Vísir - 18.01.1914, Blaðsíða 1
Kemur út alla daga. Sími 400.
Agr. í Hafnarstr. 20. kl. 11 árd.til 8 síðd.
25 blöð (frá 8. jan.) kosta'a afgr. 50 au.
Send út um land 60 au.—Einst.biöð 3 au.
Skrifstofa í Hafnarstræti 20. (uppi),
opin kl. 12—3, Sími 400.
Langbestí augl.staður í bænum. Augl.
sje skilað fyrir kl. 6 daging fyrir birtiugu.
Sunnud. 18. jan. 1914.
Háfl.ki.9,42’árd. og kl. 10,11 ’ síðd.
Afmœli:
Ungfrú Ásta Ólafsdóttir.
Magnús Ólafsson, kökugjörðar-
maður.
Á morgun
Afmœli:
Frú Margrjet Bjarnason.
Guðlaugur Torfason, trjesm.
Sigurjón Jónsson, verslunarmaður.
Póstáœtlun:
Ceres kemur til Reykjavíkur.
Hafnarfjarðarpóstur kemur og
fer.
Biografteafer
Reykjavíkur
Fagrir fjötrar.
Saga leikmeyar fjölleikahússins
í 3 þáttum.
Miss Saharet,
hin víðfræga dansmær,
leikur aðalhlutverkið.
Leikfjelag Reykjavíkur.
í dag (sunnud.) kl. 8. síðd.
Ljenharður
fógeti.
Aðgöngumiðar seldir í Iðnó.
S«ÓMftVÍ'
sunnudag kl. 6V2 síðdegis.
Allir velkomnir. D. Östlund.
í Betel
sunnudaginn 18. jan. kl. síðd.
Efni: Hið mikla friðarríki. Hve•
nœr og hvernig hefst það? Kenn-
ing trúfræðinga og kenning
bibfíunnar því viðvíkjandi.
Allir velkomnir. O. j. Olsen.
Fallegustu líkkisturnar fást
hjá mjer—alltaf nægar birgð-
ir fyrirliggjandi — ennfr. lik-
klæði (einnig úr silki) og lík-
kistuskraut.
Eyvindur Árnason.
9 fkklstur fást venjulega tilbúnar
1 á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og
S gæð
gæði undir dómi almennings. —
Sími 93. — Helgi Helgason.
Sendið augl.
tímanlega.
itofnað Eimskipafjelag Islands.
í gær gerðist sá mikli atburður
í sögu lands vors, að samþykkt
var (í einu hljóði) á mjög fjöl-
mennum fundi og eftir að nægi-
legt fjármagn var tryggt, að stofna
EIMSKIPAFJELAG ÍSLANDS.
Um sögu þessa máls skal vís-
að til ágrips af skýrslu bráða-
birgðarstjórnarinnar, er hjer er
prentað, en hún hafði það verk
með höndum, að undirbúa mál-
ið fyrir fund þennan.
Síðustu dagana hafa verið af
streyma til bæarins menn utan að
landi, óvenjumargir á þessum tíma
árs. það er áhuginn fyrir hinu
mikla velferðarmáli, sem knýr þá,
og löngunin til að vera viðstadda
á iafn heillaríkri stundu. Dagana
fyrir fundinn var skrifstofa und-
irbúningsnefndarinnar troðfull frá
morgni til kvelds af mönnum,sem
voru að borga inn fje og fá að-
göngumiða á aðalfundinn. það
er óvenjulegt að mönnum sje
svona útbært fje sitt, þegar ekki
er vissa fyrir beinum arði, og
mun aldrei hafa verið svo vel og
almennt tekíð í neitt mál, sem
mikil fjárframlög hefur haft í för
með sjer, sem þetta mál, hvorki
með íslendingum heima eða í
Vesturheimi.
Dagurinn rann upp mildur og
fagur. Að eins hægur andvari var
úr austri, mátulegur til þess að
halda uppi íslensku flöggunum,
sem dregin voru á stöng víðsvegar
um bæinn. — Um kl. 11V2 var
kominn allstór mannþyrping fyrir
utan dyr Iðnaðarmannahússins, en
um 10 mínútum síðar var húsið
opnað. Sæti voru í þriðjung húss-
ins og fylltust þau þegar, en fleiri
sæti var ekki hægt að hafa þar, þar
sem þá hefðu ekki komist að allir
fundarmenn, en salurinn varð brátt
fullur þó menn stæðu þjett. — Ekki
er venja hjer að menn sæki fundi
svo stundvíslega, að allir sjeu kornn-
ir á tilsettum tíma, en svo var það
nú í þetta sinn.
Stundvíslega kl. 12 gekk Jón
samábyrgðarstjóri Gunnarsson fram
úr hóp bráðabir;ðarstjórnarinnar og
nokkurra annara nianna, er tekið
höfðu sjer aðsetur uppi á leiksviði
hússins. Hann niælti á þessa leið:
Háttvirta samkoma!
Það er vegna fjarveru formanns
bráðabirgðastjórnar Eimskipafjeiags-
ins, að í minn hlut kom, að setja
fund þennan, sem erstofnfundur hluta-
fjelagsins »Eimskipafjelag íslands«,
! og sem jeg þá hjermeð lýsi yfir
að sje settur. Þar sem jeg lít svo
á, að mitt hlutverk sje aðeins það,
að setja fund þennan, þá sný jeg
mjer alveg formálalaust að því einu,
sem þar til heyrir.
