
í hegningarhúsinu og barna-
skólanum. Hann endaði mál
sitt með því að skora á fjelags-
menn, að hugsa alvarlega um
að taka nú á sig öll útgjöld
af húseigninni, svo að ekki
þyrfti að leita til annara um
hjálp til þess. »Reynum að
bera þær byrgðar sjálfir um
leið og vjer keppum eftir þvi
fegursta í heimi, að fylgja Jesú
eftir.«
Þá Ijek Karl Rudin á harm-
óníum. Þá kom Pjetur Gunn-
arsson hótelstjóri í ræðustólinn
og sagði frá æfi K. F. U. M. í
Melsteðshúsi, þar sem fjelagið
tók verulega að festa rætur og
hinar ýmsu deildir mynduðust.
Loftur Guðmundsson ljek á
harmóníum.
Síðan flutti framkvæmdarstjóri
fjelagsins, Páll Guðmundsson,
stutta ræðu. Sagði hann frá
fyrstu viðkynningu sinni við K.
F. U. M. fyrir 5 árum og fór
nokkrum orðum um hag fjelags-
ins, síðan það kom í núverandi
hús sitt.
Svo sungu menn sólskinssöng-
inn. Þá voru teknir í fjelagið
10 nýir fjelagsmenn.
Loks mælti sjera BjarniJóns-
son nokkur orð og bað fjelags-
menn að gæta jafnan gleði krist-
ins manns, og var svo fundi
slitið kl. rúmlega 11.
Yfir höfuð var fundurinn hinn
ánægjulegasti og sýndi hvað
fagrar minningar eru tengdar
við fjelagið hjá ýmsum ungum
mönnum bæjarins.
Fundarmaður.
Syrpa
komin (II, 1). Vitjið hennar
til Árna Jóhannssonar í Lands-
bankanum.