Vísir - 10.01.1914, Page 4
FRÁ OTLðNDlJMBII
Ódáöastjórnln í Mexikó.
Xtjáu hundruð manns dœmdir
til dnnða.
Enn einusinni mæna allra
augu til Mexíkó með ógn og
viðbjóði. Þar er þá fyrst frá
að segja, að um áramótin stóð
þar orusta milli stjórnarmanna
og uppreistarhersins í 36 kl.-
stundir við Ojiuaga. Fjellu
afarmargir af báðum og særð-
ust, en uppreistarmenn voru
liðfleiri og unnu sigur. Snjer-
ust og margir stjórnarliðar í
lið með fjandmönnum hennar
eða flýðu. Meðal þeirra er
fjellu var Caravaro hershöfð-
ingi, foringi sjálfboðaliða stjórn-
arinnar, enskur maður. Stjórn-
arherinn flýði inn í Ojiuaga-
borg og gefst varla upp fyr en
í fulla hnefana, en ytri vígi
borgarinuar eru i höndum upp-
reistarmanna. Ortega, foringi
uppreistarmanna, hefur fengið
skipun yfirstjórnarinnar um að
taka af lífi 1800 stjórnarsjálf-
boðaliða og fanga og 2 liðs-
foringja; er stjórnarvöldunum
kunnugt um skipun þessa. Blöð-
in, einkum »Times« í Mexikó,
kveða svo að orði, að »í djöful-
legum blóðþorsta og tilfiuning-
arlausri grimmd komist hvorki
Kínverjar nje Tyrkir í hálf-
kvisti við Mexikómenn«. Svo
mikið er vist, að aldrei hefur
þar verið háð geigvænni borg-
arastyrjöld, þar sem bæði stjórn-
in og fjandmenn hennar reyna
að skara fram úr, hverjir fyrir
sig, i verstu grimmd og ill-
mennsku. Er nú svo komið,
að varla er þar nokkrum út-
lending vært i landi eða ótta-
laust.enda þótt erlendrar vernd-
ar njóti. Hefur verið ráðið á
þá og hús þeirra, konur og
börn skotin til bana, hús brennd
og rænd. — En stórþjóðirnar
sitja hjá og horfa í gaupnir
sjer og þora ekki hver fyrir
annari, að skerast í leikinn og
gera enda á athæfi þessara
mannhunda. Skip þau er þar
eru og herdeildir Bandamanna
við landamærin þora hvorki
nje geta nokkuð aðhafst,—eru
því meir til málamynda en
verulegs gagns.
Stórbruni á Montreal.
20 stórhýst brcnnn.
Vatnsskortur hefir að undan-
förnu verið i Montreal-borg
í Bandaríkjunum og stóð
mörgum ótti af. Varð og skjótt
sú raunin á, að ekki var ótti
sá ástæðulaus. Sprenging varð f
vjelavopnabyrgi þar 29. f. m.
og hlaust af íkveykja. Brunnu
þar 6 bifreiðar, en eldurinn
braust út og varð ekki við
ráðið, því vatn fjekkst hvergi
nóg til að slökkva. Brunnu þar
á svipstundu 20 stórhýsi og
nam tjónið mörgum miljónum
króna. — Fjöldi fólks er hús-
næðislaus og meiðsli urðu all-
mikil og brunasár, en mann-
VÍSIR
Saltkjöt
fœst á 30 aura pundið d Hverfisgötu 3 hjá
9 9
Amunda Arnasyni.
Barnastúkubörnin
Bollapör! Jollapör!
Ekki færri en 50 tegundum
af Bollapörum er úr að velja í
ILolasnndi, getur því hver
fengið það, sem hann óskar eða
þarfnast, hvort heldur það eru
Bollapör til daglegrar heima-
brúkunar eða þau, sem prýða
eiga fagurskreytt borð, þegar
vinir koma í heimsókn. Enn-
fremur eru nýkomin Sykurkör
Og Rjómakönnur með ÍJölbreytt-
um litum, og ótal margt fleira.
Komið og skoðið.
eru beðin að mæta við skrúðgönguna á morgun kl. lOVs árd.
og þau, sem geta, hafi með sjer smáflögg.
VINNA
tjón ekki. Eldinn tókst að
slökkva með því að sprengja
í loft upp mörg hús á svæði
því er bálið stefndi á, og er
það tjón gífurlegt.
Hnngurmorða ]>jóð.
Svo mikil hungursneyð er i
Aomori og Hokkaido hjeruð-
unum í Japan, að slík hefir ekki
komið þar síðan 1869. Upp-
skeran hefir brugðist svo, að
ekki er nema Viooo hluti af
því, sem í meðallagi er, og
fiskiveiðar hafa gersamlega
brugðist. Alt fé er rifið út úr
bönkunum, mörg þús. manns
deyja daglega úr hungri og
foreldrar selja dætur sinar í
vændiskvennahús. Stjórnin hefir
veitt sex milljónir »yen« til að
afstýra neyðinni.
Loftskeytl á botnvörp-
ungum.
Nú um nýárið hefir verið
ákveðið að hafa loftskeytatæki
á öllum botnvörpungum frá
Húll. Þá geta eigendur og út-
gerðarmenn skipanna jafnan
gert skipstjórum sínum viðvart,
hvar bestur sé markaður og
hvert þeir skuli flytja afla sinn,
auk annara þæginda, er loft-
skeyti hafa í för með sjer.