Fyrir hönd bráðabirgðarstjórnar-
innar vil jeg því næst tilkynna fund-
inum, að hún áleit alveg sjálfsagt,
að bjóða Iandsstjórninni, að láta
einhvern af sinni hendi sækja fund-
inn, og sje jeg nú, að ráðherra vor
hefur sjálfur komið og heiðrar fund-
inn með nærveru sinni. Sömuleiðis
bauð hún umboðsmanni landa vorra
í Vesturheimi, herra J. Bíldfell.
Hann kom hingað heim fyrir nokkru
til þess, eins og flestir fundarmenn
vita, að taka þátt í Eimskipafjelags-
stofnuninni, hefur um nokkurn und-
anfarinri tíma unnið að því ásamt
Bráðab.stjórninni, að reyna að gera
lög fjelagsins þannig úr garði, að
allir mættu vel við una, ekki síður
Vestur- en Austur-íslendingar.
Báðir hafa fuiltrúar þessir mál-
frelsi á fundinum.
Það sem þá liggur fyrir, er að
kjósa fundarstjóra, og skiftir miklu,
að það heppnist vel, því hjer ligg-
ur fyrir mikið og all-vandasamt verk-
efni. Það er stungið upp á, að yfir-
dómara Halld. Daníelssyni verði
falin fundarstjórnin, og má í sam-
bandi við það geta þess, seni fiest-
um^hjerstöddum eðlilega er ókunn-
ugt um, að það var einmitt Halld.
yfirdómari, er stýrði fyrsta fundin-
um, sem haldinn var viðvíkjandi
stofnun Eimskipafjel., ánægulegt því
og virðist eiga ágætlega vel við, að
hann einnig stýri stofnfundi þess-
um.
Og skal jeg þá leyfa mjer, að
bera uppástungu þessa undir atkv.
fundarins, og bið þá sem kjósa
Halld. yfird. fyrir fundarstj. að rjetta
upp hendina,
H. D. kosinn rneð öllum greiddum
atkv. Enginn móti.
Meðfram vegna þess, að aiveg
virðist sjálfsagt og nauðsyniegt, að
spara tímann sem mest má og forð-
ast að lengja væntanlegar umræður,
er stungið upp á því, að fundur-
inn feli fundarstjóra, þ. e, hinum
kjörna, — að segja upp og setja fund-
inum Iög, þ. e. fundarsköp þau, er
gilda eiga.
Þeir, sem fallast á uppást., geri
svo vel að rjetta upp hendina.
Bjarni frá Vogi óskaði að fund-
arsköpin yröi borin undir atkvæði
fundarins. Tillagan var borin upp
og felld með 139 atkv. gegn 45
að viðhafðri handaupprjettingu.
Halldór yfirdómari Daníelsson iók
nú við fundarstjórn. Nefndi hann
til fundarskrifara þá Magnús dýra-
lækni Einarsson og Björn yfirdóms-
lögmann Pálsson. Þá gat hann
þess, að er hann hafði verið beðinn
að taka að sjer fundarstjórnina og
dregist á það, þá hafi hann samið
uppkast að fundarsköpum og las
hann það upp og skyldi það vera
fundarsköp þessa fundar.
Var nú komið að 3. máli á dag-
skrá fundarins: »Skýrslu frá bráða-
birgðastjórninni* og tók til máls
Sveinn yfirdómslögmaður BJörnsson.
(Ágrip);
Upphaf þessa máls er, að 22. des.
1812 áttu. fund með sjer 5 menti
um það, hvort tiltækilegt myndi að
koma á stofn íslensku eimskipafje-
lagi, sem gæti tekið að sjer milli-
landaferðir. Leist þeim öllum að
svo mundi vera. Hinn 2. febr.
1913 var aftur haldinn fundur um
sama efni og voru þar 14 menn,
var þá kosin nefnd manna til að
hrinda málinu áfram og í hana
Eggert Claessen yfirdómslögm., Jón
Björnsson kaupmaður, Jón Þorláks-
son verkfræðingur, Thor Jensen kaup-
maður og Sveitin Björnsson yfir-
dómslögmaður. Þeir boðuðu aftur
til fundar 7. mars s. á. og buðu
til alþingismönnuin þeim, sem til
náðist og blaðamönnum.VorualIirþar
sammála um að málinu skyidi haidið
áfram.
Á þeim fundi var lögð fram skýrsla
með upplýsingum þeim, er þá höfðu
fengist málinu viðvíkjandi, og laus-
leg kostnaðaráætlun.
Enn var haldinn fundur unt málið
9. mars og þá boðið til kaupmönn-
um og öðrunt kaupsýslumönnum.
Á þeim fundi var bætt við í nefnd-
ina þeim Jóni Qunnarssyni sam-
ábyrgðarstjóra og Ólafi G. Eyólfs-
syni verslunarskólastjóra.
Þessir menn hafa síðan starfað
að undirbúningi til fjeiagsstofnunar-
innar.—Nefndin sendi 180mönnum í
öllum hreppum og kaupstöðum
landsins brjef og bað þá að standa
fyrir hlutafjársöfnun. Tóku allir því
vel nema tveir, sem neituðu. 80
menn í Reykjavík bað hún um hið
sarna og urðu þeir allir vel við,
Einn ntann í Kaupmannahöfn bað
hún að safna meðal íslendinga þar;
19 heistu mönnum í Winnipegborg
skrifaði hún urn santa efni. Þeir
brugðust mjög vel við, kusu 6 manna
nefnd til að taka sjer ferð á hendur
hingað til lands að kynna sjer málið
nánar. Nú starfar að framkvæmdum
málsins 14 manna nefnd í Wínni-
peg, hefur hún sent hingað fullírúa
sinn, Jón Bíldfeíl fasteignasala, til
skrafs og ráðagerða, mun hann sjálfur