Herskipakaup Tyrkja.
Tyrkir hafa nýlega keypt
heljarmikinn bryndreka af
Brasilíustjórn, »Rio de Janeiro«,
fyrir frakkneskt lánsfé auðvitað.
Hefir það vakið mjög gremju
Frakka, þar sem lánsféð átti
að nota til friðsamlegra fyrir-
tækja, og síst til þess að sýna
Grikkjum í tvo heimana i
Egeahafl. Eru Grikkir æfir
mjög og Frakkar fyrir þeirra
hönd, er telja sig bandamenn
þeirra, þrátt fyrir ógætnisorð
Konstantíns konungs f Berlin i
sumar í garð Frakka, er hann
hrósaði Þjóðverjum um skör
fram. Bryndreki þessi kostaði
miljón sterlingspunda og
jafnmiklu fje af láninu verja
Tyrkir til vígbúnaðar drekan-
um. Hafa þá Grikkir ekkert
herskip er mætt geti dreka
þessum, enda láta nú Tyrkir
all-vigamannlega og þykjast
ekki þurfa að gefa upp eyjar
sinar fyrir þeim.
Hungurmoröa lista-
maður.
Pólskur málari, Wenceslas
Pelzyunski, er sýnt hafði mál-
verk sin í Paris í sumar og
haust og vakið talsverða eftir-
tekt, fannst dáinn úr kulda og
hungri í málarastofu sinni í
Rue de Vaugirard. Hann kom
til Parísar fyrir nokkrum mán-
uðum til þess að reyna að selja
myndir sínar, en þær eru frum-
legar mjög, og fór hann aðra
leið en almenningur þekkti í
listreglum sínum, — fólkið er
þar lengi að venjast við og
melta það sem nýtt er og keypti
þvi ekki myndir hans, þrátt
fyrir það þótt að honum væri
dáðst og náðarsamlegast látin
í ljósi von um mikla framtið
listamannsins. Hann var fjár-
vana, varð oft að svelta dög-
um saman og veðsetja aleigu
sína. Hann fannst liggjandi
andvana i rúminu. í herberg-
inu var tómur spírituslampi,
gamall yfirfrakki og myndbol-
ur. Pelzyunski hafði orðið að
selja öll málaraáhöld sín og
myndadúka. Nú er talið víst
að rifist verði um málverk hans
og þau keypt dýrum dómum,
— til þess að reisa honum
veglegan minnisvarða, — þeg-
ar búið er drepa hann úr
hungri.
400 ár
eru I dag siðan lokið var fyrstu
prentun á Nýja testamentinu
á grísku.
Utgefandi þess vaf hinn frægi
spánverski kardínáli og stjórn-
málamaður Francisco Jimenes
(f 1517).
Atti þetta að vera upphaf að
flokk bóka, er hjet Compluten-
ser Polyglolte. Ekki var farið
að selja bók þessa fyr en 1522
og því vannst Erasmusi frá
Rotterdam tími til að láta
prenta aðra útgáfu, er kom á
• markaðinn á undan hinni.
Böð
geta kvennmenn fengið á Laug-
ardögum, kl. 6—10 síðd. og
karlmenn á sunnudögum, kl.
8—12 árd.
Hverfisflötu 4 B (Dagsbrún).
Síml 438.
Ungur maður dskar eftir atvinnu
viö verslunarstörf eða eitthvaö þess-
háttar. Afgr, v. á.
Stúlka óskast í vist nú þegar.
Lúð víg Lárusson, Pingholtsstr. 31.
Stúlka óskast i vist í Vestm.-
eyjum. Afgr. v. á.
Unglingsstúlka til að gæta
barna, óskast nú þegar. Afgr.
v. á.
KAUPSKAPUR
„Porterastangir“ með hringj-
um, brúkaðar, óskast til kaups.
Afgr. vísar á.
Mjólk, mikil og góð, fæsl nú
á Laugaveg 52.
Fuglakjöt er til sölu ódýrt á
Laufásdag 15.
Húsið nr. 57 við Vesturgötu
er til sölu. Uppl. á Laugav. 79.
HÚSNÆÐI
Herbergi óskast til leigu, hent-
ugt fyrir verkstæði, helst við
Laugaveg eða aðra aðalgötu
bæarins. Uppl. á afgr. Vísis.
4—5 herbergja íbúð á góð-
um stað í bænum, á móti sól,
óskast til leigu 14. maí. Afgr.
v. á.
TAPAЗFUNDIÐ.
Silfur-brjóstnál fundin. Vitja má
á Vesturgötu 20.
Sá, sem hirt hefur skrifuð blöð,
er gleymdust frammi i póststofu
i fyrradag, er beðinn að skila
þeim sem allra fyrst á Skóla-
vörðustíg 16.
10 kr. seðill tapaðist á mið-
vikudaginn síðasta. Afgr. vísar
á eiganda.
KENNSLA
Kennslu f Frakknesku veitir
Adolf Guðmundsson, Vesturg, 14.
(í Fjelagsbakaríinu). Heima frá 4—6
síðdegis,
14 ára telpa óskar eftir annari
i kennslu með sjer, fáar stundir
á viku. Reikn., rjettr. o. fl.
Helgi Salómonsson, Tjarnarg. 18.
Útgefandi
Eirtar Gunnsrsson, cand. phil.
Prentsm, Östlunds,